Dagur - Tíminn Reykjavík - 07.05.1997, Blaðsíða 1

Dagur - Tíminn Reykjavík - 07.05.1997, Blaðsíða 1
\ JDagur'íKímttm LIFIÐ I LANDINU Blað Miðvikudagur 7. maí 1997 - 80. og 81. árgangur - 84. tölublað Hann er faðir körfub*ltans Einar Ólafsson, körfuboltaþjálfari hjá ÍR, hefur leikið körfubolta og þjálf- að ýmsa flokka hjá ÍR og fleiri félögum í tœp 40 ár og er enn að. Hann er gjarnan kallaður faðir körfuboltans. s g hafði séð körfubolta áð- ur. Það var í gagnfræða- skóla hjá Jóni Þorsteins- syni, í Ingimarsskóla, sem ég sá körfur. Eg sá bara körfurnar uppi á vegg og vissi ekkert til hvers átti að nota þær. Það var ekki kenndur körfubolti þá. Ég kynntist körfubolta svo fyrst fyrir alvöru hjá Sigríði Valgeirs- dóttur í íþróttakennaraskólan- um á Laugarvatni. Áður hafði ég verið í sundi í Ægi og þá var dundað við að kasta í körfur á þrekæfingum," segir Einar Ól- afsson, 69 ára körfuboltaþjálf- ari. Einar er Skagiirðingur og Dalamaður að ætt, fæddur í Reykjavík en ahnn upp í Bisk- upstungum. Lengst af hefur hann þó búið í Reykjavík. Hann er íþróttakennari að mennt, var við nám á Laugarvatni 1948- ’49, og hefur starfað við kennslu, fyrst við farkennslu og svo við ýmsa skóla í Reykjavík, nú síðast Langholtsskóla allt þar til hann lagði kennsluna á hilluna í fyrra. Hann fór að kynna sér körfubolta á Laugar- vatni og eftir kennaranámið þar og sá fljótlega að körfubolti var „upplögð" skólaíþrótt. „Þetta er mjög skemmtileg íþrótt. Ég hef alltaf haft gaman af henni, bæði sem leikmaður og þjálfari," segir Einar. Frjálsar og fótbolti Á uppvaxtarárum Einars í sveitinni voru einkum stundað- ar frjálsar íþróttir og eftir að hann fluttist á mölina var það fótboltinn sem var algengastur. Eftir að hann fór að kenna í Reykjavík ákvað hann að leita sér að íþróttafélagi þar sem menn lögðu stund á körfubolta svo að hann gæti kynnst þessari íþrótt betur sem kennari. Það var ekki að sökum að spyrja. Einar hreifst af körfuboltanum og fljótlega fór hann að leika með ÍR. Körfuboltinn átti erfitt upp- dráttar á íslandi fyrstu áratug- ina því að handboltinn hafði náð mun sterkari fótfestu hér. Um 1960 fór Einar að taka að sér að þjálfa yngstu flokkana meðfram fullri vinnu, síðar þjálfaði hann meistaraflokk Einar Ólafsson, 69 ára, hefur þjálfað ýmsa flokka í körfuboltanum hjá ÍR í tæp 40 ár. Hann er gjarnan kallaður faðir körfuboltans enda kom hann með fjöldann allan af nýjungum. Hann þjálfar nú yngri flokkana og ætlar að halda því áfram enda heilsan góð og tíminn nægur því að hann er hættur að vinna. Myn&. e.úi. að sér hafi þótt ánægjulegt að þjálfa meistaraflokk ÍR. Þar hafi verið góðir strákar. „Það var ansi mikil spreng- ing kringum Ólympíuleikana á Spáni en svo er það farið að dala núna,“ segir hann og vill kenna sjónvarpinu um. Það hafi verið auðveldara fyrir fólk að fylgjast með leikunum á Spáni en í Bandaríkjunum vegna tímamismunarins. Einar heldur sér í formi reglulega, gengur og skokkar og býst við að halda áfram að þjálfa. Kom með nýjungar Einn af lærisveinum Einars, körfuboltamaðurinn kunni Þor- steinn Hallgrímsson, sem stundum er kallaður besti körfuboltamaður á íslandi fyrr og síðar, staðfestir að Einar sé gjarnan kallaður faðir körfu- boltans á íslandi og segir að enginn vafi leiki á því að Einar sé sá þjálfari sem mestu hafi skilað af nýjung- um inn í íslenskan körfubolta. Fáir hafi haft jafn mikla þýð- ingu og hann. -GHS kvenna og svo var hann með meistaraflokk karla á sínum snærum í heil tíu ár. Talið er að Einar sé sá þjálfari á íslandi sem lengst hafi þjálfað sama liðið. Það er heldur engin furða þvx að hann náði frábærum ár- angri með liðið. Á þessum tíma varð ÍR ísla meistari og það < náttxirulega tak- markið. Þó að Einar hafi helgað ÍR krafta sína þá kom hann einnig við sögu hjá öðrum lið- um. Þannig var hann til dæmis fenginn til að þjálfa hjá ÍS, íþróttafélagi stúd- enta, Breiðabliki og Haukum - aðeins þó í tiltölulega stuttan tíma á hverjum stað. í dag þjálfar Einar yngstu flokkana hjá ÍR, drengi undir 11 ára aldri og stúlkur á aldrinum 12-13 ára. Sprenging á Spáni En hvað skyldi vera minnilegast frá þessum langa ferli? „Æth það sé ekki að vinna ís- landsmeistaratitlana, þeir eru nokkuð margir," svarar Einar og kveðst ekkert vera orðinn þreyttur á körfubolt- anum og þjálfun- inni eftir öll þessi ár. Hann hafi alltaf jafnað sig vel yfir sumar- ið. Svo bætir hann við

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.