Dagur - 26.01.2001, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 2 6. J ANÚ AR 200 1 - S
FRÉTTIR
Viljiun fá vetrar-
M til ferðalaga
Magnús Oddsson ferðamálastjóri og Tómas Ingi Olrich, formaður
Ferðamálaráðs kynna könnunina fyrir fjölmiðlum í gær.
Yfir 80% íslendinga
ferðuðust um ísland í
fyrra eu bara um há-
sumarið og notfærðu
sér sáralítið þá að-
stöðu og afþreyingu
sem þarf að horga
fyrir.
Nær 70% landsmanna segjast
munu nýta sér möguleika á \áku-
löngu vetrarfríi til ferðalaga, þ.a.
2/3 til utanferða, samkvæmt nið-
urstöðum ítarlegrar könnunar á
ferðalögum og ferðatilhögun ís-
lendinga í eigin landi, sem Gall-
upp gerði fyrir Ferðamálaráð, en
hugmyndir um vetrarfrí komu
m.a. inn í sambandi við kennara-
samningana.
Ferðast aðallega í júli
Segja má að forsvarsmenn ráðs-
ins hafi rekið í rogastans yfir hel-
stu niðurstöðum könnunarinnar.
Eftir að fagna því hve vel hafi
tekist að dreifa ferðamannatím-
anum yfir árið og sífellt fjöl-
breyttari afjrreyingarmöguleika
kom nefnilega í Ijós að íslend-
ingar sjálfir ferðast bara í júní,
júlí og ágúst (og nokkrir um
páska) og nýta afþreyingarmögu-
leika sáralítið, utan hvað rúmur
fjórðungur brá sér í sund. Land-
inn aflar sér engra upplýsinga
heldur leggur bara af stað á í sfn-
um eigin fjallabíl, langoftast í
júlí, gistir aðallega hjá ættingjum
og vinum en annars helst í sum-
arbústað eða tjaldi, fer kannski í
smáspássitúr ef vel viðrar og
nærist á nesti eða skyndibitum
og sælgæti. A.m.k. sögðust
minna en 2% ferðalanga síðasta
árs hafa farið á alvöruveitinga-
hús sér til yndisauka.
Eyða litlu
lslendingar ferðast þó heilmikið.
Um 81% (76% Reykvíkinga en
87% landsbyggðarmanna) ferð-
aðist innanlands í fyrra (til ferð-
ar telst aðeins ef gist er a.m.k.
eina nótt utan heimabyggðar),
að meðaltali 5 sinnum og í meira
en 80% tilfella á einkabílnum.
Lengsta ferðin var að jafnaði
rúmir 5 dagar og nteðaleyðsla á
fjölskvldu (m.v. tvo fullorðna og
eitt barn) var 35.000 kr., eða að
jafnaði 2.300 kr. á mann á dag.
Aðrar ferðir voru enn ódýrari.
Og kannski að vonum. Rúmur
fimmtungur fór í gönguferð/fjall-
göngu eða skoðaði náttúruna á
annan hátt sem oftast er ókeypis
á Islandi. Hins vegar sóttu að-
eins 6% söfn í ferðinni, bara 5%
fóru á veiðar eða í bátsferðir,
rúm 3% á tónleika og leikhús og
enn færri í golf eða hestaferðir
og 2% á bi'ó. Aðeins 1% til 1,5%
fóru í jeppaferðir, á skíði, snjó-
sleðaferðir eða listsýningar. Og
ennþá færri í hvalaskoðun og
fljótasiglingar. Ferðamálastjóra,
Magnús Oddsson, grunar að
landinn haldi mun þéttar utan
um budduna á ferðum sínum
innanlands heldur en þegar
hann er kominn til annarra
landa.
Sallarólegir í sumar
husimmn
Könnunin bendir Iíka til þess að
sumarbústaðalíf Islendinga sé
frekar einfalt og rólegt. Að
minnsta kosti hafði minna en
þriðjungur þeirra sem dvöldu í
sumarhúsum greitt fy'rir nokkra
afþreyingu á meðan á ferðinni
stóð og þá aðallega aðgangseyTÍ
að sundlaug en lítið þar fyrir
utan.
Ferðamálastjóra fundust það
líka æðidaprar niðurstöður að
42% íslenskra ferðalanga gátu
ekki tekið undir þá fullyrðingu
(spurningu Gallup) að fjölbreytt-
ir afþeyingarmöguleikar stæðu
ferðamönnum til boða og að
52% gátu ekki tekið undir það að
aðbúnaður á ferðamannastöðum
á landinu væri góður. Hann
undraðist líka að 1 5% innlendra
ferðamanna höfðu heimsótt ein-
hverja þeirra 42 upplýsingamið-
stöðva sem komið hefur verið
upp víða um landið fyrir ærinn
pening. _ - HEI
Hæstiréttur dæmir lögfræðinga til
að greiða eina og hálfa milljón
króna skaðabætur fyrir vanrækslu
þeirra í störfum.
Vanræksla
lögmanna
Hæstiréttur hefur dæmt feðgin-
in og lögfræðingana Hafstein
Hafsteinsson og Hrund Haf-
steinsdótttur til að greiða Pálínu
M. Poulsen eina og hálfa milljón
króna skaðabætur fyrir van-
rækslu þeirra í störfum. Feðgin-
in höfðu áður verið sýknuð í
undirrétti. Krafa Pálínu var upp
á tæpar fimm milljónir.
Pálína veitti Hafsteini árið
1991 umboð til að gæta hags-
muna sinna að því er varðaði
bótarétt vegna meiðsla er hún
hlaut við slys sem hún varð fyrir
við vinnu hjá fýrirtæki. Haf-
steinn lét af rekstri lögmanns-
stofu sinnar 1993 og tók dóttir
hans Hrund við málinu. 1994
fékk Hrund gjafsóknarleyfi fyrir
Pálínu, en höfðaði ekki mál.
Hún lýsti ekki heldur kröfu
Pálínu í þrotabú viðkomandi
fyrirtækis, fyrr en mánuði frá
lokum kröfulýsingarfrests.
Hæstiréttur komst að þeirri nið-
urstöðu með hliðsjón af þeirri
ríku ábyrgð sem lögmenn bera
gagnvart skjólstæðingum sínurn
hefði aðgerðarleysi Hafsteins
ekki verið nægilega réttlætt í
málinu og telja yrði að Hrund
hefði ekki brugðist eins skjótt
við og vænta mætti af starfandi
lögmanni. - FÞG
Óheimilt var að
yfirfæra skattatap
Hæstiréttur hefur staðfest úr-
skurð ríkisskattstjóra lrá 1997,
um að Matvælaiðjunni Strýtu
hafi ekki verið heimilt í skatt-
framtali 1996, að nýta til frá-
dráttar skattskyldum tekjum sín-
um yfirfæranlegt rekstrartap
Kirkjusands hf. upp á rúmar 194
milljónir króna. Hins vegar er
felldur úr gildi sá hluti úrskurðar
ríkisskattstjóra sem lýtur að end-
urákvörðun opinberra gjalda
stefnanda, Samherja hf., er varð-
ar gjaldaárið 1997.
Kirkjusandur og Strýta sam-
einuðust á árinu 1996 undir
nafni Strýtu. Hið nýstofnaða f\'r-
irtæki sameinaðist síðar sama ár
limm öðrum fýrirtækjum undir
nafni Samherja, sem tók þá vfir
skattaleg réttindi og skyldur
Strýtu. Við samruna Strýtu og
Kirkjusands var hluti taps Kirkju-
sands nýttur á framtali til frá-
dráttar skattskyldum tekjum
Strýtu gjaldaárið 1996 og af-
gangurinn gjaldaórið 1997 í
framtali Sumherja, Ríkisskatt-
stjóri felldi niður tap sem fært
hefði verið til frádráttar tekjum
Strýtu. Hæstiréttur féllst á að
um skyldan rekstur umræddra
fyrirtækja hefði verið að ræða og
að hið yfirfærða tap hafi myndast
í sams konar rekstri. Samruninn
taldist hafa verið gerður í eðlileg-
um og venjulegum rekstrartil-
gangi, en ekki í þeim eina til-
gangi að ná fram skattalegu hag-
ræði. Ríkið á að greiða Samherja
eina milljón króna í málskostn-
að. - l-ÞG
SparisjóðabanM borgi
Hæstiréttur hefur staðfest undir-
réttardóm um að Sparisjóða-
banki Islands skuli greiða Einari
Péturssyni liðlega 19 milljónir
króna, en málið laut að samningi
um framleiðslulán sem Rauðsíða
ehf í Bolungarvík gerði við Spari-
sjóð Bolungarvíkur og Sparisjóð
Þingeyrarhrepps.
Sparisjóðirnir óttu samkvæmt
samningnum að fá til innheimtu
allar kröfur Rauðsíðu á hendur
kaupendum veðsettra afurða,
nema sérstaklega yrði samið um
annað. Rauðsíða seldi 4. maí
1999 um 311 tonn af frystum
þorski með skilmálum sem lýst
var í sfmskeyti frá Einari, 7. sarna
mánaðar, en hann seldi eða hafði
milligöngu um sölu fisksins til
erlends kaupanda gegn hankaá-
byrgð, sem Sparisjóðabankinn
hafði milligöngu um að fá greid-
da. Þegar greiðsla barst Spari-
sjóðabankanum var henni ráð-
stafað til Sparisjóðs Bolungarvík-
ur í andstöðu við fyrirmæli Ein-
ars, sem hafði ætlað sér þó
nokkurn hluta fjárins til endur-
greiðslu útlagðs kostnaðar og
umboðslauna. Talið var að eftir
orðanna hljóðan hefði si'mbréf
Einars ekki falið í sér yfirlýsingu
um að bankaábyrgðin væri fram-
seld, heldur skuldbindingu Ein-
ars til að framselja hana síðar
þegar nánar tilgreind atvik hefðu
gerst. - FÞG
Ný raimsóknastofa
Ný rannsóknaaðstaða
Prokaria verður opnuð í
húsakynnum fyrirtaekis-
ins í Grafarvogi í gær.
Opnunin var óvenjuleg
og fólst í því að Geir H.
Haarde, fjármálafáð-
herra, opnaði rannsókna-
stofuna með því að búa
til rjúkandi efnablöndu.
Prokaria er líftæknifyr-
irtæki sem notar nýjustu
tækni við rannsóknir á
erfðavísum úr íslenskri
náttúru. Markmið tyrir-
tækisins er að þróa ný Iíf-
efni til margvíslegra nota
og skapa verðmæti og þekkingu. Prokaria virkjar hugvit og mannauð
íslenskra vísindamanna og leggur áherslu á náttúruvernd og sjálfbæra
nýtingu náttúruauðlinda.
Háskólapróf í viðskiptafræði á
Bifröst
Björn Bjarnason, menntamálaráðherra, Runólfur Agústsson, rekt-
or Viðskiptaháskólans á Bifröst og Guðjón Auðunsson, formaður há-
skólastjórnar, undirrituðu í dag í fyrsta skipti sérstakan samning um
kennslu til fyrsta háskólaprófs á sviði viðskiptafræða við Viðskiptahá-
skólann á Bifröst, ásamt yfirlýsingu um rannsóknar-, þróunar- og
nýsköpunarverkefni við skólann. Geir H. Haarde, fjármálaráðherra,
hefur áður staðfest santninginn fyrir hönd ríkissjóðs.
Brjálaður vísindamaður? Nei, Geir Haarde að
opna rannsóknarstofu Prókaria í gær.