Dagur - Tíminn Reykjavík - 27.02.1997, Side 10
22 - Fimmtudagur 27. febrúar 1997
JUtgur-'ðJímóm
U T I V I S T
Daðrað
Sú nýbreytni verður á
Skíðasvæðinu í Illiðaríjalli,
ofan við Akureyri, á Dek-
urdögum og daðurhelgi að þar
verður opið frá kl. 21 og fram
til miðnættis á föstudagskvöld.
„Með þessu ætlum við að gefa
fólki tækifæri til að daðra við
snjóinn og ekki síður við hvert
annað,“ segir ívar Sigmunds-
son, forstöðumaður Skíðastaða.
Snjóbrettamenn mun leika
lausum hala í Mlfðaríjalli á Dek-
urdögum og daðurhelgi. Á laug-
ardaginn er boðið uppá það
sem heitir Border kross á máli
við snj
brettamanna og á sunnudaginn
uppá það sem sömu menn kalla
Big jumb.
„Síðan verðum við með leik-
tæki fyrir börnin hér í snjónum,
svo sem vegasölt og rólur og
sitthvað fleira. Allar aðstæður
til skíðaiðkunar eru hinar
ákjósanlegustu í Hlíðarfjalli
þessa dagana,“ segir ívar. Hann
bætir því við að einnig verði
boðið uppá daðurkort í Hlíðar-
ljalli um helgina. Þar er átt við
að hægt er að kaupa tvö kort í
fjallið, til dæmis dags- eða helg-
arkort, á verði eins korts. -sbs.
/ •
oinn
Ivar Sigmundsson í Hlíðarfjalli. „Tækifæri til að daðra við snjóinn."
Mynd: GS
Snjóbrettaleikur er engu líkur.
Mynd: GS
HeiUandi dufl á snjóbrettum
Snjóbrettamenn leika laus-
um hala í Hlíðarfjalli um
helgina. Þar verður kl. 13
á laugardag efnt til keppni í því
sem kallast Border cross, en
þar keppa brettamenn í því að
renna sér um hlykkjóttar braut-
ir og fara í gegnum ýmsar
þrautir. Fjórir renna sér í senn,
en búist er við að keppendur
verði 60 til 70 talsins. Álíka
margir keppa í Big jump á
sunnudaginn. Þar er keppend-
um gert að stökkva hæð sína og
„Leikur á snjóbrettum
vaxandi íþrótt, “ segir
Sigurður Jósefsson,
sem verður mótsstjóri í
Hlíðarfjalli um helgina.
vel það af háum brettum sem
komið hefur verið upp í Hlíðar-
fjalli.
„Ég kynntist snjóbrettunum
fyrst fyrir þremur árum. Áður
var ég mikið á skíðum, en heill-
aðist alveg af brettunum," segir
Sigurður Jósefsson, sem verður
mótsstjóri í Hlíðarijalli um helg-
ina. „Leikur á snjóbrettum er
mjög vaxandi íþrótt. Þetta byrj-
aði fyrst hér á Akureyri fyrir
um fjórum til fimm árum og
síðan hefur verið sífelld aukn-
ing í þessu. Já, það er auðvitað
rómantík í þessu, viðbótar dað-
ur, dufl og dekur,“ segir Sigurð-
ur. -sbs.
Mynd: JHF.
Á hálum ís
Skautar í ferðatöskuna.
Það er nokkuð sem ekki
má gleymast þegar fólk
leggur leið sína norður til
Akureyrar um helgina.
Skautasvellið í Innbænum
er opið á morgun, föstudag
frá kl. 19 til 21 og laugar-
dag og sunnudag milli kl. 13
og 16. Síðan er eitt sem ekki
heldur má gleymast, að
leita liðveislu Sumarliða,
þess sem er fullur og fúll á
móti. Hann tekur að sér að
skerpa skauta og það er
eins gott að þeir bíti þegar
farið er á svellið. Ella er
fólk á hálum ís.
Rómantískir
vélsleðar
að er viss rómantík í vél-
sleðaakstri einsog öðru,“
segir Gunnar Hákonar-
son, formaður Kappaksturs-
klúbbs Akureyrar. Á laugardag
kl. 13 verður efnt til æfinga-
móts í Snow-cross í vélsleða-
akstri í Ólafsfirði. Jafnframt
stendur gestum og gangandi til
boða að bregða sér í sleðaferð.
Gunnar Hákonarson á von á
því að keppendur á mótinu í Ól-
afsfirði verði á bilinu 30 til 40.
Keppnin fer þannig fram að 20
vélsleðamenn aka í einni braut
og sá sigrar sem fyrstur kemur
í mark. Að taka þátt í þessu er
vinsælt meðal vélsleðamanna.
„Fólki stendur síðan til boða
að taka á rás undir öruggra
manna leiðsögn,“ segir Gunnar.
Umboðsfyrirtæki verða með
kynningar á vélsleðum og ein-
mitt þeim sleðum stendur fólki
til boða að aka. -sbs.
Almenningi stendur til boða að prófa vélsleða að keppni lokinni.
Mynd: JHF