Dagur - Tíminn Akureyri - 08.02.1997, Qupperneq 10

Dagur - Tíminn Akureyri - 08.02.1997, Qupperneq 10
22 - Laugardagur 8. febrúar 1997 (3DagurJ9Iímtrat Þeim fer óðum fjölgandi íslensku stúlkunum sem hœtta sér út á svellið, þjóta áfram, hoppa, dansa, taka snúninga í loftinu og lenda án þess að áhorfendur taki fyrir augun af hrœðslu við að þœr skelli á hinn óœðri enda. Þessar stúlkur, og þeir örfáu drengir sem hafa brotið múrinn og lagt sig eftir skautadansi, eiga Liisu S. T. Jó- hannsson mikið að þakka sem þjálfað hefur list- skautadans frá stofnun deildarinnar hjá Skautafélagi Reykjavíkur. Eigum við ekki að fa þeim svona 3 ár •f þeir geta æft allt árið,“ svarar Liisa egar hún er spurð hvenær megi eiga von á íslenskum skautadönsurum á Olympíuleikana. Tæknin er kennd við Joseph Pilates (f. 1880) sem kynnti sér austræna og vestræna líkams- þjálfun og setti saman kerfi sem þykir nú verulega á undan sínum tíma. Þeir eru margir sem stunda líkamsþjálfun eftir kerfi Pilatesar en það þykir sér- staklega hentugt fyrir fótbolta- kappa, ballerínur, skautafólk og aðra sem fá smám saman mun þjálfaðri vöðva öðrum megin líkamans, þar sem átakið er mest t.d. í spörkum, hoppum, snúningum o.fl. Liisa segir al- gengt að eitthvað í líkamanum láti einfaldlega undan og þessir íþróttamenn hrynji saman. Pilates-tæknin á að fyrir- byggja slíkt hrun og unnið er út frá miðju líkamans. „Pilates vinnur alltaf á allan líkamann og þú finnur fyrir styrkingunni fram í fingurgóma." Mikið er lagt upp úr því að líkaminn haldist í jafnvægi og fara t.d. allir geimfarar í gegnum Pilat- es-meðferð áður en haldið er út í geiminn. „Fólk ruglar þessu oft saman við jóga,“ segir Liisa og leggur áherslu á að Pilates sé allt ann- ars konar þjálfun og mikil áreynsla á lflcamann, svitinn leki af fólki eftir æfingarnar. Hún krefst mikillar einbeitingar og er því kennt í fámennum hópum eða einstaklingstímum í World Class en eigandi stöðvar- innar hefur látið Skautafélag- inu eftir aðstöðu endurgjalds- laust. Liisa Jóhannsson er kvik og keik kona á fimmtugs- aldri, fædd í smáborg hinna 74 svella (sem þykja þó ekkert of mörg) í Þúsundvatna- landinu Finnlandi. Um fimm ára aldur fór hún að fikra sig eftir ísuðum vötnunum á skíða- skóm með áskrúfuðum járnum. Sjö ára fékk hún svo sína fyrstu listskauta. „Ég fékk þá í jólagjöf og ég svaf í þeim ég var svo ánægð með þá.“ Næstu árin æfði Liisa stíft, sýndi, keppti og lenti einatt í efstu sætum. En um 18 ára aldurinn var skólinn orðinn harðari þannig að lestur og strákastand og annað sem fylgir gjafvaxta stúlkum tók við. Á hvergi heima Eftir flakk á milli landa til að læra tungumál rakst Liisa á auglýsingu frá Loftleiðum, sem flugu þá til New York, þar sem óskað var eftir flugfreyjum. „Mig hafði alltaf langað til New York þannig að ég sótti um,“ segir Liisa en hjá Loftleiðum starfaði hún í 5 ár eða allt þar til hún hitti íslending sem henni leist vel á og giftist. Hún hefur nú verið gift á íslandi í 26 ár. „Ég held það sé þetta kirjalska í mér að mig hefur alltaf langað til að ferðast. Ég á hvergi heima. Svo ég get alveg eins búið á íslandi." Pilates-tækni Húsmóðurstörf og uppeldi tveggja dætra tóku við af flakkinu og það var ekki fyrr en yngri dóttirin var orðin um 16 ára sem Liisa ákvað að skella sér til New York til að læra svo- kallaða Pilates- ueknl við líkams- uilfun og hún er iú eini þjálfarinn á orðurlöndum sem fur réttindi til að nna Pilates. „Þetta er þessi tilfinning að geta gert nánast hvað sem er. Ég man þegar ég var ung, þá fannst mér ég geta farið eins hratt og ég vildi, stokkið, hlaupið og farið í pírúetta," sagði Liisa og virtist gagntekin frelsistilfinningu við til- hugsunina eina um að þjóta eftir finnskum svellum. Skautadansinn Skautafélag Reykjavíkur var stofnað 1893 og ótrúlegt en satt, á tímum þar sem boltinn skoppar eilíflega í öllum íjöl- miðlum, þá var SR flölmerin- asta íþróttafélag landsins þegar ÍSÍ var stofnað árið 1912. List- skautadeildin var aftur á móti ekki stofnuð fyrr en 1992 þegar vélfrysta svellið í Laugardal var tilbúið. Áhugi fyrir listskauta- dansi hefur þó verið fyrir hendi en að sögn Svövu Sigurjónsdótt- ur, formanns deildarinnar, vildi hún ekki byggja upp heila íþróttagrein frá grunni fyrr en hún fengi þjálfara sem hún treysti til verksins. Hann fann hún í Liisu. „Maðurinn minn var búinn að sjá hana skauta á tjörninni og fara úr strætó til að horfa betur á hana. Hann man ennþá hvernig hún var klædd.“ Liisa var ráðin og hefur síð- ustu 4 ár þjálfað börn og ung- linga á aldrinum 3ja-18 ára en í vetur voru nemendur tæplega 300. 32 keppendur tóku þátt í fyrsta Reykjavíkurmótinu sem var haldið um daginn og ís- landsmót verður haldið nú í mars en listskautadans er einnig æfður á Akureyri. Stúlkur eru í yfirgnæfandi meirihluta, ísknattleikurinn hefur meira aðdráttarafl á strákana en listskautarnir. „Ég er komin með yndislegan kjarna. En ég held það skipti ís- lendinga mjög miklu að tilheyra hóp, fá stuðning frá sínum fé- lögum.“ Liisa telur nokkuð áberandi hve íslenskar stelpur fylgja vinkonum sínum og þær sæki því styrk hjá hverri ann- arri. Ásamt stuðningi frá for- eldrum getur hópeflið því kom- ið í stað sjálfsagans sem skautaíþróttin krefst af þeim sem vilja ná langt. „Pabbi minn stóð oft klukkustundum saman í kuldanum til að fylgjasl með mér æfa mig.“ Þrjú ár í ÓL „Nemendur eru ekki komnir mjög langt á heimsmælikvarða en við fengum breskan dómara hingað í fyrra fyrir íslands- meistaramótið, sem er yfir öll- um skautasvellum í Bretlandi, og hann var virkilega hissa á því hvað þau voru góð miðað við hvað þau hafa haft lítinn tíma og aðstöðu til að æfa.“ Skautadansararnir hafa ekki haft nema 4-5 mánuði á ári til æfinga, og þær falla tíðum nið- ur þegar svellið er fullt af snjó eða blautt eftir rigningar. í haust á yfirbygging yfir svellið að vera tilbúin og verður það gjörbylting í aðstöðu fyrir þá sem æfa. Liisa er að vonum ánægð með þetta „því ekki vantar áhugann og hæfileikana.“ - Og hvenær má svo búast við að íslenskir skautadansarar mæti á vetrarólympíuleika? „Eigum við ekki að gefa þeim svona 3 ár ef þeir geta æft allt árið.“ lóa Listskautadansinn er ekki dýr íþrótt miðað við margar aðrar. Ódýrir skautar duga til að byrja með en eftir því sem krakkarnir ná lengra þurfa skautarnir að vera betrl Góðir skautarfyrir langt komna kosta 20-60.000 kr. Ekki hefur þurft að hugsa sérstaklega fyrir fatnaði hingað til íslenskt vetrarveður hefur séð til þess, en það ku vera mikil tilhlökkun meðal nemenda að komast nú loks nœsta vet- ur, þegar yfirbyggingin íLaugardal verður að veruleika, íþessa œvintýralegu glilgalla...

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.