Dagur - Tíminn Reykjavík - 10.01.1997, Blaðsíða 15

Dagur - Tíminn Reykjavík - 10.01.1997, Blaðsíða 15
-0agur-©nrátn Föstudagur 10. janúar 1997 - 27 íw Zilíltm gí?S«Wdfflí:>Æ S wKmÍTTKfWiK j4Ínuastf>óefrii Beverly Hills í uppáhaldi Hildur Kolbeins starfsmaður Pedrómynda Hildur Kolbeins, sem vinnur hjá Pedrómynd- um á Akureyri, horfir mun meira á vídeó en sjón- varp og kýs að vera eigin dag- skrárstjóri. Einstaka sinnum horfir hún þó á dagskrá Stöðvar 2. „Ég horfi eiginlega aldrei á Ríkissjónvarpið, alltaf á Stöð 2 og mér finnst þáttur- inn Vinir góður. Svo má ég alls ekki missa af Beverly Hills sem er frábær þáttur. Þátturinn hans Gísla Rúnars á sunnudagskvöldum er líka fínn, skondinn þáttur sem ég horfi á þegar ég á annað borð er í skapi til að horfa á sjón- varp. Annars finnst mér skemmtilegra að horfa á vídeó og þá aðallega á grín- og spennumyndir.“— Hildur hlustar alltaf á Bylgjuna og þá helst á vin- sældarlistann og eins finnst henni gaman að hlusta á morgunútvarpið. Á H U GAVERT I KVÖLD Stöð 2 kl. 22.20 Sönn ást á Stöð 2 Þemamyndir janúarmánaðar á Stöð 2 eru allar úr smiðju Quentins Tarantino. í þessari mynd, Sönn ást (True Romance) er lýst hráslagalegum og ljótum veruleika í undirheimum bandarískrar stórborgar. Christian Slater leikur Clarence Worl- ey, léttgeggjaðan náunga sem trúir á Elvis. Þegar hann kynnist draumastúlkunni Alabama lætur hann allt annað lönd og leið og giftist henni í snarheitum. En Alabama er nýbyrjuð í vænd- inu og dólgurinn hennar er ekki á þeim buxunum að sleppa af henni hendinni. Handritið er eftir Tarantino en leikstjóri er Tony Scott. Myndin, sem er frá 1993, er stranglega bönnuð börnum. Maltin gefur tvær og hálfa stjörnu. Sjónvarpið kl. 21.10 Strákur í stelpugervi! Það er oft erfitt fyrir unga fólkið að byrja í nýjum skóla en fyrir Chris Calder er það hrein martröð. Hann er hress sextán ára strákur sem hefur aðallega áhuga á tvennu: að komast á plötu- samning og komast yfir sæta stelpu sem heitir Marie, en þetta kann að reynast erfiðara en hann hugði. Chris verður það á að styggja mesta fóhð í skólanum, sem heitir Kurt, og bregður á það ráð að klæða sig í kvengervi til að sleppa við misþyrming- ar. Það kemur á daginn að Kurt er bróðir Marie og þá vandast málið. Þessi bandaríska gamanmynd er frá 1993. Leikstjóri er Michael Keusch og í helstu hlutverkum eru Corey Haim, Nicole Eggert, sem margir muna eftir úr Strandvörðum, og Cameron Bancroft. Skondin reykingardeila Dagblöð fara nú að verða lesanlegri að álita margra þegar jólin eru að baki og úr auglýsingum dregur á þeirra síðum, og þó! Á næsta leiti er útsölufarald- urinn en reikna má þó með að annað lesefni fái aukið rými, vonandi lesenda vegna. En hvað vill fólk sjá í fjölmiðlum? Það er sjálf- sagt eins misjafnt og fólkið er margt, jafnvel þeir eru til sem hafa gaman af að lesa langlokur um efni sem er langt frá því að vera skemmtiefni eins og t.d. ársskýrslur stofnana eins og Þjóðhagsstofnunar eða Hagtölur Seðlabankans. Svo eru aðrir sem hafa gaman af því að sjá myndir af ástarlífi sauðkindarinn- ar þó öðrum viðkvæmum sálum finnist það eflaust ósmekklegt. Skemmtilegar deilur eiga sér stað þessa dagana á síðum danskra og sænskra síðdegisblaða um reykingar Margrétar Danadrottningar. Kerfis- bundnir og reglugerða- þrungnir Svíarnir hneyksl- ast á því að Danadrottning skuli ekki fara leynt með miklar reykingar sínar, skuli t.d. reykja á frétta- mannafundum meðan hans hátign Svíakóngur reykir bara þar sem enginn sér til. Danir gefa þó ekkert eftir, birta m.a. mynd af Margréti reykjandi á svöl- um hallarinnar með þykk- an reykinn frá sænsku kjarnorkuveri í baksýn og spyrja svo hvort sé meira mengandi. Bravó, Danir! Þetta væri nú aldeilis efni í sérvitringaþáttinn Þjóðar- sálina á Rás 2. SJÖNVARP U T V A R P (í S T Ö Ð | f svn © 16.45 Leiðarljós (555) (Guiding Light). Bandariskur myndaflokkur. 17.30 Fréttir. 17.35 Auglýsingatími - Sjónvarpskringlan. 17.50 Táknmálsfréttir. 18.00 Höfri og vinir hans (3:26) (Delfy and Friends). Teiknimyndaflokkur um lítinn höfr- ung og vini hans sem synda um heimsins höf og berjast gegn mengun með öllum til- tækum ráöum. 18.25 Negrakossinn (7:7) (Operation Negerkys). Norrænn myndaflokkur fyrir börn. 18.50 Fjör á fjölbraut (21:26) (Heartbreak High III). Ástralskur myndaflokkur sem ger- ist meðal unglinga í framhaldsskóla. 19.50 Veöur. 20.00 Fréttir. 20.35 Happ í hendi. 20.40 Dagsljós. 21.10 Ein úr hópnum. 22.45 Hjónaleysin (2:13) (Mr. and Mrs. Smith). Bandariskur sakamálaflokkur meö Scott Bakula og Mariu Bello í aðalhlutverk- um. 23.35 Asíusambandið. Leiðin til Mandalay. (The Asian Connection: The Road to Mandalay). Bandarísk/áströlsk spennu- mynd frá 1995. Stúlka og ungur sonur hennar eru myrt á eyju í Austurlöndum fjær og faðir stúlkunnar er staðráðinn í aö koma fram hefndum. Aöalhlutverk leika John Wa- ters, Pat Morita og Michael Ironside. 01.10 Útvarpsfréttir í dagskrárlok. 09.00 Sjónvarpsmarkaðurinn. 13.00 Loftsteinamaðurinn. (Meteor Man). Gamansöm ævintýramynd um kennarann Jefferson Reed sem er sviplaus og loft- hræddur. En dag einn verður hann fyrir loft- steini og viö þaö breytist hann í ofurhetju meö yfimáttúrlega hæfileika. 1993. 14.35 Sjónvarpsmarkaðurinn. 15.00 Út í loftiö. 15.30 NBA-tilþrif. 16.00 Köngulóarmaðurinn. 16.25 Snar og Snöggur. 16.50 Myrkfælnu draugarnir. 17.15 Minus. 17.20 Vatnaskrímslin. 17.30 Glæstar vonir. 18.00 Fréttir. 18.05 íslenski listinn. 19.00 19 20. 20.00 Lois og Clark (11:22). 21.00 Svona er Pat. (It’s Pat). 22.20 Sönn ást. (True Romance). Þemamyndir mánaöarins eru allar úr smiðju Quentins Tarantino. (Sjá umfjöllun að ofan). Stranglega bönnuð börnum. 00.20 Loftsteinamaöurinn. (Meteor Man). Sjá umfjöllun aö ofan. 02.00 Dagskrárlok. 08.30 Heimskaup. Verslun um víöa veröld. 18.15 Barnastund. 19.00 Borgarbragur. 19.30 Aif. 19.55 Brimrót (High Tide II). Ævintýralegir og léttir spennuþættir. 20.40 Murphy Brown. 21.05 Kaffihúsiö (Bordertown Café). 22.35 Laumufarþeginn (The Cold Equati- ons). Flugmaöurinn John Barton kemst aö því aö um borö í geimfarinu hans er stroku- farþegi. Aukin þyngd farsins vegna laumu- farþegans getur haft alvarlegar afleiöingar og skylda Johns er að fleygja farþeganum fyrir borö. Myndin er bönnuö börnum. 00.05 Brottnám (The Abduction). Kate Fin- lay er hamingjusöm kona sem á tvö börn, góðan sambýlismann og starf sem henni finnst skemmtilegt. Þaö eina sem skyggir á hamingju hennar er fýrrverandi eiginmaöur- inn, Paul, sem getur ekki sætt sig viö skiln- aöinn. Paul hikar ekki viö aö elta Kate og ógna henni meö orðum og æöi. Aöalhlut- verk: Victoria Principal (Dallas), Robert Hays, Christopher Lawford og William Greenblatt. Myndin er ekki viö hæfi barna.(e) 01.30 Dagskrárlok Stöðvar 3. 17.00 Spítalalíf. (MASH). 17.30 Taumlaus tónlist. 19.00 Jörö 2. (Earth 2). 20.00 Tímaflakkarar. (Sliders). Uppgötvun ungs snillings hefur óvæntar afleiðingar í för meö sér og nú er hægt aö feröast úr einum heimi í annan. Aöalhlutverk: Jerry O’Connell, John Rhys-Davies og Sabrina Lloyd. 21.00 Skarkárinn. (The Entity). Hrollvekja sem er byggö á sannsögulegum atburðum. Kona nokkur veröur fyrir baröinu á ósýnilegri veru. Þegar konan skýrir frá at- vikinu er fólk vantrúað á frásögn hennar. Leikstjóri: Sidney Furie. Aöalhlutverk: Bar- bara Hershey, Ron Silver og David Labiosa. 1981. Stranglega bönnuö börnum. 22.45 Undirheimar Miami. (Miami Vice). 23.35 Ástarlyf nr. 9. (Love Potion no. 9). Rómantísk gamanmynd. 01.05 Spítalalíf (e). (MASH). 01.30 Dagskrárlok. 09.00 Fréttir. 09.03 „Eg man þá tíð“. Þáttur Hermanns Ragnars Stefánssonar. 09.50 Morgunleikfimi meö Halldóru Björnsdóttur. 10.00 Fréttir. 10.03 Veður- fregnir. 10.15 Sagnaslóð frá Akureyri. (Endurflutt nk. þriðjudagskvöld.) 11.00 Fréttir. 11.03 Samfélagið í nærmynd. 12.00 Fréttayfirlit á hádegi. 12.20 Há- degisfréttir. 12.45 Veöurfregnir. 12.50 Auðlindin. 12.57 Dánarfregnir og auglýs- ingar. 13.05 Hádegistónar. Létt lög á föstudegi. 14.00 Fréttir. 14.03 Útvarps- sagan, Kristín Lafransdóttir eftir Sigrid Undset. Fyrsti hluti: Kransinn. Ragnheiöur Steindórsdóttir les (19:28). 14.30 Miö- degistónar. 15.00 Fréttir. 15.03 Boðið upp í færeyskan dans. Umsjón: Viöar Egg- ertsson. 15.53 Dagbók. 16.00 Fréttir. 16.05 Fimm fjórðu. Djassþáttur í umsjá Lönu Kolbrúnar Eddudóttur. 17.00 Fréttir. 17.03 Víðsjá. 18.00 Fréttir. 18.30 Lesið fyrir þjóöina: Gerpla eftir Halldór Laxness. Höfundur les. (Frumflutt 1957.) 18.48 Dánarfregnir og auglýsingar. 19.00 Kvöld- fréttir. 19.30 Auglýsingar og veðurfregnir. 19.40 Saltfiskur með sultu. (Áöur á dag- skrá sl. laugardag.) 20.40 Aö tjaidabaki (1:4). Leikmyndagerö. 21.20 Kvöldtónar. 22.00 Fréttir. 22.10 Veðurfregnir. 22.15 Orö kvöldsins: Málfriöur Finnbogadóttir flyt- ur. 22.20 Norrænt. Af músík og manneskj- um á Noröurlöndum. Umsjón: Guöni Rúnar Agnarsson. 23.00 Kvöldgestir. Þáttur Jónasar Jónassonar. 24.00 Fréttir.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.