Dagur - 03.03.2001, Blaðsíða 20

Dagur - 03.03.2001, Blaðsíða 20
20 - LAUGARDAGUR 3. MARS 2001 .Ttegpr R A Ð i n u g iT ý s i i\ 1 G A R AT V1N N A A T V 1 N N A Ú T B 0 Ð NáttOrustofa Austurlaiíds Náttúrufræðingar Náttúrustofa Austurlands í Neskaupstað óskar eftir að ráða náttúrufræðing til starfa í a. m. k. eitt ár. Starfsvettvangur er fjölbreyttur á sviði náttúrurannsókna, umhverfis- og náttúruverndarmála. Um er að ræða spennandi og sjálfstætt starf í skemmtilegu umhverfi. Með umsókn skal fylgja yfirlit yfir menntun og starfsreynslu. Umsóknir skal senda til Náttúrustofu Austurlands, Mýrargötu 10, Pósthólf 95, 740 Neskaupstað, fyrir 15 mars. Einnig óskar Náttúrustofan eftir háksólanemum í náttúrufræðigreinum til sumarstarfa. Áhugasamir hafi samband við Náttúrustofuna fyrir 1. apríl. Náttúrustofa Austurlands starfar skv. lögum um Náttúrufræðistofnun (slands og náttúrustofur og sinnir verkefnum á öllu Austurlandi. Nánari upplýsingar um hlutverk og helstu verkefni Náttúrustofunnar eru á heimasíðu hennar, www.simnet.is/na. Upplýsingar um störfin veitir Guðrún Á. Jónsdóttir, sími: 477 1774, netfang: na@simnet.is. RARIK Rafmagnsverkfræðingur Raf m ag nstækn if ræði ng u r Staða tæknimanns á umdæmisskrifstofu RARIK á Blönduósi er laus til umsóknar. Um er að ræða fullt starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna. Starfssvið: • Áætlanagerð. • Hönnun raforkukerfa. • Kerfisskráningar. • Viðhald tölvureikninga. Menntunar- og hæfniskröfur: • Tæknifræði- eða verkfræðimenntun af sterkstraumssviði. • Æskilegt er að umsækjendur hafi sveinspróf í rafvirkjun eða reynslu af rafveitustörfum. • Góð þekking af CAD-vinnslu. • Góðir samstarfshæfileikar. • Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt. Nánari upplýsingar veitir umdæmisstjóri, Haukur Ásgeirsson, í síma 452-4600 og einnig starfsmannastjóri í síma 560-5500. Vinsamlegast sendið inn skriflegar umsóknir fyrir 9. mars n.k. S T Y R K I R Barnavinnafélagið Sumargjöf auglýsir styrki til framhaldsnáms. Námstyrkþega þarf að nýtast börnun á leik- eða grunnskólaaldri. Heildarupphæð til úthlutunar er allt að einni miljón króna. Umsóknir berist til stjórnar Barnavinafélagsins Sumargjafar fyrir 31. mars 2001 í pósthólf 5423, 125 Reykjavík. Stjórn Barnavinafélagsins Sumargjafar. SKOGRÆKT RÍKISINS Tvær stöður sérfræðinga við skógræktarrannsóknir Eftirfarandi stöður við Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins á Mógilsá eru lausar til umsóknar. Um er að ræða fjölbreytt framtíðarstörf við rannsóknir og þróun í þágu skógræktar. Störfin verða unnin í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga á stofnuninni og á systurstofnunum. (1) Sérfræðingur á sviði viðar- og árhringjafræði Starfssvið: Starfið felst í rannsóknum á trjávexti og áhrifum umhverfis (einkum veðurfars) á vöxt trjáa. Sérfræðingur skal hafa umsjón með árhringjamælingastofu á Mógilsá. Einnig felst starfið í þátttöku í og ábyrgð á fjölþjóðlegum rannsóknaverkefnum í tengslum við hnattrænar umhverfisbreytingar á norðurslóðum. Jafnframt þátttaka í verkefnum sem tengjast viðargæðum og nýtingarmöguleikum íslensks trjáviðar. Hæfniskröfur: • Doktorspróf í náttúruvísindum. • Reynsla af stjórnun rannsóknaverkefna, þ.m.t. fjölþjóðlegum rannsóknaverkefnum. • Þekking á viðarfræði og árhringjatímatalsfræði. • Haldgóð þekking á tölfræðilegri úrvinnslu rannsóknagagna. • Frumkvæði, hæfni til samvinnu og skipulagshæfileikar • Hæfni til þess að tjá sig munnlega og skriflega á a.m.k. íslensku, ensku og einu Norðurlandamálanna (2) Sérfræðingur / ráðunautur í skógarplöntuframleiðslu Starfssvið: • Rannsóknir sem tengjast bættri framleiðslu skógarplantna. • Ráðgjöf og fræðsla til þeirra sem stunda uppeldi skógarplantna á Islandi. • Skipulag gæðaeftirlits með skógarplöntum. • Þátttaka í fjölþjóðlegu rannsókna- og fræðslusamstarfi um framleiðslu skógarplantna. Hæfniskröfur: • M.Sc. í skógfræði eða garðyrkju, eða sambærilegt rannsóknanám sem nýtist í starfi. • Starfsreynsla og haldgóð þekking á sviði trjáplöntuuppeldis. • Frumkvæði, hæfni til samvinnu og skipulagshæfileikar. • Hæfni til þess að tjá sig munnlega og skriflega á a.m.k. íslensku, ensku og einu Norðurlandamálanna. Umsóknum skulu fylgja nákvæmar ferilsskýrslur sem greina frá vísindastörfum, ritsmíðum, störfum og námi umsækjanda. Ráðningarstaður: Mógilsá á Kjalarnesi, en aðrir ráðningarstaðir geta komið til greina, eftir nánara samkomulagi. Umsækjandi verður að geta hafið störf sem fyrst. Laun samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna. Skriflegar umsóknir sendist fyrir 15. mars til: Aðalsteins Sigurgeirssonar, forstöðumanns, Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins, Mógilsá, 116 Reykjavík s. 515-4500 og 898 7862; fax 515-4501 netfang: adalrsr@simnet.is I I I I I I UTBOÐ F.h. Orkuveitu Reykjavíkur, Gatnamálastjórans í Reykjavík, Linu.net og Landssíma ísiands er óskað eftir tilboðum í verkið: “Endurnýjun gangstétta og veitukerfa 1. áfangi 2001 - Hlíðar". Endurnýja skal dreifikerfi hitaveitu, rafveitu og síma og gangstéttir í Úthlíð, Bólstaðahlíð, Stakkahlíð og Lönguhlíð. Helstu magntölur eru: Skurðlengd 5.300 m Lengd hitaveitulagna 5.000 m Strengjalagnir 38.500 m Lagning ídráttaröra 15.000 m Hellulögn 5.600 m2 Steyptar stéttar 980 m2 Malbikun 1.200 m2 Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með 6. mars 2001 gegn 15.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: 21. mars 2001 kl. 11:00 á sama stað. F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík, Orkuveitu Reykjavíkur og Landssíma íslands er óskað eftir tilboðum í “Sóleyjargötu endurnýjun — gatnagerð og lagnir". Helstu magntölur eru: Gröftur 13.000 m3 Fylling 11.200 m3 Púkk 3.550 m2 Lagning holræsalagna 0400 375 m Lagning holræsalagna 0150 290m Hellu- og steinalögn 2.600 m5 Verkinu skal lokið fyrir 10. júlí 2001. Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með 6. mars 2001 gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: 15. mars 2001 kl. 11:00 á sama stað. F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í viðgerðir gangstétta í Reykjavík "Gangstéttir - viðgerðir 2001". Helstu magntölur eru: Steyptar gangstéttir um 5.400 m2 Hellulagðar gangstéttir um 3.900 m2 Lokaskiladagur verksins er 31. október 2001. Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með 6. mars 2001 gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: 14. mars 2001, kl. 14:00 á sama stað. F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í malbiksviðgerðir í Reykjavík "Malbiksviðgerðir 2001". Helstu magntölur eru: Sögun um 11.000 m Malbikun á grús um 9.100 m2 Malbikun í fræsun um 5.600 m2 Lokaskiladagur verksins er 31. október 2001. Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með 6. mars 2001 gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: 14. mars 2001, kl. 14:30 á sama stað. F.h. Byggingadeildar Borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í byggingu kennslu- og lendingarlaugar í íþróttamiðstöð Grafarvogs. Ásamt frágangi lagna og hreinsibúnaðar, rafmagns og lóðar. Helstu magntölur eru: Fyllingar 1.500 m3 Mót 500 m2 Járnbending 7.000 kg Steypa 65 m3 Verkinu á að vera lokið 15. júlí 2001. Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá kl. 13:00 6. mars 2001 gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: 21. mars 2001, kl. 14:00 á sama stað. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Pósthólf 878 - 121 Reykjavík - Sími 552 5800 Bréfsími 562 2616/561 1120. Netfang: isr@rhus.rvk.is Veffang: www.reykjavik.is/innkaupastofnun - 660169-4079 www.vasir.is I I I FYRSTUR MEÐ FRETTIRNAR

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.