Dagur - Tíminn Reykjavík - 10.05.1997, Síða 3
|Dagur-®mtmn
Laugardagur 10. maí 1997 - 15
Finni hefur gefið út
hók um siglingu á
litla hraðbátnum
FinnFaster þvert yfir
Atlantshafið frá Finn-
landi til íslands árið
1994. Hann segist
hafa fengið köllun til
að heimsœkja Sagna-
eyjuna.
Lítil, klæjandi hugmynd tók
sér bólfestu í huga mínum.
Stundum hvarf hún en kom
jafnharðan aftur og fór vaxandi.
Hún fékk á sig mynd, fór að ráða
hugsunum mínum, hún varð að
draumi. Á hraðbáti til ísiands!
Óhugsandi, heimskulegt að
nefna það! Ótrúlegur dómgreind-
arskortur, stórmennskubrjálæði,
hungur í æsifrétt. Þetta voru við-
brögðin en ég lét þau ekki hafa
nein áhrif á mig. Það geta ekki all-
ir skilið allt. Þetta var eflaust líka
sagt við Leif Eiríksson og Eirík
rauða, sömuleiðis við Kólumbus...
og samt fóru þeir.“
Þannig byrjar bókin Kall
Sagnaeyjunnar - Á sportbáti til ís-
lands eftir Finnann Pekka Piri,
sem kom út í Finnlandi sl. haust.
Piri sigldi ásamt félaga sínum á
litlum báti þvert yfir Atlantshafið
frá Finnlandi til lslands með við-
komu í Svíþjóð, Noregi, á Hjalt-
landseyjum og í Færeyjum. Hel-
tekinn af hrifningu á íslandi og ís-
lendingasögunum lét Piri úr höfn í
Piri lýsir stormi og stórsjó og ýmsum ævintýrum á litla sportbátnum áður en
takmarkinu var náð. Það er frábær tilfinning að sjá Vatnajökul bera við sjónar-
deildarhring og ennþá betra að fara úr siglingagallanum eftir langa sjóferð.
Helsinki vorið 1994 til að feta í
fótspor víkinganna. Þetta var
draumasigling kappans og hann
skrifaði bók um hana.
Pekka segir frá fólki sem þeir
félagarnir hittu í ferðinni og
spurningunum sem dundu á þeim
um þessa köllun og stórhættulega
uppátæki að heimsækja sagnaeyj-
una á hraðbát, ástinni sem stund-
um beið í leyni í óþekktri höfn, líf-
inu um borð í skelinni, biluðum
tækjum, stormi og stórsjó. Loksins
koma þeir til Færeyja og síðan er
stefnan sett á Höfn. Siglingin held-
ur áfram klukkutúna eftir klukku-
tíma, dag eftir dag. Loks sést
Vatnajökull bera við sjóndeildar-
hring. Takmarkinu er náð.
Það er undarleg tilfinning að
koma í höfn eftir langa siglingu og
fara úr siglingagallanum sem er
nánast orðinn samvaxinn við
kroppinn. Finnarnir komast fljót-
lega í samband við íslenska sigl-
ingamenn og Pekka Piri nefnir í
bókinni nokkra íslendinga sem
voru honum hjálplegir, Torkel og
Hallgrím, Önnu og Jonnu og svo
veitingamanninn Örn Arnarson.
Piri er stoltur yfir að hafa fylgt
köllun sinni og siglt til íslands -
hafa náð takmarkinu og ekki síst
að hafa hitt forseta íslands, Vigdísi
Finnbogadóttur. -GHS
Hér er Pekka ásamt félaga sínum.
Sjónvarpsfréttakonan Kristín
Helga Gunnarsdóttir á Stöð 2
stendur sig vel, sérstaklega
hvað manníjölgunina varðar
enda er hún langt gengin með
sitt þriðja barn, komin sjö mán-
uði á leið. Kristín Helga á fyrir
tvær dætur, 3ja og 8 ára, og eig-
inmann, Helga Geirharðsson
verkfræðing. Kristín Helga ku
eiga von á sér um miðjan júh' og
hverfur þá af skjánum í níu
mánuði. Hún veit hvors kyns
barnið er en vill ekki segja...
Fleira er á döfinni hjá Kristínu Helgu því í
haust kemtu út eftir hana bók fyrir 7-11 ára
börn. Vinnuheitið er „Elsku besta Binna
mín“ og mun Mál og menning gefa út. Bókin
er um 9 ára stelpu sem heitir Binna. Sagan
gerist á þeim tíma þegar mömmur voru enn
flestar heimavinnandi og er Binna eina
lyklabarnið í götunni. Heimili Binnu verður
því miðstöð fyrir ýmiskonar uppákomur hjá
krökkunum í hverfinu.
Önnur þjóðþekkt kona sem nú
á von á barni er söngkonan
Sigrún Hjálmtýsdóttir eða
Diddú. Von er á barninu síðar í
þessum mánuði en Diddú hefur
ekki látið óléttuna halda aftur
af sér og er enn að syngja á
fullu. Fyrir tveimur vikum söng
hún á tónleikum í Akureyrar-
kirkju ásamt kór og sinfóníu-
hljómsveit og í þessari viku aft-
ur á ferð norðanlands, í þetta
sinn til að syngja inn á geisla-
disk með Kór Ákureyrarkirkju.
Einhverjir höfðu af því áhyggjur að fresta
yrði upptökum ef barnið tæki upp á því að
flýta sér í heiminn en allt gekk eins og í
sögu.
Og meira slúður úr Akureyrarkirkju.
Mömmumorgnar eru haldnir í Safnaðar-
heimilinu í hverri viku og fá þá mæðurnar
gjarnan til sín góða gesti. Nýlega kom í
heimsókn förðunarfræðingur sem var með
kennslustund í förðun. Eitthvað gekk illa að
fá módel en þá gekk hjá sr. Svavar Alfreð
Jónsson, aðstoðarprestur Akureyrarkirkju.
Var hann gripinn og settur í stólinn og mál-
aður fögrum htum. Var það mál kvennanna
að hann hafi tekið sig afar vel út með farð-
Brúðkaupsklukkurnar hringja
gjarnan á hvítasunnunni og
það verður engin undantekning
að þessu sinni. Þá munu þeir
Heimir Már Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Alþýðubanda-
lagsins og fyrrverandi frétta-
maður á Stöð 2, og Jón Árni
Jóhannesson, þjónn, ganga í
staðfesta samvist. Þeir hafa bú-
ið saman í rúm sjö ár og nú er
loksins komið að því. Athöfnin
og veislan munu eiga sér stað á
Jómfrúnni í Lækjargötu.
Von er á metsöluhöfundinum
Ólafi Jóhanni Ólafssyni til
landsins á næstu vikum en
hann er vanur að koma með
íjölskylduna til íslands tvisvar
á ári, um jólin og yfir hásum-
arið meðan hitinn er hvað
mestur í New York. Ólafur Jó-
hann og eiginkona hans, Anna
Ólafsdóttir, eiga tvo syni og er
sá eldri mikill bílamaður. Hann
gat nefnt bilategundir á götu
fyrir tveggja ára aldur.
ann...
Heimir Mar Pétursson.
Ólafsson.
Gunnarsdóttir.