Dagur - 26.01.2001, Blaðsíða 12
12 - FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2001
rD^tr
FRÉTTASKÝRING
Flúði vegiia laiman
Nýtt mál gegn Akur-
eyrarbæ þar sem bær-
inn er enn saJkaður um
að hafa brotið jafn-
réttislög á fyrrum
starfsmanni. Hrina
kærumála gæti verið
framundan á lands-
vísn vegna nieiiitrar
mismununar kynj-
auua. Akureyrarbær
sagður hafa stuðlað að
niðurlægingu leik-
skóladeildar st j óra.
Valgerður Bjarnadóttir, fram-
kvæmdastýra Jafnróttisstofu, seg-
ist ekki skilja af hverju Akureyrar-
bær skirrist við að leiðrétta laun
kvenna þrátt fyrir að fordaemis-
gefandi úrskurður í svokölluðu
jafnréttismáli hafi fallið. I gær var
íyrirtaka nýs máls í Héraðsdómi
Norðurlands, þar sem fyrrverandi
deildarstjóri leikskóladeildar Ak-
ureyrarbæjar krefst bóta sem
nema nálægt níu milljónum
króna með dráttarvöxtum. I
næstu viku mun falla dómur í
annað skipti í máli Ragnhildar
Vigfúsdóttur, fyrrum jafnréttis-
fulltrúa og samkvæmt upplýsing-
um Dags gæti verið von á hrinu
mála víða um land, þar sem talið
er að jafnréttislög hafi verið hrot-
in með Iaunamismunun kynj-
anna.
Með ólikindum
„Það er með ólíkindum að Akur-
eyrarbær skuli láta svona mál fara
í hart fyrir dómstólum í stað þess
að greiða þann launamismun
sem konur í æðstu embættisstörf-
um bæjarins hafa goldið fyrir.
Það er búið að leggja út í mikla
vinnu og kostnað með þessu for-
dæmisgefandi máli Ragnhildar og
bærinn tapaði því íyrir Hæsta-
rétti. Eina skýringin sem ég hef á
þessum þvergirðingshætti bæjar-
ins er að hann vilji Ietja konur til
að fara í dómsmál. Það þarf þor
til að höfða opinbert mál og stan-
da í þeirri baráttu sem fylgir
málaferlum," segir framkvæmda-
stýra Jafnréttisstofu, Valgerður
Bjarnadóttir.
Starfsmat til grundvallar
A Selfossi hefur komið upp svip-
að mál og herma heimildir Dags
sem fyrr segir að sveitarfélög víða
um land kunni að þuría að húa
sig undir veigamiklar launaleið-
réttingar. í gær var það Ingibjörg
Eyfells, fyrrum deildarstjóri leik-
skóladeildar Akureyrar, sem sat í
dómsal og krafðist réttar síns.
Hún hætti vinnu vegna óánægju
með kjör sín árið 1997 og höfðar
nú mál tæpum Ijórum árum síðar
sem byggist á fordæmi Ragnhild-
' . > . -i
Ingibjörg Eyfells sagði upp deildarstjórastöðu sinni hjá Akureyrarbæ og flúði íkjölfarið til Reykjavíkur vegna óánægju. „Hneisa" og „niðurlæging" voru orð sem
máls gegn Akureyrarbæ í gær, þar sem kært er fyrir brot á jafnréttislögum. - mynd: brink
arúrskurðarins. Hæstiréttur
komst að þeirri niðurstöðu að
samkvæmt starfsmati hefði hær-
inn átt að greiða Ragnhildi sömu
laun og karli sem gegndi stöðu at-
vinnumálafulltrúa hjá bænum.
Lögmaður Ingibjargar telur jafn-
framt að Ingibjörg hefði átt að fá
sömu laun og atvinnumálafulltrúi
en um ræðir tímabilið frá 1991-
1997. Töluverður kjaramunur var
á að þessum tveimur störfum að
því er fram kom fyrir héraðsdómi
í gær.
Jakob fastagestur
Jakob Björnsson, fyrrverandi bæj-
arstjóri, lenti f því óskemmtilega
hlutverki í gær í annað skipti á
nokkrum dögum að vera leiddur
fram sem vitni í kjaradómsmálum
fyrrum starfsmanna og bæjarins.
Einnig var Baldur Dýrfjörð, fyrr-
um bæjarlögmaður, kallaður fyrir
sem vitni í annað skipti á skömm-
um tíma og auk þeirra mættu
nienn fyrir dóminum í gær eins
og Halldór Jónsson, fyrrverandi
bæjarstjóri á Akureyri, Dan
Brynjarsson, fjármálastjóri bæjar-
ins og Valgerður Bjarnadóttir hjá
Jafnréttisstofu. Kristján Þór Júlí-
usson, núverandi bæjarstjóri er
hins vegar stikkfrír í þessu máli
enda tók hann ékki við bænum
fyrr en ári eftir að Ingibjörg hætti.
Kristján Þór er hins vegar aðal-
maðurinn í þeirri atburðarás að
Ragnhildarmálið fór alla leið til
Hæstaréttar. Jakob Björnsson,
sem starfaði á undan Kristjáni,
hefur sagt fyrir dómi, að hann
hafi mjög viljað leita sátta við
Ragnhildi en nýr meirihluti sjálf-
stæðismanna og F-Iista taldi ekki
hægt að semja.
Jafnréttisstýran sjálf í mál?
Talið er líklegt að Valgerður muni
sjálfhöfða mál á hendur Akureyr-
arbæ frá þeim tíma sem hún geg-
ndi stöðu jafnréttis- og fræðslu-
fulltrúa. Einnig hefur nafn Guð-
rúnar Sigurðardóttur sem gegndi
lykilstöðu hjá bænurn á svipuðum
tíma verið nefnt en þetta er ekki
staðfest. Hins vegar kom í Ijós
fyrir dóminum í gær að sættir
höfðu ekki verið reyndar í máli
Ingibjargar Eyfells gegn bænum
eftir að stefna kom fram. Bæjar-
lögmaður, Hákon Stefánsson,
sagðist ekki hafa haft umboð til
þess en Freyr Ofeigsson dóm-
stjóri lagði við upphaf fyrirtök-
unnar til að það yrði reynt.
Reyndi ítrekað
Fram kom fyrir dóminum að Ingi-
hjörg fékk tvívegis afturvirka leið-
réttingu á launum en hún telur
sig hafa átt rétt á miklu meira. Þá
báru vitni að hún hefði ítrekað
lýst kjaraánægju sinni og gert
hvað hún gat til að fá úrbætur.
Bréfaskriftir vegna þess máls
voru hins vegar nokkuð einhliða
og lítið um viðbrögð og skiptir
þetta allt máli vegna þess að tóm- 1
læti getur haft áhrif á niðurstöðu
dóms. Harla ólíklegt verður að
teljast að það geti átt við í þessu
tilviki.
Flúði úr bænum
Lögmaður lngibjargar, Elínborg
J. Björnsdóttir, vísaði í Ragnhild-
ardóminn í gær og nefndi starfs-
matið sem höfuðorsök málshöfð-
unarinnar. Starfsmat var gert á
vinnu Ingibjargar en Ieiðréttingar
urðu ntinni en ástæður voru fyrir
Valgerður Bjamadótt-
ir, framkvæmdastýra
Jafnréttisstofu, segist
Æl ^ ekki skilja af hverju
Akureyrarbær skirr-
ist við að leiðrétta
raw v.: IV.. /|W; 1 laun kvenna þrátt fyr-
. jjmL ir að fordæmisgef-
ÆrntÉL . mmM andi úrskurður í
svokölluðu jafnréttis-
rmt sFmSémm máli hafi fallið.