Dagur - 17.02.2001, Blaðsíða 17
TD^utr
LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2001 - 17
Fjölbreytt félagslíf í MA. Andi
Djúpu laugar Skjás eins á
kvöldvöku. Margt fleira
framundan. Bekkjakerfið eykur
samheldni.
Andi sjónvarpsþáttarins Djúpu laugarinnar
á Skjá einum sveif yiir vötnunum á kvöld-
vöku þeirri sem nemendur Menntaskólans
á Akureyri héldu sl. fimmtudagskvöld.
„Þetta var svona síðbúinn Valentínusardag-
ur,“ segir Kolbrún Gunnarsdóttir, Inspector
scholae í samtali við Dag og bætir við að
félagslíf í skólanum sé bæði mikið og fjöl-
breytt. Ætla megi að um helmingur af sex
Viltu vinna Jón?
hundruð nemendum skólans séu virkir
þátttakendur í félagslífinu - og hinir komi
svo, sýni sig og sjái aðra, við þær helstu
uppákomur sem séu í félagslífinu á vetri
hverjum. Þar megi til dæmis nefna peysu-
fataballið sem haldið er þann 1. desember
ár hvert, en á ball þetta, sem er hin eigin-.
lega árshátfð nemenda, koma nemendur
fjórða bekkjar í peysufötum.
Viltu vinna Jón
Viltu vinna Jón? Sú var ylirskrift annars
tveggja leikja sem farið var í á kvöldvök-
unni í MA á fimmtudaginn, en þetta var
nokkurs konar skopstæling af þættinum
Viltu vinna milljón á Stöð 2. Leikur þessi
var nokkurs konar hlint stefnumót, þar
sem pör sem ekki hel'ur kynnst
áður fara f framhaidinu saman í
ljós, sund og á veitingahús. Svo er
þeirra að spila úr framhaldinu - ef
eitthvað verður. Hinn leikurinn var
svo spurning til para um það
hversu vel þau þekktu hinn aðil-
ann. Þrjú rétt svör gáfu bíómiða,
sex rétt svör gáfu ljósatíma, níu rétt
svör úttekt fyrir einn á veitingahúsi
og tólf rétt - eða fullt hús stiga -
niat fj'rir tvo.
„Mér finnst rosalega gaman að
vera í forystu nemendafélagsins.
Maður kyTinist mörgum og um-
gengist marga, en lærir líka að
skipuleggja hlutina vel og einriig
sjálfan sig,“ segir Kolbrún Gunn-
arsdóttir. Hún segir samheldni
Bekkjarkerfið styrkir félagslífið, segir Kolbrún Gunnarsdóttir
sem er Inspector Scholae.
meðal nemenda í MA vera sérlega
góða sem helgist ekki síst að bekkj-
arkerfinu.
Söngvakeppni
um miðjan mars
Margt er framundan f starfi nem-
enda Menntaskólans á Akureyri á
næstunni. Þar má meðal annars
nefna karla og kvennakvöld, þar sem
á sitt hvoru kvöldinu verður gert það
sem hvort kyn um sig er mest heillað
af. Þann 15. mars er síðan
söngvakeppni MA, en það er aftur
forkeppni fyrir Söngvakeppni fram-
haldsskólanna sem árlega er haldin
á útmánuðum.
-SBS.
Líf eftir verkfall
Prófum lokið í MA og vor-
önn að byrja. Skólameist-
ari óttast að talsvert brott-
fall sé vegna verkfallsins
og segir ásókn meiri í
námskeið við prófkvíða og
til námsráðgjafa.
Menntaskólinn á AkureyM hefur í
áraraðir verið talinn einn af bestu
menntaskólum landsins, þekktur
fyrir aga og að útskrifa sína nem-
endur. Þaðan hefur margur vel upp-
lýstur nemandinn gengið út með
prófslurteini og haldið á vit framtíð-
arinnar. Haustannarpróf eru nú
senn á enda, þá er spurning hvort
verkfall kennara hafi sett strik í
reikning frammistöðu nemenda.
Tíðindamaður Dags fór í MA, og
kynnti sér aðstæður í miðri
próftörn. Eftir að hafa gengið inn
marrandi trégólfið sem einkennir
eldri byggingu skólans, í átt að skrif-
stofu rektors, var ekki hægt að fínna
annað í ylirþyrmandi þögninni, en
þungar hugsanir nemenda í leit að
réttu svari til að skrila niður á hlaðið
sitt.
Tryggvi Gíslason rektor var bjart-
sýnn þrátt fyrir röskun, og sagði
bæði nemendur og kennarar hafa
komið til starfa eftir verkfall með
mjög jákvæðu hugarfari, þannig að
starfið hafí gengið afar vel.
- Hvemig hefur ástandið veríð
fram að prófaviku?
„Við kenndum fjórar vikur eftir
verkfall, frestuðum haustannarpróf-
um um hálfan máfiuð og prófuðum
í 10 daga. Við höfum þurft að breyta
bæði kennsluaðferðum og verkefn-
um, höfum orðið að fiækka verkefn-
um, en höfum reynt að fara yfír
námsefnið á svipaðan hátt. Verkfall-
ið veldur því þó, að við lengdum
haustönnina um tvær vikur. Þá
misstum við í rauninni tuttugu
daga, en hins vegar verður vorönnin
álíka löng og hún hefur verið, því
við kennum nokkra auka daga.
Tryggvi Gíslason, skólameistari.
Haustannarprófin eru verulega erf-
ið, og yfirferð er kennurum erfið
líka, að stokka upp allt námsefni,
stytta það eða fella niður verk-
efni.“
-Hefur rektor áhyggjur af meira
brottfaUi sökum verkfalls?
„Já, það er meira brottfall núna
en hefur verið. Sex hundruð nem-
endur byrjuðu nám í haust og nú
þegar eru hættir tuttugu nemendur
sem er meira en venjulega og óttast
ég meira hrottfall úr skólanum.
Mætti það nú fyrr vera að svona
langt verkfall hefði engin áhrif og
auðvitað éru það þeir nemendur
sem eru veikastir á svellinu, eins og
gefur áð skilja sem hætta."
- Standið þið fyrir aukakennslu?
„Nei, en við erum með cndur-
tekningaráfanga f stærðfræði á
vorönn."
- Komið þið til með að vera lið-
legri við nemendur?
„Alveg tvímælalaust. Eg hef
orðað það svo að við eigum að
prófa létt, en ekki leggja fvrir létt
próf. það er hugmyndin að taka
Íétt á móti nemendum og taka til-
lit til aðstæðna. Það sem nú er
einstakt fyrir MA, er að við höf-
um stofnað samráðsnefnd. Þar
eiga sæti tvæir nemendur, tvcir
kennarar og tveir stjórnendur
ásamt námsráðgjafa. Öll mál sem
upp koma fara fyrir þessa nefnd
og hefur það gengið afar vel hing-
að til. Þar hafa veriö leyst mörg
mál sem annars hefðu farið fyrir
skólameistara eða skólaráð.
Einnig erum við mcð tvo náms-
ráðgjafa í fullu starfi og er það
mjög sjaldgæft í sex hundruð
manna skóla."
- Hvernig taka nemendur þessu
öllu saman?
„Því er ekki að neita að ncm-
endur eru streittari, þeir hafa
komið vel undirhúnir og áhuga-
samir, en kvíðnir, og þá alveg sér-
staklega fyrstu bekkingar sem
fengu bara nokkrar vikur hér í
skólanum, en þeir eru miklu verr
settir en efrihekkingar sem eru
farnir að Iæra á skólann. Nú er
miklu meiri ásókn í námskeið í
prófkvíða og miklu meiri ásókn til
námsráðgjafa vegna verkfalls.11
Nemendur v'oru léttir í fasi, en
þó misglaðir og misánægðir með
frammistöðu kennara fyrir próf,
en liðlegheit hafi veriö áberandi.
Að sögn yngri nemenda, var
mikið stress og mikið álag og
flestir fóru í aukatíma, og þá í
stærðfræði. Erfitt hafi verið að
átta sig á, hvaða námsefni yrði
tekið fyrir í hverju fagi fyrir sig,
og þar af leiðandi hafi heimalær-
dómur í verkfallinu sjálfu ekki
verið mikill. Eldri nemendur voru
mun jákvæðari og bjartsýnir þrátt
fyrir röskun, og voru ekki að láta
verkfalliö hafa mikil áhrif á sig og
var ekki annað að sjá en þar væru
á ferð vel undirbúnir hugaðir ein-
staklingar sem báru mikla sam-
kennd með yngstu nemendunum.
Ilelga Berglind Jónsdóttir
Anna Margrét Ólafsdóttir
sagði að stærðfræðiprófið
hafi verið þungt og of langt
miðað við tíma!
HHda Óladóttir var ekki
ánægð með frammistöðu
kennara eftir verkfallið en hún
lærði þó mikið í verkfallinu
sjálfu.
Sólveig María Ólafsdóttir var
bæði ánægð með þaö hvern-
ig kennararnir höfðu unnið
upp það sem féll niður vegna
verkfallsins og var bjartsýn
með útkomuna i prófunum.