Dagur - 03.03.2001, Síða 4
4 - LAUGARDAGUR 3. MARS 2001
Sniglaveislan
Ólaf Jóhann Ólafsson
Leikstjórn:
Sigurður Sigurjónsson.
Samstarfssýning við
Leikfélag íslands.
SÝNINGAR:
föstud. 02/03 kl. 20.00
örfá sæti laus
laugard. 03/03 kl. 20.00
UPPSELT
sunnud. 04/03 kl.16.00
örfá sæti laus
föstud. 09/03 kl. 20.00
laugard. 10/03 kl. 20.00
örfá sæti laus
sunnud. 11/03 kl. 20.00
laugard. 17/03 kl 20.00
Aðeins þessar
sýningar
jLil.il; JúiiliilíSiijLiiiuUiijl
Italnlrdlijyjjaliúijltl
ILEIKFELAG AKIIRFYRARI
Miðasalan opin alla virka daga,
nema mánudaga, frá kl. 13:00-
17:00 og fram að sýningu,
sýningardaga.
Sími 462 1400.
www.leikfelag.is
"Bófaleikur á
Broadway"
eftir
Woody Allen
Pýðing:
Hannes Blandon og
Ármann Guðmundsson,
Leikstjóri:
Hákon Jens Waage
Sýningar
í kvöld 3.mars kl 20.30
Fermingar
Prentum á
fermingarservíettur
Gyllum á sálmabækur
og kerti
Margar gerðir af
servíettum fyrirliggjandi
alprent
Glerárgötu 24-26
Akureyri
s: 462-2844
Hrói höttur Astrala
---------- I sumra augum var hann
BÚKA- ótýndur glæpamaður. Aðrir
HILLAIM ifta a ^ann sem ilctJu sem
'barðist við ógeðfelld og
mannfjandsamleg yfirvöld.
Flestir eru sammála um að
hann sé mikilvægt tákn um
þjóðarskapgerð Astrala.
Hér er átt vlð Ned Kelly
sem er eins konar sambland
af Hróa hetti og Jesse James.
Hann drap lögreglumenn og
rændi banka hinna ríku í
nafni réttlætis sem ekki var
til staðar í Astralíu upp úr miðri nítjándu öld-
inni. Og yfirvöldin tóku hann af lífi þegar
hann var aðeins 25 ára gamall.
Því er á þetta minnst hér að nýverið er
komin út skáldsaga um þessa áströlsku
skúrkhetju. Hún er eftir einn kunnasta rit-
höfund andfætlinga, Peter Carey, og heitir
einfaldlega: „True History of the Kelly
Gang.“
Hengdur 25 ára
Innnytjendur til Astralíu voru sem kunnugt
er einkum af tvennum toga. Annars vegar
fólk, ekki síst frá Jrlandi, sem bresk stjórn-
völd töldu glæpamenn og nuttu hálfa leið í
kringum hnöttinn. Hins vegar embætt-
ismenn og stórbænd-
ur breska heimsveld-
isins. Sambúðin
þarna á milli var afar
erfið, enda máttu fjöl-
skyldur fátæklinga
búa við afar slæm
kjör.
Ned Kelly var af
írsku foreldri; faðir
hans var fyrrverandi
fangi. Ned fæddist í
Viktoríu árið 1854.
Hann var elstur átta
systkina. Faðir þeirra
féll frá þegar Ned var
12 ára og þá settust þau
að hjá ættingjum í
Greta, sem er í um 240
Ned Kelly: áströlsk skúrkhetja.
Peter Carey: bókin sem hann hef-
ur beðið allt tífið eftir að skrifa.
kílómetra fjarlægð frá borg-
inni Melbourne. Þetta var
harðbýlt land og erfitt fyrír fátæklinga sem
fengu smáskika til að rækta. Enskir stór-
bændur fengu allt besta landið.
Þegar Ned var 16 ára var hann dæmdur
fyrir að hafa tekið við stolnum hesti.
Hann sat þrjú ár í fangelsi, en slapp út
aftur þjóðhátíðarár okkar Islendinga,
1874. Fjórum árum síðar gerðist atburð-
ur sem mótaði líf hans þau fáu ár sem
hann átti eftir ólifað. Lögreglumaður að
nafni Fitzpatrick kærði móður Neds fý'rir
árás á sig og Ned fyrir að hafa skotið sig
í höndina. Sagt er að þau hafi verið að
verja eina systur Neds fyrir yfirvaldinu.
Móðir hans var dæmd í þriggja ára fang-
elsi, en fé sett til höfuðs Ned sem tókst
að flýja.
Seinna sama ár sló í brýnu með Ned
og félögum hans og hópi lögreglu-
manna. I bardaganum sem fylgdi í kjöl-
farið skaut Ned þrjá þeirra til bana. Yfirvöld-
in svöruðu með því að heita hverjum þeim
sem næði Ned gífurlega fjárhæð í verðlaun.
Honum tókst samt að lifa með félögum sín-
um i' útjegð næstu tvö árin og rændi tvo
banka. I báðum tilvikum skildi hann eftir
bréf þar sem hann sagðist ofsóttur af lögregl-
unni; Fitzpatrick væri lygari og hann hefði
skotið lögreglumennina þrjá í sjálfsvörn.
Jafnframt krafðist hann réttlætis fyrir landa
sína.
Arið 1880 lauk ævi Kelly og félaga. Lög-
reglan umkringdi þá í hóteli. Allir féllu nema
Ned sem var handtekinn með hátt í þrjátíu
byssukúlur í líkamanum. Hann var síðan
hengdur.
Áströlsk þjóðarsál
I augum Peter Carey er Ned Kelly eins konar
táknmynd áströlsku þjóðarinnar, stigamaður
sem barðist gegn spillingu og ofríki bresku
heimsvaldastefnunnar í Astralíu. Ritun þessar-
ar sögu sé á vissan hátt leit að uppruna áströl-
sku þjóðarsálarinnar.
Carey er enginn nýgræðingur í skáldsagna-
listinni. Bókin um Kelly er áttunda skáldsaga
hans. Aður hefur hann meðal annars skrifað
Oscar and Lucinda sem fékk hin eftirsóttu
Bookerverðlaun árið 1988, og Jack Maggs sem
er saga sakamannsins í einni frægustu skáld-
sögu Charles Dickens, Great Expectations.
Hann fæddist skammt frá Melbourne og ólst
upp við þjóðsöguna mildu um Ncd Kelly. Hann
býr hins vegar eldd lengur í Astralíu, heldur á
Manhattan í New York ásamt konu sinni og
börnum og kennir við Barnard háskólann. En
sögur hans gerast yfirleitt í gamla heimaland-
inu.
Sem skáldsagnasmiður hefur Carey oft verið
borinn saman við höfunda á borð við Graham
Swift, J.M. Coetzee og Toni Morrison. Hann
leitar gjarnan aftur í tímann að söguefni, enda
hefur hann svipaða skoðun á hinu liðna og
William Faulkner - en í Kelly-bókinni birtir
hann eftirfarandi tilvitnun í þetta uppáhalds-
skáld sitt: „Fortíðin er ekki dauð. Hún er ekki
einu sinni Iiðin.“ Þetta segir hann eiga svo
sannarlega við um Ned Kelly; hann sé enn
bráðlifandi í hugarheimi Astrala.
Með Hannibal á heilanum
★ ★ ★
Hannibal.
Leikstjóri:
Bidley Scott.
Leikarar: Ant-
hony Hopkins,
Julianne Moore,
Giancarlo Gi-
anni, Gary Old-
man og Ray
Liotta.
Sýnd í Háskóla-
bíói, Laugarás-
bíó, Bíóhöllinní
og Borgarbíói á Akure>TÍ.
Bidley Scott er vandaður kvik-
myndahöfundur sem á að haki
myndir á borð við Alien, Blade
Runner og Thelma and Louise að
ógleymdum Gládiator frá síðasta
ári. Hann hefur varlá tekið að sér
að gera framhald af hinni um-
deildu mynd, Lömbin þagna, að
vanhugsuðu máli, enda gat það
engan veginn talist sjálfsagt mál
hvernig sem á það er litið.
Það er orðin gömul hefð í kvik-
myndum að ganga með reglulegu
millibili æ lengra í að ofbjóða
áhorfendum með ofbeldi og
ógeðslegheitum. Að stærstum
hluta er þessi niynd að vísu síst
verri en hver annar lögguþáttur í
sjónvarpinu, en eitt eða tvö atriði
undir lokin nægja þó til þess að
hún gefur lýrri myndinni ekkert
eftir hvað viðbjóð snertir.
Oft heyrast kröfur um að sett
verði einhver mörk um það hversu
langt má ganga í þeim efnum. I
þýsku tímariti var haft eftir geð-
lækni, sem í starfi sínu hefur haft
kynni af fjöldamorðingjum, að
mynd sem þessi geti hugsanlega
orðið tíl þess að þeir sem veikir eru
fyrir gangi yfir þröskuldinn. Sama
má reyndar segja um sjálfa Biblí-
una. Sú góða bók hefur svo sann-
arlega hrundið rnargri viðkvæmri
sálinni út í voðaverk af ýmsu tagi.
Erfítt gæti því reynst að setja raun-
hæfar reglur um það, hversu langt
má ganga í að ofbjóða mannsand-
anum.
Þessi mynd er að sumu leyti
verri en að sumu leyti betri en fýrri
myndin. Hér vantar vissulega þá
nagandi spennu milli mannæt-
unnar Hannibals Lecter og lög-
reglukonunnar Clarice Starling
sem léði fyrri myndinni kraft sinn.
Sömuleiðis eru þau hvort um sig
vart svipur hjá sjón miðað við íýrri
myndina, sem reyndar á sér eðli-
legar skýringar því þegar atburðir
seinni myndarinnar eiga að gerast
mega þau bæði muna sinn fífil
fegri, ef svo má að orði komast um
fjöldamorðingja.
Engu að síður er seinni myndin
gædd mögnuðu lífí sem vekur upp
óþægilegar hugsanir, og hún er að
flestu leyti vandaðra og heilsteypt-
ara verk en sú fýrri. Varla er hægt
að kvarta undan því þótt söguþráð-
urinn sé á köflum svolítið farsa-
kenndur í viðbjóði sínum, nógu er
nú efnið fáránlegt og Lömbin
þagna var ekki beinlínis nein
raunsæisfrásögn heldur. Auk þess
er engin ástæða til að kreljast þess
að í myndinni sé útskýrt af hveiju
Hannibal Lecter er eins og hann
er. Hann er einfaldlega sá sem
hann er, villidýr í mannsmynd og
goðsagnavera gædd nánast yfir-
náttúrlegum kröftum eins og vera
ber í draumaheimi kvikmyndanna.
Myndin Ijallar raunar ekki fýrst
og fremst um Hannibal Lecter
sjálfan, heldur frekar þá sem eru
með hann á heilanum. Clarice
Sterling vill góma fjöldamorðingj-
ann og koma honum í fangelsi,
þar er hin hefðbundna réttlætis-
kennd kvikmyndanna óspillt að
verki. Verger hinn afmyndaði, sem
á yngri árum varð fyrir barðinu á
Lccter, vill einnig góina hann, en
ekki til að koma honum í hendur
réttvísinnar heldur til þess að ná
fram persónulegri hefnd og sjá
hann kveljast óumræðilega. Italski
lögréglumaðurinn, sem fýrii' tilvilj-
un ber kennsl á Lecter á undan
öðrum, vill hins vegar græða pen-
ing, þiggja þau verðlaun sem í boði
eru fyrir upplýsingar sem duga til
þess að klófesta hann. Honunt er
sama hvort hann, selur Lecter í
hendur FBI eða Vergcrs, bara að
hann fái peningana. Oll eru þau
undir álögum Hannibals og láta
hann stjórna lífi sínu.
En þeir eru fleiri sem hafa feng-
ið Hannibal Lecter á heilann. Að
því leyti fjallar myndin beinlínis
um kvikmyndagerðarmennina
sjálfa, sem standast eldd freisting-
una að búa til framhald af fyrri
myndinni í von um fleiri áhorf-
endur og peninga í kassann. Og
áhorfendur standast heldur ekki
freistinguna að mæta til leiks og
láta mata sig á viðbjóðnum, og
sitja því á endanum undir þeirri
skömm að hafa tekið þátt í þess-
um ljóta Ieik.
Þar með hefur Hannibal tekist
að láta jafnt aðstandendur kvik-
myndarinnar sem áhorfendur
narta svolítið í heilann á sjálfum
sér. Og fór létt með það.
KVIK-
MYNDIR