Dagur - 03.03.2001, Page 6
30 - LAUGARDAGUR 3. MARS 2001
.Dagur
ÞJÓÐMÁL
Utgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjóri:
A ðstoðarritstjóri:
Skrifstofur:
Simar:
Netfang ritstjórnar:
Áskriftargjald m. vsk.:
Lausasöluverð:
Grænt númer:
Netföng auglýsingadeildar:
Símar auglýsingadeildar:
Símbréf auglýsingadeildar:
Símbréf ritstjórnar:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVlK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
ritstjori@dagur.is
1.900 KR. A MÁNUÐI
150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
800 7080
valdemar@dagur.is-augl@dagur.is-gestur@ff.is
(REYKJA\/ÍK)563-161 5 Ámundi Ámundason
(REYKJAVÍK)563-1642 Gestur Páll Reyniss.
(AKUREYRI)460-6191 Valdemar Valdemarsson
460 6161
460 6171(AKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK)
Pólitísk fjárkúgim
í fyrsta lagi
Dönsku ríkisstjóminni hefur tekist að sirndra færeysku þjóðinni og
um leið festa yfirráð Dana á eyjunum enn frekar í sessi. Paul Nyrup
Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, sýndi sams konar hörku
gagnvart sjálfstæðisóskum Færeyinga og forverar hans í embætti
gerðu fyrir heilli öld þegar íslendingar kröfðust þess að fá að ráða sínu
landi sjálfir. Þegar kemur aó sjálfstæði eyjanna í Atlantshafinu er þan-
nig enginn munur á jafnaðarmannastjóm við upphaf tuttugustu og
fyrstu aldar og íhaldsstjóminni sem ríkti í Kaupmannahöfn fyrir
hundrað árum.
í öðru lagi
Danska ríkisstjómin beitti Færeyinga fjárkúgun. Rasmussen lét það
boð út ganga að ef færeyska þjóðin dirfðist að kjósa sjálfstæði frá Dön-
um í atkvæðagreiðslu sem fyrirhuguð var í maimánuði, þá yrði snar-
lega skrúfað fyrir hefðbundinn íjárframlög úr ríMssjóði á örfáum
áram. Það hefur alltaf legið fyrir að Færeyingar þurfa 10-15 ára fjár-
hagslega aðlögun til að geta örugglega staðið á eigin fótum efnahags-
lega. Hótun Rasmussens var því í reynd tilkynning til almennings í
Færeyjum um að ef ekM yrði fallið frá hugmyndum um sjálfstæði
kæmi yfir þjóðina Meppa af mannavölduin. Þetta var að sjálfsögðu
ekkert aimað en nakin pólitísk ijárkúgun. Og hún har tilætlaðan ár-
angur.
í þriðja lagi
Telja má víst að með framferöi smu hafi Rasmussen seinkað sjálfstæði
Færeyja um nokMa áratugi. Það er liins vegar óskynsamlegt af fær-
eyskum stjómmálamönnum að leyfa Dönum aó hafa áfram slík helj-
artök á efnahag eyjanna og veriö hefur. Þess í stað ættu Færeyingar að
leggja kapp á það næstu árin að vinna sig smám sarnan út úr danskri
fjárhagsaðstoð þannig að þeir standi efnaleg sjálfstæðir eftir eiim til
tvo áratugi. Ef þannig verður að málum staðið ávinnur þessi frænd-
þjóð okkar sér fullt frelsi til að taka ákvörðun um sjálfstæði sitt án
þess að þurfa að óttast efnahagslegar refsiaðgerðir dansMa stjóm-
valda. Elías Snæland Jónsson.
Bláa gallal) uxnabaimið
Það eru örugglega ýmsir fleiri en
Garri sem hafa vaxandi áhyggjur
af öryggismálum í farjiegafiugi
yfir Islandi. Eins og allir vita þá
eru flugumferðarstjórar lykil-
menn í öryggismálum háloft-
anna og skiptir mildu að traustir
menn og áreiðanlegir veljist til
slíkra ábyrgðarstarfa. Því hlýtur
að hríslast kalt vatn niður
hryggsúlur flugal-
mennings, þegar
þær fréttir berast að
í hópi flugumferðar-
stjóra sé maður sem
hefur tendensa til
að ganga í bláum
gallabuxum!
Það vita það allir
sem vilja vita að
mönnum sem kjósa
að ganga í bláum
gallabuxum er yfir-
leitt ekki treystandi.
Þetta eru oft ein-
hverjar eftirlegukindur frá
bongó- og gæruhippatímabilinu,
eða óáreiðanlegar listamann-
stýpur og fyrrverandi töffarar.
Sem sé alls ekki menn sem setj-
andi er á vetur í störfum þar sem
líf og limir eru undir því komnir
að viðkomandi vinni fullkom-
lega einbeittir og allsgáðir.
Hippaeftirlitið
Að sjálfsögðu gerði jafnglöggur
maður og samgönguráðherra sér
grein f)TÍr alvarleika þessa máls
og setti blátt gallabuxnalögbann
á flugumferðarhippann, þannig
að flugfarþegar gátu andað Iétt-
ar, þess fullvissir að viðkomandi
einstaklingur hafði verið skikk-
aður til að stjórna lendingum og
lofttökum í stífpressuðum svört-
um terilynbuxum frá Andersen
og Laut.
En nú er komið babb í bátinn,
því hinn frjálslyndi síðhippi,
Umbi Alþingis, hefur nú kveðið
up]) þann úrskurð að hið bláa
gallabuxnabann samgönguráð-
Steingrímur. Ekki í
rúllukragapeysu
herra, sé ólöglegt! Og þar með
er auðvitað allt flugöryggi í upp-
námi á nýjan Ieik.
Rúllukragahaimló
Við J)etta er auðvitað ekki hægt
að una. Og löngu kominn tími
til að Alþingi skipi sérstaka
klæðaburðarnefnd sem hefur
vald til þess að ákveða hvcrju
menn klæðast og
hverju ekki, ekki síst
í Ijósi þess að drjúg-
ur hluti af starfi
Jiingmanna hefur
alltaf snúist um föt
og fatasmekk, eig-
inn og annarra.
Hver man t.d.
ekki eftir stóra
kjólamálinu, þegar
útgjöld þingsins
stórjukust vegna
kjólakaupa þáver-
andi forseta Alþing-
is, Guðrúnar Helgadóttur? Svo
ekki sé nú minnst á stóra rúllu-
kragapeysumálið, þegar Stein-
grímur J. Sigfússon, nýkjörinn,
kornungur, sköllóttur og skeggj-
aður óð inn á Aljringi á fyrsta
degi, bindislaus og í rúIluMaga-
peysu! Það kostaði þingheim
margra daga Jirýsting og tuð að
fá Steingrím til að kasta rúllu-
Magapeysunni og mæta í skyrtu
og með bindi og ugglaust er enn
fylgst með kauða svo hann
hlaupi ekM út undan sér í þess-
um efnum. En sem betur fer
hafa aðrir karlþingriienn í Is-
landssögunni ekki mætt háls-
tauslausir á hið háa Alþingi, sem
segir okkur að óopinbert en
ákaflega virkt klæðaburðareftir-
Iit er starfandi á þingi.
Það þarí sem sé að útvíkka
Jietta eftirlit út fvrir veggi Al-
þingishússins. Öryggishagsmun-
ir almennings eru í húfi. Það
sýnir stóra og bláa gallabuxna-
málið best. - GARRI
JÓHANNES
SIGURJÓNS-
SON
SKRIFAR
Frændur okkar Finnar eru með
böggum hildar Jressa dagana vegna
lyfjahneykslisins sem svo mjög
skekur finnskan íþróttaheim og
raunar samfélagið allt. Helstu
íþróttahetjur Finna hafa sem sé
verið staðnar að lyfjamisnotkun og
þar á meðal jafn nafntogaðir og
háttvirtir Göngu-Hrólfar á skíðum
og þeir Mika Myllyla og sjálfur
Harri Kirvesniemí. Og fleiri hafa
raunar verið bendlaðir við ó-
sómann, m.a. boldángskonur á
borð við Virpi Kuitunen og Milla
Jauhu, sem sýnir að það ríkir full-
komið kynjajafnrétti í þessum
skammarlega skandala.
Það er ekki kyn þó þetta sé þjóð-
aráfall í Finnlandi. Til samanburð-
ar ættu menn að hugleiða hvernig
okkur liði hér upp á Islandi ef þau
féllu öll samhliða á lyfjaprófi, Vala
Flosadóttir, Örn Arnarson og Jón
Arnar Magnússon. Það er tæplega
að maður geti minnst á svo fárán-
legan þanka ógrátandi, Jrannig að
Óbreyttir og stera-
breyttir íþróttameim
við getum rétt ímynd-
að okkur hvernig vin-
um okkar Finnum
líður.
Ungmennafélags-
andinn
Það hefur hingað til
þótt sjálfsagt að
íþróttamenn frá aust-
anverðri Evrópu falli
á lyfjaprófum svo og
Bandaríkjamenn sem
og Kínverjar. Og auð-
vitað viðurkennd staðreynd að
slatti af gildandi heimsmetum í
ýmsum greinum íþrótta var settur
af fólki sem var úthelgt af stera-
neyslu og er vonandi við Jiokkalegu
heilsu enn. En einhvern veginn
hafa menn talið að ennþá eimdi
það mikiö eftir af gamla ung-
mennafélagsandanum á Norður-
löndum að þar hefðu lyfjafræðing-
ar minna að iðja í sportinu cn ann-
ars staðar í henni veröld. En þó
Áfram Vaia og engin lyf
hefur fólk fallið á
lyijaprófum á öllum
Norðurlöndum, Is-
land þar eldd undan-
skilið og nafntogaðir
norrænir garpar þurft
að sæta keppnis-
banni, þannig að
hinn nýji Finnagaldur
á sér fordæmi.
Það er sem sé eng-
inn óhultur fyrir
þessum ófögnuðí. En
samt, það er varla
hægt að sætta sig við að árangur í
íþróttum almennt ráðist fremur af
færni lyfjafræðinga en keppend-
anna sjálfra. En hvað er til ráða?
Lyfjapíuleikar
Kempan Jón Arnar Magnússon,
var á dögunum í spjalli um |>essi
mál í útvarpi, og varpaði ])á fram
þeirri spurningu í gríni, hvort ekki
væri rétt að hafa þetta eins og í tor-
færunni, þar sem keppt er í götu-
bílaflokld annars vegar og í flokki
breyttra bíla hins vegar, svo fyllsta
jafnræðis sé gætt. Og kannski er
þarna leiðin fundin, sem sé að
hafa tvenns konar íj)róttamót,
annars vegar fyrir óbreytta íþrótta-
menn, hins vegar fyrir sterabreytta
keppendur. Flestir eru sammála
um að útilokað sé að koma í veg
fyrir lyfjamisnotkun, þannig að
áfram eíga óbreýttir litlá mögu-
leika gegn sterabreyttum.
Hvernig væri að vinna út frá
þessum raunveruleíka? Leyfa
þeim, sem vilja hætta lífi og heilsu,
að éta sterana uppstyttulaust og
setja ógurleg heimsmet á ólympfu-
leikum lyfjafræðinga. Og hinir
óbreyttu myndu svo keppa á hér-
aðsmótum heimsins sem heil-
brigðar sálir í hreinum skrokkum
og fella sínar byrjunarhæöir með
sæmd.
Og hefðu þá allir nokkuð að iðja
og uppskæru í samræmi við útsæð-
ið.
Ætlarþú aófylgjíist ma)
Formúlunni og hver
stenduruppi sem heims-
meistari 14. öhtóberí
haust?
(Keppni í Formúlu-1 kapp-
ákstrí hefst að nýju á Albert
Park í Astrálíu aðfaranótt
sunnudags.)
Þorsteinn Már Baldvinsson
forstjóri Satnherja:
„Schumacher mun
standa uppi sem
heimsmeistari í
haust eftir síðustu
keppnina í Asíu.
Hann mun fylgja
eftir sigrinum frá því
í fyrra. Eg fylgist með keppninni
þegar ég get, en kannski eldd alltaf
á hvaða tíma sólarhrings sem er,
svo spenntur er ég eldd. Eg hef fyl-
gst með þessu í 5 eða 6 ár, byrjaði
að fylgjast með þessu þegar ég var
erlendis og fagna því að hafnar eru
sýningar frá þessu hér. Þetta er
mjög góð afþreying, mikil spenna,
og góð íþrótt."
Ellert Schram
forseti íþrótta- ogÓI.samb. ísl.
„Eg fylgist nú með
keppninni í For-
múlu-l kappakstrin-
um af takmörkuðum
áhuga því ég er enn
ekki búinn að til-
einka mér þetta
enda svo margar aðrar íþróttir til.
Ætli ég tippi eldd á að Michael
Schumacher vinni heimsmeistara-
titilinn og verji titilinn sem hann
vann svo sanngjarnt á síðasta
keppnistímabili. Ég hef ekki svo
rnikið vit á þessu að ég sé að halda
með einhverjum."
Signín Hjálmtýsdóttir
siingkona:
„Ég fylgist ekkert
með þessu, en veit
að þetta er til. Á
mínu heimili er eldd
horft á Formúluna,
en margar aðrar
íþróttir. Ég man ekki
hvort það var Þjóðverjinn
Schumacher eða Finninn
Hálddnen sem vann síðast, þeir
voru alltaf að fara fram úr hvor
öðrum. Ég sest ekki fyrir framan
sjónvarpið þcgar kcppnin hefst, vel
heldur góða bpk eftir að ég kem
heim frá því að syngja. Maður
spennist svo upp við svona sjón-
varpsefni, og svo er þetta allt of
seint á dagskrá."
Þórír Jónsson
fonnaðurUMFÍ:
„Ég hef alltaf stutt
Mika Hakkinen og
félaga hjá McLaren,
og spái honum því
sigri J)ó Míngum mig
séu eintómir Schu-
macher-menn. Ég
ætla að reyna að fylgjast með
keppninni í sjónvarpinu þegar ég
hef tök á því með öðru og verð
væntanlega fyrir framan skerminn
aðfaranótt sunnudagsins. Mér
finnst gaman að Jjessu en ég var
lítið spenntur fyrst, hélt að þetta
væri bara eitthvað þar sem menn
keyrðu bara í hringi. Ég er nú á
þeirri skoðun að þetta sé íþrótt
enda byggist ])etta ]>að mikið á því
að ökumennirnir séu í fullkominni
|)jálfun sem íjjróttamenn."