Dagur - Tíminn Reykjavík - 10.05.1997, Side 2
14 - Laugardagur 10. maí 1997
^Dagur-®úttmr.
BORNIN I LANDINU
Barnahornid
Við höfum verið iðin við að benda
foreldrum á hvað gaman sé að gera
með börnunum. En hvað segja þau
sjálf? Dagur-Tíminn lagði þessa spurn-
ingu og fleiri fyrir nokkra krakka í
skólavistun í Barnaskólanum á Akur-
eyri.
Þorbergur Þórar-
insson, 9 ára:
„Um helgar fer ég
á íþróttaæfingar, en
ég æfi bæði fótbolta
og handbolta. Á
gæslunni er ég líka
oft í íþróttum.
Stundum förum við
mamma, pabbi og
ég um helgar í
ferðalög og þá er gaman."
Eva Lind Ragnars-
dóttir, 9 ára:
„í skólavistun er
mest gaman að
skoða í smásjá,
kubba, lita og leika
mér við vinkonur
mínar úti. En um
helgar, auk þess að
leika mér við vin-
konrn- og vera úti,
fer ég í sund. Það er einnig gaman þeg-
ar pabbi og mamma fara til útlanda."
Þröstur Bjarkason,
7 ára „en ég verð 8
ára 14. maí“:
„Mér finnst
skemmtilegast að
fara í bíó og þegar
pabbi kaupir gælu-
dýr eða dót handa
mér. Hér í gæslunni
er mjög gaman í
smíðum.“
Amór Hallsson, 7
ára:
„Mér finnst gam-
an að fara á fót-
boltaæfingar um
helgar og einnig er
ég að „snakka" við
pabba og mömmu á
laugardagskvöldum.
Um þessa helgi ætla
ég að halda upp á
afmælið mitt sem er 12
Snorri Pétur Níels-
son, 7 ára:
„Skemmtilegast
þykir mér að
heimækja aðra og
fara í leiki, t.d. Sín-
alkó. Með mömmu
þykir mér mest
gaman að baka og
veiða með pabba.
Þessa helgi ætla ég
að leika við frænda minn. f skólavist-
un föndra ég mikið og Uta.“
Fleiri krakkar í skólavistun höfðu
frá heilmiklu að segja en við verðum
að bíða með að segja frá hvað þeim
þykir skemmtilegt þangað til í næsta
bamahorni.
Unnið af Hjálmari Stefáni Brynjólfs-
syni, nemanda í starfskynningu.
LIFIÐ I LANDINU
Magdalena M. Hermanns
opnar í dag sýningu á
portrettmyndum afBáru
bleiku, Sœvari Karli
Fyrir tæpum þremur árum lauk
Magdalena námi í stúdíóljósmyndun
og auglýsingaljósmyndun í Hollandi
og hefur hún verið með annan fótinn er-
lendis síðan en er nú að koma sér á
framfæri hér á landi. Hún opnar fyrstu
einkasýningu sína í dag í Galleríi Horn-
inu. „Uppistaðan eru svart-hvítar
portrettmyndir og síðan er liturinn í kjall-
aranum á slides-sýningu," segir Magdal-
ena. Hún hyggst fara með hluta af sýn-
ingunni til Þýskalands síðar á
árinu. „Þjóðverjar eru spenntir
fyrir íslendingum og þeir vilja
fá eitthvað sérstak en þetta er
ekki bara ímyndin." Myndirnar
eru því allar af íslendingum en
á þetta að vera einhvers konar
þversnið af þeim? „Þetta er af
allavega fólld. Þetta eru íslend-
ingar og þeir eru allavega.
„Þetta er ekki þessi standard
tegund af myndatöku, ég vil
frekar reyna að ná einhveijum
karakter. En mér finnst íslend-
ingar akkúrat ekkert skera sig
frá öðrum þjóðum. Til þess er
leikurinn einmitt gerður. Að
sýna að þetta er bara ósköp
venjulegt, fallegt og yndislegt
fólk.“ lóa
Hálfgildingsportrett-mynd af sýningu Magdalenu. Vantar
að vísu höfuðið á fyrirsætuna en höfuðleysið er bætt upp
með hesthaus.
Heimspeki, náttúra, tækni
Páll Skúlason.
Skapar mannfólkið
sér umhverfi sam-
kvœmt lögmálum af
sama toga og eru
að verki í náttúr-
unni eða eftir allt
öðrum leiðum?
Þessi spurning verður við-
fangsefni Páls Skúlasonar,
heimspekings og nýkjörins
rektors Háskóla íslands, um
helgina þegar hann heldur fyr-
iriestra og stýrir málstofu um
heimspeki, náttúru, tækni og
menningu á vegum Félags
áhugafólks um heimspeki á Ak-
ureyri. Málstofan fer fram í
Deigiunni í dag og á morgun.
Auk ofangreindrar spurn-
ingu er fyrirhugað að ræða í
málstofunni þrjú eftirfarandi
mál:
ogmemiiiig
í fyrsta lagi mál sem lúta að siðferði-
legum skyldum og réttindum sem Uggja
umhverfís- og náttúruvernd til grund-
vallar. Meginspurningin hér er sú hvort
réttur og hagsmunir manna hljóti ævin-
lega að sitja í fyrirrúmi eða hvort réttur
og hagsmunir annarra lífvera og jafiivel
heilla vistkerfa geti haft forgang.
í öðru lagi mál sem lúta að tækninni
og áhrifamætti hennar þegar við mótum
umhverfi okkar. Hér er spurt hvort
ganga eigi að því vísu að tæknin stjórni
framkvæmdum okkar og setji okkur
mark og mið eða hvort h'ta beri á tækn-
ina sem tæki okkar til að ná þeim mark-
miðum sem við setjum okkur.
í þriðja lagi mál sem lúta að því
hvernig við tökum ákvarðanir um hvað
gera skuli í umhverfis- og skipulagsmál-
um. Spurningin er þessi: Á að láta sér-
fræðingum og embættismönnum eftir að
móta stefnu og taka ákvarðanir í um-
hverfimálum eða á að gera kröfu um
lýðræðislega þátttöku almennings í þess-
um málum?
Fyrirlestrarnir byrja klukkan 16 báða
dagana og í framhaldi fara fram umræð-
ur.
Maður vikunnar
Jens í Kaldalóni er maður vikunnar.
Fyrir að þora - þora að skrifa beint
frá hjartanu opið Iesendabréf til
konu sem hann dáir og dýrkar en er
honum nú horfin. Konan er Ólöf Rún
Skúladóttir, sem nú er horfin af skjánum
og tekin til við að ritstýra tímariti, en
lesendabréfið birtist í Morgunblaðinu á
þriðjudag. Jens dregur ekki dul á aðdá-
un sína á fréttakonunni fögru. Ekki nóg
með að hún hafi elskulegt andlit og blíð-
an, hreinan og himinljómandi
svip heldur er hún líka hesta-
kona. Aðdáunarverðast af öllu
þykir Jens þó að sjaldan eða
aldrei hafi hann séð Ólöfu
Rúnu með skrautkoppa neðan í
eyrnasneplunum heldur hefur
hún haft þá í þeim guðlega
friði sem fagurlegastir blika í
sinni réttu og fegurstu sköp-
un...! AI
fyrrverandi sjón
varpsþulur
lóni;
Frá Jens í KaldtUðm:
btZm maðÉ Si my"dir af Mmum
nmmi l,«ríi «utaO
Iheldur 1 ko*
P#gd.r maður svo sá hennan
bjupnaa, huKa )„„„ Uj ™ ®.a"
SSösfösæss
eP, aódáu n arvorðast f
elskuíejfa Utiití hefur avu
hmgt neina skrautkopn,
jyniasnoplMia, holdur 1
1 sinni *
f’ad þarf enginn nd s<
fA?''r.f“mrí >« mUitH i
nr »n*íDustundimar m .
*mv,a notía hfifuui við'
Lf^rmu> ,,g Mtl >n
r «g Olskulcuar
svuskaraaharframúríei
Aa enamgu fwssu vinr
WÞírifntaiea,
blóm (haga.
svo yemií vinasá!
v<’«s m grkfe <%*. ’
Liföu hl'il 1 guðs friði.
psiiliiipa
■>'g>r fyrirvarí h#r .1