Dagur - Tíminn Akureyri - 24.09.1997, Blaðsíða 8
8 - Miðvikudagur 24. september 1997
PJÓÐMÁL
Jlagur-'Sfenmn
JOagur-Βmmtt
Útgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjórar:
Aðstoðarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Símar:
Netfang ritstjórnar:
Áskriftargjald m. vsk.
Lausasöluverð
Prentun:
Grænt númer:
Dagsprent hf.
Eyjólfur Sveinsson
Stefán Jón Hafstein
Elías Snæland Jónsson
Birgir Guðmundsson
Marteinn Jónasson
Strandgötu 31, Akureyri,
Garðarsbraut 7, Húsavík
og Þverholti 14, Reykjavík
460 6100 og 800 7080
ritstjori@dagur.is
1.680 kr. á mánuði
kr. 150 og 200 kr. helgarblað
Dagsprent hf./(safoldarprentsmiðja
800 70 80
Fax auglýsingadeildar: 460 6161 - Fax ritstjórnar: 460 6171
Fréttastjóraslaguiinn
í fyrsta lagi
Hatrömm átök stjórnarliða um mannaráðningar hjá
Ríkisútvarpinu tóku nýja vendingu í gær þegar
stjórnarflokkarnir opinberuðu formlega sundurlyndi
sitt. Hið pólitíska útvarpsráð, sem hafði frestað því
viku eftir viku að taka afstöðu til umsækjenda um
stöðu fréttastjóra sjónvarpsins vegna pólitískra
deilna sem náðu jafnvel inn á borð ríkisstjórnarinnar,
fékk loksins að greiða atkvæði í gær. Þar var fylgt
flokkspólitískum línum. Fulltrúar sjálfstæðismanna í
ráðinu studdu Elínu Ilirst, fyrrum fréttastjóra Stöðv-
ar 2, en fulltrúar Framsóknarflokksins og stjórnar-
andstöðunnar sameinuðust um Helga H. Jónsson,
varafréttastjóra Sjónvarpsins.
í öðru lagi
Það er auðvitað afar óheppilegt fyrir Ríkisútvarpið að
yfirmannastöður hjá þessum mikilvæga ríkisrekna
fjölmiðli, sem á að njóta trausts allra landsmanna,
skuli verða að pólitísku bitbeini með þeim hætti sem
nú hefur gerst eina ferðina enn. Stjórnmálamennirn-
ir virðast einfaldlega ekki geta sætt sig við að sleppa
pólitískum tökum sínum af mikilvægum ríkisstofnun-
um. Það á ekki síður við um þá sem segjast berjast
fyrir einkavæðingu sem flestra stofnana hins opin-
bera; þeir vilja eftir sem áður fá að stýra manna-
ráðningum. Það er dapurleg arfleifð frá gömlum tíma
þegar allt þjóðlífið var njörvað í flokksíjötra.
í þriöja lagi
Að sjálfsögðu á einungis faglegt mat á hæfileikum og
starfsreynslu umsækjenda að ráða ferðinni við ráðn-
ingu í starf fréttastjóra Sjónvarpsins eins og í aðrar yf-
irmannsstöður hjá opinberum stofnunum. Elfn Hirst er
fréttamaður að atvinnu og hefur staðið sig með prýði
sem fréttastjóri á öðrum fjölmiðlum, en það hafa fleiri
umsækjendur líka gert. Það pólitíska gjörningaveður
sem riðið hefur yfir Ríkisútvarpið að undanförnu legg-
ur þunga byrði á herðar nýja fréttastjórans, hver sem
hann verður.
V.
Elías Snœland Jónsson.
_______________________J
Spusatuig, dxttyöuiA
Er eðlilegt að 40 sveitarfélög, sem telja 4% af
íbúafjölda landsins, hafi stjómsýslu yfir megin-
hluta hálendisins?
Birgir
Þórðarson
oddviti í
Eyjajjarðarsveit.
Það er eðlilegt að
sveitarfélög hafi
stjórnsýslurétt yfir því
landsvæði sem er inn-
an þeirra marka. Lögin
segja greinilega til um
það. Landstærð sveit-
arfélaga er mjög mis-
munandi að stærð og
stærðin fer alls ekki al-
farið eftir íbúafjölda
þeirra."
Össur
Skarphéðinsson
alþingismaður.
Það er óréttlætan-
legt, óásættanlegt
og alveg út í hött. Það
er búið að stela fiski-
miðunum og nú ætla
þeir að stela hálendinu
af okkur líka.
♦
Guðmundur I.
Gunnlaugsson
sveitarstj. á Hellu og
form. Samtaka sunnl
sveitarfélaga.
Hálendið er hluti af
þessum sveitarfé-
lögum og íbúarnir hafa
afréttarnot. Stjórn-
sýslan hefur lengi verið
í umsjón sveitarfélaga
um aldir og þar er
mest þekking á gróðri,
lífrfki og nýtingu þess.
fbúaíjöldinn segir ekk-
ert til um getu sveitar-
félaganna til að sinna
þessum verkefnum.
Guðni
Ágústsson
alþingismaður.
--------------------
Hálendið er óbyggt
og hver á að kjósa
þar hreppsnefnd? Eðli-
legt er því að stjórn
þess sé hjá sveitarfé-
lögum. Stjórnsýslan er
tvískipt; ríki og sveitar-
félög og hvarvetna er
rflcið að draga úr um-
svifum. Sveitarfélög eru
rétti aðilinn til að ann-
ast málið. Sveitarfélög
munu og greiða fyrir
fólki að komast um há-
lendið og ósnortna
náttúru þess
Samblandið
„Hannes IJólmsteinn Gissurar-
son er sérkennilegt sambland
af predikara og fræðaþul.
Predikarinn fer stundum með
hreinar vitleysur til að renna
stoðum undir trúarkenningar,
en fræðaþulurinn getur illa
stillt sig um að greina frá stað-
reyndum, jafnvel þegar þær
koma predikaranum illa...“
- Markús Möller hagfræðingur í grein í
Morgunblaðinu.
Uppeldið
„Annars hef ég alltaf sagt að
það sé ekki verk eins manns að
lið nær langt. Það er ekkert
ólíkt að vera hór í Eyjum og
vera heima á Norðfirði. And-
rúmsloftið við sjávarsíðuna er
miklu betra og þetta liggur allt í
uppeldinu. Hérna er andrúms-
loftið þannig að þeir fiska sem
róa og þeir sem ekki róa eru
aumingjar og letingjar...“
- Bjarni Jóhannsson, þjálfari íslands-
raeistara ÍBV, í viðtali við Morgunblaðið.
Forheimskandi
„Er sjónvarpið forheimsk-
andi?
Já: þeir sem ánetjast sjónvarp-
inu eru nefnilega alltaf heima.
Og á meðan þeir eru heima þá
eru þeir að heiman, gefa ekki
gaum að íjallinu sínu, finna
ekki goluna á vanganum, rækta
ekki það sem er þeirra hlutverk
í heiminum að rækta..“
- Guðmundur Andri Thorsson í Degi-
Tímanum.
Ámi Blair Sigfússon?
s
g fékk þessa gamalkunnu „deja
vu“ tilfinningu í gær, þegar ég
hlustaði á morgunútvarp Rásar 2.
Þar var verið að tala við Árna Sigfússon,
oddvita borgarstjórnarflokks sjálfstæðis-
manna í Reykjavík, í heldur óhefðbund-
inni viðtalsseríu Ríkisútvarpsins við
frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í
komandi prófkjöri. Árni stóð sig vel í
þættinum og hefur ekki verið svona
skeleggur síðan í kosningunum síðast,
en þá kom það iðulega fyrir að maður
gat tekið undir með Arna í hinum ýmsu
málum. Það var líka þess vegna sem
málflutningur hans framkallaði „deja
vu“ tilfinninguna. Núna, eins og þá, er
Árni nefnilega kominn á mjúku nóturn-
ar og farinn að hljóma nokkuð Reykja-
víkurlistalega. í síðustu kosningum var
Árni, eins og menn muna, sakaður um
að hafa snúið svo rækilega við stefnu-
blaði flokksins að hann hafi hreinlega
afritað ýmis mál Reykjavíkurlistans og
gert þau að sínum. Þetta var notað gegn
Árna þá og þótti ekki góð latína. Nú
hins vegar er öldin önnur því bæði Clint-
on og Blair hafa síðan notað þessa að-
ferð og stolið málum frá keppinautum
sínum með mjög góðum árangri. Það er
því eðlilegt að Árni láti kveða við
Reykjavflcurlistatóninn á ný þegar kosn-
ingar nálgast.
Hafnarhúsið
Það sem sérstaklega vakti athygli mína í
gær í málflutningi Árna var þetta með
kostnaðinn við Hafnarhúsið. Árni virtist,
alveg eins og ég, sjá
ofsjónum yfir þeim
íjármunum sem nú
á að setja í að end-
urnýja húsið og búa
hinu alræmda Erró-
safni sómasamlegan
dvalarstað. Árni
benti réttilega á að
borgin er þegar orð-
in yfirfull af alls konar galleríum og
taldi það hljóta að vera aftarlega á for-
gangslistanum að fara að koma upp enn
einu opinberu safnhúsinu til þess eins
að hengja upp Errómyndir. Árni sagði
hægt að verja milljónatugunum sem í
þetta eiga að fara í gagnlegri verkefni
og freistaðist til að fara að tala um
hærri laun til kennara. Það var að vísu
full mikill populismi fyrir minn smekk
Niðurskurður
En engu að síður má minna á að það er
verið að skera illilega niður ýmsa þjón-
ustu í skólum borgarinnar og raunar í
félagskerfinu líka. Þannig að enn eitt
listasafnið er kannski ekki það sem
manni finnst helst vanta. (Nær væri að
endurvekja þá hugmynd sem ég og fleiri
hreyfðum þegar Korpúlfsstaðir voru í
umræðunni undir
Errósafn, að best
væri að dreifa þess-
um verkum á opin-
berar stofnanir, eins
og t.d. skóla og
bókasöfn, þar sem
þau héngu í tiitek-
inn tíma áður en
skipt yrði um verk.
Með slíkri farandsýningu nytu miklu
fleiri þessarar vandamálariku lista-
verkagjafar á ódýran og aðgengilegan
hátt).
Hver er hver?
En það merkilega við þessa umræðu er,
að það var Reykjavíkurlistinn sem varð
til sem andstöðuafl við steinsteypupólit-
íkina sem sjálfstæðismenn höfðu rekið
árum saman í borginni, en ekki öfugt.
Það er jafnvel enn merkilegra að það
var Sjálfstæðisflokkurinn eða menning-
arvitar á hans vegum, sem gáfu öll
fögru loforðin sjálfum sér til dýrðar um
að byggja glæsilegt safn utan um lista-
verkagjöfina frá Erró. Það kemur hins
vegar í hlut Reykjavflcurlistans að finna
leið til að efna það loforð. Eftir þáttinn
með Árna í gær virðist sem hlutverkin
hafi snúist algerlega við. Steinsteypu-
stjórnmálin séu haldreipi R-listans en
mjúku og manneskjulegu málin kapps-
mál D-listans. Að vísu rímar þessi við-
snúningur ekki vel við það sem hefur
verið að gerast á kjörtímabilinu þannig
að eflaust virkar viðsnúningurinn ekki í
fyrstu lotu. En óneitanlega væri það
saga til næsta bæjar ef Árna tækist að
vinna Reykjavíkurlistann með því að
stela af þeim grundvallarstefnunni að
hætti Tony Blair og skilja síðan timbur-
menn Erróveislu íhaldsins eftir í höfði
andstæðinga sinna. Það stefnir greini-
lega í fjöruga - en ágreiningslitla - kosn-
ingabaráttu í Reykjavflc.
Birgir Guðmundsson.