Dagur - 06.03.2001, Blaðsíða 9

Dagur - 06.03.2001, Blaðsíða 9
ÞRIDJUDAGUR 6. MARS 2001 - 9 ÍÞRÓTTIR Haukastelpumar deildarmeistarar Haukarnir tryggðu sér um helgina deild- armeistaratitilinn í Nissandeild kvenna og mæta Val í fyrstu um- ferð úrslitakeppninn- ar. Hart verður barist um annað sætið í síð- ustu umferð deildar- innar sem fram fer á laugardaginn, en bæði ÍBV og Fram eiga möguleika á sætinu. Haukastelpurnar fóru létt með að trvggja sér deildarmeistaratit- ilinn í handknattleik, þegar þær unnu erkifjendurna úr FH með níu marka mun, 25-16, í sautj- ándu og næst síðustu umferð Nissandeildar kvenna í íþrótta- húsinu Asvöllum á laugardaginn. Leikurinn, sem fór fram fyrir seinni leik Hauka gegn Sporting Lissabon í EHF-bikarnum, fór rólega af stað, en Haukastelp- urnar höfðu lljótlega náð þægi- legu forskoti, sem þær héldu í tveimur til þremur mörkum fram ylir hálfleik, en staðan í leikhlé var 9-7. Fljótlega í fyrri hálfleik, í stöðunni I 1-9, misstu FH- ingar tvo leikmenn útaf í tvær mínútur með stuttu niillibili og í kjölfarið fylgdu átta Haukamörk í röð, án þess að FH-stelpunum tækist að svara fyrir sig og staðan því skyndilega orðin 19-9. Bilið átti enn eftir að aukast og um miðjan hálfleikinn skildu ellefu mörk liðin að, 22-1 1. Jenný Ásmundsdóttir, mark- vörður Haukanna, var FH-stelp- unum erfið í leiknum og þá sér- staklega í seinni hálfleiknum, en alls varði hún 19 skot í leiknum. Af útileikmönnunum voru þær Hanna Stefánsdóttir og Inga Fríða á línunni að spila best, en þær skoruðu báður fjögur mörk, en markahæst varð Heiða Er- lingsdóttir með sex mörk, öll úr vítum. Annars var sóknarnýting Haukanna frekar slöpp og átti Jolanta Slapikiene sinn þátt í því, en hún varði alls 15 skot í leikn- um og var iangbest FH-inga. Björk Ægisdótlir varð markahæst hjá gestunum, en hún skoraði fjögur mörk og Hafdís Hinriks- dóttir varð næst með þrjú mörk, öll úr vítum. Anita skoraði tíu mörk Urslit annara leikja urðu þau að Fram vann fimmtán marka úti- sigur á ÍR, 17-32, Stjarnan fjög- urra marka útisigur á KA/Þór, 16-20, IBV tveggja marka útisig- ur á Val, 21-23 og Grótta/KR tveggja marka heimasigur á Vík- ingi, 20-18. í leiknum að Hlíðarenda skor- aði Anita Andreasen tíu mörk fyr- ir IBV, þar af sex af sfðustu átta mörkum liðsins. leikurinn var mjög spennandi og leiddi Eyjalið- ið með tveimur mörkum í leik- hlé, 11-13. Valsstelpurnar mættu tvíefldar til Ieiks í seinni hálfleik og höfðu náð fjögurra marka for- skoti um miðjan hálfleikinn, 20- 16. I kjölfarið ft'lgdu svo fimm Eyjamörk í röð og staðan orðið 20-21 fyrir gestina þegar um það bil tvær mínútur voru til leikslo- ka. Eyjaliðið hafði svo betur í Iok- in og jók forskotið f tvö mörk. 21 - 23 eftir mikla spennu á lokakafl- anum. Eivör Blöndal var marka- hæst hjá Val með 5/2 mörk. Á Seltjarnarnesi Iagði Asa Ásgrímsdóttir, markvörður Gróttu/KR, grunninn að sigrin- um gegn Víkingum, með stór- góðri markvörslu í síðari hálf- leiknum. Ása lokaði þá hreinlega á gestina, sem varð til þess að heimaliðið náði mest fimm marka forskoti í leiknum, sem Víkingum tókst að minnka í tvö fnörk með því að skora þrjú síð- ustu mörk leiksins. Jóna Björg Pálmadóttir varð markahæst hjá Gróttu/KR með 7/1 mörk og Ágúst Björnsdóttir næst með 6/3 mörk. Hjá Víkingum skoraði Kristín Guðmundsdóttir mest, eða 6/2 mörk, en hún var lengst al tekin úr umferð. 1 Breiöholtinu unnu Framarar auðveldan sigur á IR og náðu gestirnir mest 18 marka forskoti í seinni hálfleiknum. Svanhildur Þengilsdóttir varð markahæst gestanna með 6 mörk og Marina Zoueva næst með 6/5 ntörk. Hjá IR skoraði Sara Guðjónsdóttir mest, eða 6/2 mörk. Sjá nánar um leik KA/Þórs í Akureyrarblaði. Spennandi lokaumferð Fyrir átjándu og síðustu umferð- ina, sem fram fer á laugardaginn, er þegar Ijóst hvaða liö komast áfrant í úrslitakeppnina, en það eru auk Hauka lið IBV, Fram, Stjörnunnar, Gróttu/KR, FH, Víkings og Vals og aðeins spurn- ing um hvort Fram, sem er í þrið- ja sætinu, tekst að skjótast upp fyrir IBV í annað sætið. Tvö stig skilja á milli liðanna og eiga bæði erfiða leiki fýrir höndum í síð- ustu umferöinni, Fram gegn Stjörnunni í Garðabæ og IBV gegn Gróttu/KR heima í Evjum. Með heimasigri gegn Gróttu/KR tr)'ggir ÍBV sér annað sætið, en tapi ÍBV leiknum tryggir Fram sér annað sæti með sigri á Stjörnunni, vegna mun hagstæð- ara markahlutfalls, þar sem Fram er með 84 mörk í plús en IBV að- eins 25. Hvernig svo sem fer f leik Fram og Stjörnunnar, þá á Stjarnan enga möguleika á að lyfta sér upp fyrir Safamýrarliðið vegna markahlutfallsins, en Stjarnan er með 50 mörk í plús. I úrslitakeppninni mæta deild- armeistararnir því liði sem lendir í áttunda sæti deildarinnar og er ljóst að Haukarnir munu því leika gegn Val í fyrstu umferð- inni, þar sem Hlíðarendaliðiö á enga möguleika á að hækka sig upp um sæti á stigatöflunni. I næstu sætun þar að ofan eru Vík- ingar með 16 stig í sjöunda sæt- inu, FH-ingar í áttunda sætinu með jafnmörg stig og Grótta/KR í fimmta sætinu með 18 stig. Vík- ingur og FH eiga leiki gegn hotn- liðunum í síðustu umferðinni og því líklegt að markahlutfall muni ráða sætaskipan, fari svo að Grótta/KR tapi í Eyjum. Seltjarn- arnesliðið er þar með bestu stöð- una, eða 2 I mark í plús, FH-ing- ar, sem mæta KA/Þór á Akur- eyrui, með 20 í plús og Víkingur, sem mætir IR í Víkinni, með 16 í plús. Það stefnir því í spennandi Iokaumferð, þar sem úrslitin í öllum leikjum nema einum, lcik Hauka og Vals, skipta miklu máli um stöðuna. LeiMr síðustu umferðar á laugardag: 16.30 Fram - Stjarnan 16.30 Haukar - Valur 16.30 KA/Þór - FH 16.30 ÍBV - Grótta/KR 16.30 Víkingur - ÍR Haukamir í imdanúrslitm Einar Öm Jónsson, homamaðurinn knái í Haukum, tryggði í gær liði sínu réttiun til að leiba í undanúr- slitum EIIFbikarsins í handknattleik, þegar bann skoraði sigur- markið gegn Sporting Lissabon, á lokasek- úndum leiksins. Þýska liöið Magdeburg, króatíska liðið RK Metkovic Jambo og spænska liðið Bidasoa lrun eru ásamt Flaukum komin í undan- úrslit EHF-bikarsins í hand- knattleik karla og verður dregið um það í dag hvaða lið lenda þar saman. Haukarnir komust áfram í keppninni eftir nauman sigur á Sporting Lissabon, 33-32, í íþróttahúsninu að Ásvöllum á laugardaginn, en fýrri leikur lið- anna endaði með jafntefli, 21- 21, þannig að Haukarnir komast áfram á einu marki. Hafnarfjarð- arliðið hafði frumkvæðið mest allan leikinn og hafði mest náð fimm marka for- skoti í fyrri hálf- Ieik, sem Portú- gölunum tókst að minnka niður í þrjú mörk fyrir leikhlé, 17-14. Haukarnir héldi síðan tveggja til þriggja marka for- skoti framan af seinni hálfleik, eða þar til í stöð- unni 23-20. Þá skoruðu Portúgal- irnir þrjú mörk í röð og jöfnuðu f 23-23. Skömmu síðar höfðu þeir náð eins marks forystu, 25-26 og spennan gífur- leg. En Haukarnir gáfust ekki upp og það sem eftir lifði leiksins var jafnt á flestum tölum og enn átti spénnan eftir að aukast. Einar Öm tryggði sigurinn Þegar um það bil tjórar mínútur voru af leik, í stöðunni 30-30, náðu Portúgalarnir enn að kom- ast yfir í 30-3 1, eftir að dæmdur hafði verið ruðningur á Einar Örn Jónsson. Einar ()rn var fljót- ur að borga fvrir mistökin og jafnaði í 31-31 í næstu sókn og rétt um tvær mínútur til leikslo- ka. Portúgalarnir áttu síðan skot í þverslá, en á móti kemur Sham- kuts Haukum í 32-31 og rétt um hálf mínúta til leiksloka. Tíu sek- úndum síðar syngur boltinn í marki Haukanna og staðan því 32-32 og allt á suðupunkti. Haukarnir taka miðjuna strax og tekst með ótrúlegum hætti að skora sigurmarkið á lokasekúnd- unum og hver annar en horna- maðurinn Einar Örn Jónsson, sem þarna skoraði sitt sjöunda mark í leiknum úr jafnmörgum tilraunum. Einar Örn læddi sér út í hornið og gleymdist þar í öll- um látunum, þannig að hann komst einn og óvaldaður í gegn og try'ggði liði sínu sæti f undan- úrslitum keppninnar, við mikil fagnaðarlæti troðfullrar íþrótta- hallar að Ásvöllum. Einar og Shamkuts bestir Hvít-Rússinn Aliaksandr Sham- kuts var markahæstur Haukanna með 8 miirk úr jafnmörgum til- raunum og var ásamt Einari Erni besti maður liðsins. Hann fékk það hlutverk að gæta stórskytt- unnar Vojislav Kracjic í vörninni og gerði það með miklum ágæt- um eins og reyndar í lyrri leikn- um ytra. Annars var allt Haukaliðið að leika vel og ekki má glevma stuðningsmönnunum sem voru hreint út sagt frábærir. Hjá Sporting var Andorhino langbestur og markahæstur með I 1/5 mörk og einnig átti horna- maðurinn Fernando Nunes góðan leik í seinni hálfleik, en hann var næstmarkahæstur með 6 niörk. 8-liða úrslit - Seiuni leikir: Metkoxic Jambo - Brodomerkur 20- 27 (F>Tri leikur 27-18- Samtals 47-45) Pick Szeged - Bidasoa 23-26 (Fyrri leikur 28-27 - Samtals 51-53) Sport. Lissabon - Haukar 32-33 (F>'rri leikur 21-21 - Samtals 53-54) Lemgo - Magdeburg 26-23 (Fyrri leikur 22-28 - Samtals 48-51)

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.