Dagur - Tíminn Reykjavík - 19.04.1997, Side 19
ílagur-®tmhm
Laugardagur 19. apríl 1997 - 31
SKAK
Önnur nýleg verðlaunamynd, hin ástralska „Shine“, notar einnig skák til
að upplýsa okkur um samband föður og sonar.
Guðfríður
Lilja
Grétarsdóttir
skrifar
Stjörnurnar í Hollywood
hafa ekki beinlínis á sér
orð fyrir andlega íhugun
og skákiðkun, en margar þeirra
hafa þó setið einbeittar á svip
fyrir framan skákborðið í kvik-
myndum.
Herramennirn-
ir í myndinni
frægu „Casa-
blanca", með
Humphrey
Bogart í broddi
fylkingar, virð-
ast að minnsta
kosti sjaldan
hafa gert ann-
að en að sitja
yfir skákpæl-
ingum, klæddir
í hvítan smók-
ing, með vín-
glas í annarri
hendi og sígar-
ettu í hinni og
hárið vel
smurt. Hversu
huggulegt það
væri nú ef allir
skákmenn
væru svona
ómótstæðilegir!
Alec Guinness
tekur sig og vel út yfir skák-
borðinu í myndinni „Our Man
in Havana". Þar notar hann litl-
ar vínflöskur fyrir taflmenn og
getur þannig öðru hvoru fengið
sér sopa úr peðafylkingunni til
að hressa upp á heilasellurnar.
Þær eru óteljandi kvikmynd-
irnar, bæði gamlar og nýjar, þar
sem skák kemur við sögu á
einn eða annan hátt. Af mý-
mörgum slíkum nýlegum mynd-
um má til dæmis nefna „Inde-
pendence Day“. í byrjun mynd-
arinnar er stutt atriði þar sem
aðalsöguhetjan sest í smástund
að tafli við föður sinn og mátar
hann einbeittur á svip. Hvaða
tilgangi þjónar þetta atriði í
myndinni? Auk þess að kynna
betur viðkomandi sögupersónur
í gegnum létt
spjall yfir skák,
sendir þetta at-
riði áhorfend-
um ákveðin
skilaboð um til-
vonandi hetju
myndarinnar.
Ef maðurinn
mátar pabba
sinn svona ör-
ugglega, og set-
ur upp
meðfylgjandi
svip fliugunar,
þá hlýtur hann
að vera þó
nokkuð greind-
ur, ekki satt?!
Enda kemur
náttúrulega á
daginn að hann
bjargar mann-
kyni frá glötun.
Við sjáum nú
léttilega í gegn-
um Hollywood í
þessum málum!
Önnur nýleg verðlaimamynd,
hin ástralska „Shine“, notar
einnig skák til að upplýsa okkur
um samband föður og sonar.
Föðurinn dreymir um að gera
son sinn að píanósnillingi og
rekur hann áfram af mikilli
hörku. Ein af fyrstu vísbending-
um sem við fáum um þessa
hörku er þegar þeir feðgar
tefla. Sonurinn hugsar sig vel
og lengi um en leikur röngum
leik. Faðirinn heldur þá yfir
honum hvassyrta ræðu um
hvernig slíkt megi aldrei koma
fyrir aftur og segir aðeins eitt
takmark eiga að ráð för í lífinu:
sigur. Þetta litla atriði yfir skák-
borðinu gefur okkur þannig
smjörþefinn af því sem koma
skal.
Teflt við dauðann
„Independence Day“ og „Shine“
eru dæmi um myndir þar sem
skák leikur mjög lítið hlutverk.
í gegnum þetta litla hlutverk
kemur skákin hins vegar til
skila ákveðinni sögu sem fellur
að myndinni í heild. í ýmsum
öðrum kvikmyndum leikur skák
mun stærra og íburðarmeira
hlutverk. Einna frægust slíkra
mynda er líklega eitt meistara-
verka Ingmar Bergman, „Sjö-
unda innsighð“ frá árinu 1957.
Plága hefur herjað á Evrópu og
alls staðar rfldr ótti og óvissa.
Riddarinn Antonious kemur
heim kvalinn af efa um tilvist
Guðs og haldinn vonleysi yfir
óréttlæti heimsins. Hann skorar
á sjálfan Dauðann, sem í mynd-
inni er dularfullur ráfari hulinn
svörtum klæðum, til að tefla við
sig. Antonious leggur líf sitt að
veði ef hann tapar, en ef hann
sigrar vonast hann til að Dauð-
inn veiti honum einhver svör
við efasemdum sínum og
spurningum. Það er óþarfi að
gefa meira upp um það sem á
gengur í skákinni þeirra á milli,
en því meiri ástæða til að mæla
með myndinni.
„Skákástríða" sovéska leik-
stjórans Pudovkin er einnig for-
vitnileg, enda ein af allra fyrstu
myndum sem gerðar hafa verið
með skák að megin viðfangs-
efni. Myndin var gerð á sama
tíma og alþjóðlegt stórmót fór
fram í Moskvu árið 1925 þar
sem Capablanca var aðalstjarn-
an. Mótið vakti mikla athygli á
meðal borgarbúa. Fólk fór yfir
skákir frá mótinu á götum úti
og á almennum samkomum var
frammistaða keppenda stöðugt
umræðuefni. Pudovkin nýtti sér
þetta ástand til að búa til gam-
ansama mynd um þá ástríðu-
fullu „skákdeilu" sem þarna
gróf um sig. Capablanca sjálfur
lét svo lítið að koma fram í
myndinni og þar er því vel við
hæfi að Ijúka pistlinum í dag á
því að sýna skák með honum:
Hvítt: J.R. Capablanca
Svart: S. Tartakover
HoUensk vörn
1. d4 f5 2. RÍ3 e6 3. c4 Rf6
4. Bg5 Be7 5. Rc3 0-0 6. e3 b6
7. Bd3 Bb7 8. 0-0 De8 9. De2
Re4 10. Bxe7 Rxc3 11. bxc3
Dxe7 12. a4 Bxf3?! 13. Dxf3
Rc6 14. Hfbl Hae8 15. Dh3 Hf6
16. f4 Ra5 17. Df3 d6 18. Hel
Dd7 19. e4 fxe4 20. Dxe4 g6
21. g3 Kf8 22. Kg2 Hf7 23. h4
d5 24. cxd5 exd5 25. Dxe8+
Dxe8 26. Hxe8+ Kxe8 27. h5!
Hf6 28. hxg6 hxg6 29. Hhl Kf8
30. Hh7 Hc6 31. g4! Rc4 32. g5
Re3+ 33. Kf3 Rf5 34. Bxf5!
gxf5 35. Kg3! Hxc3+ 36. Kh4
Hf3 37. g6 Hxf4+ 38. Kg5 He4
39. Kf6 Kg8 40. Hg7+ Kh8 41.
Hxc7 He8 42. Kxf5 He4 43. Kf6
Hf4+ 44. Ke5 Hg4 45. g7+ Kg8
46. Hxa7 Hgl 47. Kxd5 Hcl
48. Kd6 Hc2 49. d5 Hcl 50.
Hc7 Hal 51. Ke6 Hxa4 52. d6
1-0
Efmaðurinn mdt-
ar pabba sinn
svona örugglega, og
setur upp
meðfylgjandi svip
íhugunar, þd hlyt-
ur hann að vera þó
nokkuð greindur,
ekki satt?! Enda
kemur náttúrulega
d daginn að hann
bjargar mannkyni
frd glótun.
Björn
Þorláksson
skrifar
Anna Þóra Jónsdóttir og
Ragnar Hermannsson
urðu íslandsmeistarar í
paratvímenningi um síðustu
helgi en mótið fór fram í hús-
næði BSÍ, Þönglabakka. Þau
voru lengstum í toppsætinu og
voru vel að sigrinum komin,
hlutu 362 stig. Ljósbrá Baldurs-
dóttir-Björn Eysteinsson þjörm-
uðu að þeim í lokin og enduðu
með 342 stig. Björn hafði sína
skýringu á að Ragnar-Anna
Þóra höfðu betur. Anna Þóra er
nefnilega langt gengin með og
Björn ku hafa sagt að þriðji að-
ilinn í parinu hefði náð að hala
inn þessi 20 stig sem skildu á
milli. Bryndís Þorsteinsdóttir-
Sigfús Örn Árnason urðu svo í
þriðja sæti en alls tóku 46 pör
þátt í mótinu.
Ragnar og Anna Þóra eru
gift en hafa ekki gert mjög mik-
ið af því að spila saman nema
þá helst heima fyrir og einn og
einn tvímenning. „Við höfum
forðast að spila lengri mót, það
tekur einfaldlega fullmikið á,
þannig að það var stór ákvörð-
un að spila þetta mót en far-
sæl,“ segir Ragnar bæði í gríni
BRIDGE
r
Anna Þóra og Ragnar Islandsmeistarar
og alvöru en hann hefur einu
sinni áður tekið þátt í þessu
móti og hafði þá líka sigur með
Kristjönu Steingrímsdóttur.
Helsti keppninauturinn þá, var
einmitt Anna Þóra!
Topparnir voru margir hjá
Ragnari og Önnu Þóru og hér
fylgir einn einfaldur sem snýst
dálítið um „innri rök spilsins
eins og Valur hefði sagt,“ segir
Ragnar.
4 ÁDG53
* 63
4 ÁKDG
* K4
N
v
msm ♦
s
4 K
* T98754
* 72
* Á875
Ragnar var í fyrstu með spil
suðurs og passaði í stað þess að
opna á veikum tveimur í hjarta
eins og margir gerðu í salnum.
Þannig þróuðust sagnir:
Suður Vestur Norður Austur
pass pass lspaði pass
2hjörtu pass 3grönd pass
pass pass
Tvær farsælar ákvarðanir,
fyrst passið hjá Ragnari sem
mótast af því að hann á hugs-
anlega tvo varnarslagi en eng-
an punkt í litnum og síðan kem-
ur taktísk sögn Önnu Þóru sem
segir einfaldlega 3 grönd. Þar
fengust 11 slagir og fást alltaf
nema með hjartaútspili sem er
nánast vonlaust eftir sagnir. 38
stig af 42 mögulegum komu í
hlut íslandsmeistaranna. Út um
allan sal voru menn að spila
ijögur hjörtu og allmargir kom-
ust í slemmu!
„Við spiluðum mjög agað og
fengum oftast nær töluna. Hún
er sérlega mikilvæg í svona
móti og í raun og veru miklu
meira virði en en í ílestum öðr-
um tvímenningskeppnum sem
maður tekur þátt í,“ segir
Ragnar.
Opna Edenmótið
í dag fer fram stórmót Bridge-
félags Hvera-
gerðis, Opna Ed-
enmótið í suð-
rænu umhverfi
Eden í Hvera-
gerði og hefst kl.
10.00. Lfldegt er
að hámarksíjöldi,
32 pör, hafi þeg-
ar skráð sig til
leiks en ef óvænt
forföll hafa orðið,
geta morgunhan-
ar reynt að afla
upplýsinga í síma
483-4191 hjá
Þórði.
Hjónakornin Anna Þóra Jónsdóttir og Ragnar Her-
mansson á sigurstundu.
Sumarkomu
fagnað
Silfurstigamót
Bridgefélags
Reykjavíkur til að
fagna sumar-
komu verður
haldið „sumardaginn þriðja“
nk. laugardag, 26. aprfl. Spilað
verður í Þönglabakka 1 og hefst
mótið kl. 11.00. Keppnisstjóri
verður Sveinn R. Eiríksson og
verða spiluð 45 forgefin spil eft-
ir Monrad-kerfi. Keppnisgjald
kr. 1.500 á spilara.
Peningaverðlaun verða veitt,
18.000 kr. fyrir fyrsta sætið,
12.00 fyrir 2. sætið, 8.000 fyrir
3. sætið, 5.000 fyrir 4. sætið og
3.000 fyrir 5. sætið. Skráning
hjá BSÍ í síma 5879360.