Dagur - 17.02.2001, Blaðsíða 16

Dagur - 17.02.2001, Blaðsíða 16
16 - LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2001 Sparisjóður Norðlendinga Akureyrarmeistari Björn Þorláksson skrifar Akureyrarmót- inu í sveita- keppni - aðal- keppni Bridge- félags Akureyr- ar - er lokið með sigri sveit- ar Sparisjóðs Norðlendinga. Mótið var jafnt og spennandi. Þegar einum Ieik var ólokið höfðu 3 sveitir möguleika á titlinum en 10 stig skildu á milli tveggja efstu sveitanna þegar upp var stað- ið. Lokastaða efstu sveita: 1. Sparisjóður Norðlendinga 328 stig 2. Sv. Grettis Frímannssonar 318 stig 3. Sv. Frímanns Stefánssonar 306 stig Björn Þorláksson. Efstir í „bötlernum" urðu Pétur Guð- jónsson-Stefán Ragnarsson með 1.28 úr spili sem hlýtur að teljast frábært skor í 180 spilum. Næst komu Reynir- Björn með 1.04 og bræðurnir Grétar-Orlygur Orlygssynir urðu þriðju með nokkru minna. Vel heppnað útspil E.t.v. er ekki skrýtið að Pétri Guðjónssyni hafi gcngið vel í sveitakeppninni. Skoðum útspil- ið hans í íý'rirtaks góðri alslemmu gegn erkifjendunum í Sparisjóði Norðlendinga. Frá aðalsveitakeppni Bridgefétags Akureyrar á þriðjudag. Mótið var spennandi og réðust úrsiit ekki fyrr en í lokaumferðinni. A/NS á hættu Austur Suður Vestur Norður Reynir Stefán Björn Pétur 1 tígull pass 1 spaði pass 2grönd pass 3lauf* pass 3spaðar pass 4lauf pass 4tíglar pass 4grönd pass 5tíglar pass 7 spaðar pass pass Deila má um hvort sagnir séu eðlilegar því Reynir hefði nú einhvern tímann opnað á grandi með spil austurs. Næsta sögn hans lofar allajafna 18-19 punktum en kannski var það 4- liturinn í spaða sem heillaði til hækkunar? Fátt gat stöðvað of- anritaðan eftir ásaspurningu - nema þá helst Pétur Guðjóns- son. Hann spilaði nefnilega litlum tígli undan kóngnum án um- hugsunar og nú kemur varla til greina að svína strax. Spilið vinnst nefnilega alltaf svíningar- laust ef spaðinn liggur 2-2 og ýmsir hliðarmöguleikar eru aðrir í stöðunni. Þannig er eðlilegt að drepa útspilið með ás. Taka spaða tvisvar og reyna að trompa niður laufdrottningu aðra eða þriðju eða svína af suðri. Hvor- ugt Ieiðir til vinnings og ekki dugar heldur að taka trompið þrisvar, leggja niður ás í hjarta, spila meira hjarta og kasta tígli í þriðja hjartað og trompsvína síð- an. Hins vegar gengur að taka spaða einu sinni og snúa sér síð- an að laufinu en ofanritaður kann ekki nóg í líkindafræðum til að meta hvaða leið sé best. Hitt er ljóst að ef ekki kemur út tígull horfir málið öðruvísi við en Pétur sagði sjálfur að ekkert annað útspil hefði komið til greina og hann fékk ágæt verð- laun þegar ofanritaður endaði einn niður. Spaði út gefur spilið, lauf út gefur spilið - hjarta út hjálpar sagnhafa. Kaklhæðni örlaganna er hins vegar að einhver pör villtust í 7 grönd og þá er aðeins leið í spil- inu, þ.e.a.s. að svína tígli. Sú leið gekk svona ljómandi vel þetta kvöld þannig að sjögrandamenn- irnir gengu glaðir til sængur. Málning leiðir enn Sex umferðum er lokið af átta í aðalsveitakeppni Bridgefélags Reykjavíkur og hefur sveit Málningar haldið sig á toppn- um. Staða efstu sveita: 1. Málning 119 2. Hermann Lárusson 11 1 3. Helgi Jóhannsson 109 4. Roche 106 5. ÍSLAND yngri spilarar 103 VÍS tvímenningurinn á Húsavík Aðaltvímenningur Bridgefélags Húsavíkur hófst sl. mánudags- kvöld með þátttöku 14 para. Spilaður er barómeter með 7 spilum í umferð. Að loknum 3 umferðumer staða efstu para þannig: 1. Friðrik - Torfi: 28 stig 2. ÓIi - Pétur: 24 stig 3. Hilmar - Gunnlaugur: 12 stig TVÆR FLIKUR IEINNU HEÍTUR 0G ÞURR THERMO varmanærfötin eru í raun tvær flíkur í einni. Tveggja laga spunatækni flytur rakann frá líkamanum og heldur þér heitum og þurrum. Notaöu Thermo nærfötin í næsta ferðalag, þú sérö ekki eftir þvf. www.sportveidi.is Sportvörugerðin Heildsala-smásala Mávahiið 41, Rvik, sími 562-8383 Krossgáta nr. 225 Lausn ...............,. Nafn .................. I leimilisfang Póstnúmer og staður Helgarkrossgáta 225 I krossgátunni er gerður greinarmunur á grönnum og breiðum sérhljóðum. Lausnarorð sendist til Dags (Helgarkrossgáta 225) Strandgata 31, 600 Akureyri - eða í faxsíma sem er 460 6171. Lausn- arorð grossgátu 224 var NORÐURLJÓS og vinn- Vinningshafi fær ingshafi er Anna Guðrún senda bókina Jósepsdóttir sem býr í Gaman og al- Lautasmára 1 í Kópavogi. vara, myndir úr Hún fær senda bókina Ufí Péturs Eggerz bókina Gaman og alvara, sendiherra. myndir úr lífi Péturs Eggerz fv. sendiherra.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.