Dagur - 03.03.2001, Síða 8
32- LAUGARDAGUR 3. MARS 2001
FRÉTTASKÝRING
L.
ro^tr
Vetnid brátt á gö
Stefnt að þvi að ísland
verði fyrsta vetnisam-
félagið. Evrópsk sam-
vinna. Stærsti ESB
styrkurinn. Umhverf-
isvæn orka. Vetnis-
strætó eftir tvo ár.
Skeljungur byggir
dreifistöð.
Ef að líkum lætur munu fyrstu al-
menningsvagnar sem knúnir eru
vetni aka um götur Reykjavíkur
eftir tvo ár. Miklar væntingar eru
bundnar við vetnið sem umhverf-
isvænan orkugjafa og þeirrar
framtíðarsýnar sem það getur
haft í för með sér fyrir umhverfi
íslensks samfélags. A ársgrund-
velli kaupa Islendingar olíu og
bensín fyrir um 10 milljarða
króna. Þessu til viðbótar binda
menn miklar vonir við önnur hag-
ræn áhrif eins t.d. á hagvöxt og
atvinnulíf.
Vetnisdreifmg
I gær var kynnt svokallað ECTOS
- verkefnið. Það er vetnisstrætis-
vagna verkefni sem miðar m.a. að
uppbyggingu innviða fyrir vetnis-
dreifingu, akstri vetnisvagna í
hefðbundnu leiðarkerfi SVR og
rannsóknir tengdar verkefninu.
Að þessu verkefni stendur fyrir-
tækið íslensk NýOrka sem hefur
það að markmiði að stofna fyrir-
tæki sem rannsakar möguleika
þess að nota vetni í stað olíu og
bensíns á Islandi og skapa þar
með fyrsta vetnissamfélag heims-
ins.
Þetta fyrirtæki er samstarfsfyr-
irtæki í eigu VistOrku, Daimler
Chrysler AG, Norsk Hydro ASA
og Shell Hydrogen BV. Af þessu
má sjá að það eru engir aukvisar
á ferð, bæði á sviði bílafram-
leiðslu og orku. Eigendur
VistOrku eru Nýsköpunarsjóður
atvinnulífsins, Háskóli Islands,
Iðntæknistofnun, Landsvirkjun,
Áburðarverksmiðjan, Hitaveita
Suðurnesja og Orkuveita Reykja-
víkur.
Stærsti ESB styrkurinn
I framkvæmdaáætlun þessa verk-
efnis á tímabilinu 2001 - 2005
verður varið um 7 milljón'evrum,
eða 560 milljónum króna. Þar af
hefur Evrópusambandið ákveðið
að styrkja verkefnið með 2,85
milljón evrum. Það er stærsti
styrkur sem íslenskt fyrirtæki hef-
ur fengið til þessa frá ESB. Af-
gangurinn 4,15 milljón evrur
skiptist jafnt á milli erlendra og
innlendra aðila sem standa að
þessu verkefni.
Fmmkvöðull
Hugmyndir og rannsóknir manna
á vetni sem umhverfisvænum
orkugjafa á sér nokkra sögu hér á
landi. Þar hefur Bragi Árnason
prófessor verið einn helsti braut-
ryðjandinn í því að ýta undir
áhuga manna á þessu verkefni í
samstarfi við erlenda og innlenda
aðila.
Þá hefur ríkisvaldið einnig
komið töluvert að þessu máli.
Enda lýsti Valgerður Sverrisdóttir
iðnaðarráðherra yfir áhuga og
stuðningi íslenskra stjórnvalda á
þessu verkefni á blaðamanna-
fundi í Ráðhúsinu í gær. Auk þess
hefur Reykjavíkurborg lagt mikið
til umhverfisvænna stefnumark-
ana og nýjunga á sviði vistvænna
samgangna.
Vetnl
Vetni, H2 er frumefni sem er til í
miklum mæli í náttúrunni og er
bundið í vatni og kolvetnissam-
böndum t.d. í jarðgasi og flestum
öðrum lífrænum efnum. I fram-
tfðinni er talið að vetni muni
koma í vaxandi mæli í stað olíu og
kola til að knýja samgöngutæki og
skip.
Almennt má segja um vetni að
það sé orkuberi, þ.e. orku-
geymsla. Það er jafnframt léttasta
og eitt algengasta frumefni jarðar.
Það er t.d. þrefalt orkumeira á
hverja massaeiningu en bensín
en krefst mun meira geymslu-
rýmis í gasformi. Á Islandi er
vetni framleitt með rafgreiningu
á vatni og flokkast því sem vist-
vænn iðnaður. Þá er vetni m.a.
mikið notað í efnaiðnaði og sem
eldsneyti á eldflaugar sem sendar
eru út í geiminn. Vetni er einkum
framleitt og dreift í gasformi eða
þá í fljótandi formi og þá mikið
kælt.
Mikill og vaxandi áhugi
Á síðustu árum hefur þörfin fyrir
nýjan, vistvænan orkugjafa aukist
til muna og þá sérstaklega í stór-
borgum og á þéttbýlum stöðum.
Hérlendis hefur t.d. Reykjavíkur-
borg markað sér umhverfisvæna
stefnu í almenningsamgöngum
og hjá Sorpu er þegar hafin fram-
Ieiðsla á metangasi. Þá hafa
nokkur borgarfyrirtæki keypt bíla
sem knúnir eru áfram af þessurn
umhverfisvænu orkugjöfum í stað
bensíns og olíu. Þá hefur um-
hverfisstefna ríkisins einkum
markast af virkjun endurnýtan-
legra orkugjafa eins og fram hef-
ur komið í allri virkjanaumræð-
unni.
Sem kunnugt er þá eru áhrif
gróðurhúsalofttegunda þegar far-
in að koma fram með hækkandi
hitastigi jarðar. Viðbúið er að
þessara áhrifa muni gæta enn
frekar á næstu árum og jafnvel
þótt takist að semja á alþjóðavett-
vangi um takmörkun á losun
gróðurhúsalofttegunda út í and-
rúmsioftið. Þetta þrýstir enn frek-
ar á rannsóknir manna til að
finna nýja orkugjafa sem ekki
hafa í för með sér mengun í and-
rúmsloftinu.
F.fnarafall
Á síðustu árum hafa rannsóknir
leitt til stórfelldra framfara í þess-
um efnum. Meðal annars hafa
verið þróaðir litlir lághitaefn-
arafalar sem hægt er að nota í bif-
reiðum. Efnarafallinn býr til raf-
straum með því að nota vetni sem
orkugjafa ásamt súrefni úr and-
rúmsloftinu, en rafstraumurinn
er notaður til að knýja mótor bíls-
ins. Gert er ráð fyrir að bifreiðar
með efnarafölum og rafmótorum
geti í framtíðinni komið í stað
Eins og kunnugt er þá sam-
anstendur útblástur bifreiða af
skaðlegum gastegundum ss.
koltvíoxíði, CÖ2, brennisteinství-
oxíði, S02 og níturoxíði, NO sem
ásamt ryki og öðrum efnum er
hættulegt heilsu manna. Hér-
lendis hefur þróunin orðið sú að
umferðin hefur fengið þann vafa-
sama titil að vera kölluð mesta
eiturefnaverksmiðja landsins
vegna þeirrar mengunar sem af
henni stafar í andrúmsloftinu.
Þótt venjulegir bílar verði sífellt
betri og orkunýtnari er talið að
það muni ekki duga til að draga
úr útblæstri gróðurhúsaloftteg-
unda með vaxandi bifreiðanotk-
un. Vetni og efnarafall eru því
taldar vera fyrirmyndarlausn fyrir
ökutæki framtíðar til að minnka
útblástur mengandi lofttegunda
vegna þeirrar skaðsemi það hefur
á heilsu fólks og náttúru.
Virkjanir
Til að knýja allan bíla- og skipa-
flota landsmanna er talið að það
þurfi um 80 - 90 þúsund tonn af
vetni. Til að framleiða slíkt magn
þarf um það bil 4,5 TWh. Það
samsvarar um 550 MW virkjun.
Athygli vekur að til þess að knýja
allan bíla- og skipaflota lands-
manna þyrfti því tæplega 10% af
þeirri raforku sem talið er hag-
kvæmt að virkja. Fram til þessa er
aðeins búið að virkja 7 TWh af 50
TWh sem talið er hagkvæmt að
virkja.
Hjálmar Amason
þingmaður spálr því
að eftir 20 - 30 ár
verði það undantekn-
ing að sjá bíla á göt-
ujium sem ganga fyrir
öðru eldsneyti en
vetni. Haun telur
einnig að landiun geti
orðið virkur í írain
leiðslu véla í vetnis-
bíla.
Hagræn áhrif
I þeim rannsóknum sem fram
hafa farið hefur komið í ljós að
verulegir ávinningar geta orðið af
því að nýta vetni í stað bensíns og
olíu hér á landi. I því sambandi er
m.a. bent á að þar sem orkan er
framleidd hér innanlands yrðu
landsmenn sjálfum sér nógir í
þessum efnum.
Fyrir vikið yrði viðskiptajöfnuð-
ur hagstæðari, en árlega er flutt
inn bensín og olía fyrir um 10
milljarða króna. Jafnframt mundi
raforkunotkun aukast og hagvöxt-
ur að sama skapi. Þá má með
vetni draga úr umhverfisáhrifum
stórvirkjana þar sem hagkvæmt
mun vera að framleiða vetni með
Iitlum vatnsafls- og eða jarð-
varmavirkjunum.
Ennfremur eru bundnar vonir
við að ný rannsóknar- og þróun-
arstörf verði til í landinu t.d.
vegna þróunar á vetnisknúnum
skipavélum. Þetta þróunarstarf er
í þann veginn að hefjast hér á
landi og því er talið mjög mikil-
vægt fyrir Island að gerast þátt-
takandi í slíkum verkefnum, eins
og t.d. ECTOS sem geta skapað
ný og spennandi tækifæri fyrir ís-
lenskt atvinnulíf.
Stór dagur
Eftir blaðamannafundinn í Ráð-
húsinu í gær sagði Hjálmar Árna-
son þingmaður sem barist hefur
lengi fyrir framrás vetnis að þetta