Dagur - 26.01.2001, Blaðsíða 7

Dagur - 26.01.2001, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2001 - 7 ÞJÓDMÁL Ber er hver að baM nema BjSm sér eigi SIGUKDUK G. GUÐJONS SON HÆSTARÉTTAR- LÖGMAÐUR SKRIFAR í þessum mánuði eru sex ár liðin síðan Björn Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og mennta- málaráðherra, hóf að birta pistla á heimasíðu sinni á Netinu. Afmæl- inu fagnaði Björn í pistli þann 13. janúar sl. El’ni þeirra pistla, sem birtst hafa á þessum sex árum, er í meginatriðum tvíþætt: Annars veg- ar lof um hann sjálfan og þá sem honum eru þóknanlegir og hins vegar árásir, aðdróttanir eða róg- burður um andstæðinga eða ímyndaða andstæðinga. Pistlarnir gefa til kynna að ráðherranum líði ekki vel og sjái í raun heiminn enn þá í sauðalitunum líkt og forðum þegar hann, sem blaðamaður, stóð fyrir Kaklstríðsskrifum. Doktor bullar Menntamálaráðherrann er að þessu leyti eins og leikfélagi hans og góðvin, doktor Hannes Hólm- steinn Gissurarson, þó ekki sé hann eins argur og prófessorinn. Doktor Hannes Hólmsteinn bull- ar, eins og honum er einum lagið, í það minnsta eitt kvöld í viku á sjónvarpsstöðinni Skjáeinum. Sú sjónvarpsstöð er með einum eða öðrum hætti í eigu fjárhúsfélag- anna þeirra, Páls Kristjáns Páls- sonar og svokallaðra Hagkaups- bræðra. En annar þeirra í það minnsta hefur í gegnum tíðina ásamt Páli Kristjáni séð um inn- heimtu tíundar frá einstaklingum og fyrirtækjum í sjóði Sjálfstæðis- flokksins. Sjóði, sem gætt er af Kjartan Gunnarssyni, fram- kvæmdastjóra og hitlingaþega flokksins, sem nú um stundir kem- ur ýmist fram í gervi hins hlutlausa stjórnvalds, sem formaöur þing- kjörinnar útvarj)sréttarnefndar, til- nefndur gæslumaður ríkiseigna, sem bankaráðsmaður í Lands- banka Islands hf., eða stjórnar- maður í Frjálsri ijölmiðlun hf., út- gefanda hins óháða og frjálsa DV, sem er m.a. eigu Eyjólfs Sveins- sonar fyrrum aðstoðarmanns Dav- íðs, leiötoga Sjálfstæðisflokksins, og m.a. undir ritstjórn Ola Björns Kárasonar sjálfstæðismanns. SamkruK ílokks og fjölmiðla Þetta opinbera samkrull fjár- magns- og forðagæslumanna Sjálf- stæðisflokksins og einkarekinna fjölmiðla er rakið hér af gefnu til- efni frá menntamálaráðherranum í afmælispistlinum, en þar segir hann: „Jón Olafsson, einn aðaleigandi Stöðvar 2, er sá í hópi stóreigenda innlendra fjölmiðla, sem helst hef- ur látið að sér kveða á gráu svæði milli fjölmiðla og stjórnmála hin síðari ár. Hann hefur nú tök á ljós- vakamiðlum fyrir utan RUV og Skjáeinn, en uppgangur þeirrar stöðvar síðasta ár er undraverður, því tekjur hennar byggjast aðeins á auglýsingum og hefur hún boðið bæði RÚV og Stöð 2 birginn með innlendu efni, náð betur til unga „Menntamálaráðherra, Björn Bjarnason, getur eftir þessa nýjustu árás sína á Jón Ólafsson og íslenska útvarpsfé- lagld hf., sem á og rekur Stöð 2, ekki talist trúverðugt og hæft stjórnvald til að fjalla á málefnalegan og hlutlæg- an hátt um álitaefni, sem kunna að koma upp og tengjast útvarpsrekstri á íslandi. Menntamálaráðherrann getur hins vegar huggað sig við, að hann er þar ekki einn á báti, því í sömu átt til vanhæfis rær með honum Kjartan Gunnarsson, formaður útvarpsréttarnefndar, þó hann hafi enn ekki skynjað það sjálfur, “ segir Sigurður G. Guð- jónsson m.a. í grein sinni. fólksins enn þessar stöðvar og gef- ið nýjan tón í mörgu tilliti. Spútnik á borð við Skjáeinn gerir Stöð 2 frekar skráveifu en RÚV, þegar til lengdar lætur auk þess sem Stöð 2 kann að hefja píslargöngu vinstrisinnuðu dagblaðanna verði andrúmsloftið í kringum hana hið sama og þeirra, vegna framgögnu eigenda hennar og málsvara and- stæðinga Sjálfstæðisflokksins." Réttir eigendur Eins og hin tilvitnuðu orð bera með sér er menntamálaráðherrann ánægður með Ríkisútvarpið. Sú ánægja er eðlileg, þar sem honum „Þessi skoðun Kjartans Gunnars- sonar er röng, enda lítt samrým- anieg nútimastjórnsýsiu, að stjórn- armaður eins fjöimiðiis fari með opinbert eftirlitsvald með starfsemi annarra fjölmiðla, “ segir Sigurður í grein sinni. hefur í valdatíð sinni tekist að koma því svo fyrir, að í nánast all- ar áhrifastöður innan Ríkisút- varpsins hefur verið komið fyrir skoðanabræðrum eða skoðana- systrum ráðherrans og prófessors- ins, sem hefur verið óþreytandi í Ieit sinni að réttu gengi á frétta- Á Stöð 2 réðu þá ríkj- um Ingimundur Sig- fússon, núverandi sendiherra Sjálfstæðis- llokksins í Berlín, en þáverandi formaður fjármálaráðs Sjálf- stæðisflokksins ásamt nokkruni öðrum valin- kunnum sjálfstæðis- mönnum, semsettu Elínu Hirst yfir frétta- stofu Stöðvar 2, að eig- in áliti til að tryggja hagsmuni Sjálfstæðis- flokksins, með þeim orðum: „Þú sérð til þess að við viimiini Borgina,“ svo notuð séu orð Elínar í sam- tali við mig og Sigur- jón Sighvatsson á ár- inu 1995. stofu Ríkissjónvarpsins í það minnsta. 1 hinu nýfrjálsa Tékk- Iandi létu starfsmenn ríkissjón- varpsins ekki stjórnvöld vaða yfir sig með pólitískum mannaráðning- um. Þeir mótmæltu, fóru í verkfall og ráku á flótta pólitískan stjórn- anda. Menntamálaráðherrann getur auðvitað ekki annað enn fagnað tilkomu Skjás eins og ræðst ekki á eigendur þeirrar stöðvar meðan hún er í réttum höndum. Stöð 2 var líka örugglega í réttum hönd- um 1992 til 1994, að mati menntamálaráðherrans og annarra forkólfa Sjálfstæðisflokksins. A Stöð 2 réðu þá ríkjum Ingimundur Sigfússon, núverandi sendiherra SjáIfstæðisflokl<sins í Berlín, en þáverandi formaður fjármálaráðs Sjálfstæðisflokksins ásamt nokkr- um öðrum valinkunnum sjálfstæð- ismönnum, sem settu Elínu Hirst yfír fréttastofu Stöðvar 2, að eigin áliti til að tryggja hagsmuni Sjálf- stæðisflokksins, með þeim orðum: „Þú sérð til þess að við vinnum Borgina," svo notuð séu orð Elínar í samtali við mig og Sigurjón Sig- hvatsson á árinu 1995. „Doktor Hannes Hólmsteinn bullar, eins og honum er einum lagið, í það minnsta eitt kvöld í viku á sjónvarpsstöðinni Skjá einum, “ segir Sigurður í greininni. Að þekkja vitjunartimann Sé mið tekið af þekktri óvild menntamálaráðherrans og dokt- orsins í garð Jóns Olafssonar, hiðja þessir tveir geirfuglar íslenskra stjórnmála þess nú og vona að Jón Olafsson tapi peningum á rekstri Stöðvar 2. Og í raun virðist menntamálaráðherrann ekki í neinum vafa um að svo verði, þar sem hann telur Stöð 2 nú vera í sömu sporum og gömlu flokks- blöðin, þekki ekki sinn vitjunar- tíma og berjist gegn Sjálfstæðis- flokknum. I huga menntamálaráð- herrans eru ekki til frjálsir og óháðir fjölmiðlar heldur verða þeir ávallt að vera áróðurstæki eigenda sinna, ef marka má þessi orð hans í afmælispistlinum: „I sömu andrá og ég er að leggja síðustu hönd á þennan pistil er viðtal í RÚV um fjölmiðla við Her- dísi Þorgeirsdóttur, sem er að fjal- la um þá fræðilega við háskóla í Svíþjóð. Hún leggur áherslu á, að starfsmenn fjölmiðla skuli hafa frclsi til að vinna störf sín, hvað sem eigendur þeirra segja, en um- ræður á þessum forsendum enda alltaf í öngstræti, eins og sannast, þegar ætlunin hefur verið að fcsta reglur um slíkt í alþjóðasamninga til dæmis á vettvangi Evrópuráðs- ins. Verður þess krafist af einhverj- um, að hann verji eigin fjármun- um í eigin óþökk? Skyldu þeir, sem þannig tala, vera tilbúnir til þess sjálfir, væru þeir loðnir um lóf- ana?“ Neita um viðtal 1 flestum siðmenntuðum löndum mvndu viðhorf, eins og þau sem birtast í skrifum menntamálaráð- herrans og rakin voru hér að fram- an og stafa frá æðsta stjórnvaldi á sviði útvarpsmála kalla á viðbrögð í það minnsta blaðamanna. Slíkt gerist auðvitað ekki á Islandi, í ríki óttans og hefndarinnar, þar sem ckki má gagnrýna núverandi vald- hafa. Sé málið þeim óþægilegt neita þeir fjölmiðlum um viðtal, eins og sannaðist í því tilviki, þeg- ar fréttastofa Stöðvar 2, leitaði eft- ir viðtali við menntamálaráðherra út af framangreindum pistli hans. Ótrúverðugt stjómvald Menntamálaráðherra, Björn Bjarnason, getur eftir þessa nýj- ustu árás sína á Jón Olafsson og Islenska útvarpsfélagið hf., sem'á og rekur Stöð 2, ekki talist trúverð- ugt og hæft stjórnvald til að fjalla á málefnalegan og hlutlægan hátt um álitaefni, sem kunna að koma upp og tengjast útvarpsrekstri á Is- landi. Menntamálaráðherrann get- ur hins vegar huggað sig \ið, að hann er þar ekki einn á báti, því í sömu átt til vanhæfis rær með honum Kjartan Gunnarsson, for- maður útvarpsréttarnefndar, þó hann hafi enn ekki skynjað það sjálfur. Kjartan hefur nefnilega í viðtölum við fjölmiðla ekki talið það ósamrýmanlegt að sitja í stjórn dagblaðs, sem lifir m.a. á auglýs- ingatekjum, og vera jafnframt for- maður útx'arpsréttarnefndar; opin- berrar stjórnsýslunefndar, sem með nýjum útvarpslögum hefur fengið mun meira vald til að skip- ta sér af innri málefnum sjón- varps- og hljóðvarpsstöðva; Ijöl- miðla sem ýmist lifa alfarið á aug- lýsingum og keppa að því leyti við dagblöðin um tekjur. Þessi skoðun Kjartans Gunnarssonar er röng, enda lítt samrýmanleg nútíma- stjórnsýslu, að stjórnarmaður eins fjölmiðils fari með opinbcrt eftir- litsvald með starfsemi annarra fjöl- miðla. Millifyrirsagnir erti blaðsins.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.