Dagur - Tíminn Reykjavík - 27.02.1997, Qupperneq 9
iD;tgnr-(Eímtmt
Fimmtudagur 27. febrúar 1997 - 21
VERSLAÐ
DEICURDOGUM
„Dekrað við gesti á
rómantísku hóteli“
Við ætlum að gera vel við
okkar gesti um helgina,
einsog við gerum reyndar
alltaf. En nú ætlum við svo
sannarlega að dekra við þá. Á
öllum herbergjum verða kon-
fektmolar og síðan verður
hótelið allt blómum skrýtt -
þannig að það fær í heild sinni
afar rómantískan blæ,“ segir
Elías Bj. Gíslason, hótelstjóri á
Hótel KEA.
„Hótel KEA er eitt það dek-
ursælasta á landinu," segir
Elfas Bj. Gíslason. Hann segir
að margt sé framundan hjá
hótelinu á næstunni. bannig
„Hótelið blómum
skrýtt, semfcer
rómantískan blœ, “
segir hótelstjórinn á
HótelKEA.
verði dagskrá á svipuðum nót-
um aftur um páskana. „Allar
svona uppákomur auka veg
ferðaþjónustu á Akureyri. Þetta
undirstrikar ennfremur að hér
er af mörgu að taka og margt
að sækja, hvort heldur er
menning eða afþreying." -sbs.
„Eitt dekursselasta hótel landsins," segir Elías Bj. Gíslason á Hótel KEA.
Þar verður boðið uppá konfekt um helgina. Myna:as
Með daðursbros á vör. Ragnar Sverrisson í verslun sinni.
„Nú brjótum við ísinn“
Laugardagsopnun verslana
hér í bæ er það sem koma
skal. Lengi hefur verið tal-
að um það meðal kaupmanna
að hafa opið fram á eftirmið-
daginn fyrsta laugardag hvers
mánaðar - en ekki orðið af. Nú
brjótum við ísinn,“ segir Ragn-
ar Sverrisson, kaupmaður í
Herradeild JMJ og formaður
Kaupmannasamtaka Akureyr-
ar.
Á laugardag verða flestar
verslanir í bænum opnar fram
til kl. 16. „Margir eru með út-
„Laugardagsopnun
verslana það sem koma
skal, “ segir formaður
Kaupmannasamtaka
Akureyrar.
sölur og ýmis sértilboð af þessu
tilefni. Þá eru margir að taka
inn nýjar vörur sem verða á
boðstólum á löngum laugar-
degi.“ - Ragnar kveðst viður-
kenna að langur laugardagur á
Akureyri eigi ekki að vera í frá-
sögur færandi. Erlendis, í
Reykjavík og víða annarsstaðar
á landinu sé venja að hafa opið
fram á eftirmiðdaginn á laugar-
dögum. í þessum efnum haíl
Akureyringar verið seinteknir.
Nú sé þetta hins vegar að
breytast.
„Hvernig dekra ég best við
sjálfan mig og daðra? Það skal
ég segja þér. Mér líður allaf
best þegar mikið er að gera í
búðinni og viðskiptin í fullum
gangi, einsog vafalítið verður á
þessari útsöluhelgi okkar," seg-
ir Ragnar í JMJ. -sbs.
U T
L
hefst föstudasinn 98. febrúar
90% afsláttur af MO skóm
30% afsláttur af öðrum skóm
M.H. LYNGDAL
HAFNARSTRÆT1103 SIMI 462-3399
Langur laugardagur 1. mars, opið 10-16