Dagur - 26.01.2001, Blaðsíða 8
8- FÖSTUDAG IIR 26. JANÚAR 2 0 0 1
SMATT OG STORT
Össur Skarphédins-
son.
GULLKORN
„Þessir krakkar
fara alveg á skó-
hlífunum inn að
hjartastað á
Sæmundur Pálsson
lögregluþjónn og
gangbrautarvörður í
viðtali við Mbl.
UMSJÓN:
SIGURDÓR
SIGURDÓRSSON
sigurdor@ff.ls
Guðni
Ágústsson.
Steingrímur J.
Sigfússon.
Augnaráð heitt
Hagyrðingar eru auðvitað farnir að yrkja um yfirlið Ingibjargar Pálma-
dóttur heilbrigðis- og tryggingaráðherra í beinni útsendingu sjónvarps og
aðgerðarleysis Össurar Skarphéðinssonar, viðmælenda hennar, þegar
hún féll. Lcsandi blaðsins sendi okkur þcssa limru:
Einatt er augnaráð heitt
íslialt, sljótt eða heitt
Þegar Ingibjörg datt
honum Össuri datt
ekki i hug að hjálp'enni neitt.
Endurmiimmgamar
Þær geta orðið býsna harðorðar og per-
sónulegar umræðurnar á Alþingi jafnvel
enn þann dag í dag. I umræðunum utan
dagskrár um írskar nautalundir á dögun-
um lenti þeim saman Guðna Agústssyni
landbúnaðarráðherra og Steingrími J.
Sigfússyni. Þegar í upphafsræðu Guðna
byrjaði Steingrímur að kalla frammí fyrir
ráðherra og spurði á einum stað: ___
„Hvenær koma þessar endurminningar
út?“ Guðni svaraði af bragði: „Þær eru hér á ferðinni. Þessi hluti endur-
minninganna verður skráður f þingsöguna í þúsund ár og verða þar til
staðar.“ Vakti þetta snögga svar Guðna mikinn hlátur í þingsalnum. Þeir
héldu svo áfram að kítast og vönduðu ekki hvor öðrum kveðjurnar. Stein-
grímur fullyrti að ef þetta væri í Þýskalandi eða öðru Evrópulandi „væri
farið að hitna undir afturendanum á Guðna Ágústssyni." Guðni minnti
Steingrím á „að fylgi hans getur verið jafnvalt og ráðherrastóllinn."
Ræsknistólið
Það eru margir óánægðir með framkomu ríkisstjórnarinnar vegna öryrkja-
dóms Hæstaréttar. Sigurður St. Pálsson segir:
Ríkisstjórnin er ræsknistól
ranglát hæði og grettin.
Davíð hann er fatlafól
og framsókn með smánarblettinn.
Halldór fór að rita
Ólafur Stefánsson orti þegar hann heyrði um bréfaskrift-
ir Halldórs Blöndal forseta Alþingis og Garðars Gíslason-
ar forseta Hæstaréttar:
Til Hæstaréttar Halldór fór að rita
er heiftarsverðið yfir þingi hékk.
Hvort hann skildi rélt hann vildi vita
og víst hann fékk.
Halldór
Blöndal.
■ fína og fræga fólkið
Zeta Jones með
áhyggjur af Dylan Ma
Catherine Zeta-Jones, leikkonan góðkunna frá
Wales, hefur nú lýst yfir áhyggjum sínum af því að
hinn barnungi sonur hennar og Michaels Dougl-
as, muni ekki fá tækifæri til að lifa venjulegu lífi
vegna þess að hann á svo fræga foreldra. Zeta Jon-
es og Michael Douglas eru fólk sem alla jafna
baðar sig í sviðsljósi fjölmiðla og nú síðast vakti
brúðkaup þeirra gríðarlega athygli um allan heim.
„Eftir tvö til þrjú ár, þegar Dylan litli er orðinn 3-
4 ára vil ég geta farið með honum að leika út í al-
menningsgarð án þess að þurfa að útskýra fyrir
honum hvers vegna það eru 20 manns með ljós-
myndavélar scm elta okkur hvert fótmál,“ sagði
Zeta Jones í viðtali í vikunni. „Eg vona bara að
þetta brjálæði minnki dálítið þannig að við þurf-
um ekki að fórna góðu hlutunum vegna þess að
ljósmvndarar vilja ná öllu á filmu. I síðustu mynd
sinni, Traffic, lékZeta Jones með manni sínum og
var þá í hlutverki óléttrar eiginkonu eiturlyfja-
kóngs. Hún segir að þessi mynd hafi opnað augu
sín fyrir því hversu mikil hætta börnum stafar af
eiturlyfjum og hún hefur áhyggjur af því að það að
eiga svo fræga foreldra geti aukið mjög þrýsting á
Dylan og gert hann veikari fyrir því að leiðast út í
neyslu. „Hugsaðu þér, hann á frægan pabba,
mömmu og afa. Það er viðbúið að sjálf’smynd
hans verði fyrir miklu áreiti því hann mun þurfa
að leggja mikið á sig til að fólk kalli hann ekki
mömmudreng eða pabbadreng og segi einfaldlega
- ó hann er nú fæddur með silfurskeiö f munni og
allt er svo auðvelt hjá honum. Svona nokkuð hef-
ur mikil áhrif á börn og það veldur mér áhyggj-
um,“ sagði Zeta Jones í viðtalinu.
Catherine Zeta-Jones sést hér á góðrl stund með
manni sínum Michael Douglas.
Ðagtur
ÍÞRÓTTIR
Sonja Nef hefur verið sigursæl í vetur.
Nef try^gdi titil-
init í risasvigi
Þegax tveimur mótiun
er enn ólokið í heims-
bikarkeppni kvenna í
risasvigi, hefur Sonja
Nef frá Sviss þegar
tryggt sér heimshik-
artitilinn í greininni
eftir fiinni sigra.
Skíðadrottningin Sonja Nef frá
Sviss tryggði sér um síðustu
helgi heimsbikartitilinn í stór-
svigi kvenna, þegar hún vann
sinn fjórða heimsbikarsigur sinn
í röð ogjafnframt þann fimmta í
vetur, á heimsbikarmóti sem
fram fór í Cortina á ltalíu á
sunnudaginn. Nef leiddi keppn-
ina eftir fyrri ferðina og tryggði
sér sigurinn með besta tímanum
í seinni ferðinni. I öðru sæti varð
Allison Forsyth frá Kanada
48/100 úr sekúndu á ef’tir Nef
og í þriðja sæti varð hcimsmeist-
ari síðasta árs, Michaela Dorf-
meister frá Austurrfki, 0,85 sek-
úndum á eftir sigurvegaranum.
Árangurinn á mótinu tryggði
Nef 235 stiga forskot í stiga-
keppni stórsvigsins á Dorfmeist-
er, sem er í öðru sætinu og dug-
ar það henni lil sigurs þar sem
aðeins 200 stig eru eftir í pottin-
um í tveimur síðustu keppnum
vetrarins.
Nef var að vonum í skýjunum
með árangurinn og sagði að
þetta væri vonum framar. „Að
vinna fjórða sigurinn í röð og um
leið heimsbikartitilinn er hreint
ótrúlegt. Tímabilið hefur verið
draumi líkast og ég á erfitt með
að útskýra þennan góða árangur.
Fyrir tímabilið hafði ég gert mér
góðar vonir um að vinna eina
eða tvær keppnir f vetur, þannig
að þetta kemur verulega á
óvart,“ sagði Nef sem lengst af á
níu ára keppnisferli hefur þjáðst
af slæmum hnémeiðslum og er
þetta hennar fyrsti heimsbikar-
titill.
Um væntingarnar á heims-
meistaramótinu, sem hefst á
mánudaginn í St. Anton í Aust-
urríki, sagði Nef að auðvitað
finndi hún fyrir auknum vænt-
ingum eftir þennan góða árang-
ur. „Ég hef lært að takast á við
aukna pressu og mun mæta til
keppni á HM með sama hugar-
fari og á öllum öðrum mótum til
að gera mitt besta,“, sagði Nef.
Nef er fyrsta konan til vinna
fjórar stórsvigskeppnir í heims-
bikarnum í röð, síðan ítalska
skíðakonan Deborah Compagn-
oni vann fórar keppnir í röð vet-
urinn 1997-’98, en það gerði sú
ítalska einnig veturinn 1996-’97.
Þriðji sigur Cavagnoud
Á sama móti í Cortina vann Reg-
ine Cavagnoud sinn þriðja
heimsbikarsigur í röð í risasvigi,
sem lyfti henni upp f þriðja sæt-
ið á stigalistanum í samanlögðu,
en á risasvigslistanum hefur hún
örugga 178 stiga forystu á
Michaelu Dorfmeister sem er í
öðru sætinu. Sætaröðin í fyrstu
þremur sætum mótsins var ná-
kvæmlega sú sama og á síðasta
risasvigsmóti, sem fram fór í
Ennstal í Austurríki og varð Mel-
anie Turgeon frá Kanada í öðru
sæti, 0,25 sekúndum á eftir
Cavagnoud og Renate Götschl
frá Austurríki í þriðja sæti 0,32
sek. á eftir sigurvegaranum.
Cavagnoud er orðin vön því að
sigra í Cortina, en sinn fyrsta
sigur þar, vann hún fyrir tveimur
árum og síðan hefur hún unnið
átta heimsbikarsigra, þar af
helminginn í Cortina. Næsta
risasvigskeppni fer fram á
heimsmeistaramótinu í St. Ant-
on, en þar fær Cavagnoud tæki-
færi til að bæta sér upp von-
brigðin frá síðasta heimsmeist-
aramóti, en þá gat hún ekki ver-
ið með vegna meiðsla sem hún
hlaut við æfingar í Vail.
Eftir mótið i' Cortina er
Renate Götschl komin í efsta
sæti stigalistans í samanlögðu,
en þar hefur hún þó aðeins sext-
án stiga forskot á Janicu Kostelic
frá Króatíu, sem náði aðeins ní-
unda sætinu á mótinu og féll þar
með niður í annað sætið, 62
stigum á undan Cavagnoud.
Sjá stigastöðuna á næstu síðu.