Dagur - 17.02.2001, Blaðsíða 4

Dagur - 17.02.2001, Blaðsíða 4
LAUGARDAGUR 17. FEBRUAR 2001 Sniglaveislan Ólaf Jóhann Ólafsson Leikstjórn: Sigurður Sigurjónsson. Samstarfssýning við Leikfélag íslands. SÝNINGAR: laugard. 17/02 kl. 20.00 UPPSELT sunnud. 18/02 kl. 20.00 laus sæti sunnud. 25/02 kl. 20.00 Hátíðarsýning til heiðurs Gunnari Eyjólfssyni 75 ára. fimmtud. 01/03 kl. 20.00 föstud. 02/03 kl. 20.00 laugard. 03/03 kl. 20.00 sunnud. 04/03 kl.16.00 föstud. 09/03 kl. 20.00 laugard. 10/03 kl. 20.00 sunnud. 11/03 kl. 20.00 Aðeins þessar sýningar BERFÆTLINGARNIR eftir Guðmund L. Friðfinnsson Leiklestur laugardaginn 24. febrúar kl. 20 Leikarar: Aðalsteinn Bergdal, Bragi Haraldsson Guðbrandur Guðbrandsson, Hinrik Hoe, Saga Jónsdóttir, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, Skúli Gautason, Valgeir Skagfjörð Þóranna Kristín Jónsdóttir, Þráinn Karlsson og Þorsteinn Bachmann Leikstjóri Skúli Gautason. Útlit: Þórarinn Blöndal og Kristín Sigvaldadóttir. Lýsing: Pétur Skarphéðinsson, Myndband: Heimir Hlöðversson, Hljóðmynd: Gunnar Sigurbjörnsson. Unnið í samvinnu við Menor og Leikfélag Sauðárkróks Miðasalan opin alla virka daga, nema mánudaga, frá kl. 13:00- 17:00 og fram að sýningu, sýningardaga. Sími 462 1400. www.leikfelag.is Sjónvarpshetjan BÓKA- HILLAN Elías Snæland Jónsson ritstjóri Því var mikið fagnað í Noregi þegar Jan Kjær- stad fékk „loks- ins“ bókmennta- verðlaun Norð- urlandaráð fyrir lokabindi þrí- leiks síns um sjón varpsmann- inn Jonas Wergeland - en til hans heyra skáldsögurnar Forföreren (1993), Erobreren (1996) og Oppdageren (1999). Uöfundinum þykir hafa tekist vel upp að greina norskt þjóðfélag með því að segja margbrotna sögu af manni sem kann að nýta það tól sem gegnsýrir samtíðina - sjónvarpið. Islendingar þekkja ekki mikið til þessa höfundar enn sem kom- ið er, en það mun vafalaust breytast. Þá ætlar norska rfkis- sjónvarpið NRK að gera mynda- þáttaröð eftir sögunum. Listin að Ijúga Jan Kjærstad fæddist í Oslo árið 1953 og gekk menntaveginn. Hann lærði guðfræði og lauk embættisprófi frá háskólanum í Osló. Það var einmitt meðan á náminu stóð sem hann fór semja sögur. Sjálfur Iýsir hann sér sem miklum lestrarhesti sem hafi allt í einu ákveðið að hann gæti Iíka skrifað bækur. I lann byrjaði með smásagnasafninu Kloden dreier stille rundt (1980), en fylgdi því síðan eftir með hverri skáldsög- unni af annarri: Speil (1982), Homo Falsus eller det perfekte mord (1984), Det store eventyret (1987), Rand (1990) og svo fyrr- nefndum þríleik. Þá hefur hann sent frá sér ritgerðarsöfn, en Kjærstad var um árabil ritstjóri Jan Kjærstad: Skátdsögurnar um Jonas Wergeland eru væntantegar á skjáinn. bókmenntatímaritsins Vinduet og er enn virkur þátttakandi í umræðunni um norskar sam- tímabókmenntir. I viðtölum hefur Kjærstad lagt áherslu á mikilvægi þess fyrir skáldsagnahöfunda að kunna að Ijúga - en skortur á þeim hæfi- Ieika hafi verið einn helsti galli margra norskra samtímahöf- unda. „Alveg frá því ég byrjaði að skrifa hef ég reynt að Ijúga eins vel og mér er unnt,“ segir hann í einu viðtali. „Hægt er að nota lygina til að draga á tálar, en hvernig? Það má nota lygina hæði á jákvæðan og neikvæðan hátt. En hvar liggja mörkin á milli lygi og sannleika? Þegar tvær lygar mætast verður til sannleikur." Flann segist mikið nota lvg- ina í bókum sínum. I einni þeirra, Homo Falsus, sé til dæmis um einn fjórði hluti klára lygi sett fram sem sann- leikur. Bækur eins og erfðavísar Eins og áður segir hefur Kjær- stad lesið mikið af bókmenntum frá mörgum menningarsvæðum og játar hreinskilningslega að ýmislegt af því hafi haft áhrif á sig sem rithöfund. „Mikið af skrifum mínum er ávöxtur Iesturs. Eg held að stíltil- hneigingar höfunda ráðist að verulegu leyti af þeim bókum sem hafa haft mest áhrif á þá,“ segir hann. „Eg veit að allar góð- ar sögur sem ég hef lesið eru inn- an í mér líkt og erfðavísar. Ef engin ein hók hefur breytl mér, þá hafa þær gert það sem heild." Hann segir það galla við marg- ar slakar skáldsögur að þær séu einungis aðlaðandi. „Góð skáld- saga þarf líka að vera fráhrind- andi. Eins og Mysterier eftir Knut Hamsun, Útlendingurinn eftir Albert Camus, Heart of Darkness eftir Joseph Conrad, svo ég nefni nokkur dæmi.“ Hann er sérlega hrifinn af síðast- nefndu skáldsögunni - segir hana „fullkomnustu bók veraldarinn- ar." Hann segist hafa reynslu af því að þurfa að Iesa hundrað lélegar hækur til að finna eina virkilega góða. „En þegar ég les þessa góðu skáldsögu þá verða hinar hundrað skyndilega líka góðar." Kjærstad segir indverska stór- virkið Mahabharata eina helstu fyrirmynd sína í heimi bók- menntanna. „Þar er safnað sam- an á einn stað alls konar bók- menntum: heimspeki og vísind- um, trúarlegum sögnum, sam- ræðum, goðsögnum, lygisögum, ævintýrum og stríðsfrásögnum, lýsingum á niat og á ást." Að breyta heiminum Snemma á rithiifundaferlinum lýsti lýjærstad því yfir að hann vildi skrifa skáldsögur sem breyt- tu heiminum. „Allir sem skrifa vilja breyta heiminum," segir hann. „Sumir þora bara ekki að segja það af hræðslu við að gefa til kynna að þeir þjáist af mikilmennskubrjál- æði. Argentfski rithöfundurinn Jorge Luis Borges segir fallega frá því þegar hann fór eitt sinn út í eyðimörkina í Egyptalandi. Þessi næstum því blindi maður settist niður að baki pýramíd- anna, tók upp hnefafylli af sandi við aðra hlið sér og lét hann falla niður hinum megin. Síðan sagði hann: Nú hef ég breytt heimin- um. Og það er rétt að ef litið er á hlutina frá vissum sjónarhóli eru allir mcnn alltaf að breyta heim- inum." Kjærstad kveðst nú vera að semja nýja skáldsögu sem sé mjög frábrugðin frásögninni af sjón- varpsmanninum Jonas Wergeland. Hann útiloluir hins vegar ekki að hann snúi aftur athygli sinni að þeirri sögupersónu eftir nokkur ár. Flippaður flótti KVIK- MYNDIR skrifar O Brother, Where Art Thou? Leikstjóri: Joel Coen. Handrit: Joel og Ethan Coen. Aðalhlutverk: George Cloon- ey, John Turtur- ro, Tim Blake Nelson, John Goodman og Holly Hunter. Ég hef það nú svona á tilfinning- unni að ég hefði skemmt mér þúsund sinnum betur á kvik- myndinni „O Brother, Where Art Thou?“^ ef ég hefði verið búin að lesa Ódysseifskviðu Hómers. Þeir Coen bræður, Joel og Ethan hafa augljóslega haft kvæðabálk Hómers að leiðarljósi þegar þeir gerðu handritið að þessari mynd, sem er þó með þeim hetri sem ég hef séð í seinni tíð. Sögusvið myndarinnar er víð- feðmt, fangelsisflótti, spilltir stjórnmálamenn, fjöldaskírnir út í á, bankarán, syngjandi þokkadísir, þjóðlagasöngur og kynþáttahatur, hállblindur þjóf- óttur biblíusali, svartur blússpil- ari og spennufíkill sem vill ekki láta kalla sig „Babyface“, svo eitt- hvað sé nefnt. Hjartaknúsarinn Clooney kemur svo sannarlega á óvart og Turturro og Nelson smellpassa í hlutverkin. Litríkar persónugerðir Strokufangarnir, urðu allirað str- júka í einu, þar sem þeir voru hlekkjaöir saman allir þrír og hafði Ulysses (George Clooney) skipulagt flóttann. Félagar hans Pete (John Turturro) og Delmar (Tim Blake Nelson) höfðu fallist á að flýja með honum eftir að honum hafði tekist að sannfæra þá um að mikill fjársjóður biði þeirra. Landslagið í myndinni, sem oftast eru heilmiklar víðáttur, þar sem ekkert sést nema gulleit flat- neskja svo langt sem augað eygir, myndar alveg einstaka stemn- ingu í samhljómi við sveitatón- listina frá fjórða áratugnum, sem einnig er nrjög áberandi í gegn- um alla myndina. Og það er ein- mitt á vegamótum út í miðri auðninni sem þeir félagar og samflóttafangar, hitta einn af þeim fjölmörgu litríku persónu- gerðum sem eiga eftir að verða á vegi þeirra á þessu ævintýralega ferðalagi um Suðurríki Banda- ríkjanna, blússpilarann Tommy (Chris 1’homas King), en hann hafði larið út í auðnina til að selja sig djöflinum fyrir gítar. Með honum fara þeir svo í studió og syngja lag inn á plötu, sem ríkur beint á toppinn, án þess að þeir hafi hugmynd um það. Smellpassa í hlutverkin Leikarinn og hjartaknúsarinn George Clooney, sem flestir þekkja sem barnaskurðlæknirinn á Bráðavaktinni, kemur svo sannarlega á óvart og fer vel með sitt hlutverk. Sama gera Turturro og Nelson og varla að Coen bræður hefðu getað valið betur, svo gjörsamlega smellpassa þeir í hlutverkin. Myndin er drepfyndinn á köfl- um og hló ég hvað mest þegar þeir félagarnir hittu Sírenurnar, hinar syngjandi þokkadísir, sem tókst að táldraga og plata þá upp úr fötunum, í orðsins fyllstu merkingu. Þá var spennufíkilinn „Babyface", sem ekki mátti kalla því nafni, því þá varð hann óður, einnig frábærlega fymdinn, og þá sérstaklega þegar hann trylltist af ánægju yfir því að eiga eftir að lenda í rafmagnsstólnum. Jæja, nóg um nákvæmar lýs- ingar á atburðarrás myndarinnar, það verður að vera eitthvað fyrir ykkur lesendur góðir til að skemmta ykkur yfir. Það er ekk- ert víst að það skipti nokkru máli hvort maður hef’ur lesið kviðurn- ar hans Hómers eða ekki, en eitt er víst að þessi mynd er engri annarri lík. -W

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.