Dagur - Tíminn Reykjavík - 27.02.1997, Blaðsíða 1
> ) ?
Eftirminnilega gott
BRAGA
KAFEI
íslenskt og ilmandi nýtt
LIFIÐ I LANDINU
Fimmtudagur 27. febrúar 1997 - 80. og 81. árgangur - 40. tölublað
Eftirminnilega gott
BRAGÁ
KAFEi
- íslenskt og ilmandi nýtt
THE BOYS SAKNA
VINA OG VEÐURS
TÖffararnir úr The Boys,
Húnar og Arnar Halldórs-
synir, sem gerðu garðinn
frægan í Noregi fyrir nokkrum
árum, eru fluttir heim til ís-
lands, hættir að gefa út plötur
undir nafninu The Boys og sest-
ir á skólabekk. Rúnar og Arnar
búa ásamt móður sinni í blokk í
Ljósheimunum í Reykjavík.
Rúnar, sem er 16 ára, stundar
nám í Menntaskólanum við
Sund en Arnar, sem er nýorð-
inn 15 ára, er í m'unda bekk í
Vogaskóla og tekur tíunda
bekkinn á næsta ári. Báðir eru
þeir orðnir metnaðarfullir
skólanemendur á íslandi, Rún-
ar stefnir ótrauður á stúdentinn
frá MS og Arnar líka með tíð og
tíma.
Rúnar og Arnar iluttu til fs-
lands síðasta haust eftir að for-
eldrar þeirra, Eyrún Antons-
dóttir lyfjatæknir og Halldór
Kristinsson tónlistarmaður,
skildu en þá höfðu þeir búið í
Noregi alla sína ævi. Þeir tala
góða íslensku þó að auðvitað
heyrist á máli þeirra að þeir
hafa ekki alist upp hér á landi.
Rúnar segir að þeir kunrn auð-
vitað málið því að þeir hafi vit-
anlega komið hingað til lands
með foreldrum sínum áður. Það
sé þó eriitt fyrir þá að lesa og
skrifa íslenskuna.
Bræðurnir eru ánægðir með
flutninginn til íslands. Þeim
flnnst mjög gaman að kynnast
jafnöldrum sínum á íslandi og
hefur gengið „rosavel" að sam-
lagast þjóðfélaginu.
Skemmtilegra
félagslíf hér
„Það er miklu skemmtilegra
hérna. Hér er okkar húmor og
svo er miklu meira að ske
hérna í félagslífinu. Krakkar í
Noregi hanga bara heima og
horfa á vídeó. Krakkar hér eru
svo mikið úti og það er mikið
félagslíf í skólanum. Vinir mínir
í menntaskólanum í Noregi
hafa bara haft eitt ball á þessu
skólaári en við höfum haft hell-
ing af böllum hér,“ segir Rúnar
og það er greinilegt að bræðr-
unum er skemmtanaiífið ofar-
lega í huga enda fylgir það víst
aldrinum.
Rúnar og Arnar gáfu út þrjár
plötur meðan þeir komu fram
undir nafninu The Boys, sú síð-
asta var gefin út í Noregi í hitti-
fyrra. Þeir segjast lftið sakna
þessa tfma, jafnvel þótt stelp-
m-nar hafi verið skotnar í þeim
og skrifað þeim ástarbróf í stór-
um stíl. Rúnar segir að þeir séu
ekki vaxnir upp úr The Boys
ævlntýrinu, þeir hafi verið
orðnir leiðir og Arnar bætir við:
„time to go on" sem útleggst
líklega eitthvað á þá leið að tími
hafi verið kominn til að takast á
við önnur verkefni.
- Hafið þið þá ekkert haldið
áfram að sínna tónlistinni?
Leita að æfingaplássi
„Við erum í hljómsveit hérna
með tveimur vinum okkar að
spila allt öðruvísi músík," segja
bræðurnir og eiga í erfiðleikum
með að útskýra hvernig tónlist
þeir spila enda er hljómsveitin
víst nýstofnuð. Arnar spilar á
bassa, vinur hans á gítar, Rún-
ar spilar líka á gítar og vinur
hans á trommur. Hljómsveitin
er að leita að æfingaplássi og
að sjálfsögðu ætlar hún sér
stóra hluti þó að enn hafi
hljómsveitarmeðlimir ekki get-
að spilað og æft allir saman
vegna húsnæðisleysis.
Bræðurnir eru báðir komnir
í tónlistarskóla og farnir að
læra músík í fyrsta skipti á æv-
inni, í einkatímum og samspili
þó að þeir séu löngu farnir að
semja sína eigin tónlist. „Við
höfum aldrei áður verið í tón-
listarskóla. Kærasti mömmu gaf
okkur tíma í Nýja músíkskólan-
um. Við lærum rosalega mikið á
þessu og erum með góða kenn-
ara," segir Arnar.
„Það er miklu skemmtilegra hérna. Hér er okkar húmor og svo er miklu meira að ske hérna i félagslífinu. Krakkar
I Noregi hanga bara heima og horfa á vídeó. Krakkar hér eru svo mikið úti og það er mikið félagslff i skólanum,"
segja bræðurnir úr The Boys, Rúnar og Arnar Halldórssynir. Rúnar er kominn í MS og Arnar er í niunda bekk (
Vogaskóla. Mynd: Hílmar
Hér til frambúðar
Nám bræðranna á íslandi geng-
ur mjög vel þó að skólakerfið,
skólarnir og kennararnir í Nor-
egi hafi verið mun strangari en
hér. Rúnar segir þó að þetta sé
svoh'tið misjafnt, sumir kenn-
arar á íslandi séu mjög strang-
ir. Þeir segjast einskis sakna frá
Noregi nema vina sinna og veð-
ursins. Það hafi verið allt öðru-
vísi veður úti í Noregi, veturinn
miklu betri og sumrin líka.
Tuttugu stiga
frost á veturna
og 40 stiga hiti
á sumrin.
„Okkur langar
samt til að
vera hérna á
fslandi til
frambúðar en
við sjáum
bara til,“ segir
Rúnar.
Gaman
að ævin-
týrinu
Það er
greinilegt að
frægðin í
The Boys
hefur haft
h'til áhrif
á strákana enda virðast þeir
ekki hafa talið sjálfa sig neitt
fræga þó að þeir hafi valdið
heilmiklu uppþoti og fengið
mikla athygli úti. Þeir segjast
aldrei hafa tekið eftir neinni
frægð í heimabæ sínum, Pors-
grunn í Skelsvik í Suður-Noregi,
um tveggja klukkustunda akst-
ur frá Osló, enda hafi enginn
haft neitt sérstaklega orð á þvf
og þeir bara lifað sínu venju-
bundna lífi.
Það hlýtur þó að hafa verið
gaman að gefa út plötur á jafn-
stórum markaði og í Noregi og
skemmtilegt ævintýri fyrir unga
stráka að vera vinsæll þar og fá
ástarbréf frá stelpum.
Og svo er aldrei að vita nema
reynslan úr The Boys komi
þeim til góða í nýju hljómsveit-
inni.
-GHS