Dagur - Tíminn Reykjavík - 10.05.1997, Blaðsíða 6
1
18 - Laugardagur 10. maí 1997
LIFIÐ I LANDINU
íDixgur-(iImrfam
Wsm
Árni Sigfússon segir að R-listinn hafi svikið kosningaloforðin, til dæmis hvað varðar aukna áherslu á uppbyggingu hjúkrunarheimila. Hann hafi lofað að hætta einkavæðingu þjónustustofnana,
greiða niður skuldir, útrýma biðlistum, leysa atvinnuvandann og svo framvegis. Allt séu þetta öfugmæli. Loforðin séu fyrir bí.
Sjálfstæðismenn hafa verið í
þeirri óvenjulegu aðstöðu
að vera í minnihluta í
Reykjavík allt þetta kjörtímabil.
Rúmt ár er til kosninga og
greinilegt að menn eru farnir
að hugsa sér til hreyfings. Árni
Sigfússon hefur haft forystu í
Sjálfstæðisflokknum en hann
var fenginn til að skipa fyrsta
sætið eftir að Markús Örn
Antonsson, fyrrverandi borgar-
stjóri, dró sig til baka fyrir
þremur árum.
Á þessari stundu er ekki af-
ráðið hver leiðir listann. Inga
Jóna Þórðardóttir borgafulltrúi
hefur lýst yfir að hún hafi fullan
hug á fyrsta sætinu. Árni Sig-
fússon er fylgjandi því að próf-
kjör verði haldið og Iætur ekki
fyrsta sætið af hendi baráttu-
laust. Hann segist ekki líta svo
á að átök um fyrsta sætið veiki
sína stöðu.
„Úlfur, úlfur“?
„Minnihlutasamstarfið hefur
gengið mjög vel. Þetta eru
nokkuð ólíkir einstaklingar sem
hafa jákvæð áhrif hver á annan
og hafa sín sérkenni og sér-
þekkingu sem skiptir miklu
máli til að skapa liðsheild. Við
ákváðum í upphafi að vinna
málefnalega. Áð því leyti hefur
þessi minnihluti skapað sér-
stöðu í sveitarstjórnum. Við
höfum fylgt þessari ákvörðun
okkar að starfa málefnalega.
Við höfum ekki verið með yfir-
boð. Við höfum gagnrýnt það
sem við teljum vera gagnrýni
vert og jafnframt fylgt eftir mál-
um sem við höfum talið vera til
framdráttar," segir Árni.
Mörgum finnst að ekki hafi
verið um mikla gagnrýni að
ræða af hálfu minnihluta Sjálf-
stæðisflokksins í borgarstjórn
og menn hafi ekki notað tæki-
færi til andstöðu nærri því nógu
vel. Ingibjörg Sólrún hafi mætt
óþarflega lítilli mótspyrnu. Árni
Sigfússon segir að ef menn séu
ósáttir við að ekki hafi verið
beitt harðari aðferðum í minni-
hlutanum þá kunni að vera
ágreiningur um það hvernig
beri að starfa í minnihluta. Það
sé ekki óeðlilegt að þessi gagn-
rýni komi fram því að menn séu
vanir öðrum aðferðum.
„Menn eru vanir því að hróp-
að sé „úlfur, úlfur“ oft án tilefn-
is við fyrsta tækifæri og
snemma á kjörtímabili. Við höf-
um ekki gert það. Ég tel að það
sé mikilvægt að við séum trú-
verðug allan tímann," segir
Árni.
Öll sæti laus
Hann kveðst hafa heyrt yfirlýs-
ingu Ingu Jónu í fréttum og svo
hafi Inga Jóna haft samband
við sig og sagt sér hvernig þetta
hafi borið að. Sér finnist sjálf-
sagt að þeir fimm einstaklingar
sem hafi reynt með sér í annað
sæti í síðasta prófkjöri, þar á
meðal Inga Jóna, hafi áhuga á
fyrsta sætinu nú.
„Ég hef búist við að menn líti
svo á að í prófkjöri séu öll sæti
laus þegar þessar aðstæður eru
hjá okkur í flokknum. Þetta
kom mér því ekkert á óvart.
Mér finnst líka eðlilegt að það
séu til konur eins og karlar í
flokknum sem treysti sér til
þess að leiða hópinn. Ég tel að
við séum mjög vel sett með
þennan hóp. Það séu til ein-
staklingar, fleiri en ég, hæfir til
að leiða hann. Þannig vil ég sjá
liðsheildina," segir hann.
Margir hljóta að velta fyrir
sér hvort yfirlýsing Ingu Jónu
beri vott um togstreitu innan
hópsins en Árni segir svo ekki
vera. Sjálfstæðismenn séu aldir
upp við prófkjör en það kunni
að vera erfitt fyrir fólk, sérstak-
lega fólk úr öðrum flokkum þar
sem val á lista fari fram innan
þröngs hóps flokksmanna, að
skilja þetta. Yfirleitt sé þar tal-
að um flokka sem hafi lítinn al-
mennan stuðning. Það sé erfitt
fyrir þá að skilja að prófkjör
séu sjálfsögð vinnubrögð, sem
skilji ekki djúp sár eftir.
Reiðubúinn til forystu
- Nú hafa borgarstjórar sjálf-
stæðismanna gjarnan átt fyrsta
sætið í prófkjörum. Það gildir
bæði um Davíð Oddsson og
Markús Örn Antonsson núna