Dagur - Tíminn Akureyri - 15.02.1997, Síða 6

Dagur - Tíminn Akureyri - 15.02.1997, Síða 6
18 - Laugardagur 15. febrúar 1997 ÍOagur-ÍEmmTn ■ Ólafur baðst undan þvi að láta andlit sitt þekkjast í myndatöku, enda segir hann eiginkonu sína hafa misst atvinnu sín vegna, slíkir séu fordómarnir. Kristín Ingvadóttir sem situr í stjórn Samtaka fanga og þolenda er með Ólafi á myndinní. S lafur Gunnarsson, fyrr- verandi fangi, sem lauk afplánun fyrir fíkniefha- brot si. haust, er mjög ósáttur við hvernig samfélagið tekur á móti mönnum sem hafa afplán- að dóm sinn. Hann segir at- vinnumöguleika nánast enga og því sé ekki óeðlilegt að saka- menn leiti á ný út á glæpabraut- ina, kerfið beinlínis hvetji til þess. Til að reyna að hafa áhrif á gang mála, minnka for- dóma og auka atvinnu- möguleikana, hefur Ólafur verið frum- kvöðull að stofnun félagsskap sem kallast „Samtök fanga og þolenda." Þar eru fyrrverandi sakamenn og þolendur afbrota undir ein- um hatti. „Maður er með ævilangan dóm, honum lýkur ekkert eftir afplánun. Það hrynja flest per- sónuleg tengsl á meðan maður situr inni og útskúfunin heldur svo áfram. Það er mjög erfitt að fóta sig í lífinu þegar maður fær enga vinnu,“ segir Ólafur. Samfelld áþján Ólafur var handtekinn árið 1993 vegna „stóra fíkniefna- málsins“ sem svo var kallað, en þar var reynt að koma 20 kíló- um af hassi á markað. Hann var dæmdur í 4 og hálfs árs fangelsi en sat inni í 3 ár, tölu- vert lengri tíma en hann er sáttur við. Það er ekki það eina sem Ólafur kvartar undan, heldur má af orðum hans skilja að fangavistin hafi verið samfelld píslarganga. Hann var fyrst 11 mánuði í Síðumúlafang- elsi en varð þá íyrir heiftarlegri árás og lá um tíma á gjörgæsludeild. Þaðan lá leiðin á einangrunardeild á Litla-Hrauni „deild fyrir fanga sem ekki er hægt að hafa innan um aðra,“ segir Ólafur, en hann hafði aldrei setið inni áður en þetta mál kom upp. Á Litla-Hrauni segist Ólafur hafa reynt að endurreisa trún- aðarráð fanga til að vekja at- hygli á málstað þeirra. „Hér er nefnilega ekkert gert til að gera fanga að betri mönnum, ólíkt t.d. Norðmönnum sem standa mjög framarlega í þessum efn- um. En endurreisn trúnaðar- ráðsins var túlkuð sem svo að ég væri að valda taugatitringi hjá föngum og þess vegna var ég fluttur í Hegningarhúsið á Skólavörðustígnum. Þar var ég Iátinn dúsa í 6 mánuði í gjör- samlega óviðunandi fangelsi en þarna komst ég þó í félagsskap sem var af hinu góða. I fram- haldi af þessu sótti ég um að fara á Kvíabryggju en þá stóð til að flytja mig til Akureyrar þar sem ég hefði endanlega verið einangraður frá öllu mínu félagslífi. En ég endaði afplán- unina á Kvíabryggju." Fangelsismálastjóri sagði af sér í einn dag Um lok fangavistarinnar segir Ólafur: „Það kostaði ekkert smávesen og fangelsismála- stjóri þurfti að segja af sér í einn dag. Mér var kerfisbundið hegnt vegna þess að ég lýsti skoðunum mínum opinberlega í fjölmiðlum." Og enn lætur Ólafur skoðanir sínar í ljósi. „Stefnan í fangels- ismálum er þannig á íslandi að það kemur enginn maður betri út en hann fór inn. Við höfum ekki að neinu að snúa og erum hálf ónýtir eftir meðferð Fang- elsismál ast ofnunar. “ En sem fyrr segir var var það aðeins hálfur sigur fyrir Ól- af að sleppa út, því þá tók við nýr dómur, dómur samfélags- ins. „Hugarfarið í þjóðfélaginu er þannig að við séum „bad guys“ en það hlýtur að vera hagur allra að gera okkur að nýtum þegn- um. Hvað mig varðar er kerf- ið hins vegar þannig að eft- irhtsskyldan er svo mikil að ég verð að hafa samband við yfirmann fíkni- efnalögregl- unnar á 14 daga fresti og segja honum allt frá ferðum mínum, hvaða menn ég hef hitt og um hvað við höfum rætt. Þetta er náttúr- lega lítt fýsilegur kostur fyrir atvinnurekendur. Svo eru fleiri atriði sem öll ber að sama brunni, stjórnendur vilja ekki fyrrverandi fanga. Og ekki myndi það þýða fyrir mig að ljúga að atvinnurekanda vegna þess hve mitt mál var mikið f íjölmiðlum á sínum tíma. Mig þekkja allir.“ Engin leið úr ,,féló“? Ólafur hefur numið tölvunar- fræði og sat tvær annir í við- skiptafræði. Hann kysi helst að vinna skrifstofustörf en fær ekki inni á námskeiðum atvinnu- lausra, þar sem hann er ekki á skrá. Ólafur er á félagslegum bótum. „Ég fæ 53 þúsund á mánuði og af þeirri íjárhæð þarf ég að greiða það sem fólk- ið í kringum mig þurfti að borga meðan ég sat inni. Ég reyndi að kom- ast á bókhalds- námskeið til að auka atvinnu- möguleikana en komst ekki af fyrrgreind- um orsökum. Ég ræddi við félagsmálaráð- herra og fulltrúa Félagsmála- stofnunar og spurði hvort þeir aðfiar gætu ekki kostað þessi námskeið til að ég kæmist ein- hvern tíma út úr félagslega geiranun. En þeir sögðu nei. Þeir vilja frekar hafa mig á bót- um það sem eftir er og borga mér 53 þús. kr. á mánuði frekar en að aðstoða mig við að kom- ast út í atvinnulífið. Þetta við- horf er ekki beinlínis í anda mannréttinda og allt vegna þess að ég lánaði mönnum fjár- magn í gamla daga sem voru í fíkniefnaheiminum. Ég var kannski ekki alveg saklaus hvað það varðaði að mig grun- „Stefnan ífang- elsismálum er þannig á íslandi að það kemur enginn maður betri út en hann fór inn. “ „Flestir fangar sem ég hef talað við fara beint í glœpina aft- ur af því að ekkert annað býðst þeim. “

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.