Dagur - 17.02.2001, Blaðsíða 9

Dagur - 17.02.2001, Blaðsíða 9
lOa^wiir LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2001 -9 unum. Þá fer eitthvað í gang. Þetta fyrsta lag sem ég samdi, það kom þegar konan mín var farin norður vegna þess að pabbi hennar hafði orðið bráðkvaddur. Við vorum að fara í jarðarförina hans, þannig að stemningin var mjög döpur, og þá komu þessir hljómar. Þetta var mjög skrýtið. Svo var lítil frænka mín, sem var hekl ég tvcggja ára þá. Hún var lögð inn á sjúkrahús með heilabólgu, fór á gjörgæslu og það stóð mjög tæpt með hana. Eg var að hátta hérna eitt kvöld- ið og eins og stundum tók ég Læknablaðið með mér í rúmið, lagði það á rúmið og aftan á blaðinu var auglýsing, h'til stelpa sem var að hlása sápukúlur og horfir upp og yfir þessu stóð „Horfðu til himins". Ur því varð til lag sem heitir Heillastjarnan. Þetta er að ég held mitt falleg- asta Iag, sem ég samdi til henn- ar með texta og öllu. Það hangir síðan í ramma yfir rúminu hennar." Leitin að hljómunum - Þú útsetur lögin þín ekki sjálfur? „Nei, ég bara kann ekki nóg. Það er vandamálið. Ég sé ekki eftir neinu eins mikið og að hafa ekki lært meira. En bróðir minn, Pálmar Arni, er hetri píanisti en ég og hann hjálpar mér mikið við að útsetja. Ég tek lögin upp hérna heima og læt hann fá spóluna, en ég verð þá að finna hljómana fyrst. Það er ekki nóg bara að uppgötva laglínuna, maður þarf alltaf að finna rétta hljóminn. Það getur verið erfitt að heyra lag í hausnum á sér og finna ekki hljómana, því maður heyrir alltaf nákvæmlega hvern- ig lagið á að hljóma. Hljómurinn verður að vera nákvæmlega sá rétti. Þessi leit getur verið mjög erfið og tímafrek, en um leið er hún kannski það skemmtilegasta í þessu. Ég er oft eins og vitleys- ingur hérna heima, sérstaldega á kvöldin þegar maður er að fara að sofa, þá er eins og það slakni á einhverju þarna uppi. Eða þegar ég er að vakna á morgn- ana. Þá verð ég alltaf að hlaupa í flygilinn áður en ég gleymi því sem sem kemur í hugann. Mörg lög verða til þannig," segir Grét- ar. „Flest lögin mi'n eru mjög ró- leg, og það er nú kannski bara vegna þess að ég kann ekki nóg til að spila hraðar. En ég er voða hrifinn af djasstónlist og flest lög- in mín eru þannig að þau gætu vel orðið djasslög." - Notarðu þá frekar flókna hljóma stundum? „Já, þeir eru kannski dálítið óvenjulegir sumir. Annars er það erfiðast þegar maður lendir í því að semja lögin afturábak. Þá er maður kominn með millispilið, finnur að það er framhald af ein- hverju, en veit ekki hverju. Þá verður maður að leita að byrjun- inni á laginu, afturábak. Það er miklu auðveldara þegar hitt er komið að búa til millispil, því það kemur þá yfirleitt af sjálfu sér,“ segir Grétar. „Svo getur maður búið til lög bara með því að spila afturábak önnur lög." Góð lög tala fyrir sig sjálf - Hvað með texlana, þtí semur þá sjálfur? „Ég er voða lélegur við texta- gerð þótt ég sé nú að reyna að berja þeim saman. Hins vegar kemur oft eitthvert nafn upp í hausinn um leið og laglínan kemur, þannig að áður en text- inn verður til þá veit ég hvað lagið á að fjalla um. Það er eitt- hvað sem maður fær á tilfinn- inguna. Þannig var það með annað lagið sem er í Eurovision- keppninni núna. Ég vissi hvað lagið átti að fjalla um, því þetta varð til daginn fyrir brúðkaup. Þetta var óskaplega ástfangið og fallegt fólk og ég hafði þekkt piltinn frá því hann fæddist. Þá urðu til fyrstu tónarnir í þessu lagi, enginn texti, en ég tileink- aði þeim lagið. Svo Iöngu seinna var ég norður í Eyjafirði þar sem við erum mikið og eigum hús. Þar fæ ég oft innblástur og text- arnir sérstaklega verða til þar. Þar er svo mikil ró og kyrrð. Ég var að horfa á sólarlagið, og þá kom þessi hugmynd að texta. Hann fjallar um snúning jarðar og hvernig hvert sólarlag kemur með minningu um æskuástina. Ég var dálítið lengi að berja hann saman þannig að hann passaði við lagið, en það gekk upp að lokum," segir Grétar. „En ef lögin eru nógu góð, þá tala eiginlega þau sjálf. Það er í þcim einhver tilfinning, eins og í fyrsta laginu sem ég samdi og tileinkaði konunni minni, Þú ert mér allt. Það er enginn texti í því en skilaboðin í laginu eru svo skýr. Ef melódían er nógu góð þá finnst mér auk þess ekki þurfa að hafa neinn texta. Text- inn má að minnsta kosti ekki vera mikið verri en lagið svo hann skemmi það ekki." Ætlaði að verða hönnuður - Segðu mér aðeins frá starfmu þínu, þú ert geðlæknir? „Ég ætlaði nú að verða allt ann- að en læknir," segir Grétar. „Ég ætlaði að verða hönnuður, því ég teiknaði alltaf mikið. Fyrst ætl- aði ég mér raunar að verða arki- tekt og var búinn að fá inni í tækniskólanum í Zúrich. En ég var líka með ólæknandi bíla- dellu, teiknaði bíla í massavís og mig langaöi til þess að komast inn í skóla í Bandaríkjunum og læra að teikna bíla. Þetta var mjög þekktur skóli í Pasadena, þar sem frægustu bílateiknarar heims hafa lært. Ég sendi þeim nokkrar myndir og fékk inni þar líka. Þctta var svo spennandi skóli og ég var húinn að lesa svo mikið um hann að ég gat ekki sagt nei. En sem betur fer þá lciddist mér svo mikið þarna úti, því Los Angeles er auövitað hræðileg borg að vera í þegar maður er einn og ég tala ekki um bíllaus. Það var klukkutíma gangur í skólann. Þá ákvað ég að fara í eitthvað sem ég gæti lært á Islandi. Góður vinur minn var þá byrjaður í læknanámi svo ég ákvað að fara f læknanám líka, og það gekk prýðisvel. Læknisfræðin er líka svo skemmtilegt fag vegna þcss að maður getur valið sér sérgreinar eftir áhuga og eftir eigin per- sónuleika. Ég hefði til dæmis Ef melódían er nógu góð þá finnst már auk þess ekki þurfa að hafa neinn texta. Textinn má að minnsta kosti ekki vera mikið verri en lagið svo hann skemmi það ekki. ekki orðið góður skurðlæknir. En sumar greinar höfðuðu meira til mín en aðrar og þegar ég fór að vinna á Kleppspítalan- um á sumrin þá heillaðist ég gersamlega. Sem mörgum finnst nú frekar skrýtið, en það átti við mig. Svo lauk ég því, og þá fékk ég eina delluna enn. Það var 1976, þá settum við í gang læknarnir á áfengisdeild Landspítalans vistheimilið á Vífilsstöðum. Við fórum að vinna eftir alveg nýjum aðferðum sem voru kenndar við Minnesota og Þótt ég hefði átt lífið að leysa þá hefði ég aldrei getað ímyndað mér að ég ætti eftir að spila á píanó opinberlega, og hvað þá frumsamið. Freeport og fleiri staði. Þetta var eiginlega fyrirrennari SAA. Ég fór út og kynnti mér þetta og var í þessu í tvö ár, og var óskaplega áhugasamur eins og ég verð gjarnan," segir Grétar. Vildi losna út úr geðdeildunum „Eftir þetta fór ég til Svíþjóðar að læra geðlækningar og var þar f þrjú ár. Svo kom ég liing- að heim, fór fyrst á Landspítal- ann en svo fljótlega á Borgar- spítalann. Þar var ég lengst af á geðdeildinni og líkaði óskap- lega vel. Ég hef vcrið mjög heppinn með samstarfsfólk alla tfð. En þetta er óskaplega erfið vinna að vera inni á spítölun- um á geðdeildunum. Maður gerir eiginlega ekkert annað á meðan þannig að árið 1991 vildi ég fara að losa mig úr þessu og vera bara á stofunni, því þá hafði ég jafnframt verið með eigin stofu í ein tíu ár. Það tókst þó ekki nema í eitt ár, því þá var ég beðinn að koma að Sogni. Ég lét tillciðast og vann á Sogni í nokkur ár, 1993-96, og það var mjög skemmtilegt tímabil. Mér fannst þessar réttargeðlækn- ingar svo skemmtilegar að ég fór til Svíþjóðar og fékk rétt- indi sem réttargeðlæknir. Við erum bara tvö sem erum réttar- geðlæknar á íslandi, ég og Lára Halla Maack. Ég var í tvö ár með annan fótinn í Svíþjóð og hinn á Sogni." - Það var stormasamt þar á tímahili? „Já, það mátti ekki reka þetta á sómasamlegan hátt og þá bara hætti ég," segir Grétar. „Síðan hef ég veriö bara á stolunni minni í Kringlunni, og það var upp úr því sem ég fór að semja. Þegar ég hætti á Sogni fór maður að eiga frí á kvöldin og um helgar, laus við allar vaktir og upphringingar. Dóttir mín var að byrja að Iæra að spila og fór að semja sjálf, og þá einhvern veginn kom þetta þvf maður hafði nægan tíma og hugarró tii að gera svona hluti. Því maður þarf óneitanlega mikinn tíma í þetta,“ segir Grétar. Önnur fjölskylda í Bandaríkjunum „Það er óhætt að segja að ég hafi átt mjög skemmtilega ævi. En þetta er allt í svona köflum hjá mér, og maður spyr sig hvað kemur næst. Ég vona samt að þessu tónlistartímabili Ijúki ekkert, það er það al- skemrntilegasta sem ég hef fengist við.“ „Ég var líka skiptinemi í eitt ár í Bandari'kjunum," bætir Grétar við, „og það hefur sett mjög stóran svip á mitt líf, þvi' þar á ég í raun aðra fjölskyldu sem ég heimsæki á hverju ári og stundum oftar. Ég sendi þeim lögin mín alltaf á spólu og þeim þykir svo gaman að því." - Ertu með einhver áform um að koma lögunum þinum út á plötu? „Nei, ég hef engin áform um það. Nema þá í ellinni.11 - Hefur enginn verið að nefna það við þig? „Jú, það hefur reyndar farið vaxandi núna. Maður líklega neyðist til þess, en ég hef satt að segja lítinn tími í slíkt. Ég vinn svo Iangan vinnudag, al- veg frá ni'u til sjö.“ Tónlistarfjölskylda Grétar á reyndar ekki Iangt að sækja tónlistargáfuna. Hann ólst upp í Hlíöunum og í fjöl- skyldunni var tónlistin jafnan í hávegum höfð. „Ég ólst upp við mikla tónlist og mikinn söng. Það spiluðu eiginlega allir á hljóðfæri og al- veg ólærðir sumir, voru bara með þennan hæfileika að geta spilað hvað sem var. Það var spilað á allt, greiður og þvotta- bretti. I ættinni er líka mikið af þekktu tónlistarfólki og við gorturn af því stundum. En það er kannski eitthvað farið að vatnast út nú orðið," segir Grétar. „Móðurafi minn var Pálmar Isólfsson hljóðfærasmiður, hróðir Páls. Langafi minn, Isólfur Pálsson, samdi geysi- mikið af lögum sem eru spiluð í útvarpi enn þann dag í dag, I birkilaut og mörg önnur geysi- falleg lög. Bróðursonur hans var Friðrik Bjarnason, sem samdi meðal annars Fyrr var oft í koti kátt og Llafið bláa hafið. Svo var náttúrlega Páll ísólfsson geysilega merkilegur maður. I föðurættinni er síðan Sigfús Halldórsson. Beyndar fjarskyldur, en hann kallaði pabba alltaf frænda. Pabbi samdi ekki músík sjálfur en hann samdi bæði texta og ljóð. Bróðir minn er Iíka hljóð- færasmiður eins og afi. Hann er eldri en ég og spilaði mikið sem strákur, var með hljóm- sveitir og þeir voru að æfa heima. Þannig aö maður ólst upp við þetta. Pabbi var líka alltaf að fá hingað til landsins danska drengjakóra, stóð fyrir því ásamt öðrum. Og svo var maður í KFUM þar sem pabbi spilaði á orgel og bróðir minn á píanó í sunnudagaskólanum. Þannig að tónlist var alltaf hátt skriluð. En mér leiddist alveg óhemjumikið í Tónlistarskólan- um og svo fjaraði það bara út.“ Kostur að kunna lítið „En nú er ég meira að segja farinn að spila opinberlega, á jólagleði og í brúðkaupum. Þótt ég hefði átt lífið að leysa þá hefði ég aldrei getað ímynd- að mér að ég ætti eftir að spila á píanó opinbcrlega, og hvað þá frumsamið. Það hefði eng- inn getað logið þvf að mér fyrir nokkrum árum." - Þú ætlar ekki að fara að læra meira í tónlist? „Ég held að maður sé bara orðinn of gamall til þess. En mig langar til að læra meira í tónfræði. Hann Karl Ottó Run- ólfsson kenndi mér tónfræði í gamla daga, og ég lærði nú dá- lítið hjá honum en mér leiddist alveg svakalega tónfræðin. Núna hef ég meiri áhuga á henni. En ég held að það sé líka kostur að kunna svona lítið eins og ég, maður verður svolít- ill naífisti." -GB Grétar Sigurbergsson:. „Flest lögin mín eru mjög róleg, og það er nú kannskl bara vegna þess að ég kann ekki nóg til að spila hraðar." -mynd: jak

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.