Dagur - Tíminn Reykjavík

Dagsetning
  • fyrri mánuðurapríl 1997næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    303112345
    6789101112
    13141516171819
    20212223242526
    27282930123
    45678910

Dagur - Tíminn Reykjavík - 12.04.1997, Blaðsíða 9

Dagur - Tíminn Reykjavík - 12.04.1997, Blaðsíða 9
IDítgyíÆínTÍttM blaði eru einnig Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráð- herra sem eina konan í rík- isstjórninni en hún fer með mesta útgjaldaráðuneytið, eins og Hannes Hólmsteinn rökstyður val sitt á henni. Helga Jónsdóttir er borgar- ritari og jafnframt formað- ur stjórnar Landsvirkjunar. „Hún er ekki eins sýnileg og borgarstjóri og því kannski minni fyrirmynd annarra en hún hefur bæði völd og áhrif,“ segir Elsa um Helgu. Guðrún Erlendsdóttir hæstaréttardómari kemst einnig ofarlega á listann þó að völd hennar einskorðist við laganna bókstaf. Rann- veig Rist, forstjóri ÍSAL, þykir líka valdamikil þó að völd hennar takmarkist við Straumsvík og svo er nafn formanns stærsta stjórnar- andstöðuflokksins, Mar- grétar Frímannsdóttur, AI- þýðubandalagi, einnig nefnt. Konur geta Áhrif og völd fara ekki endilega saman. Þannig virðist Björk Guðmunds- dóttir söngkona tvímæla- laust hafa ríkuleg áhrif, sérstaklega á unga fólkið, með Usú Eannesav. absVobavtTtabm-n 10. Usti EW. 1. lng&)órS Sólvún GísladoVUv bovgavsVjóvi. 2. Helga JónsdóVúv, bovgavvvVav'v ogíovmaúuv sVtóvnav Laudsvvvkjuuav. % Bj'óvk GuúvuundsdóUvv söng ovva 4 Mav«ré,V ¥rvvuanusdottvv, ' („rmatar 5,task!'óv6Pátaad6lt«vaílVKna. 6. Hanuvevg UVsV tovsVjovv. 1.'Va\a T\o»adótUr i\,v óttataoa S, tdavla ltjátaarsdóttir, tovmaóuv WHtd. 9. ’Vigdvs fvunbogadóVVvv, {vrrv er atvdi íot soti. 10. tftsdis Otimsdótttr rittatodov. ^durvuenuvuu' að bein völd hennar hafí ver- ið lítil sem engin gegnum tíð- ina. Þórhildur Þorleifsdóttir leikhússtjóri þykir sömu- leiðis hafa mikil áhrif. Guð- rún Agnarsdóttir, læknir og fyrrverandi þingkona, var ein af þremur fyrstu þing- konum Kvennalistans og Kristín bendir á að Kvenna- listinn hafi haft veruleg áhrif á stöðu kvenna í ís- lenskri pólitík. Marta Hjálmarsdóttir, formaður BHM, hefur rík áhrif í þjóðfélaginu ásamt Elínu Hirst, fv. frétta- stjóra. „Þótt Jón Ól- afsson hafí rekið Elínu fyrir • Sólvún GvsladóWW l.lu#v)övgS°Vvu bovgavsVjow. o x\ ValsdotW, 3.í,lSaB.>' usdóVWv, fovseU. heilbrigðum lífsviðhorfum sínum og jákvæðni en tæp- ast hefur hún mikil völd. „Hún er kannski ekki bein fyrirmynd vegna þess hve sérstök Björk er - en hún er samt fyrirmynd eða ímynd þess að konur svo sannarlega geta - einnig þær sem eru svo kvenlegar sem Björk óneitanlega er,“ segir Elsa S. Þorkelsdóttir. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti íslands, þykir hafa verið áhrifamikil kona og vera það áfram þó nokkrum mánuðum hefur hún auðvitað sem frétta- stjóri og íjölmiðlakona ver- ið mjög áhrifamikil," segir Hannes um val sitt. Nöfn Elsu Valsdóttur, formanns Heimdallar, Helgu Kress prófessors, Margrétar Björnsdóttur endurmenntunarstjóra og Ásdísar Höllu Bragadóttur, aðstoðarmanns mennta- málaráðherra, komast einnig á blað. Hannes segist nefna Margréti þar sem hún sé í fylkingarbrjósti þeirra sem vilja sameina vinstri menn í einn flokk. Þingkonur með lítil völd Athyglisvert er að ekki er mikið um að alþingiskonur séu nefndar á nafn þegar um völd eða áhrif er að ræða. Þó er Margrét Frí- manns nefnd þrisvar og Valgerður Sverrisdóttir, for- maður þingflokks Fram- sóknarflokksins, er nefnd einu sinni. Eftir að hafa set- ið á þingi segist Kristín til dæmis vita að þingmenn hafi lítil völd en þeim mun meiri áhrif. Spurningin sé hverjar eigi að taka með og hverjum að sleppa og því hafi hún ákveðið að sleppa öllum þingkonum. Jón G. Hauksson, rit- stjóri Frjálsrar verslunar, sker sig svolítið úr hvað nöfn varðar því að á hans lista er mun meira af valda- og áhrifakonum úr viðskiptalífi og sjávarútvegi. Hann nefnir konur eins og Guðrúnu Lárusdóttur, framkvæmdastjóra Stál- skips og stjórnarmann í LÍÚ, og Hildi Petersen hjá Hans Petersen. „Hildur er formaður stjórnar ÁTVR og sömuleið- is í stjórn SPRON. Ég lít fyrst og fremst á hana sem áhrifamanneskju gegnum þetta tvennt. Guðrún hefur haft áhrif á greinina gegn- um setu í stjórn LÍÚ og stjórn Útvegsmannafélags Hafnarijarðar. Hún hefur líka verið í Útflutningsráði," segir Jón. Jón játar, eins og Elsa og Kristín, að hafa átt í mestu erfiðleikum með að klambra saman lista yfir tíu valdamestu konurnar í landinu. Þær séu hreinlega ekki til svo margar. -GHS -Laugardagur 12. apríl 1997-21 Wltu losna «19 Miind- ■ ■ rúmdýnunni þinM? Rúmdýnan þín getur verið full af allskonar óhreinindum, s.s. rykmaurum sem lifa á húðflög- um þínum. En það er saurinn sem þeir skilja eftir sig sem getur valdið ofnæmi. Talið er að um 4% íslendinga sé með rykmauraofnæmi og eru börn og unglingar þar í meirihluta. Tilboösverö í apríl Nú er vor í lofti og Fjölhreinsun Noröur- lands vill minna á fjölbreytilega þjónustu fyrir heimili, stofnanir og fyrirtæki. Húsgagnahreinsun Teppahreinsanir (allar gerðir) Þvottur á rimlagardínum Bónum og bónleysum Stórhreingerningar Gluggaþvottur Háþrýstiþvottur á ruslageymslum Kísilhreinsun á flísum og baðtækjum Vönduð vinna & besta verðið Fjölhreínsun Norðurlands - Alhliða hreingerningaþjónusta - Dalsbraut 1 Sími 896 6812 VISA 't:: Skólaskrifstofa =4= Hafnarfjarðar Ný störf Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar er þjónustustofnun fyrir leik- og grunnskóia bæjarins. Á skrifstofunni er lögð áhersla á samstarf og samábyrgð starfsfólk við að þróa og bæta skólastarf til hagsbóta fyrir nemendur í bráð og lengd. Ef þú ert lipur, samvinnuþýður og áhugasamur gæti einhver af eftirtöldum störfum verið hentug fyrir þig. Þjónustudeild Sálfræðingur, heil staða Æskilegt er að viðkomandi sé með kennsluréttindi og/eða reynslu af skólastarfi. Um kaup og kjör fer skv. samningum við STH. Talkennari, heil staða Æskileg er að viðkomandi sé með reynslu af starfi í leik- og/eða grunnskóla. Um kaup og kjör fer skv. samningum við STH. Næsti yfirmaður sálfræðings og talkennara er Guðjón Ól- afsson, deildarstjóri þjónustudeildar og gefur hann jafn- framt nánari upplýsingar um störfin í síma 555 2340. Leikskóladeild Leikskólaráðgjafi, hálf staða Leikskólaráðgjafi er leikskólastjórum og öðrum starfs- mönnum til ráðgjafar um fagleg málefni og vegna skipu- lags og innra starfs í leikskólum. Skilyrði er að viðkomandi sé leikskólakennari með fram- haldsmenntun. Um kaup og kjör fer skv. samningum við FÍL. Næsti yfirmaður er Sigurlaug Einarsdóttir, leikskólafulltrúi, og gefur hún nánari upplýsingar um starfið í síma 555 2340. í öll ofangreind störf verður ráðið frá og með 1. ágúst nk. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf berist undirrituðum að Strandgötu 31, 220 Hafnarfirði, fyr- ir 28. apríl nk. Skólafulltrúinn í Hafnarfirði.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Gerð af titli:
Flokkur:
Tungumál:
Árgangar:
1
Fjöldi tölublaða/hefta:
414
Gefið út:
1997-1997
Myndað til:
02.10.1997
Útgáfustaðir:
Lýsing:
Fylgir árgangsmerkingu bæði Tímans og Dags. Gefið út samtímis í Reykjavík og á Akureyri. Stundum er efni ekki alveg samhljóma, t.d. á forsíðu þar sem norðanmenn prenta efni er snertir þá en birtist á innsíðu í sunnanútgáfunni. Útgáfa breytist á ný 3. okt. 1997 er Tíminn fellur úr heiti blaðsins og haldið er áfram að gefa út Dag, en þó með sameiginlegri og áframhaldandi árgangsmerkingu Dags og Tímans.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað: 69. tölublað - Blað 2 (12.04.1997)
https://timarit.is/issue/188259

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

69. tölublað - Blað 2 (12.04.1997)

Aðgerðir: