Dagur - 26.01.2001, Qupperneq 17
FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2001 - 17
Ð^ur
jjml
WNPiNH
■mbmmm
LÍFIO
Ljósaverslun
styrkir ljósahöimuð
„Pað er ákaflega ánægjulegt
að geta styrkt skapandi rann-
sóknir á þessu mjög svo
áhugaverða sviði,“ sagði Gísli
Holgersson, forstjóri GH
heildverslunar og átti þar við
ljósahönnun. En hann afhenti
nýlega Aðalsteini Stefánssyni
ljósa- og leikmyndahönnuði
styrk að upphæð 50.000 þús-
und krónur til að hann geti
áfram þróað ýmsar hug-
myndir sínar sem tengjast
umhverfislýsingu. „Ekki sak-
ar að styrkþeginn skuli vera
Garðbæingur í húð og hár,“
bætti Gísli við en GH heild-
verslun er til húsa að Garða-
torgi 7 í Garðabæ.
Gísli Holgeirsson, forstjóri GH
heildverslunar ásamt Aðalsteini
Stefánssyni við eitt verka þess síð-
arnefnda, vegglampann Blender,
sem nú er í eigu Hönnunarsafns
íslands.
Hönnunarsafn íslands er
einnig í Garðabæ og það stóð
fyrir ljósahönnunarsýning-
unni Lysfortœllinger í Lista-
safni ASÍ í lok síðasta árs, í
samvinnu við alþjóðlegan
hóp hönnuða og nokkur ís-
lensk fyrirtæki. Aðalsteinn
Stefánsson var eini íslending-
urinn sem þátt tók í sýning-
unni og það var í framhaldi
af henni sem GH veitti hon-
um verðlaunin. Aðalsteinn
starfar í Kaupmannahöfn, en
ásamt samstarfsmönnum
sínum í Lysfortællinger er
hann einnig á ferð og flugi
um meginland Evrópu.
Ný íslands-
og inannkynssaga
Nýja bókafélagið hefur sent
út seinna bindi sagnfræðirits
sem ætlað er til kennslu í
framhaldsskólum. Bókin sem
ber heitið „íslands- og mann-
kynssaga NB 11“ er 320 blað-
síður, ríkulega skreytt mynd-
um og kortum. Höfundarnir
eru sagnfræðingarnir Mar-
grót Gunnarsdóttir, sem
skrifar um frönsku bylting-
una og 19. öldina, og Gunnar
Þór Bjarnason sem skrifar
um 20. öldina. í bókinni eru
um 30 kort sérunnin af
Lovísu G. Asbjörnsdóttur.
Myndaumsjón hafði Rakel
Pálsdóttir í samráði við höf-
unda.
Samhliða útgáfu bókarinn-
ar hefur verið unnið ýmislegt
ítarefni á Söguvef NB, en
hann er almennur upplýs-
ingavefur um sagnfræði. Rit-
stjóri hans er Jón Ingvar
Kjaran, kennari. Slóðin er
www. soguvefur. strik. is
V____________________________>
Akureyri í hópifyrstu
sveitarfélaga til að sam-
þykkja umhverfisvæna
stefnu sem kallast
Ólafsvíkuryfirlýsingin.
Bæjarráð Akureyrar hefur tekið
undir tillögu náttúruverndar-
nefndar og lagt til við bæjar-
stjórn að Akureyrarbær gerist
aðili að Ólafsvíkuryfirlýsingunm
með undirritun hennar. Asgeir
Magnússson, formaður
bæjarráðs, segir að
vitaskuld hafi shkar
skuldbindingar ein-
hvern kostnað í för með
sér en hann h'ti svo á að
það fé komi margfalt tfl
baka.
„Þessi stuðningur á
að minna okkur á að
við bætum heiminn af-
skaplega lítið með því
að starfrækja staðar-
dagskrá í aðeins eitt til
tvö ár. Við erum að
skuldbinda okkur til að
vinna á sömu braut til frambúð-
ar. Allt sem við gerum kostar
peninga en það kostar líka mikla
peninga að gera ekkert og það
eru komandi kynslóðir sem sitja
í súpunni ef ekkert er gert. Þessi
hugsun mætti vera áleitnari hjá
okkur," segir formaður bæjar-
ráðs.
í Ólafsvíkui'yfirlýsingunni seg-
ir m.a. að íslensk sveitarfélög
vilji leggja sitt af mörkum til
sjálíbærrar þróunar og gerist því
aðilar að málinu. í 1. grein segir
að markmiðin séu:
1. Sjálfbær þróun sem tryggir
lífsgrundvöll og h'fsgæði jafnt
fyrir núverandi og komandi kyn-
slóðir.
2. Að athafnir í heimabyggð
okkar séu innan þeirra marka
sem náttúran þohi’, jafnt hnatt-
rænt sem heimafyrir.
Geta sturtað áfram
Island fetar að miklu leyti í fót-
spor alþjóðlegra úrbótaefna en
hins vegar eiga lmattrænar sam-
þykktir mismunandi vel við að-
stæður hérlendis. Þannig bendir
Ásgeir á alþjóðlegan klósettstað-
al sem kann að virka hjákátleg-
ur í augum íslendinga. Úti í
heimi hefur verið barist fyrir
breytingu á klósettkössum
þannig að minna vatn fai’i til
spillis í hvert skipti sem sturtað
er niður. Víðast á íslandi rennur
vatn hins vegar óbeislað frá fjöll-
um til sjávar og er yfirdrifið nóg
til að sögn Ásgeirs, t.d. á Akur-
eyri. „Auðvitað slæðast einhver
svona atriði með en mér finnst
þau léttvæg miðað við allar þær
skuldbindingar sem vert er að
vinna að á heimsvísu," segir Ás-
geir.
Því má vænta þess að Akur-
eyringar geti haldið áfram að
sturta niður jafnmiklu vatni og
þeim sýnist.
BÞ
FKA-konur gefa
tölvum annað líf
íslenskarkonur í atvinnurekstri
hafa sent stallsystrum sínum í
Riísslandi og við Eystrasalt 13
tölvurog hafa áhuga á að halda
áfram á sömu hraut.
„Það er mjög gaman að þessu og okkur lang-
ar til að safna enn fleiri tölvum og koma
þeim til sambærilegra félaga og okkar, Fé-
lags kvenna í atvinnurekstri, í þessum lönd-
um,“ sagði Jónína Bjartmarz formaður FKA.
Konur í félaginu hafa sent þrettán stallsystr-
um sínum í Sankti Pétursborg í Rússlandi og
í Eystrasaltslöndunum að gjöf jafnmargar
notaðar en góðar tölvur, sem þær fengu hjá
upplýsingafyrirtækinu EJS. Ilraðflutnings-
fyrirtækið DHL tók síðan að sér að koma
þeim ókeypis á áfangastað. Verkefni er eitt
af mörgum sem urðu til í kjölfar ráðstefn-
unnar Konur og lýðræði sem haldin var í
Reykjavík 1999. Tilganginn segir Jóm'na
einkum þann, að gefa konum f þessum lönd-
um aðgang að þekkingu stallsystra sinna á
Norðurlöndum.
Hagsýnar húsmæður
„Auk þess að vera eða hafa verið atvinnu-
rekendur erum við allar hagsýnar húsmæð-
ur og hugsum því sem svo, að
ef þær tölvur sem hér falla til
við endurnýjun fara ekki á ein-
hvern svona góðan stað, hvað
verður þá um þær. Okkur
finnst því rniklu nær að þær
nýtist einhvers staðar heldur
en að þær fari kannski á
haugana hérna hjá okkur,“
sagði Jónína. Þar sem við fylgj-
umst vel með, séum svolítið
nýungagjörn og gerum gjarn-
an kröfur til þess besta hverju
sinni grunar Jóm'nu, eins og
fleiri, að fleiri tölvm’ fari
kannski á haugana hérna hjá
okkm’ en mörgum öðrum
þjóðum. En tölvur sem gefnar
eru úr landi verði að vera góð-
ar og duga tfl þess að geta farið á Netið, sent
tölvupóst og annað sem konurnar eru að
gera.
Leiðsögn iiui í upplýsingatæknina
Upphafið var raunar það að sjö konur úr
FKÁ tóku að sér að að liðsinna átta af kon-
um í atvinnurekstri í framangreindum lönd-
um. Liðveislan á sér einkum stað í gegnum
tölvupóst, enda eitt af markmiðum verkefn-
isins að efla færni kvennanna á sviði upplýs-
ingatækni.Þegar í ljós kom að þessi sam-
skipti liðu fyrir tölvuleysi kvennanna þar
eystra eða erfiðan aðgang að tölvu hafi fé-
lagskonur í FKA ákveðið að
bæta úr 13 erfiðustu tilvikun-
um með því að afla og senda
viðkomandi konum tölvur, sem
tókst með góðu hðsinni EJS
og DHL, sem áður segir.
Spurð um umfang þessa lið-
sinnis sagði Jónína gengið út
frá 10 klukkustundum á mán-
uði, en það sé þó misjafnt. „Ég
veit að einn lærimeistarinn er
búinn að fá heimsókn frá sinni
konu,“ segir Jóm'na og reiknar
með að enn fleiri konur eigi
eftir að taka að sér svona leið-
beiningarstarf. Reynt sé að
para saman konur sem eru í
svipuðmn rekstri, en tungu-
málið hafi torveldað samskipti í
nokkrum tilvikum.
Allir gætu hagnast aö lokum
„Eins og ég benti konunum á þá getur þetta
að minnsta kosti ekki skaðað neinn, en það
gæti líka vel orðið til þess að koma á ein-
hverjum viðskiptatengslum eða annað slíkt.
Þannig að við göngum alveg eins út frá að
báðir aðilar geti hagnast á þessu til lengri
tíma litið," segir Jónína. Hún segir enga
kvennanna hafa verið í neinmn samskiptum
við Eystrasaltslöndin áður en þær tóku að
sér liðveisluna við stallsystur sínar þar
eystra. -hei