Dagur - 17.02.2001, Page 10

Dagur - 17.02.2001, Page 10
 10 - LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2001 Systurnar ásamt vinkonu sinni Sigurlaugu Árnadóttur í Hraunkoti. Svífa um svellið Þótt flestum finnist neikvætt að vera „á hálum ís“ þá á það ekki við um þær systurnar Sigurlaugu og Ragnhildi Eik Árnadætur. Þær kunna hvergi betur við sig en á svelli, það er að segja ef þær hafa skauta á fótum. Sigurlaug er 16 ára og Ragnhildur 9. Þær slógu báðar í gegn og sigruðu í sínum flokkum í listhlaupi á skautum á lslands- móti harna og unglinga fyrir hálfum mán- uði. Sigurlaug er Iíka nýkomin af Norður- landameistaramóti í Danmörku, var sú eina sem keppti fyrir Islands hönd og reyndar fyrsti f’ulltrúi Islands á slíku móti. Hún kveðst ánægð með árangurinn þar. „Maður fær þrjár og hálfa mínútu og það er ekki nóg að geta gert hlutina utan þess tíma á einhveijum öðrum stað. Þeir verða að ganga upp akkúrat þarna og það tókst mjög vel hjá mér. Mér finnst alltaf rosalega erfitt að keppa og er fegin þegar það er búið.“ Stóra systir byrjaði Ragnhildur hefur líka farið út fyrir land- steinana með skautana sína og keppt á alþjóðlegu móti í Finnlandi. Hér innan- lands hefur hún tekið þátt í sex mótum og oftast farið með sigur í sínum flokki. Aðspurð kveðst Sigurlaug ekki hafa tölu yfir sína sigra, nema hvað hún hafi unnið kvennaflokkinn þrisvar. Þrjú síð- ustu ár hefur hún hlotið titilinn skauta- kona ársins óg þegar lítið er á hillu í her- berginu hennar vitna röð af bikurum og ótölulegur fjöldi verðlaunapeninga um góðan árangur gegnum árin. En hvað var það sem kveikti áhugann? Sigurlaug: „Það var Steinvör, eklri syst- ir okkar sem byrjaði og þá fékk ég bakter- funa. Ætli ég hufi svo ekki smitað Ragn- hildi?" Því samsinnir Ragnhildur og kveðst vera búin að æfa sig á skautum frá því hún var fögurra ára. Þeim finnst þetta báðum alveg ótrúlega skemmtilegt. Sigurlaug: „Ég byrjaði ekki að æfa fyrr en 8-9 ára. Þá var svellið í Laugardalnum óyfirbyggt en ég fór í almenningstímana og hélt til á svellinu klukkustundum sam- an. Kom oft ekki heim fj'rr en seint á kvöldin. Ég gat skautað endalaust." Byrja 6 á morgnana Nú duga þeim ekki kvöldin lengur heldur byrja þær kl. 6 á morgnana og eru búnar að taka nokkrar léttar sveiflur á svellinu áður en þær fara í skólann. Sigurlaug mætir reglulega á þeim tíma þrjá daga vikunnar og Ragnhildur líka þegar keppn- ir eru framundan. Þá þurfa þær að vakna kl. 5.15 og móðir þeirra, Kristbjörg Guð- mundsdóttir, líka, því það kemur yfirleitt í hennar hlut að keyra þær. Svo er það pabbinn, Arni Kjartansson sem sækir þær oftast um leið og hann fer í vinnuna. „Það styttist nú í að ég taki bílprófið og þá losna þau við þessa endalausu snún- inga með mig,“ segir Sigurlaug. Þær segjast verða að byrja svo snemma dags að æfa vegna þess að Skautahöllin sé alltof lítil fyrir allan þann fjölda sem þar þurfi að komast að. Ragnhildur: „Við erum 240 krakkar sem æfum á vegum okkar félags og erum með 14 tíma á viku á svellinu. Það er alltof Iítið.“ Sigurlaug tekur undir það: „Þetta plássleysi háir bæði hokkí og list- skautaíþróttinni og almenningur vill líka meiri tíma svo það er mjög brýnt að fara Skautadrottningar Ragnhildur Eik og Sigurlaug. mynd: hari ParadísarheHir heiik Tóniistin er eitt af áhugamáiunum. að byggja nýja skautahöll." Sigurlaug hefur orðið að sækja þjálfun í skautaíþróttinni til annarra Ianda und- anfarin fimm sumur, oftast til Englands en síðast fór hún til Prag að æfa sig, ásamt danskri stúlku sem hún kynntist á móti í Finnlandi. „Hér er svellinu lokað í rúma þrjá mánuði yfir sumartfmann. Það er alltof langt. Maður gloprar öllu niður á svo löngum tíma," segir hún. En býst hún við að hafa atvinnu af skautaíþróttinni í framtíðinni? „Ekki við að skauta en auð- vitað er hægt að hafa atvinnu af að kenna eða dæma. Ég er ekki búin að ákveða hvort ég geri það. Ég ætla að minnsta kosti ekki að einblína á það heldur fara í eitthvert háskólanám." Mörg önnur áhugamál Þær systur eiga önnur áhugamál en skautana því auk þess að bregða sér á skíði með mömmu sinni þegar færi gefst þá æfir Ragnhildur badminton og Sigur- laug djassballett. Ekki nóg með það. Þær eru báðar í tónlist, Ragnhildur spilar á þverflautu og Sigurlaug á saxófón. Sigurlaug: „Ég er búin að vera í tónlist síðan ég var lítil. Er núna í Tónlistarskóla FIFI og spila með Bigbandi sem er létt- sveit Tónlistarskóla Reykjavíkur." Fleira er þeim til lista lagt því þegar farið er að skoða myndir kemur íljós að Sigurlaug hefur tekið þátt í hönnunar- keppni og búið til kjól eftir eigin teikn- ingu og geta má þess að prjónarnir ganga stöðugt hjá Ragnhildi á meðan viðtalið fer fram. Að lokum berst talið að Lóns- sveitinni þar sem þær dvelja oft á sumrin með fjölskyldunni f sumarbústaðnum Raftahlíð sem amma þeirra og afi byggðu - og Ragnhildur klykkir út ineð hugljúfri sögu úr sveitinni: „I sumar fundum víð mamma og pabbi lamb sem var króað inni á lítilli lóð og hafði ekkert fengið að drekka í lengri tíma. Við fórum með það í bústaðinn og gáfum því og það styrktist fljótt. Svo fórum við að Vitja um net og þá fundum við annað lamb sem lá afvelta og var örugglega búið að liggja þar í viku. Þannig að við björguðum tveimur lömb- um sama daginn og það var nú gott.“ GUN.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.