Dagur - Tíminn Reykjavík - 09.04.1997, Síða 6
18 - Miðvikudagur 9. apríl 1997
|Oagur-'®ímtrat
MENNING OG LISTIR
Sjö stelpur hjá L.M.A.
Haukur
Ágústsson
skrifar
Laugardaginn 5. apríl
frumsýndi Leikfélag
Menntaskólans á Akureyri
verkefni sitt á þessu skólaári í
Samkomuhúsinu á Akureyri.
Það er leikritið Sjö stelpur eftir
Eric Thorstensson. Leikstjóri
uppsetningarinnar er Guðbjörg
Thoroddsen.
Sjö stelpur gerist innan
veggja upptökuheimilis fyrir
unglingsstúlkur, sem hafa
ánetjast fíkniefnum. Saga
þeirra er rakin og einnig fjallað
um aðstæðurnar, sem upptöku-
heimilið starfar við, meðferðar-
aðferðir og vandamál, sem upp
koma vegna viðhorfs til þeirra,
ÞJÓDLEIKHÚSID
Stóra sviðið kl. 20.00
FIÐLARINN Á ÞAKINU
Eftir: Boch/Stein/Harwick;
FRUMSÝNING
föstud. 18. apríl
2. sýn. laugard. 19. apríl
3. sýn. miðvikud. 23. apríl
4. sýn. laugard. 26. apríl.
5. sýn. miðvikud 30.apríl
KÖTTUR Á HEITU BLIKKÞAKI
eftir Tennessee Wiliams
7. sýn. fimmtud. 10. apríl Uppselt.
8. sýn. sunnud. 13. apríl Uppselt.
9. sýn. miðvikud. 16. apríl
Örfá sæti laus.
10. sýn. fimmtud. 24. apríl
Örfá sæti laus.
11. sýning sunnud. 27. apríl
Nokkur sæti laus
ÞREK OG TÁR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
Aukasýning
Föstud. 11. apríl. kl. 20.30.
90. sýning, allra síðasta sinn
VILLIÖNDIN
eftir Henrik Ibsen
Laugard. 12. apríl.
Sunnud. 20. apríl.
Föstud. 25. apríl
LITLI KLÁUS OG
STÓRI KLÁUS
eftir H.C. Andersen
Sunnud. 13. apríl kl. 14.00
Sunnud. 20. apríl kl. 14.00
þriðjud. 22. apríl kl. 15.00
Smíðaverkstæðið kl. 20.30
LEITT HÚN SKYLDI
VERA SK/EKJA
eftir John Ford
Laugard. 12. apríl kl. 20.30
Uppselt.
Sunnud. 20. apríl kl. 20.30
Uppselt.
föstud. 25. apríl kl. 20.30
Aukasýning
laugard. 19. apríl kl. 15.00
Uppselt.
Aukasýning
þriðjud. 29. apríl kl. 20.30
Síðustu sýningar
Athygll er vakin á að sýningin er ekki við hæfi barna.
Ekkl er hægt að hleypa gestum Inn
í salinn eftir að sýning hefst.
Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl. 13-18,
frá miðvikudegi til sunnudags kl. 13-20 og til 20.30
þegar sýningar eru á þeim tíma. Einnig er tekið á móti
símapöntunum frá kl. 10 virka daga.
sem fallið hafa, en eru að reyna
að komast á réttan kjöl á ný.
Sterkt verk
Þetta er á margan hátt sterkt
verk. Flytjendur verða að kom-
ast inn í hugarheim unglingsins
og ekki síður fíkilsins. Hið fyrra
vefst að sjálfsögðu ekki fyrir
hinum ungu leikurum í Leikfé-
lagi MA, en innlifun í hið síðara
er tíðum mikil og lofsverð.
Edda Hrönn Sveinsdóttir
leikur Barböru. Átök hennar
við umhverfl sitt og sjálfa sig,
sem koma meðal annars fram í
vel unnum óhemjuköstum, voru
víða verulega sterk og var túlk-
un hennar samfelld og sann-
ferðug verkið á enda.
Maja er leikin af Freyju Dögg
Frímannsdóttur. Hún kemst
víða vel frá hlutverki sínu, svo
sem í einræðu sinni og viðfang-
inu við Eirík, starfsmann á upp-
tökuheimilinu.
Ása er leikin af Berglindi Ósk
Karlsdóttur. Hlutverkið er í
heild hljóðlátt og kemst Berg-
LEIKFELAG AKUREYRAR
Leikfélag Akureyrar
Vefarinn
mikli fró
Kasmír
Leikverk byggt á skáldsögu
Halldórs Laxness
Handrit: Halldór E. Laxness
og Trausti Olafsson
Tónlist og leikhljóð:
Kristján Edelstein
Lýsing:
Jóhann Bjarni Pálmason
Búningar:
Hulda Kristín Magnúsdóttir
Leikmynd: Finnur Arnar Arnarson
Leikstjórn: Halldór E. Laxness
Aðalhlutverk: Þorsteinn
Bachmann og Marta Nordal
Auk þeirra: Hákon Waage, Guðbjörg
Thoroddsen, Jón Júlíusson, Sunna
Borg, Aðalsteinn Bergdal, Þróinn
Karlsson, Þórey Aðalsteinsdóttir og
Jónsteinn Aðalsteinsson.
Frumsýning á Renniverkstæðinu,
Strandgötu 49, föstudaginn
11. apríl kl. 20.30. - UPPSELT
2. sýning laugardaginn
12. apríl kl. 20.30.
- UPPSELT
Miðasalan er opin alla virka daga
nema mánudaga frá kl. 13-17.
Simi í miðasölu er 462 1400.
|Dagur-^ItnTtnrt
- besti tími dagsins!
lind Ósk allvel frá því. Símtalið
við móður sfna gengur heldur
hratt, svo að það nær ekki að
fullu áhrifum, en gosið eftir það
sldlar sér vel.
Gunnu leikur Hadda Hreið-
arsdóttir. Hún er iðulega
skemmtilega brussuleg í túlkun
sinni, en er á stundum nokkuð
ósnortin af því, sem er að ger-
ast á sviðinu.
Berglind Gylfadóttir fer með
hlutverk Elsu. Hún nær allgóðri
samfellu í túlkun sína og nær
sér til dæmis vel á strik, þegar
hún kemst að því, að til stendur
að útskrifa hana.
Hildur Friðriksdóttir leikur
Marfu Lovísu. Hún er blóma-
barnið á upptökuheimilinu.
Hildur nær vel til þessarar
dreymnu persónu, sem virðist
lifa í annarri veröld en aðrir í
umhverfl hennar.
Guðrún er er leikin af Stein-
unni Sigfúsdóttur. Hlutverkið er
smátt og hljóðlátt.
Yflrmann upptökuheimilis-
ins, Óla Ágústsson, Ieikur Grét-
ar Orri Kristinsson. Hann kemst
bærilega frá hlutverkinu, en
framsögn hans líður nokkuð
fyrir lestón. Einnig hættir hon-
um til þess að bregðast ekki við
framrás verksins sem skyldi.
Starfsstúlkuna Steinu leikur
Harpa Elín Haraldsdóttir. Hún
er röskleg í túlkun sinni og nær
langtíðast að skapa vel trúverð-
uga persónu.
Starfsmanninn Svein Gabríel
Pálsson leikur Snorri Örn Clau-
sen. Snorri hefur í heild góð tök
á persónunni og er yfirvegaður
í túlkun sinni.
Hólmar Örn Finnsson leikur
starfsmanninn Eirík. í túlkun
sinni fíður Hólmar Örn verulega
fyrir þann mikla aldursmun,
sem er á honum og persónunni,
sem hann á að túlka. Hann
kemst þó bærilega frá hlutverk-
Freyvangs-
leikhúsið
Sýnum firna
fyndinn gamanleik:
„Meb vífib
í lúkunum"
eftir Ray Cooney
Leikstjóri: Hákon Waage
20. sýning föstud.
11. apríl kl. 20.30
21. sýning laugard.
12. apríl kl. 20.30
Síðasta
sýningarhelgi.
Miöapantanir í síma
463 1195 milli kl. 18og20.
Á öörum tímum er hægt at>
panta í gegnum símsvara.
Úr sýningu LMA „Sjö stelpur."
tnu.
Barnaverndarfulltrúann Að-
alstein leikur Hilmar Kristjáns-
son. Hlutverkið er ekki stórt, en
skiptir þó miklu máli, þar sem
Aðalsteinn er fulltrúi yflrvald-
Leikfélag
Sauðárkróks
frumsýnir:
Pétur Gaut
eftir Henrik Ibsen í þýöingu
Einars Benediktssonar
í Bifröst
miðvikudaginn
ð. apríl kl. 20.30
aukasýning sunnudaginn
13 apríl kl. 17.00
Gestaleikari:
Gunnar Eyjólfsson
Leikstjórar:
Gunnar Eyjólfsson
og Einar Þorbergsson
Miðapantanir í síma
453 6762 sýningar-
dagana, kl. 10-12
fyrir hádegi
Leikfélag
Sauðárkróks
anna í verkinu. Því miður er
framsögn Hilmars mikfu of
hröð og tæpfega unnt að skilja
nokkurt orð af því sem hann
segir.
Framsögn mætti vera
betri
Leikstjórinn, Guðbjörg Thor-
oddsen, hefur í heild unnið all-
vel með hinum ungu leikurum
MA. Siðsferð er jafnan í góðu
lagi og ýmsar senur ganga
skemmtilega upp, svo sem við
morgunverðarborðið og ýmsar
átakasenur. Hins vegar hefði
þurft að huga betur að fram-
sögn í nokkrum tilfellum og
einnig því, að ekki kæmu upp
líflausar stöður eða flöt atriði,
sem eru nokkuð víða í verkinu.
í leikskrá segir í ávarpi
stjórnar L.M.A: „Ekki var það
bara nafnið, sem heillaði
stelpustjórnina nú í ár, heldur
umræðan um fíkniefnin, sem
hefur aukist í þjóðfélaginu og
fannst okkur rétt að stuðla að
auknum áróðri í þeim efnum.“
Valið á verkefni hefur því ráðist
af tveim málefnum, sem hátt
ber nú á dögum. Það er vel við
hæfi. Leikritið Sjö stelpur tekur
á hinu síðara, sem að er vikið í
ávarpi stjórnar L.M.A., á
áhrifamikinn hátt. Sú umíjöllun
á erindi við okkur öll. Það ætti
að laða okkur á vit hinna ungu
leikara Leikfélags MA, en ekki
síður það að eiga þess kost að
eyða kvöldstund með ungu,
(jörmiklu fólki við verk, sem
það hefur gaman af.