Dagur - Tíminn Akureyri - 20.03.1997, Blaðsíða 1
Eftirminnttega gott
BRAGA
KAFFl
islenskt og ilmandi nýtt
■)
LIFIÐ I LANDINU
Fimmtudagur 20. mars ~ oq • árQariQur - 55. töluólað
Eftirtninnilega gott
BRAGA
KAFFI *«%•
- íslenskt og ilmandi nýtt
Blcið
:ölubli
GANGAA SKIÐUM
ÞVERT YFIR LANDIÐ
Fjórir félagar úr Hjálparsveit skáta þau
Stefán, Eyrún, Guðmundur og Ólafur í
Garðabæ ætla að fara gangandi þvert
yfir landið um páskana. Þau hafa verið
að undirbúa ferðina og leggja svo í
hann frá Fonti á Langanesi á laugar-
daginn. Þau búast við að ferðin taki
tvær til þrjár vikur. Mynd: S
Fimm félagar úr Hjálparsveit skáta í Garða-
bœ œtla að fara í nokkurra vikna ferð
gangandi á skíðum frá Fonti á Langanesi og
þvert yfir landið suður á Reykjanesskaga til
þess að hvetja íslendinga til að ganga meira
um landið. Pessi leið hefur ekki verið farin
áður eftir því sem best er vitað.
Við fórum í svipaða ferð í
fyrra og löbbuðum þá úr
Eyjafírði suður í Fljóts-
hlíð. Við ákváðum að fara aftur
í ár og nú ætlum við að labba
frá Fonti á Langanesi suður á
Reykjanestá. Þetta eru allavega
sextán dagleiðir og gæti farið
upp í tuttugu daga eftir veðri.
Það getur komið brjálað veður
og það getur líka verið glamp-
andi sól og fínt. Það kemur
bara í ljós,“ segir Eyrún Björns-
dóttir, leiðangursmaður og eina
konan í hópnrnn.
Draga
sleða á eftir sér
Á laugardag leggja fimm félag-
ar úr Hjálparsveit skáta í
Garðabæ, upp í skíðagöngu
þvert yfir ísland og draga á eft-
ir sér 40-50 kílóa farangur á
sleðum, vistir og tjöld, en leið-
angursmenn reikna með að
gista x skálum flestallar nætur.
Þau þurfa þó að gista í tjöldum
í tvær nætur og svo er ferða-
áætlunin nokkuð stíf þannig að
ekki er víst að þau nái alltaf í
skála. Þetta er lengsta ganga
sem farin hefur verið þvert yfir
landið og gera skátarnir ráð
fyrir að ferðin taki rúmar tvær
vikur ef allt gengur að óskum
með rjómablíðu og rennifæri
allan tímann.
„Við förum þetta á sextán
dögum ef við fáum alltaf gott
ferðaveður og náum alltaf að
klára alla áfanga. Það er nátt-
úrulega bjartsýnisplan. Það yrði
algjör hending ef við fengjum
sextán daga þar sem við gætum
alltaf verið á fullri ferð. Við
spennum bogann mjög hátt og
tökum mun lengri dagleiðir en
tíðkast í svona,“ segir Ólafur
Jónsson leiðangursmaður og
bætir við að það sé nánast ör-
uggt að ferðaáætlunin standist
ekki. Þau séu alveg viðbúin því
að ferðin standi í tuttugu daga.
Ekki verið gert áður
Fimmmenningarnir verða
keyrðir norður í dag og á morg-
un og ætla svo að leggja af stað
frá Fonti, ysta útkjálka lands-
ins, árla morguns á laugardag-
inn. Leiðin er frekar stíf fyrsta
daginn, rúmir 40 kílómetrar
inn á Þórshöfn. Á sunnudaginn
byrja þau svo að fara inn á há-
lendið, ganga inn á Möðrudals-
öræfi, að Nýhóli í grennd við
Grímsstaði á Fjöllum, yfir Jök-
ulsá, Ódáðahraxm, niður með
Skjálfandafljóti í skálann Kvía-
hraun og þaðan í Laugafell,
norður við Hofsjökui, Hvera-
velli, Fjallkirkju í Langjökli og
suður fyrir jökulinn að Þingvöll-
um og Bláfjöllum áður en kom-
ið er að Krýsuvík og Reykjanes-
tá.
„Þessi leið hefur ekki verið
farin áður gangandi á skíðum
að vetri til eftir því sem við best
vitum og verður sjálfsagt varla
hægt að finna lengri leið enda á
milli í landinu ef vera skyldi frá
Hornbjargi niður á Djúpavog en
það er örugglega svipuð leið.
Það hefur verið farið áður yfir
landið frá norðvestri til suð-
austurs, ijórir breskir hermenn
fóru frá Hornbjargi niður á
Höfn fyrir nokkrum árum. Að
öðru leyti hefur þetta ekki verið
gert,“ segir Ólafur.
Talsverðan undirbúning þarf
fyrir gönguför af þessu tagi, til
dæmis nákvæma skipulagningu
á vistum og mataræði. Svo þarf
að fara yfir búnaðinn, skíða-
græjurnar og fá síma og leið-
sögutæki. Það er að mörgu að
huga. Ferðalagið kostar auðvit-
að sitt en Eyrún bendir á að
„maður þarf auðvitað líka að
lifa heima. Þetta er kannski
ekki svo rosalegt.“ Fæðið er þó
létt og heldur dýrara en venju-
lega, kannski 60-70 þúsund
krónur fyrir öll fimm.
Hálfgerð bilun
Leiðangursmenn eru við öllu
búnir og standa náttúrulega vel
því að öll hafa þau áralanga
þjálfun í útivist og eiga allar
græjur sem þarf. En hvað kem-
ur fólki til að fara í svona ferð?
„Þetta er náttúrulega hálf-
gerð bilun. Eftir að maður hef-
ur farið einu sinni er það heill-
andi að komast út úr öllu og
vera aleinn uppi á fjölluixx,"
svarar hún. „Við viljum líka
vekja áhuga landsmanna á
gönguferðum um ísland. Það
þarf ekki alltaf að fara til sólar-
landa. Það er margt hægt að
gera hérna þó að það sé ekki
endilega að vetri til. Það er líka
mikið hægt að labba um á
sximrin,“ segir Eyrún. -GIJS