Dagur - 05.01.2001, Side 11
FÖSTUDAGUR 5. JANVAR 2001 - 11
T>Mptr.
ERLENDAR FRETTIR
Palestínskir drengir hylja andiit sín tii að verjast táragasi sem ísraeiskir hermenn beittu i átökum við flóttamanna
búðir á Gaza.
Örbirgðin er vatn á
myllu öfgamanna
Efnahagur Palestínu-
manna er hruninn eftir
tveggja mánaða óeirðir
Á Gazasvæðinu og Vesturbakkan-
um búa þrjár milljónir Palestínu-
manna. Ein milljón þeirra lifir
undir fátækramörkum, sem á
þessum slóðum eru miðaðar við
tekjur sem er undir 176 krónum á
dag. Á jreim tveirn mánuðum sem
liðnir eru síðan óeirðirnar bófust
hefur allur efnahagsávinningur
síðustu Jrriggja ára farið í súginn
og ríflega |iaö. En hagur lands-
manna batnaði ört eftir að þeir
fengu takmarkaða heimastjórn.
Þegar óöldin hófst lokuðu Isra-
elsmenn öllum landamærum Gaza
og Vesturbakkans. Afleiðingarnar
eru að fjöldi smáfyrirtækja varð
gjaldþrota og tveir af hverjum
fimm Palestínumönnum eru at-
vinnulausir. Meðal þeirra eru um
100 þúsund manns sem störfuðu í
Israel, en geta ekki sótt vinnu þar
sem þeint er ekki hleypt yfir landa-
mærin. Störfvið byggingavinnu og
og fleirir framkvæmdir liggja niðri
og útflutningur er enginn.
Við þetta bætist mikið eignatjón
|>ar sem hundruð hcktara af
ávaxtaökrum eru ónýtir vegna þess
að ísraelski herinn hefur farið yfir
J)á með jarðýtum og öðrum jarð-
vegsskemmandi tækjum. Þá hafa
byggingar verið jafnaðar við jörðu
og kerfi orkuveitna og samgangna
orðið fyrir skemmdum. Fjöldi fjöl-
skyldna eru eignalausar og bænd-
ur landalausir.
En sultur sverfur sem ekki að
því búvörur, svo sem kjúldingar,
egg og fiskur er á boðstólum og er
verðlag á þessum tegundum mjög
lágt. En skortur er á hveiti og olíu
til matargerðar.
Ferða- og viðskiptabannið kem-
ur mjög illa við milljón manns á
Gaza og tvær milljónir sem búa á
dreifbýli Vesturbald<ans.
Israelsmenn neita harðlega að
það sé markmið þeirra að skaða
efnahag Palestínumanna sem
mest með því að loka landamær-
um og leyfa enga flutninga á fólki,
vörum né peningum yfir ])au. Það
sé einvörðungu gert í öryggisskvni.
Þeir segjast hvorki treysta leiðtog-
um þeirra né almenningi. Á með-
an óvissuástandið varir ])ykir ekki
óhætt að hleypa 100 ])úsund
Palestínúmönnum daglega inn í
lsrael til starfa þar. Aldrei er hægt
að vita hverjir eru hermdarverka-
rnenn og hverjir nauðsynlegur
vinnukraftur.
En Palestínumenn geta að
nokkru leyti kennt sjálfum sér
hvernig komið er. I upphafi óeirð-
anna lyrir tveim mánuðum lokuðu
þeir sjálfir helstu flutningsleiðum
milli Israels og Gaza. Hermdar-
verkamenn kveiktu einnig í
nokkrum verksmiðjum í eigu Isra-
elsmanna nærri bænum Tulkarm
og ])ar með missti fjöldi Palestínu-
manna vinnu sína.
Síversnandi efnahagsástand á
Vesturbakkanum og Gaza stafar
samt að mestu leyti af aðgerðum
lsraela. Áður en óeirðirnar hófust
voru daglega flutt 3,000 tonn af
sementi til Gaza vegna mikilla
byggingalramkvæmda. Nú fæst
ekki sementspoki fluttur yfir
landamærin. Alls kyns hráefni og
vefnaðarvara sem unnið var úr í
tiitölulega smáum fyrirtækum á
Gaza er bannvara. Af sjálfu leiðir
atvinnuleysi og ekld bætir úr skák
að útflutningur er enginn og tekj-
ur alls þorra Palestínumanna sára-
litlar eða engar.
Auk hryðjuverka á báða bóga
kyndir fátæktin og bjargarleysið
undir tortry'ggni og hatur á báða
bóga og örvinglan fólks á Vestur-
bakkanum og Gaza er síst lil þess
fallin að unnt verði að semja um
frið og er vant á myliu öfga-
mannna sem ekki kæra sig um
friðsanilega sambúð.
Skattalækkun flýtt?
AUSTIN, Texas - Verðandi forseti Bandaríkj-
anna, George Bush íhugar nú að fara þess á leit
við þingið að hraða afgreiðslu sinni á þeim
áformum að lækka skatta um 1.3 milljarða
dollara. Þetta myndi forsetinn gera sem ákveð-
na tryggingu gagnvart þvf að efnahagsástandið
sé að versna, að sögn eins aðalefnahagsráðgjafa
hans í gær. Þessar hugmyndir komu fram hjá
Bush í gær þar sem hann var á fundi með ýms-
um forkólfum úr bandarísku atvinnulífi og var
umræðuefnið hvernig mætti hjálpa „nýja hag-
keríinu" að komast á flug í Bandaríkjunum. Þar
var eitt aðalþemað að skattalækkanir myndu gera mikið gagn.
Arafat ræðir tillögur Clintons
KAIRO (Reuters) - Yasser Arafat, forseti Palest-
ínumanna ráðfærði sig í gær við ýmsa leiðtoga
Arabaríkjanna á fundi í Kaíró í F.gyptalandi um
það hvernig meta bæri tillögur Clintons Banda-
ríkjaforseta. Hann gaf hins vegar ekkert út á
það opinberlega hvort hann teldi þær vera
ásættanlegar eða eldei. Fundahöld Arafats byrj-
uðu í gær með því að hann hitti Hosni
Mubarak, forseta Fgyptalands strax og hann
kom ti! landsins. Það sem málið snýst um eru
tillögur Clintons um að koma á friði milli
Palestínumanna og ísraela áður en Clinton
lætur af embætti, þann 20. janúar næstkom-
andi. Þó enginn deiluaðila hafi beinlínis útilok-
að að slíkt gæti gerst, virðast flestir sammála um að kraftaverk þyrfti til
að ná því fram í tæka tíð, en hins vegar er góður gangur í þessu friðar
frumkvæði Bandaríkjaforseta.
Kjæmaflaugar við Eystrasalt?
VARSJÁ - Pólverjar og stjórnvöld annarra ríkja sem liggja að Kalingrad-
héraði í Rússlandi brugðust í gær af varfærni við fréttum um að Rússar
hefðu flutt meðal - og skammdræg kjarnorkuvopn inn á svæðið við
Eystrasalt. Hernaðarsérfræðingar í Washington sögðu í fyrradag að „ein-
hverjir flutningar skammdrægra kjarnaflauga hafi átt sér stað til Kal-
ingrad,“ en Kalingrad liggur á milli Póllands og Litháen. Stjórnvöld í
Moskvu vísuðu þessum fréttum hins vegar alfarið á bug og sögðu engan
fót fyrir þeim. Bæði stjórnmálamenn og hernaðarsérfræðingar á svæð-
inu segja að ef eitthvað er til í þessum tilfærslum vopna hjá Rússum, þýði
það að stöðugleikanum í öryggismálum sem búið sé að byggja upp á
þessu svæði sé verulega ógnað.
Yasser Arafat.
Tígrar drepa 7 inaims
KHULNA, Banglaoesh - Tígrisdýr hafa drepið sjö
manns í Sundarban í Bangladesh á síðustu 10
dögum að sögn skógarvarða. Fórnarlömb tígranna
hafa ýmist verið sportveiðimenn sem höfðu hugs-
að sér að eiga náðuga stund við árbakkann eða þá
skógarhöggsmenn. I Sundarban eru heimaslóðir
hins konunglega Bengaltígurs, en þarna er víð-
áttumikið skógarsvæði sem teygir sig þvert yfir
suður Bangladesh og inn í indverska héraðið Vest-
ur-Bengal. Talið er að um 3.S00 tígrar séu eftir á Bengaltígur.
þessu svæði og hefur þá fækkað um næstum þús-
und á aðeins 10 árum, einkum vegna veiðiþjófnaðar og auk þess hefur
landiými fyrir dýrin minnkað. Dýraverndunarmenn telja að á milli 200 -
300 tígrisdýr séu drepin ólöglega á hveiju ári.
■ FRÁ DEGI
FÖSTUDAGUR5. JANÚAR
5. dagur ársins, 360 dagar eftir
Sólris kl. 11:16 og sólarlag kl. 15:49
Þau fæddust 5. jauúar
• 1914 - George Reeves leikari.
• 1925 - Hulda Jensdóttir ljósmóðir.
• 1931 - Robert Duvall, leikari.
• 1940 - Iðunn Steinsdóttir rithöfundur.
•1941 -JónOddsson hæstaréttarlögmað-
ur.
• 1946 - Diane Keaton, leikkona.
Þetta gerðist 5. jauúar
• 1643 - Fyrsti skráði hjónaskilnaðurinn í
Ameríku sem þá var nýlenda. Anne Cl-
arke í Massachusetts Bay fékk skilnað
frá Denis Clarke, drykkfelldum og fjar-
verandi manni sínum.
•1931 - Fyrsta barnið fæddist á Lands-
spítalanum, sem tekin var í notkun
tveimur vikum áður.
TIL DAGS
• 1945 - Fyrstu kamikazes árásir jap-
anskra flugmanna fyrirskipaðar. Þetta
voru sjálfsmorðsárásir flugmanna sem
flugu vélum sínum á skotmörkin.
kamikazes þýðir „guðlegur vindur".
• 1946 - Kvikmynd um lýðveldishátíðina á
Þingvöllum frumsýnd, en þetta var fyrs-
ta íslenska kvikmyndin í eðlilegum litum
og með tónum og tali.
• 1968 - Alexander Dubcek komst til
valda í Tékkóslóvakíu og markar þar
með upphaf vorsins í Prag með endur-
bótastefnu sinni.
Vísa dagsins
Yfir kaldan eyðisand,
einn ég suður skálma.
Nú er horfið Norðurland,
nú er ég laus við Pálma.
(Orl í orðastað EyjóIFs Konr. jónssonar eftir að
hann flutti sig um kjördæmi fyrir Sjðlfslæðisfl., frá
Norðurlandi vestra og til Reykjavíkur.)
I
—— J
Afmælisbam dagsins
Davíð Þór Jónsson, ritstjóri og
skemmtimaður, er fæddur á þessum
degi árið 1965. Hann Iagði stund á guð-
fræðinám við Háskóla Islands, en hefur
aldrei tekið vígslu né hlotið kjól eða
kall. Það er einkum í skemmtiiðnaðin-
um sem Davíð Þór hefur starfað, best er
hann þekktur sem annar af tveimur f
tvíeykinu Radíusbræðrum þar seni hitt
hjólið undir vagninum var Steinn Ar-
mann Magnússon. Síðustu ár hefur
Davíð Þór starfað sem ritstjóri Bleiks og
blás.
Heilabrot
Hvað er það sem hefur verið dautt í þús-
undir ára en þó ekki verið grafið ennþá?
Lausn á síðustu heilabrotum: Tíminn
Veffang dagsins
Nýlega opnaði Hrafn Sæmundsson fv. al-
vinnumálafulltrúi í Kópavogi heimasíðu á
Netinu og í tilkynningu frá Hrafni segir að
þessi síða sé rekin af. nýbökuðum eft-
irlaunamanni sem telur að „áhy'ggjulaust"
ævikvöld séu ekki eftirsóknarverð lífsgæði.
Segir að á síðunni verði myndefni, sináljóð
og fleira slfkt, en ekki venjulegt dægurdras.
Slóðin að síðunni er www.kuml.is