Dagur - 26.01.2001, Page 16

Dagur - 26.01.2001, Page 16
16- FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2001 Það er ótrúlegt en satt, aðíokkarnútíma- samfélagi geta konur ekki gengið að upplýs- ingabæklingi um kosti oggallaþess að láta gera aðgerð á brjóstum sínum, hvort heldur er tilfegrunar eða upp- bygginar. Stofnaður hefur verið hér á landi sjálfshjálparhópur sem er fyrir þá sem sem liafa áhuga á málefnum kvenna sem hafa farið í brjóstauppbyggingu eða hyggjast fara í slíka aðgerð. Hópurinn kallar sig Von og er ekki orðin til að ástæðuiausu. Dagur hafði samband við for- svarsmann sjálfshjálparhóps- ins, Sigrúnu G. Sigurðardóttur og leitaði svara við því hvers vegna nauðsynlegt væri að stofna sjálfshjálparhóp um þessi málefni. Skortur á upplýsingum - Hvers vegna var þessi sjálfs- hjálparhópur stofnaður? „Hópur okkar er tilkomin vegna þess að hér á landi hefur skort allar upplýsingar til handa þeim konum sem hafa farið í brjóstauppbyggingu og eða hyggjast fara í slíka aðgerð, og er markmið okkar að reyna að miðla því sem við getum, bæði af eigin reynslu og einnig af þeim upplýsingum sem við fáum erlendis frá. Við erum í alþjóða- hóp sem leggur sig fram við að fylgjast með því sem er að gerast í þessum efnum, og er það því afar mikilvægt fyrir okkur að geta fylgst með. Eins og fyrr seg- ir er skortur á upplýsingum hér á landi og enga bæklinga að fá varðandi uppbyggingu á brjóst- um. Reyndar er margt annað sem tengist brjóstauppbyggingu, til að mynda afleiðingar sem það getur haft. Ekki hefur tekist að sanna að efnin séu ekki skaðlaus þrátt fvrir margar rannsóknir sem gerðar hafa verið. En viða- mikil rannsókn hefur verið í gangi á 13.500 konum hjá FDA (LyQ aeftirliti Bandaríkjanna) og er niðurstöðu að vænta úr þeirri rannsókn innan skamms. Áhyggjuefni okkar er að ekki hafl verið fjallað meira um þessi mál í okkar þjóðfélagi, það þarf meiri umræður um kvenímynd- ina og sjálfsöryggið, sérstaklega hjá ungu stúlkunum sem fara í þessar aðgerðir án lítilla eða engra upplýsinga. Petta er ekki ein aðgerð sem endist ævilangt, það er endingartími á silikoni og saltvatni og samkvæmt upp- lýsingum FDA þarf að skipta um silikon á 10 ára fresti og saltvatn á 5 ára fresti, þannig að konur og stúlkur ættu að setj- ast niður og reikna út hversu margar aðgerðir þetta verða á lífsleiðinni. FDA bannaði notkun á silikoni árið 1992 í Bandaríkjunum, nema fyrir þær konur sem hafa fengið krabbamein og vilja fara í brjóstauppbyggingu. Það finnst okkur reyndar einkennileg und- antekning, þar sem kona sem hefur greinst með krabbamein í brjósti og það síðan fjarlægt, Ðíyur Sigrún G. Sigurðar- dóttir er forsvarsmað- ur sjálfshjálparhóps- ins Vonar. Hún hvetur alla þá sem hafa áhuga á málefnum kvenna sem hafa far- ið í brjóstauppbygg- ingu eða hyggjast fara í slíka aðgerð að kynna sér heimasíðu Vonar sem er www.von.is. Þessi 29 ára gamla kona fór í brjóstastækkun fyrir sjö árum. Miklar bólgur og kvalir urðu til þess að fjarlægja þurfti silikonið og má sjá á hinni myndinni hvernig brjóstin litu út á eftir. lendir í áhættuhóp, þar sem ekki hefur tekist að sanna að silikon sé skaðlaust. Varðandi bann við notkun á silikoni í Evrópu, er það mál nú til umijöllunar í Evr- ópuráðinu, þar liggja fyrir drög um notkun á silikoni og saltvatni og er niðurstöðu að vænta á þessu ári.“ Tvö ár í vinnslu - /Iqfu komið upp einhver áþreif- anleg dœmi þess að silikon eða saltpúðar geti verið skaðlegir? „Pað hafa komið upp sýkingar eftir brjóstauppbyggingu þar sem hefur þurft að fjarlægja sili- konpúða. Einnig hafa komið upp sjúkdómar sem talið er að megi rekja til silikonpúða sem hafa lekið. Talið er að silikon sem hef- ur lekið út í hkamann geti valdið skaða á nýrum, lungum, lifur og á ónæmiskerfinu. Pað eru til læknar hér á landi sem líta ekki fram hjá því að silikon geti valdið skaða sem ekki er hægt að bæta.“ - Er verið að vinna að upplýs- ingabœklingi um brjóstaupp- bgggingu á íslandi? „Lýtalæknar hafa verið að vinna að útgáfu bæklings um brjóstauppbyggingar síðastliðin tvö ár, en það hefur dregist hjá þeim að gefa hann út. Hvað tef- ur, er ekki vitað. En upplýsinga- bæklingar um þessi mál liggja fyrir í öðrum löndum Evrópu,“ segir Sigrún. Hugsið ytókur vel um Sjálfshjálparhópur Vonar vill koma eftirfarandi á framfæri við konur og ungar stúlkur sem hyggjast fara í aðgerðir á brjóst- um: „Að skrifa niður spurningar og spyrja viðkomandi lýtalækni ítarlega út í kosti og galla að- gerðarinnar, áður en endanleg ákvörðun er tekin. Að hugsa málið vel og vandlega, þar sem þessar aðgerðir geta dregið dilk á eftir sér. Pað getur verið erfitt að snúa tilbaka ef eitthvað fer úrskeiðis, sem gerist alls ekki alltaf því margar aðgerðir hafa heppnast vel, en hin hliðin er líka til staðar, því miður. Það eru til dæmi um konur sem hafa misst heilsuna eftir svona að- gerð, sum svo slæm að viðkom- andi kemst aldrei út á vinnu- markaðinn framar. Eitt slíkt til- felli er einu tilfelli of mikið. Hugsið ykkur vel um áður en endanleg ákvörðun er tekin. Ræðið við foreldra, vini, vinkon- ur eða þá sem þið treystið, þetta er stór ákvörðun og ekki áhættu- laus. Við vitum að þessi mál eru oft á tíðum afar viðkvæm og erfitt fyrir þær konur sem eiga í hlut að ræða um þau, nema þá kannski við eiginmenn sína. Pað eru líka dæmi um að eiginmenn sem hafa áhyggjur af konum sín- um leiti til Vonar eftir ráðlegg- ingum og eða upplýsingum og er þeim vel tekið, sem og öðrum." -w

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.