Dagur - Tíminn Reykjavík - 07.05.1997, Blaðsíða 16

Dagur - Tíminn Reykjavík - 07.05.1997, Blaðsíða 16
Hagnr-ÍCtmTmt Miðvikudagur 7. maí 1997 Matjurta- garðurinn þinn Efþú ert algjör grœningi þegar Jcomið er út fyrir hússins dyr en hef- ur alltaf dreymt um að koma upp heim- ilislegum matjurta- garði þá er nú rétti tíminn til að gera eitthvað í málun- um. Plast, frauð og matvæli eru að verða óaðskiljanleg fyr- irbæri í hugum borgar- og bæjarbúa. í slíku samfélagi get- ur sjálfsþurftarbúskapur virkað heillandi. Hann gengur auðvit- að ekki í menguðum bakgarðs- holum en þó getur bæjarbúinn komið sér upp litlum matjurta- garði í bakgarðinum eða á svöl- unum og svo kannski krydd- jurtagarði í eldhúsglugganum. Gunnþór Guðfinnsson, kennari við Garðyrkjuskólann að Reykj- um í Ölfusi, hefur verið að halda námskeið fyrir almenning um efnið. Blaðið heimsótti Gunnþór í vikunni og fékk hann til að kynna lesendum hvernig hægt er að koma sér upp mat- jurtargarði. / 1.SKREF: Staðarval Farið út í garð og finnið ákjós- anlegan stað fyrir matjurtabeð- in. Það á að vera hægt að rækta matjurtir í nánast hvaða garði sem er (og ef hann er hellulagð- ur er hægt að nota stór ker). Til að fá góða uppskeru er mikil- vægast: a) að velja þann stað sem nýtur mestrar sólar, b) að hann sé skjólsæll. Ef beðin eru óvarin fyrir vindum er ágætt að gróðursetja lágan hekk eða setja gisna girðingu (þ.e. ekki þétta því beðin þurfa eitthvert loftstreymi.) c) að landið halli örlítið móti sólu. Pollar safnast fyrir á flötu landi og meiri hætta er á næt- urfrosti ef garðurinn er settur í dæld (kalda loftið er þyngra en heita loftið). 2. SKREF: Jarðvegurinn Þegar búið er að finna besta staðinn þarf að huga að jarð- veginum. í flestum tilfellum er hægt að nota þann jarðveg sem fyrir er. Ef hann er mjög blaut- ur má ræsa hann fram, t.d. með því að grafa skurð í kringum garðinn. Til að nýta jarðveginn sem best er rétt að stunda skipti- rækt, þ.e. setja t.d. gulræturnar í beðið þar sem gulrófurnar voru í fyrra og öfugt. Plönturn- ar nýta mismunandi næringar- efni í jarðveginum. Ef sama planta er ætíð í sama beði geta hlaðist upp næringarefni sem hún hefur engin not fyrir og orðið skortur á hinum. 3. SKREF: Sáningin Þá er komið að því að gera moldarflagið að vel skipulögð- um og myndarlegum matjurta- garði. Yfirleitt er görðunum skipt upp í 100-120 cm breið beð með 40-60 cm breiðum stígum á milli. Best er að setja húsdýraáburðinn (400-800 kg á 100 fermetra ef garðurinn er í góðri rækt, sé garðurinn nýleg- ur er ráðlegt að nota um 50% meira) í moldarflagið áður en farið er að vinna jarðveginn. Vilji menn nota tilbúinn áburð er rétt að fá upplýsingar um magnið í verslunum. Grunnáburðurinn, lífrænn eða tilbúinn, er settur á í upphafi sumars en venjan er að bæta við áburði 1-2 yfir sumarið og er þá hægt að nota t.d. tilbúinn alhliða áburð, fiskimjöl eða beinamjöl. 4. SKREF: Þegar búið er að sá öllu er ráð- legt að setja akrýldúk yfir beðin bæði til að halda hita á plönt- unum og verja þær fyrir vindi. Hægt er að leggja dúkinn beint yfir og skorða hann með spýt- um á jöðrunum því eftir því sem plönturnar vaxa þá þrýsta þær honum upp. Eftir miðjan júlí má taka akrýldúkinn af. Þá er ykkar vinnu að mestu lokið. Verði plönturnar slappar eða visnar er ágætt að hafa í huga kálæxlaveikina, kálflug- urnar og sniglana sem eiga það til að ráðast á nytjaplöntur (hægt er að lokka sniglana í burtu með því að grafa skál með bjór í beðið, þeir eru sólgnir í bjór). Ef (svo ólíklega vill til að) rigningarskýin láta ekki á sér kræla vikum saman þá er gott að vökva beðin. Arfi og illgresi sýgur til sín næring- arefni úr moldinni og því skal reyta hann reglulega. lóa Við Garðyrkjuskólann er svokallað Bananahús þar sem ilmur af framand- legum plöntum blandast saman í sterka kryddangan. Gunnþór er kennari á ylræktarbraut en Bananahúsið (þar sem ræktaðir eru bananar, kaffi- baunir, mandarínur og fíkjutré svo eitthvað sé nefnt) er notað við kennsl- una þar. Forræktun Gulrætur, gulrófur, kartöflur og einhvers konar kál eru vin- sælustu grænmetistegundirnar í litla heimilisgarðinum. Fyrsttöldu tegundunum má sá úti í garði upp úr miðjum maí. Þá má setja niður útsæði (kartöflur sem hafa forspírað í 2-3 vikur), gulrótar- og gulrófufræ eftir að staður undir garðinn hefur verið valinn og jarðvegurinn unninn eins og hér verður lýst. Tegundir eins og kál, sem þarf að forrækta innivið, krefjast hins vegar meiri fyrirhafnar. ✓ Issalat (Iceberg) er ein af þessum tegundum sem þarf að forrækta. Kaupið íssalats- fræ og sáðbakka út í blóma- búð. Hálffyllið sáðbakkann af sáðmold og dreifið fræjunum yfir moldina. Setjið um 2 mm af vikri yfir fræin og vökvið bakkann. Yfir bakkann er svó sett glerrúða (eða plastlok) og dagblað. Haldið bakkanum við 18-20 gráðu hita. Um leið og fræin eru byrjuð að spíra (e. 3-4 daga) er dagblaðið og glerið tekið í burtu. Eftir 7-10 daga fer fyrsta varanlega blaðið að sjást og þá er kominn tími til að potta um. á er varlega losað rnn jarðveginn og plönturn- ar settar í bakka með nær- ingarríkri mold þar sem lengra bil er á milli plantnanna. Eftir um 4 vikur (og tvær vökv- anir með áburði) í 16-18 gráðu hita eru plönturnar orðnar nægilega hraustar til að fara út í garð (ekki þó fyrr en í fyrrihluta júnímánað- ar). Ráðlegt er að herða plönturnar síðustu dagana áður en þær fara út með því að lækka hitastigið smám saman. Kryddhornið Kryddjurtir þurfa ekki að vera í sérstökum reit útivið. Ef þú átt hvorki garð né garðskála geturðu komið þér upp litl- nm kryddjurtagarði í eldhús- glugganum án mikillar fyrir- hafnar. Kryddjurtir sem við not- um eru flestar hverjar komnar frá suðlægum lönd- um og þrífast því ágætlega í hlýjum eldhúsglugganum þar sem birtu er að fá. Þar er t.d. mjög auðvelt að rækta basilíku sem hægt er að fá í ótal afbrigðum, eða yrkjum eins og garðyrkjumenn kalla það, m.a. sítrónubasilíku. Þá er óreganó auðræktanleg í eldhúsglugga og salvía sem er mikið notuð í fyllingar og með fiski (og þá gæti t.d. hentað að koma sér upp salvíuyrki með ananas- bragði). Málið er ekki flóknara en svo að hægt er að kaupa sér fræpoka og sá nokkrum fræj- um í blómapott. Vökva þarf fræin reglulega og eftir nokkkrar vikur, misjafnt eftir tegundum, geturðu farið að klippa þér fersk blöð í kart- öflusalatið, súpuna eða á pítsuna. Viljirðu ekki bíða þessar vikur meðan jurtin er að vaxa þá geturðu keypt þér smáplöntu. Það þarf ekki að nostra við kryddjurtirnar en gæta þarf að tvennu. Annars vegar að jurtirnar þorni ekki um of og hins veg- ar að klippa reglulega af þeim til að þær fari ekki að blómstra. Ýmsar kryddjurtir eru ræktaðar við Garðyrkjuskólann. M.a. Skessujurtin sem nemendur kalla Maggi í höfuðið á súpupökkunum.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.