Dagur - 03.03.2001, Blaðsíða 12

Dagur - 03.03.2001, Blaðsíða 12
MYN DLISTARLÍFIÐ í LANDINU wL Æs&mm - LAUGARDAGUR 3. MARS 2001 Claude Monet, Sólarlag við Signu hjá Lavacourt að vetrarlagi, 1880 Olía á striga, 100 x 150 cm. Þorpið sjálft er dregið nokkrum grófum dráttum en lit- og Ijósaspilið leggur höfuðáherslu á vatnið og loftið. Kaldri þokunni er komið til skila með fínlegum strokum og mjúkri pensilskrift í efri hluta verksins. Vatnið og árbakkarnir eru málaðir með breiðari strokum og þykkari áferð á köflum. Appelsínugul sólin i miðri byggingu myndarinnar og endurskinið i vatninu minnir á hið fræga málverk frá 1872, Hughrifvið sólarupprás [Impression, soleil levant Marmottan-safnið, París) en impressjónisminn dregur nafn sitt afheiti þeirrar myndar. Maurice Denis. Kvöld I Flórens, Kon- urað baða sig, 1910. Olía á striga, 218x210og362cm. Þemað I þessum myndum er fengið beint úr Tídægru eftir Boccacio, einn helsta ríthöfund ítala á fimmtándu öld, „Quattrocento". Vísun/n íverkinu I paradís á jörð minnti Denis á tíma- leysi og algildi þeirra sælustunda sem hann hafði margoft eytt með Mörthu konu sinni og Noille litlu dótturþeirra heima hjá vini þeirra, tónlistarmanninum Ernest Chausson, i Fiesole nálægt Flórens. Gustave Courbet. Stúlkurnar á Signubökkum að sumarlagi, 1856-1857. Olía á stríga, 174 x 206 cm. Þetta málverk Courbets er samtímaútfærsla á sveitasælu- þemanu. Stúlkurnar sem Hggja i grasinu eru augljóslega borgar- dætur. Sumir hafa litið svo á að þarna sé um tvær vændiskonur að ræða sem hafi skroppið út I sveitina að kæla sig við ána. Courbet lítur þessar ungu konur bæði sposkum, blíðlyndum og munúðarfullum augum. Náttúrusýnir Listasafn Islands opnar á morgun sýningu á verkum eftir heims- fræga málara. Þetta er í fyrsta sinn sem verk eftir listamenn á borði við Courbet, Monet, Cezanne, Sisley, Pissarro og Corot eru sýnd í íslensku safni. Sýningin ber yfirskriftina Náttúrusýnir og eru verkin öll í eigu Fagurlista- safns Parísarborgar, Petit Palais. Hér á síðunni er örlítið sýnishorn af þeim fjársjóði sem Listasafn Is- lands býður landsmönnum að líta berum augum í safninu næstu vik- umar. Sýningin opnar sem íyrr segir á morgun sunnudaginn 4. mars kl. 16.00. Alfred Sisley. Dráttarbátur við Le Loing I Saint-Mammés um 1883. Olía á striga, 54,5 x 73,5 cm. Sisley var vanurþví að vinna nálægtþeim stöðum þar sem hann bjó. Áríð 1880 settist hann að fyrír fullt og allt nálægt Fonta/nebleauskógi en þangað var tveggja tima ferð frá París. Hinar fjölmörgu myndir frá Saint-Mammés voru málaðar á þessu tímabili. Þessi litli bær stend- ur á mótum Signu og Le Loing þar sem dráttarbátar höfðu gjarnan viðdvöl. 800 gr lamba- innanlæn (2 vöðvar) Kryddhjúpur Tómat - basilsósa ARNATTURU OG VIST 'ERSKUM KRYDDJURTl U TILVALIN KRYDD Sf 1 búnt basilikum 1/2 búnt steinselja 2 - 3 hvítlauksgeirar 3 mtsk. ferskur parmesan, rifinn 1/2 dl ólífuolía 2-4 mtsk. brauðraspur salt og pipar úr kvörn Brúnið lambavöðvana á pönnu, kryddið með salti og pipar. Setjið allt hráefni í kryddhjúpinn í matarvinnsluvél og látiö maukast vel. Þekjiö kjötið með kryddhjúpnum og bakið í ofni viö 180° i 13-15 mínútur. (65° á kjöthitamæli). 3 mtsk. ferskt basil saxaö kjöt af þremur tómötum skorið í teninga 1 mtsk. ólífuolía 1 shallottulaukur, fínt saxaður 2 - 3 geirar hvítlaukur, fínt saxaður 1 dl hvítvín (má vera óáfengt) 3 dl gott lambasoð salt og pipar úr kvörn 2 mtsk. smjör sósujafnari Léttsteikið laukinn í ólífuolíu, hellið víninu yfir og sjóðið niður um helming. Hellið soðinu yfir og sjóðið niður um 1/4. Setjið basil og tómata út í og kryddið með salti og pipar. Þykkið sósuna örlítið með jafnara og hrærið smjörinu rólega saman viö. Uppskrift fyrir fjóra ÍSLENSKT LAMBAKJÖT ER EINSTÖK AFURÐ ÓR GÆÐI KJÖTSINS ERU VEL VARÐVEITT I MATREIÐE BASILIKUM, GRASLAUKUR, STEINSELJA OG SALVÍA' ABÚSKAPARHÁTTA. NATTURULEG iSMARÍN, BLÓÐBERG, FAFNISGRAS, LAÐA FRAM BRAGÐGÆÐI KJOTSINS.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.