Dagur - 03.03.2001, Qupperneq 9

Dagur - 03.03.2001, Qupperneq 9
 LAUGARDAGUR 3. MARS 2001 -9 Hnni|anig|B| " 'I II LAlJÐJi Sameiningarkosningar eina skyldan Það kann að hljóma eins og brandari að þau mál sem almenn- ingur hefur í gegnum tíðina helst átt kost á því að greiða atkvæði um í almennum atkvæðagreiðsl- um eru um áfengisútsölur, hundahald og sóknarpresta. Skv. áfengislögum frá 1998 þarf nú ekki að greiða atkvæði um áfeng- isútsölur í almennum atkvæða- greiðslum og sama gildir orðið um hundahald. ,,Eg get ekki het- ur séð en að einu ákvæðin sem skylda sveitarfélögin til að viðhafa almenna atkvæðagreiðslu séu við sameiningu sveitarfélaga," segir Sigurður OIi Kolbeinsson, lög- fræðingur Sambands ísl. sveitar- félaga. Einnig má skv. 83 gr. sveit- arstjórnarlaga vísa endurskoðun samþykkta byggðasamlaga í al- menna atkvæðagreiðlu, en líklega verður það þó seint gert, segir lögfræðingurinn. Meðal annars að ósk presta hefur möguleikinn á því að hægt sé að velja sóknarpresta í almenn- um atkvæðagreiðslum verið þrengdur mikið. Framundir Iok níunda áratugarins varð að velja presta í hvert brauð með almenn- um kosningum, sem voru oft átakamiklar. Þá var val á prestum fært yfir til sóknarnefndanna en þegar val þeirra lá fyrir gátu sókn- arhörn óskað eftir almennum prestkosningum. þ.e. ef 25% þeirra lögðu inn til kjörnefnda lögmæta undirskriftalista. Fyrir fáum árum var möguleikinn á prestkosningum þrengdur enn frekar með þeim hætti að nú þarf þriðjungur sóknarbarna að óska eftir kosningum við biskup eigi síðar en hálfum mánuði eftir að aö brauðið var auglýst laust til umsóknar. Þá er val presta nú í höndum valnefnda en ekki sóknarnefnda eins og var. Má í raun segja að nýjar reglur hafi allt að því útilokað möguleik- ann á prestkosningum, enda hefur til engra slíkra veriö efnt nú allra síðustu ár. Flugvallarkosningamar þroskamerki Snemma árs 1968 skrifaði ungur stjórnmálafræðingur grein í Tím- ann þar sem hann sagði óða- pólítík ríkja á íslandi. „Hinir pól- itísku valdhafar hafa á undan- förnum áratugum tröllriðið ís- lensku þjóðfélagi. Þeir hafa inn- leitt á öll svið hið pólitíska hags- munamat og ... byggt upp kerfi, þar sem pólítískum valdhöfum er liðið að vasast í hverri félagslegri athöfn og jafnvel einkalífi manna, hafa ítök blátt áfram í einu og öllu,“ sagði Ólafur Ragnar Gríms- son í greininni sem Dagur B. Eggertsson læknir gerir að inn- gangsorðum í kafla í greinasafn- inu „ísland á nýrri öld“ sem kom út fyrir síðustu jól. Segir Dagur þar að orð núverandi forseta Is- lands eigi enn við í mikilvægum atriðum. Því vaknar sú spurning hvort íslensk þjóðmál séu nægi- lega „þroskuð" til þess að ráða við málefnakosningar líkar þeim sem nú á að efna til um tlugvöllinn. Er ekki hættan sú að pólftískir hagsmunir og skæklatog beri mál- efnið ofurliði? „Þjóðin og borgarhúar eru til- búnir. Það sést glögglega á hinni blómlegu umræðu sem hvarvetna á sér stað, með og á móti flugvell- inum," segir Dagur B. Eggertsson Iæknir, sem þekktur er fyrir rit um Steingrím Hermannsson. „Mér sýnist aðallega barist með málefnalegum rökum, sem draga fram kosti og galla flugvallar í Vatnsmýri. I þeim skilningi má segja að 11 ugva11aratkvæðagreiös I- an hafi þegar sannað gildi sitt. Eftir tilkomu hennar tók umræð- an llug og náði meiri þroska á augabragði en á þeim áratugum hugsanlega orðið einhver mála- miðlun og jafnvel sætt sjónar- mið,“ sagði Vigdís Finnbogadóttir í hókinni I hlutverki leiðtogans eftir Ásdísi Höllu Bragadóttur sem kom út fyrir sl.'jól. Utanríkisráðherra hefur lýst því yfir að þótt EES-samningnum hafi ekki verið vísað til þjóðarat- kvæðagreiðslu myndi öðru máli gegna með aðild að ESB. I fyrstu m\Tidi þjóðin ganga til kosninga um hvort yfirhöfuð ætti að sækja um aðild - og ef samningar gengju í gegn fengi þjóðin að eiga síðasta orðið um hvort aðild skyldi staðfest. En eiga íslending- ar að nota þjóðaratkvæðagreiðslur í ríkari mæli sem lýðræðislegt stjórntæki? „Ég tel að þjóðarat- kvæðagreiðla um einstök mál eigi rétt á sér, en aðeins um mál sem skipta mjög miklu fyrir alla lands- mcnn. Vandaverk er að undirbúa slíkar atkvæðagreiðslur og kynna þarf mjög vandlega allar hliðar mála og valkostir þurfa að vera skýrir,“ segir Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra og formaöur I ramsóknarílokksins. „Við höfum sagt að ef til þess komi að stjórn- málmenn vilji láta reyna á hvað kæmi út úr viðræðum um aðild að Evrópubandalaginu, þá ætti að fara fram þjóðaratkvæðagreiösla um markmið viðræðnanna og síð- an niðurstöðuna. Dytti einhverri ríkisstjórn í hug að segja okkur úr Nato, þá teldi ég augljóst að leita þyrfti álits þjóðarinnar á því máli svo dærni sé tekið. En ekki á ég von á að nokkrum detti það í hug.“ Borgarbúar ætl að standast prófið En hver er framtíðin í þessum efnurn. Mun meðal annars flug- vallarmálið í Reykjavík verða til þcss að stjórnmálamenn muni í ríkari mæli velja að vísa helstu álitamálum í samfélaginu á hverjum tíma í dóm kjósenda. Dagur B. Eggertsson segist binda vonir við að flugvallar- kosningin komi mönnum á spor- ið með að nota þá lýðræðislegu aðferð sem almennar kosningar séu. „Eg vona að svo verði. Þetta er ákveðin tilraun. Mér sýnist borgarbúar ætli að standast prófið cn ekki sé sömu sögu að segja af öllum stjórnmálamönn- um. Þegar allt kemur til alls snýst afstaða mín til atkvæða- grciðslunnar um það grundvall- arviðhorf að það sé bctra að húa í samfélagi þar sem almenning- ur hefur áhrif á umhverfi sitt. Þar sem frjálsir fjölmiðlar eru ekki aðeins notaðir til að þyrla upp ryki heldur til að þróa um- ræðu um hin fjölbreyttustu mál og leiða þau til lykta með rök- um. Valddreifing, samráð og blómstrandi umræðusamfélag eru þau tæki sem geta þroskað fslensk stjórnmál frá því að vera sérhagsmunastjórnmál flokks- gæðinga yfir í að vera umræðu- stjórnmál með virkri þátttöku al- mennings. En hvers konar mál er rétt að leggja undir þjóðardóm í al- mennri atkvæðagreiðslu? Hvern- ig þarf að standa að málum þannig að þjóðin geti greitt at- kvæði á málefnalegum grund- velli um stórmál sem fý'rir hana yrðu lögð? Þessum spurningum var beint til Halldórs Ásgríms- sonar. „Þetta er vandasamt, en menn verða að koma sér upp einhverju vinnulagi sem tryggir að öll sjónarmið komist til skila og kynning sé vönduð og standi öllum til boða. Þetta getur reynst erfitt, því líklcgt er að ef kosið verður um eitthvað hita- mál, þá geti svo farið að margir leggist í útúrsnúninga og af- flutning á málavöxtum, en hjá slíku er erfitt að komast." Gagnrýni á atkvædagreiðsluna um flug- völlinn til vitnis um að mörgum stjóm- málamönnum er illa við að ákvörðunar- vald im/kilvægum málum sé fært til al- mennings, segirDagurB. Eggertsson. Ég tel að þjóðaratkvæðagreiðsla um einstök mál eigi rétt á sér, en aðeins um mál sem skipta mjög miklu fyrir alla landsmenn, segir HalldórÁs- grímsson, utanríkisráðherra. Með síauknu alþjóðasamstarfi er enn brýnna að fólk hafi möguleika á þjóðaratkvæðagreiðslu, segir Jó- hanna Sigurðardóttir, alþingismaður. sem flugvallarstæðið hefur verið til umræðu. Eg hef engar áhyggj- ur af því að kjósendur séu ekki nægilega skynsamir til að taka af- stöðu í þessu margflókna máli. Hvort stjórnmálakerfið er komið til nægjaniegs þroska, það er hins vegar önnur saga. Ég vil taka fram að mér finnst það sýna hugrekki hjá Reykjavíkurlistan- um að boða til þessara kosn- inga. Ekki síst þar sem fyrir liggur að innan raða hans rfkir ágreiningur um framtíð flug- vallarins. Þetta er þroskamerki. Gagnrýni um atkvæðagreiðsl- una virðist hins vegar bera þess skýrt vitni að fjölmörgum stjórnmálamönnum er meinilla við að ákvörðunarvald í mikil- vægum málum sé fært í hendur almennings.“ framsöguræðu um málið haustið 1999 sagði þingmaðurinn að hún teldi Ijóst að þjóðarat- kvæðagreiðsla yki lýðræðislegan rétt og veitti stjórnarflokkunum aðhalá. „Með síauknu alþjóða- samstarfi er enn brýnna að fólk hafi möguleika á þjóðaratkvæða- greiðslu ekki síst þar sem mikil- vægir alþjóðlegir samningar geta haft úrslitaáhrif á framtíð þjóð- arinnar," sagði jóhanna. Hún sagði vafalaust margar skýringar á því hvers vegna forseti íslands hefði aldrei vísað stórpólitískum málum til þjóðarinnar. Ugglaust yrði slíkt umdeilt. Svo bætti Jó- hanna við: „Mín skoðun er að jafnvel þótt ákvæðið yrði rýmkað og gert auðveldara fyrir forset- ann að beita því, sem er jákvætt, tel ég engu að síður að almennt Tillaga frá Ragnari Fleiri þingmenn en Jóhanna Sig- urðardóttir hafa komið með til- lögur um þjóðaratkvæðagreiðslur. Þar má nefna Ragnar Arnalds sem Iagði fram á Alþingi laust fyT- ir 1970 frumvarp til breytinga á stjórnskipunarlögunum, sem er annað nafn yfir stjórnarskrár- bre)1:ingar. Þar var lagt til að farið yrði út í þjóðaratkvæðagreiðslu um einstök mál ef um fjórðungur þingmanna eða ahnennra kjós- enda óskaði þess. Tillagan sem lögð var fram á nokkrum þingum náði ekki fram að ganga, þess rná geta að hún var veganesti í starf stjórnarskrárnefndar Gunnars Thoroddsens sem starfaði í kring- ■ um 1980. Þess má svo geta að sl. mið- vikudag sagðist Davíð Oddsson í umræðum á Alþingi vera tilbúinn til samstarfs um endurskoðun stjórnarskrárinnar og þá meðal annars um valdheimildir forseta Lslands. Á lýðsveldishátíðinni á Þingvöllum árið 1944. íslendingar greiddu atkvæði um sambandsslit við Dani það ár og var þátttakan mikil, sums staðar allt að 100%. Enda brann málið á þjóðinni. Stjórnmálamenn höfðu hins vegar í for- setakosningunum við lýðveldisstofnunina einir kosningarétt. Valkostir burfa að vera skýrir EES-samningurinn var umdeild- ur þegar hann var til umfjöllunn- ar fyrir tæpum áratug og krafan um þjóðaratkvæðagreiðslu um hann heyrðist víða, meðal annars á Alþingi. Stofnuð voru Samtök um óháð Island sem voru fyrir það fyrsta á móti aðild Islands að EES, en vildu í annan stað að þjóðin hefði tækifæri til þess að greiða um hann atkvæði. Safnað var undirskriftum tuga þúsunda íslendinga sem skoruðu á forseta íslands að skrifa ekki upp á laga- frumvarpið um aðild að sainn- ingnum þannig að það fengi stað- Fimmtungur geti krafist þjóðaratkvæoagreiðslu En víkjum að Alþingi. Á síðustu sex þingum, síðast nú í vikunni, hefur Jóhanna Sigurðardóttir þingmaður Samíylkingar lagt fram fumvarp til stjórnskipunar- laga, þ.e. um hreytingu á stjórnar- skrá lýðveldisins. Þar er einfald- lega lagt til að við áðurnefnda 26. grein stjórnarskrárinnar hætist við klásúla um að fimmtungur kosningabærra manna í landinu geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um Iagafrumvörp sem Alþingi hefur samþykkt. Krafan, studd undirskriftum fimmtungs kosn- ingabærra manna, skuli berast forseta lýðveldisins eigi síðar en 30 dögum eftir samþykkt laga- frumvarjrs á Alþingi. Ef'nt skuli til þjóðaratkvæðagrciðslu eigi síðar en 45 dögum eftir að forseti hef- ur úrskurðað um lögmæti kröf- unnar. Svo úrslit þjóðaratkvæða- greiðslunnar séu bindandi þarf meira en helmingur þeirra sem þátt taka í atkvæðagreiðslu að greiða atkvæði gegn gildi lag- anna, þó þannig að ávallt greiði fimmtungur kosningabærra manna atkvæði gegn gildi lag- anna. Tillaga Jóhönnu hefur ekki náð fram að ganga, lfkt og títt er með þingmannafrumvörp. En í A borgarafundi í Ráðhúsi Reykjavíkur á dögunum vegna flugvallarmálsins. Skiptar skoðanir eru um það og m.a. þá ákvörðun borgaryfirvalda að gefa borgarbúum kost á að greiða atkvæði um hvort flugvöllur í Vatnsmýri skuli fara eða vera. Á valdið eftil vill að vera ihöndum stjórnmálamannanna einna? ákvæði um þjóðaratkvæða- greiðslu án atbeina forseta sé nauðsynlegt jafnhliða ákvæði um bein afskipti forsetans um að skjóta málinu til þjóðarinnar ... Forsetanum væri hlíft við þeim þrýstingi af hálfu þjóðar- innar í mjög umdeildum mál- um. festingu sem lög. Vigdís Finn- bogadóttir forseti lslands var tví- stígandi í þessu máli þó hún skrif- aði undir lögin um samninginn að lokum. Það var ekki fyrr en forsetatíð hennar lauk sem hún gerði uppskátt með hvaða stöðu hún hefði verið í þegar henni bár- ust undirskriftirnar. „... ég hug- leiddi hvort afsögn mín gæti

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.