Dagur - 05.01.2001, Side 20

Dagur - 05.01.2001, Side 20
20 - FÖ S TUnAGUH 5 . J ANÚAR 2 0 0 1 rD^r Ungir söngvarar í Salnum Fyrstu TÍBRÁR tónleikarnir í Salnum á nýrri öld veröa haldnir sunnudagskvöldið 7. janúar 2001. Við slaghörpuna er Jónas Ingimundarson en með honum í för að þessu sinni eru fjórir söngvarar af yngri kynslóðinni. Söngkonurnar eru tvær, Hulda Björk Garðarsdóttir sópran og Sesselja Kristjánsdóttir mezzó- sópran, en auk þeirra hefja uþp raust þeir GarðarThór Cortes tenór og Ágúst Ólafsson baritón. Þetta unga fólk hefur dvalið víða í Evrópu við söng undanfarin ár og hafa þau öll vakið veru- lega athygli hvert á sínum stað (Berlín, London, Helsinki). Efnisskrá tónleik- anna er fjölbreytt og glæsileg og tón- leikagestir geta átt von á nýbreytni sem kemur á óvart. Miðasala á tónleik- ana er í Salnum, Tónlistarhúsi Kópa- vogs, Hamraborg 6, Kópavogi. Sex myndlistamenn Sex myndlistamenn, þeir Birgir Snæbjörn Birgisson, Ed Hodgkinsson, Jóhann Ludwig Torfason, Peter Lamb, Sigrið- ur Ólafsdóttir og Þorri Hringsson opna samsýningu á verk- um sínum í Gerðarsafni í dag, föstudagínn 5. janúar. Verkin eiga það sameiginlegt að vera fígúratíf með sterkri samfé- lagslegri tilvísun þótt viðfangsefni hvers og eins séu mismun- andi. Birgir Snæbjörn sýnir myndröð af Ijóshærðum hjúkrun- arfræðingum, Jóhann Ludwig frumgerðir af leikföngum sem hann hefur fundið upp og Sigríður Ólafsdóttir fjölskyldu- myndir af vinum og vandamönnum. Þorri Hringsson málar margræð verk af mat, Peter Lamb vinnur með dæmigerð bresk tákn, svo sem kráarskildi, skjaldarmerki og veiðiminja- gripi og viðfangsefni Ed Hodgkinson er mannslíkaminn. Þrettándagleði Þórs Þrettándagleði Þórs verður haldin á Þórssvæðinu við Skarðshlíð laugardaginn 6. jan- úar og hefst hún klukkan 17.00. Að venju mæta jólasveinarnir til að kveðja og í fylgd þeirra verða álfakóngur og - drottníng, púkar, Ijósálfar, tröll og aðrirvættir. Hinn ungi söngmaður Hafþór Magni syngur. Landsþekktir skemmtikraftar skemmta. Kveikt verður á brennu og jólin kvödd með stórglæsilegri flugeldasýningu. Aðgangseyrir er kr. 600 fyrir 6 ára og eldri. ÞAD ER KOMIN HELGI Hvað ætlar þú aö gera? Haraldur Örn Úlafsson. Jóna Úsk Vign/sdóttir. Hrísey og skíði Kristján L. Möller. „Þetta getur orðið annasöm og fjölbreytt helgi,“ segir Siglfirðingurinn, Kristján L. Möller þingmaður Samfylkingar. „Sjálfsagt koma vinir í heimsókn hingað á föstudags- kvöldið eða ég fari til þeirra, svona úr því ég er hér heima á Sigló. A laugardag þarf ég að fara til Iíríseyjar, þar sem ég verð við jarðar- för, en ferðina ætla ég líka að nota til að hitta fólk á staðnum. Um kvöldmatarleytið ætla ég að vera aftur kominn heim og þá vonumst við hjónin til að strákarnir okkar verði búnir að mathúa míkla villigæs sem við eigum - en um kvöldið verður venju samkvæmt þrettánda- gleði hér í bænum sem Kiwanismenn standa að. Sunnurdagurinn ætla ég að vona að bjóði uppá blíðviðri og skíðafæri, en um kvöldið liggur svo fyrir að keyra til Reykjavíkur þar sem skvldan kallar.“ Bíó og ísklifur „Ég lagðist í kvef og veikindi, en að ég nái mér úr þeim stjórnar því hvað ég geri um helgina," segir Haraldur Orn Olafsson, Norð- urpólsfari og lögfræðingur. „Ætlunin var sú að fara í ísklifur í Esjunni með félaga mínum úr islenska alpaklúbbnum, en þá mundum við klffa upp áttatíu metra hátt ísstálið með reipum, öxum og broddum. En þessi ferð er annars undir heilsunni komin. Síðan mun ég sjálfsagt líta eitthvað í hók um helgina og jafnvel fara í bíó, og þar hlýtur efst á blaði mínu og konu minnar að verða myndin Unbr- eakble með Bruce Willis sem nú er sýnd í Sambíóunum." Litið í Dís ,Ætli ég verði ekki bara að vinna um helg- ina,“ segir Jóna Osk Vignisdóttir, kaupmaður í versluninni Esju við Strandgötu á Akureyri. „Einhverjar stundir koma þó sjálfsagt inn á milli stríða og þá verður gott að komast heim ti! þess að sinna því sem þar bíður, börnum og húi, en einnig hreinlega til þess að slappa af. Það geri ég til dæmis með því að líta í hók, þessa dagana er ég að lesa bókina Dís, sem kom út fyrir jólin. Er að vísu ekki langt komin í bókinni, en það litla sem er þá finnst mér hún lofa góðu og vera raunsönn." ■ HVAD ER Á SEYDI? HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ TÓNLIST Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Islands Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands verða í Laugardalshöllinni í kvöld kl. 19.30 og endurteknir á morgun laugardag kl. 17.00. Stjórn- andi á tónleikunum er Peter Guth og einsöngvari Arndís Halla Asgeirsdótt- ir. Að þessu sinni verða númeruð sæti í Laugardalshöllinni. Skálað í kampa- víni áður en ballið byrjar. Jónas Sen. Kórtónleikar í Kópavogskirkju Kórtónleikar verða í Kópavogskirkju á þrettándanum, laugardaginn 6. des- ember kl. 16. Kór Kópavogskirkju og Samkór Kópavogs flytja fjölbreytta dagskrá ásamt einsöngvurunum Hall- dóri Björnssyni og Ian Wilkinsson baritónsöngvurum og Onnu Þ. Haf- berg sópransöngkonu. Undirleikarar eru Jónas Sen og Julian Hewlett, sem einnig er stjórnandi á tónleikunum. Aðgangseyrir er kr. 500. Fyrstu TÍBRÁR tónleikarnir á nýrri öld Sunnudagskvöldið 7. janiiar verða haldnir fyrstu TIBRAR tónleikarnir á nýju ári 2001. Við slaghörpuna er Jónas Ingimundarson en með honum í för að þessu sinni eru fjórir söngvar- ar af yngstu kynslóðinni. Söngkon- urnar eru tvær, Hulda Björk Garðars- dóttir sópran og Sesselja Kristjáns- dóttir mezzósópran, en auk þeirra hefja upp raust þeir Garðar Thór Cortes tenór og Ágúst Ólafsson baritón. SÝNINGAR Helgi Þorgils - afrakstur 2000 Helgi Þorgils Friðjónsson er einn af kunnustu myndlistarmönnum okkar Islendinga. Ilann opnar málverkasýn- ingu í galleríi Sævars Karls laugar- daginn 6. janúar kl. 14.00. Við opn- unina verður boðið upp á veitingar og gestir fá að kynnast listamanninum og sjá afrakstur hans ársins 2000. Listasafn Reykjavíkup - Kjarvalsstaðir Sunnudaginn 7. janúar lýkur áhrifa- mikilli sýningu á samtímalist frá Suð- ur-Afríku. Yfirskrift sýningarinnar er A.r.e.a.2000(Art Region End of Af- rica) og endurspeglar hún á raunsannan hátt þær afleiðingar sem nýlendustefnan hefur haft á listsköp- un samtímalistamanna. Á sýningunni gefur að líta verk ólíkra miðla; mál- verk, höggmyndir, innsetningar og videoverk. Listamenn sem eiga verk á sýningunni hafa verið valdir af Gavin Young, prófessor við Listadeild Háskólans í Cape Town í Suður-Afr- íku og Eiríki Þorlákssyni, forstöðu- manni Listasafns Reykjavíkur. Boðið cr upp á leiðsögn um sýninguna kl. 1 5:00 sunndaginn 7. janúar. Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhús Sunnudaginn 7. janúar lýkur Ijós- myndasýningunni Undir bárujárns- boga - Braggalíf í Reykjavík 1940- 1970. Sýningin er sett upp í tengsl- um við samnefnda metsölubók eftir Eggert Þór Bernharðsson sagnfræð- ing og hefur vakið gríðarlega athygli. Myndunum á sýningunni er það sam- merkt að fanga á áhrifamikinn hátt hversdagslegt líf Reykvíkinga á eftir- stríðsárunum og allt til 1970 þegar búseta í bröggum var hverfandi. Ljós- myndirnar á sýningunni eru eftir Helgu Hansen (1916-1987) bragga- búa, Jón Bjarnason frá Laugum (1909-1967) og Pál Sigurðsson, en myndir hins síðastnefnda þykja mikl- ar gersemar og hafa margar hverjar ekki komið fyrir augu almennings áður. Leiðsögn verður um sýninguna sunnudaginn 7. janúar kl. 16:00. Listhús Ófeigs Nú stendur yfir í listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5, sýning Sígríðar Ólafsdóttur á textílhönnun og colla- gemyndum. Sýningin stendur til 16. janúar. OG SVO HITT... Er skynsamlegt að vera dyggur, trúr og tryggur? Laugardaginn 6. janúar kl. 14.00 flytur Logi Gunnarsson, fyrirlestur á vegum Heimspekistofnunar Háskóla Islands og ReykjavíkurAkademíunnar, í húsakynnum akademíunnar við Hringbraut 121. Fundarstjóri verður Salvör Nordal. I fyrirlestrinum mun Logi fjalla almennt um efni nýtúkom- innar bókar sinnar Making Moral Sense. I þessari bók er tekist á við spurningar eins og Er skynsamlegt að hegða sér siðlega? Getur skynsemin ein leyst siðferðileg ágreiningsefni? Hvað greinir á milli skynsamlegra og óskynsamlegra athafna? Logi er lekt- or í heimspeki við Humboldt-háskól- ann í Berlín. Félag eldri borgara í Reykjavík Baldvin Tryggvason verður til viðtals um fjármál og leiðbeiningar um þau mál á skrifstofu FEB fimmtudaginn 11. janúar kl. 11-12. Panta þarf tíma. Hananú-gönguhópur Félags eldri borgara í Kópavogi mætir í Ásgarð Glæsibæ í boði Göngu-Hrólfa laug- ardaginn 13. janúar kl. 10.00, hóp- arnir ætla að eiga notalega og skemmtilega samverustund. Upplýs- ingar á skrifstofu FEB í síma 588- 2111 frá kl. 10.00 til 16.00. Sannleiksgildi heimilda Þriðjudaginn 9. janúar heldur Anna Agnarsdóttir, dósent í sagnfræði við Háskóla Islands, fyrirlestur í hádegis- fundaröð Sagnfræðingafélags Islands sem hún ncfnir „Sannleiksgildi heim- ilda“. Fundurinn fer fram í stóra sal Norræna hússins, hann hefst

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.