Dagur - Tíminn Akureyri - 15.02.1997, Qupperneq 15
.fflagur-'ðJntrám
Laugardagur 15. febrúar 1997 - 27
KONUNGLEGA
I Ð A N
' -ifg '4* ,, '> ~'-V
Bhumibol konungur og hans slekti
Úr konunglegri veislu. Konungsfjölskyldan í Tælandi ásamt Elísabetu II. Englandsdrottningu og Filippusi prins í veislu sem haldin var þeim til heiðurs er
þau voru í opinberri heimsókn í Tælandi á síðasta ári.
BÚBBA
segir ykkur frá kónga-
fólki í Tœlandl
ar sem það er ektó oft að
kóngafólk kemur við sögu
í innlendum fréttum hér-
lendis þá finnst mér rétt að
segja ykkur nú frá konungsfjöl-
skyldunni í Tælandi. Tilefnið er
auðvitað þær fréttir að Galyani
prinsessa, systir Bhumibols Tæ-
landskonungs. ætlar að gefa
100 milljónir króna til bygging-
ar Búddamusteris hér á landi. -
Það er ekkert annað! Þetta er
kærkomið tilefni til þess að ég
beini sjónum mínum að öðru
kóngafólki en því evrópska.
Á valdastóli í 50 ár
f 700 ár hefur verið konungs-
veldi í Tælandi en áður hét kon-
ungdæmið Síam. Núverandi
konungur heitir hans konung-
lega hátign Bhumibol Adulyadej
og hefur hann setið lengur en
nokkur annar þjóðhöíðingi í öll-
um heiminum í hásæti. Á síð-
asta ári fögnuðu Tælendingar
50 ára valdaafmæli Bhumibols.
Tælendingar eru mjög kon-
ungs- og þjóðhollir. Til dæmis
standa allir upp í kvikmynda-
húsum áður en sýning hefst á
meðan þjóðsöngurinn er leik-
inn. Tælendingar líta því sem
næst á konung sinn sem guð og
tala um hann af mikilli virð-
ingu.
Bhumibol Adulyadej fæddist
árið 1927 í Ameríku, þar sem
faðir hans Mahidol prins, sem
menntaður var í breska einka-
skólanum Harrow og Harvard,
lagði stund á læknisfræði. Þeg-
ar Bhumibol var aðeins eins árs
dó faðir hans. Móðir hans,
Sangvalya prinsessa, hélt heim
til Tælands ásamt börnum sín-
um þremur: Bhumibol, Ananda
eldri bróður hans og systur
hans Galyani. Sangvalya prins-
essa komst fljótlega á þá
skoðun að betra væri fyrir börn
hennar að hljóta menntun í
Evrópu. Fjölskyldan settist því
að í Lausanne í Sviss þar sem
börnin gengu í bestu skóla sem
völ var á.
Eineygður og
ástfanginn
Sem ungur maður hafði Bhumi-
bol mikinn áhuga á hraðskreið-
um bflum. Það átti eftir að
verða honum dýrkeypt því hann
lenti í alvarlegu bflslysi og
missti annað augað. Það var
einungis fyrir hæfni fransks
læknis að það tókst að bjarga
honum frá því að verða algjör-
lega blindur. Þegar Bhumibol
var að jafna sig eftir slysið
spurði móðir hans hvort að
hann óskaði sér einhvers sér-
staks. Hann svaraði á þá leið að
hann vildi fá að hitta undurfal-
lega stúlku, dóttur sendiherra
Tælands í Frakklandi. Móðirin
kom því í kring að þau Sirikit,
sem auðvitað varð seinna
prinsessa, og Bhumibol hittust.
Hin fagra Sirikit hjálpaði mjög
til þess að Bhumibol náði full-
um bata, en hann hefur frá
þessum tíma notað gerviauga
og þurft að nota óskaplega
þykk gleraugu.
Þau Siritót og Bhumibol gift-
ust vitanlega í fyllingu tímans
en áður en það gerðist átti mik-
ill sorgaratburður eftir að
breyta lífi þeirra. f júnímánuði
1946, þá einungis 18 ára gam-
all, kom Bhumibol að Ifki bróð-
ur síns, Ananda konungs, sem
hafði verið skotinn í höfuðið í
höll sinni. Leyndardómur
morðsins hefur enn þann dag í
dag ekki verið upplýstur og
ekki hefur fengist skýring á því
af hverju lögreglurannsókn fór
ekki fram. - Það kom þó ekki í
veg fyrir að þrír hallarstarfs-
menn voru handteknir, hafðir í
einangrun í sex ár og að lokum
Ifllátnir. Bhumibol á enn í dag
erfitt með að tala um dauða
bróður síns, sem varð til þess
að hann var krýndur konungur
hinn 9. júní 1946.
Skylda að krjúpa,
bannað að snerta
Bhumibol hefur setið lengur við
völd en nokkur annar þjóðhöfð-
ingi í sögu Tælands. Þó svo að í
Tælandi sé meiri pólitískur
stöðugleiki en annars staðar í
Suð-austur Asíu þá hefur landið
fengið sinn skerf af valdaráns-
tilraunum og öðrum slíkum
uppákomum. Þess vegna er sér-
stök neyðarstjórnstöð í setu-
stofu Bhumibols, sem gerir
honum kleift að komast í sam-
band við hvaða hluta landsins
sem er ef neyðarástand skap-
ast. (Kannski á maður ekki að
vera að koma svona hugmynd-
um á framfæri hér ef
einhverjum skyldi detta í hug
að bráðnauðsynlegt sé að koma
slíkri stjórnstöð upp á Bessa-
stöðum ofan á allt annað.)
- Samkvæmt stjórnarskránni
hefur Bhumibol lítil völd en
hann hefur þrátt fyrir það tölu-
verð afskipti af stjórnmálum
landsins. (Ekki var þetta
betra!).
Bhumibol ber aldurinn vel og
þykir mjög unglegur. (Þið getið
nú dæmt um það sjálf af mynd-
unum). Hann þykir alvarlegur
og stffur en um leið vinsamleg-
ur með unglegan sjarma. (Eg
sel þetta ektó dýrara en ég
keypti!). En þrátt fyrir heims-
borgaralegt uppeldi konungsins
þá hefur verið haldið í mjög
sttfar reglur innan hirðar hans.
Til dæmis þá þykir það argasti
dónaskapur og vanvirðing ef
einhver nærstaddur stendur
þegar konungurinn situr. Þá
verða meðlimir fylgdarliðs hans
að beygja sig, nærri því krjúpa,
þegar þeir ganga fram hjá kon-
unginum eða afhenda honum
eitthvað. Að sjálfsögðu mega
þeir aldrei snerta konimginn.
Bhumi-
bol er mik-
ill tungu-
málamað-
ur og þytór
góður tón-
listarmað-
ur. Hann
leikur á
saxófón og
samdi
meðal
annars
sinn eigin
þjóðsöng.
Ilann hef-
ur einnig
áhuga á
ljósmynd-
un og sigl-
ingum. En
framar
öllu þá er
hann með
tæknidellu
og mikinn
áhuga á
öllu sem viðkemur nýjustu
tækni og vísindum.
Krónprinsinn er vand-
ræðagemsi
Aðrir meðlimur konungsíjöl-
skyldunnar leika einnig stór
hlutverk í opinberu lífi. Bhumi-
bol hefur hvatt yngri dætur sín-
ar tvær, Maha Chakri Sirind-
horn prinsessu og Chulabhorn
prinsessu og sem báðar hafa
doktorspróf annars vegar í fé-
lagsfræði og hins vegar í lfl-
efnafræði, að styðja verkefni
sem stuðla að betri menntun og
aðstoð við fámenn sveitarfélög.
Elsta dóttir Bhumibols er gift
Bandaríkjamanni og býr í
heimalandi hans. Maha krón-
prins er mikill vandræðagemsi,
sem veldur foreldrum sínum,
og öðrum, þungum áhyggjum.
Síðastliðið sumar hengdi hann
tilkynningu á hallarveggina þar
sem hann ásakaði lagskonu
sína og barnsmóður, um fram-
hjáhald. í hefndarskyni flutti
hún með börnin til Ameríku.
Barnsmóðirin, sem var leik-
kona hér áður fyrr, kærði Maha
nokkru seinna fyrir að hafa
rænt átta ára dóttur þeirra í
Bandaríkjunum og flutt hana
heim til Tælands.
Þessar erjur hafa angrað
Bhumibol svo mjög að hann
hefur ákveðið að næst elsta
dóttir hans, Maha Chakri Sir-
indhorn prinsessa muni taka
við krúnunni að honum látnum.
Hún þykir algjör andstæða
bróður síns, hógværð hennar
fellur almenningi vel í geð og
hún nýtur mikillar virðingar.
Það er nefnilega þannig að í
Tælandi eru engar sérstakar
reglur um erfðaröðina og árið
1977 var sett í lög að konur
gætu orðið þjóðhöfðingjar þar í
landi. Bhumibol konungur veit
að eftir sinn dag verður þörf
fyrir leiðtoga sem hugsar um
hag fólksins og hann er sann-
færður um að þann leiðtoga
hafi hann fundið í dóttur sinni.
Áhrif frá Evrópu
Valdhafar í Bretlandi hafa löng-
um haft mikil samskipti við
kollega sína í Tælandi. Þess má
geta til dæmis að Chulalong-
korn konungur var mikill aðdá-
andi og pennavinur Viktoríu
drottningar og James I. sendi
konungnum í Síam vingjarnlegt
bréf árið 1612 í von um að Sí-
amskonungur myndi hleypa
breskum kaupmönnum inn í
landið.
Konungshöllin í Tælandi,
Chakri, var byggð fyrir 200 ár-
um. Veggir og innviðir eru mjög
í evrópskum anda og minna um
margt á Versali. Hinsvegar er
þatóð, og skreytingar á því,
mjög í Búddískum stfl. - Þetta
hlýtur að vera áhugaverður
kokkteill! Valdhafar í Tælandi
líta nú sem fyrr mjög til Evr-
ópu. Til dæmis þá var einvörð-
ungu boðið upp á vestrænan
mat í boði sem haldið var til
heiðurs Elísabetu Bretadrottn-
ingu þegar hún var í opinberri
heimsókn í Tælandi á síðasta
ári.
í samræmi við stranga hirðsiði verða undirsátar Bhumibols Tælandskonungs að krjúpa fyrir honum.