Dagur - Tíminn Reykjavík - 09.04.1997, Side 15
JDagur-Œtrnmtt
miðvikudagur 9. apríl 1997 - 27
ÁHUGAVERT
Stöð 2 kl. 20.50:
Framhaldsmyndin Zoya
Zoya heitir framhaldsmyndin á
Stöð 2 í apríl en fyrri hluti henn-
ar er á dagskrá í kvöld. Leik-
stjóri er Richard A. Colla en í aðal-
hlutverkum eru Mehssa Gilbert Bruce
Boxleitner og Denise Alexander.
Myndin er byggð á vinsælli sögu eftir
Danielle Steel en í henni segir frá
frænku Rússlandskeisara, Zoyu. Við
byltinguna í heimalandi hennar flúði
hún til Parísar. Par beið Zoyu erfitt líf
og hún tók þann kostinn að halda til
New York. Lífið vestanhafs reyndist
henni auðveldara fyrst um sinn. Brátt
fór þó allt á annan veg. Zoya missti
allt sitt og þurfti að byrja upp á nýtt
eina ferðina enn. Síðari hluti myndar-
innar er á dagskrá annað kvöld.
FJOMVI8ÐLARVNI
Infantar og Henuni
eir eru margir sem kvarta yfir
forheimskandi áhrifum sjón-
varpsins. Ekki vegna þess
hvernig tækið virkar (þ.e. þú situr og
ert mataður en misjafnt er hvort þess
er krafist að þú þurfir að nýta þér
vessana og sellurnar til að melta efn-
ið) heldur út af öllum vondu dag-
skrárgerðarmönnunum. Sá sem síð-
astur kvartaði yfir „infantílismanum"
hjá Gauja litla og co. var Halldór Guð-
mundsson kenndur við Mál og menn-
ingu (og hefur rýnir ekki séð til hans í
pistlaflórunni áður en hann hefur lát-
ið undan Össuri á Alþýðublaðinu
hvort sem það er til frambúðar eða
ekki). Umlarinn á Helgarpóstinum
hefur líka verið iðinn við að minna á
heimskuna - og er reyndar ekki svo
þröngsýnn að telja hana bundna við
dagskrárgerð heldur virðist telja hana
nokkurn veginn landlæga (eða svo má
skilja af orðum hans). Ókei. Telja
verður að könnunin sem vor góða
sjónvarpsdeild á RÚV hefur verið iðin
við að minna okkur á renni nokkrum
stoðum undir það sem liggur í orðum
Umlara HP. Pví Hemmi Gunn og
Spaugstofan eru vinsælustu íslensku
dagskrárliðirnir í sólkerfinu og eru
það ekki meðmæh með íslensku þjóð-
inni. (Rýnir ætlar svo sem ekki að
halda því fram að ofangreindir intel-
ektar sjái ekki skóginn fyrir trjánum -
frekar að skógurinn blindi þá).
Þegar um helmingur þjóðarinnar
lætur primus infantus (Hemma Gunn)
yfir sig ganga annað hvert laugar-
dagskvöld (og vill rýnir lýsa yfir
hryggð sinni með það að þjóðin sætti
sig við stjórnanda sem álítur megin-
hlutverk sitt vera að halda dampi en
setur viðmælandann og það sem hann
kynni að hafa að segja í 37. sæti) er
kannski ekki við því að búast að skóg-
urinn verði grisjaður.
UPPÁHALDS ÚTVARPS- OG SJONVARPSEFNIÐ
Svæðisútvarpið
er ómissandi
✓
g er yfirleitt með Rás 2 í gangi
allan daginn," segir Ás-
björn Dagbjartsson
veiðistjóri. Hann segir að efni
ljósvakamiðla sé hvorki verra
né betra en verið hefur þrátt
fyrir fjölbreyttara úrval.
Af einstökum rásum hlust-
ar hann mikið á svæðisút-
varpið á Akureyri sem skip-
ar sama sess hjá honum eins
og „gamli Dagur“ gerði.
Hann segir svæðisútvarpið
vera nauðsynlegan þátt í
fjölmiðlaumhverfi sínu
vegna þess að það veitir honum ná-
kvæmari uppfyllingu á nánasta um-
hverfi. Hinsvegar hlustar hann minna
á gömlu gufuna á Rás 1. Það helgast
einfaldlega af því að hann hefur ekki
þann tíma í amstri dagsins til að gefa
efni gufunnar þann gaum
sem þarf til að njóta þeirra
vönduðu dagskrárliða sem
dagskrármenn rásarinnar
bjóða hlustendum uppá.
í sjónvarpi eru það aðallega
fréttatímarnir sem vekja
áhuga Ásbjarnar. í þeim efn-
um telur hann að kvöld
fréttatími Stöðvar 2 sé betur
unninn en ellefu fréttir hjá
RÚV. Af öðru sjónvarpsefni
eru það helst bíómyndir og
þá spennumyndir sem laða
hann að skjánum. Síðast en ekki síst
skipar íþróttaefni sjónvarpsstöðva
veglegan sess í áhorfi veiðistjóra.
ÚTVARP • SJÓNVARP
SJÓNVARPIÐ
16.30 Viöskiptahorniö
16.45 Leiöarljós (618) (Guiding Light) Banda-
rískur myndaflokkur.
17.30 Fréttir
17.35 Auglýsingatími - Sjónvarpskringlan
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Myndasafniö
18.25 Undrabarniö Alex (13:39) (The Secret
World of Alex Mack) Myndaflokkur um 13
ára stúlku sem býr yfir undraverðum
hæfiieikum.
18.50 Kötturinn Felix (8:13) (Felix the Cat)
Bandarískur teiknimyndaflokkur um
köttinn Felix og ævintýri hans.
19.20 Hollt og gott (9:10) Matreiðsluþáttur í
umsjón Sigmars B. Flaukssonar.
19.50 Veöur
20.00 Fréttir
20.30 Víkingalottó
20.35 Kastljós Fréttaskýringaþáttur í umsjón
Ólafar Rúnar Skúladóttur.
21.00 Þorpiö (22:44) (Landsbyen) Danskur
framhaldsmyndaflokkur um líf fólks I
dönskum smábæ.
21.35 Bráðavaktin (9:22) (ER III) Bandarískur
myndaflokkur sem segir frá læknum og
læknanemum I bráðamóttöku sjúkra-
húss.
22.25 Á elleftu stundu Viðtalsþáttur I umsjón
Árna Þórarinssonar og Ingólfs Margeirs-
sonar. Gestur þeirra er Fiöröur Sigur-
gestsson, forstjóri Eimskips. Dagskrár-
gerð: Jón Egill Bergþórsson.
23.00 Ellefufréttir
23.15 Handbolti Sýnt veröur úr leik I úrslita-
keppni íslandsmótsins.
23.25 Dagskrárlok
QSTÖÐ 2
09.00 Línumar í lag.
09.15 Sjónvarpsmarkaöurinn.
13.00 Dr. Strangelove (e) (Dr. Strangelove or:
How I Learned to Stop Worrying and
Love the Bomb). Bresk gamanmynd frá
19641 leikstjóm Stanleys Kubricks. I aö-
alhlutverkum eru Peter Sellers, George
C. Scott.
14.35 Sjónvarpsmarkaðurinn.
15.00 Fjörefniö (e).
15.30 Ellen (3:13) (e).
16.00 Svalur og Valur.
16.25 Steinþursar.
16.50 Artúr konungur og riddararnir.
17.15 Glæstar vonir.
17.35 Sjónvarpsmarkaöurinn.
18.00 Fréttir.
18.05 Nágrannar.
18.30 Stuttmyndadagar (6:7). Kvikmyndafélag
ísiands, Stöð 2 og Reykjavíkurborg
standa að Stuttmyndadögum aö þessu
sinni. Forvaliö hefur fariö fram og næstu
daga sýnir Stöö 2 þær myndir sem þóttu
hæfar til að halda áfram keppni.
19.00 19 20.
20.00 Melrose Place (8:32).
20.50 Zoya (l:2).Sjá kynningu.
22.30 Kvöldfréttir.
22.45 Eiríkur.
23.05 Dr. Strangelove (Dr. Strangelove or: How
I Learned to Stop Worrying and Love the
Bomb). Sjá umfjöllun aö ofan.
00.40 Dagskráriok.
SÝN
17.00 Spítalalíf (MASH).
17.30 Knattspyrna I Asíu (Asian Soccer Show).
Fylgst er með bestu knattspyrnumönnum
Aslu en þar á þessi íþróttagrein auknum
vinsældum að fagna.
18.25 Meistarakeppni Evrópu. Bein útsending
frá fyrri leik Ajax og Juventus I undanúrslit-
um. Seinni leikurinn fer fram á Ítalíu 23.
april nk. og verður einnig sýndur á Sýn.
20.25 Meistarakeppni Evrópu. Útsending frá
fyrri leik Borussia Dortmund og
Manchester United I undanúrslitum.
Seinni leikurinn fer fram I Englandi 23.
apríl nk. og verður einnig sýndur á Sýn.
22.25 Spítalalíf (e) (MASH).
22.50 Forboðnir ávextir (e) (Ultimate Taboo)
Ljósblá mynd úr Playboy-Eros safninu.
Stranglega bönnuö börnum.
00.25 Dagskrárlok.
RÍKISÚTVARPIÐ
12.00 Fréttayfirlit á hádegi.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir.
12.50 Auölind.
12.57 Dánarfregnir og auglýsingar.
13.05 Póstfang 851.
13.40 Litla djasshornið.
14.00 Fréttlr.
14.03 Útvarpssagan, Kaldaljós
14.30 Til allra átta.
15.00 Fréttir.
15.03 í veröld Márans.
15.53 Dagbók.
16.00 Fréttir.
16.05 Tónstiginn.
17.00 Fréttlr.
17.03 Víösjá.
18.00 Fréttir. Víösjá heldur áfram.
18.30 Lesið fyrir þjóöina: Úr æfisögu sira Jóns
Steingrímssonar.
18.30 Ljóð dagsins.
18.48 Dánarfregnir og auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Auglýsingar og veöurfregnir.
19.40 Morgunsaga barnanna endurflutt.
20.00 Kvöldtónar.
21.00 Út um græna grundu. Þáttur um náttúr-
una, umhverfið og ferðamál.
22.00 Fréttir.
22.10 Veöurfregnír.
22.15 Orö kvöldsins.
22.20 Tónlist á síökvöldi.
22.50 Sunnudagsleikrit Útvarpsleikhússins
endurflutt.
24.00 Fréttir.
00.10 Tónstiginn.
01.00 Næturútvarp á samtengdum rásurh til
morguns: Veðurspá.
989
BYLGJAN
RÁS 2
12.00 Hádeglsfréttir frá fréttastofu Stöðvar 2
og Bylgjunnar.
12.10 Gullmolar Bylgjunnar í hádeginu.
13.00 íþróttafréttir.
13.10 Gulli Helga - hress aö vanda.
16.00 Þjóðbrautin. Siödegisþáttur á Bylgjunni
Fréttir kl. 17.00.
18.00 Gullmolar. Músik maraþon á Bylgiunni
Lög leikion fá árinu 1957.
19.00 19 20. Samt. fréttir Stöðvar 2 og Bylgj-
unnar.
20.00 Kristófer Helgason spilar góöa tónlist,
happastiginn og fleira.
24.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Að lokinni
dagskrá Stöðvar 2 samtengjast rásir
Stöðvar 2 og Bylgjunnar.
12.00 Fréttayfirlit og veöur.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Hvítir máfar.
14.03 Brot úr degi.
16.00 Fréttir.
16.05 Dagskrá: Dægurmálaútvarp og fréttir.
17.00 Fréttir. - Dagskrá heldur áfram.
18.00 Fréttir.
18.03 Þjóðarsálin.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Milli steins og sleggju.
20.00 Sjónvarpsfréttir.
20.30 Kvöldtónar.
22.00 Fréttir.
22.10 Plata vikunnar og ný tónlist.
24.00 Fréttir.
00.10 Ljúfir næturtónar.
LANDSHLUTAÚTVARP Á RÁS 2 8.10-8.30 og
18.35- 19.00.Útvarp Norburlands. 18.35-19.00
18.35- 19.00 Svæðisútvarp Vestfjaröa.