Dagur - 17.02.2001, Qupperneq 20

Dagur - 17.02.2001, Qupperneq 20
20 - LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2001 -T)^ur R A Ð A I J G L Ý S I Iti G A R S T Y R K I R A T V I N Iti A 0 T B B B Menntamálaráðuneytið Styrkur til háskólanáms í Tékklandi Tékknesk stjórnvöld bjóöa fram styrk til átta mánaða námsdvalar við háskóla íTékklandi skólaárið 2001-2002. Styrkir til skemmri námsdvalar koma einnig til greina þó ekki skemur en til þriggja mánaða. Umsóknum um styrkinn skal komið til menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 9. mars nk., á umsóknareyðublöðum sem þar fást. Umsóknum fylgi staðfest afrit prófskírteina ásamt meðmælum. Menntamálaráðuneytið, 16. febrúar 2001 menntamalaraduneyti.is V VIMIVUMÁLA STOFFMUIM Styrkir til atvinnumála kvenna Félagsmálaráðuneytið hefur á þessu ári heimild til að úthluta í styrki 20 milljónum króna til atvinnumála kvenna. Ahersla er lögð á að greinargóð lýsing á verkefni fylgi með umsókn, sundurliðuð kostnaðaráætlun svo og að fram komi hvort leitað hafi verið til annarra um fjárstyrk. Tilgangur styrkveitinga er einkum að auka fjölbreytni í atvinnulífi, viðhalda byggð um landið og efla atvinnutækifæri á landsbyggðinni, auðvelda aðgang kvenna að fjármagni og að draga úr atvinnuleysi meðal kvenna. Skilyrði fyrir umsókn: • Allar konur hvaðanæva af landinu geta sótt um styrk. • Forgangs njóta nýsköpunarverkefni sem þykja líkleg til að fjölga atvinnutækifærum kvenna. Svæði þar sem hlutfall atvinnulausra kvenna er hátt og fábreytni í atvinnulífi eru þar með talin. • Styrkir ekki veittir til verkefna sem eru i samkeppni við aðila í hliðstæðum atvinnurekstri á landsvísu. • Til að verkefni sé styrkhæft í 2. eða 3. sinn þarf fyrir að liggja greinargerð vegna fyrri styrkveitinga. • Ekki eru veittir rekstrarstyrkir. • Ekki eru veittir styrkir til listiðnaðar en tekið er tillit til nytjalistar. • Stofnstyrki er heimilt að veita að hámarki 25% af stofnkostnaði til véla og tækjakaupa og einnig vegna húsnæðis til hópa. • Ekki eru veittir styrkir til afmarkaðra verkefna sem ekki eru atvinnuskapandi. • Ekki eru veittir styrkir til verkefna sem njóta greiðslna úr almannatryggingakerfinu. • Að öðru jöfnu nemur framlag af hálfu ríkisins ekki meir en 50% af heildarkostnaði við verkefnið. • Hámarksstyrkur á verkefni er kr. 2,5 milljónir. • Þeim aðilum sem hyggjast sækja um styrk til námskeiða/mennta-smiðju verkefna er bent á að hafa samband við Vinnumálastofnun. Umsóknareyðublöð fást á Vinnumálastofnun, Hafnarhúsi v/Tryggvagötu, Reykjavík, sími 515 4800 og á heimasíðu stofnunarinnar. www.vinnumalastofnun.is. Umsóknareyðublöðin er einnig hægt að nálgast hjá Impru, Iðntæknistofnun og hjá atvinnu- og iðnráðgjöfum á landsbyggðinni. Umsóknarfrestur er til 21. mars 2001 Austur-Hérað Byggingafulltrúi Austur-Hérað er sveitarfélag á austanverðu Fljótsdalshéraði, með liðlega 2.000 íbúa. Tveir þéttbýliskjarnar eru í sveitarfélaginu, Egilsstaðir og Hallormsstaður. Austur-Hérað er eitt mesta skógræktarsvæði landsins og hefur að bjóða gott og fagurt umhverfi, fjölbreytta þjónustu á öllum sviðum og góðar samgöngur. Egilsstaðir eru helsta miðstöð verslunar og opinberrar þjónustu á Austurlandi. Bærinn er gróðursæll og í örum vexti. Hér er mjög góð íþróttaaðstaða, hitaveita og flugvöllur með daglegum samgöngum við Reykjavík. Byggingafulltrúi er starfsmaður á umhverfissviði Austur-Héraðs, en þar starfa nú 5 manns, þ.a. einn í hlutastarfi. Austur-Hérað auglýsir hér með starf byggingafulltrúa laust til umsóknar. Leitað er að einstaklingi með arkitektúr-, verkfræði- eða tæknifræðimenntun sem uppfyllir skilyrði 48. og 49. gr. skipuiags- og byggingarlaga nr. 73/1977. Verkefni byggingafulltrúa eru eins og þau eru skilgreind í lögum og byggingarreglugerð, en auk þess sér hann um undirbúning og eftirfylgni verklegra framkvæmda, eftir aðstæðum. Starf byggingafulltrúa er laust nú þegar. Laun samkvæmt samkomulagi. Austur-Hérað getur verið til aðstoðar með útvegun húsnæðis. Umsóknarfrestur er til 10. mars 2001. Frekari upplýsingar um starfið veita bæjarstjóri í síma 471-1166 eða undirritaður í síma 471-1166 eða 863-3682 Egilsstöðum 13.02.2001 Þórhallur Pálsson forst.m. umhverfissviðs Austur-Héraðs 0 T B 0 Ð Akureyrarbær UTBOÐ Bæjarverkfræðingurinn á Akureyri, fyrir hönd Bæjarsjóðs Akureyrar óskar hér með eftir tilboðum í gatnagerð og lagnir í áfanga II. B í Nesjahverfi. Tilboðið nær til gerðar 470 lengdarmetra af götum ásamt tilheyrandi holræsa- og vatnslögnum. Helstu magntölur: Uppúrtekt úr götum Lagnaskurðir Lengd fráveitulagna Lengd vatnslagna Fylling 5250m3 100m 170m 490m 7850m3 Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Tæknideildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, Akureyri frá og með þriðjudegi 20. febrúar n.k. á 3.000 kr. Opnun tilboða fer fram á sama stað fimmtudaginn 8. mars 2001 kl. 10:00. Bæjarverkfræðingurinn á Akureyri Akureyrarbær UTBOÐ Akureyrarbær óskar eftir tilboðum í byggingu síðari áfanga Giljaskóla við Kiðagil á Akureyri. Heildarstærð nýbyggingar er 2407m”. Um er að ræða 2ja hæða byggingu sem í er salur skólans, bókasafn, tölvuver, heilsugæsla og sérgreinastofur ennfremur 3ja hæða byggingu sem í eru almennar kennslustofur og stofa fyrir tónlistarkennslu. í útboðinu er einnig allur frágangur lóðar norðan og vestan byggingar ásamt bílastæðum og leiktækjum á lóð. Verkið skal hafið strax að lokinni undirskrift samnings og því skal að fullu lokið 15. ágúst 2002. Útboðsgögn verða afhent á Arkitekta- og verkfræðistofu Hauks ehf Kaupangi við Mýrarveg, gegn 20,000,- kr skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á byggingadeild Akureyrarbæjar Geislagötu 9, 4. hæð, þriðjudaginn 6. mars nk. kl. 11,00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Byggingadeild Akureyrarbæjar. rs ■h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir IboAi im í ''Q+ownto l/nntofnim 0001 _ 00010" F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í "Steypta kantsteina 2001 - 2003" Helstu magntölur eru: Kantsteinn, hæð = 10 cm 6,0 km Kantsteinn, hæð = 15 cm 60,0 km Kantsteinn, hæð = 20 cm 4,0 km Verkinu lýkur árið 2003. Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með 20. febrúar 2000 gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: 28. febrúar, 2001 kl. 14:00 á sama stað. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Pósthólf 878 - I2l Reykjavík - Sími 552 5800 Bréfsími 562 2616/561 ll 20. Netfang: isr@rhus.rvk.is Veffang: www.reykjavik.is/innkaupastofnun - 660169-4079 i i i i i ÚTBjÖð j lingardeildar Borgarverkfræðings er r tilKrtAiim í bah\/irSrrorAir ó .Qolioolrr\lo _ F.h. Byggingardeildar Borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í Þakviðgerðir á Seljaskóla. Helstu magntölur eru: Þakklæðning: 798m2 Þakpappi: 862 m2 Útveggjaklæðning: 82 m2 Verktími: 1. maí til 17. ágúst 2001. Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: 1. mars 2001 kl. 14:00 á sama stað. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Pósthólf 878 - I2l Reykjavík - Sími 552 5800 Bréfsími 562 2616 /561 1120. Netfang: isr@rhus.rvk.is Veffang: www.reykjavik.is/innkaupastofnun - 660I69-4079 L

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.