Dagur - 03.03.2001, Blaðsíða 14
74
LAUGARDAGUR 3. MARS 2001
_________Da^ur
Heilsumolar
Margir bólfélagar
auka meinin
„Svo virðist sem konur haldi að ef brjóstakrabbamein sé ekki i ættinni þá séu þær ekki i hættu. Það er
bara ekki rétt, “ segir Laufey Aðalsteinsdóttir hjúkrunarforstjóri Leitarstöðvarinnar
Leitarstöð Krabbameinsfélags-
ins hefur bjargað mörgum
mannslífum með því að greina
krabbamein á frumstigi. Laufey
Aðalsteinsdóttir hjúkrunarfor-
stjóri svarar hér ýmsum spum-
ingum varðandi starfsemi
stöðvarinnar.
- Nú sendið þið út bréf til kvenna reglnlega
og boðið þær í krabbameinsskoðun. Hvemig
eru heimtur?
„Mætingarhlutfall hefur fallið talsvert á
seinni árum, því miður. Yngsti aldurshópur-
inn, 20-24 ára mætir verst og þar hafa
heimtur farið úr 66% í 59% á þremur árum,
frá ‘97-99. Allar tvítugar konur fá bækling
sendan heim og í honum er tekið fram að
hafi þær ekki byrjað að stunda kynlíf þurfi
þær ekki að mæta í skoðun en annars eru
þær hvattar til að mæta og vissulega er mik-
ilvægt að þær geri það því á þessum árum er
þróunarferill sjúkdómsins oft svo hraður."
- Eykur kynlíf hæltu d krabbameini?
„Já, ef stúlkur byrja snemma að stunda
kynlíf og eiga marga bólfélaga þá eykur það
hættu á leghálskrabba. I dag er vitað að það
er HPV (human papilloma) vírusinn sem er
forstig breytinga. Hann getur greinst hjá
báðum kynjum. Það eru að fara af stað
rannsóknir á því hvort hægt verði að bólu-
setja við honum en vandamálið er að teg-
undir vírussins eru svo margar."
- Fylgir þessi úhættuþáttur konunni allt
hennar líf þó svo hún stillist með ttmanum
og sængi bara hjá einum manni þegar á líð-
ur ævina?
„Hingað til hefur ekki verið fylgst með
sömu konunni í langan tíma. Við vitum
hins vegar að tíðni vírussins er miklu
hærri hjá ungum konum en þeim eldri.
Líklega myndar líkaminn mótefni en svo
eru einstaklingarnir mismunandi. Sumir
mynda strax mótefni þannig að vírusarn-
ir ná sér ekkert á strik, hjá öðrum geta
þeir valdið alvarlegum breytingum á
stuttum tíma.“
Eftirbátar nágrannaþjóða
- Hvað um brjóstakrabbaleitina. Eru hlut-
föllin svipuð þar?
„Við fáum enn færri konur í brjóstaleitina
en leghálsleitina. A sumum stöðum úti á
Jandi erum við með 98% mætingu en hér á
Reykjavíkursvæðinu er hún lélegust og
dregur niður heildarhlutfallið yfir landið
sem er um 62%, miklu Iægra en hjá ná-
grannaþjóðum. Svo virðist sem konur haldi
að ef bijóstakrabbamein sé ekki í ættinni þá
séu þær ekki í hættu. Það er bara ekki rétt.
Ættarsagan skiptir að vísu máli en flest þau
mein í brjóstum sem verið er að finna eru
ótengd ætt.“
- Þessi leitarstöð afar góð stofnun. Eiga
karlmenn enga möguleika á að fá leitað að
sínum meinum hér?
„Nei, ekki eins og er. Við konurnar höfum
forréttindi að þessu leyti. Brjóstakrabba-
mein er til í karlmönnum, þótt sjaldgæft sé
og ef þess hefur orðið vart eru þeir sendir
hingað í sýnatöku. Vonandi verður hægt að
bjóða bjóða báðum kynjum upp á ristilskoð-
un í framtíðinni og karlmönnum upp á
blöðruhálsskoðun. Blöðruhálskrabbi er al-
gengasta krabbameinið sem þeir glíma við
og tíðni þess hefur rúmlega þrefaldast frá
1960-1969. Þar er ekld hægt að taka ein-
föld og óyggjandi próf eins og gert er við leg-
hálskrabbameinsleitina. Þó svo mein geti
fundist með endaþarmsþreifingu þá verður
aldrei hægt að fá örugg svör úr henni því
eðlileg stækkun á blöðruhálskirtli verður
með aldrinum og hvenær sú stækkun verð-
ur illkynja er erfitt að greina.“
- Nií hefur tíðni húðkrabbameins aukist
mjög. Er ekki ástæða til að hefja kerfts-
bundna leit að því?
„Það er alltaf einn „blettadagur" á ári og
þá getur fólk farið til húðlækna í eftirlit.
Enn hefur ekki verið ákveðið að leita öðru-
vísi. Húðlæknum hefur fjölgað á síðustu
árum og ég verð bara að hvetja fólk að fara
til þeirra ef það verður vart við einhverjar
breytingar á sínum blettum." GUN.
Þvagleki
Þvagleki við áreynslu er ósjálfráður og
verður við líkamlega áreynslu, t.d. hósta,
hnerra, hlátur, hopp og við að lyfta þungu.
Þetta er fyrst og fremst vandamál kvenna
og getur aukist í tengslum við meðgöngu
og fæðingu, við tíðahvörf og almennt með
aldri.
Hvað er til ráða
Þjálfun grindarbotnsvöðva er einföld,
ókeypis og án aukaverkana ef rétt er að far-
ið og ætti því að reyna hana á undan öðru,
s.s. skurðaðgerð eða lyfjameðferð. Einkum
er mikilvægt að þjálfa grindarbotnsæfingar
vel eftir fæðingu.
Hvar eru grindarbotnsvöðvamir?
Mörgum finnst torvelt að þjálfa réttu vöðv-
ana þar sem erfitt er að finna hvar þeir eru.
Grindarbotnsvöðvarnir eru neðst í
mjaðmargrindinni og mynda þar nokkurs
konar gólf grindarholsins. Þeir eru um-
hverfis þvagrás, leggöng og endaþarm og
eiga ásamt hringvöðvunum að stjórna opn-
un og lokun þessara liffæra.
Æfingar
Þegar grindarbotnsvöðvarnir eru spenntir á
maður að finna botn mjaðmagrindar lyftast
aðeins upp og inn á við. Þetta verður án
meðhreyfinga í efri hluta líkamans,
mjaðmagrind eða fótum. Þegar maður hef-
ur náð að beita vöðvunum rétt, eru þeir
spenntir eins og hver getur án þess að nota
aðra vöðva og samdráttum fjölgað smám
saman upp í 8 til 12 skipti í hvert sinn sem
æft er. Andið rólega á meðan vöðvarnir eru
spenntir.
Munið að margar konur eiga við þetta
sama vandamál að stríða. Veljið hreyf-
ingu eins og t.d. röska göngu, sund,
hjólreiðar eða leikfimi án hopps og
hlaups meðan þið eruð að þjálfa grind-
arbotnsvöðvana.
Ef engin breyting er á ásandinu eftir
2ja til 3ja mánaða þjálfun, ætti að leita
til Iæknis eða sjúkraþjálfara til frekari
skoðunar.
Ekki segja skamm!
Vinkona mín á í miklum
vanda. Sex ára dóttir
hennar hefur teldð upp á
þeim sið að snerta á sér
píkuna í tíma og ótíma.
Gildir einu hvort hún er
komin í háttinn eða situr í
miðju vöffluboði með
þremur ömmusystrum.
Vinkona mín roðnar ægi-
lega og verður mjög kind-
arleg þegar þetta gerist og
veit ekki sitt rjúkandi ráð.
Hún er nefnilega búin að lesa það svo oft
í kynlífspistlunum að það sé svakalega
óhollt að banna börnum að fitla við sig og
geti síðar meir leitt til kynferðislegra geð-
flækna sem erfitt kann áð reynast að
greíða úr. Því lofaði ég að bregðast við
skjótt sem skátastúlka og helga pistilkorn-
ið þessu máli sem flestir foreldrar rekast
einhvern tfma á, í það minnsta ef þeir
draga höfuð sín upp úr foreldrasandinum
nógu Iengi til að fatta að iitlu börnin eru
líka kynverur.
Snemma beygist...
Ojá kynþroskinn hefst snemma og þá er
ég ekki að tala um kynþroskann sem við
tölum venjulega um og allsráðandi er hjá
unglingunum okkar unglingaveiku. Blæð-
ingar, kynháravöxt, brjóstavöxt, tippavöxt
og nætursáðlát geta flestir foreldrar ráðið
við, enda hafa þeir sjálfir gengið gegnum
það skeið og þekkja af eigin raun. Kyn-
færafitl á unga aldri er kannski eitthvað
sem erfiðara er að rifja upp, bæði vegna
tímaþáttarins og minningaþokunnar en
kannski ekki síður vegna þess að foreldrar
brugðust ókvæða við og slógu á litlar
hendur. Þannig mávera að minningarnar
séu faldar í þykkum hjúp skammar og
blygðunar.
Skoða og snerta
Fræðimenn kynfræðinnar eru sammála
um að þróun mannsins sem kynveru hetj-
ist mjög snemma. Til eru myndir af fóstr-
um í móðurkviði sem eru að fitla við kyn-
færi sín - voða krúttlegt. Ahugi barna á
ky'nfærum sínum verður oftast greinilegur
snemma á ævinni og það er ofureðlilegt að
barn skoði og snerti líkamann sem það er
í óða önn að uppgötva og að sjálfsögðu
stoppar barnið við þau svæði þar sem
snerting framkallar líkamlega vellíðan,
eins og til dæmis kynfærin. Forcldrar eiga
það til að fagna óspart tímamótum í þros-
ka litla einstaklingsins eins og fyrsta hjal-
inu, fy'rsta skrefinu eða fyrsta orðinu, en
fáum dytti í hug að slá upp veislu þegar
litli engillinn uppgötvar kynfærafitlið eða
sjálfsfróunina eins og við köllum fyrirbær-
ið oftast. Kannski finnst flestum foreldr-
um þægilegra að horfa framhjá því að litla
barnið er líka kynvera, það verður víst nóg
að fást við þegar unglingaveikin og kyn-
þroskinn halda innreið sína á heimilið.
Það er því miður ekki hægt að einfalda
hlutina svona og þess vegna koma hér
nokkur ráð handa foreldrum sem vilja
hemja börn sín í vöffluboðum.
1. Ekki skamma barnið. Viðurkennið
heldur að þetta sé eitthvað sem barninu
þykir gott.
2. Utskýrið fyrir barninu að þetta sé eitt-
hvað sem maður eigi að gera heima hjá
sér og í næði. Bendið barninu á að
mamma og pabbi geri hara svona í ein-
rúmi en ekki inni í stofu. Ef barnið er
mjög ungt eða ómálga má koma skila-
boðunum áleiðis með því að leiða það
inn í sitt herbergi, blíðlega og brosandi,
og gefa því næði þar.
3. Munið umfram allt að sjálfsfróun
barna er eðlilegur og heilbrigður hlut-
ur. Með því að sncrta sig er barnið að
Foreldrar eiga það til að fagna óspart tímamót-
um í þroska litla einstaklingsins eins og fyrsta
hjalinu, fyrsta skrefinu eða fyrsta orðinu, en
fáum dytti í hug að slá upp veislu þegar litli eng-
illinn uppgötvar kynfærafitlið eða sjálfsfróunina
eins og við köllum fyrirbærið oftast.
kynnast líkama sínum og mynda
grunninn að heilbrigðu kynlífssam-
bandi við sjálft sig.
Ragnheiður Eiríksdóttir
er hjúkrunarfræðingur
og kynlífsráðgjaft persona.is
KYIMLIF
Ragnheiður
Eiríksdóttir
skrifar