Dagur - Tíminn Reykjavík - 10.05.1997, Side 7
iElcigur-®mtmn
Laugardagur 10. maí 1997 -19
LIFIÐ I LANDINU
síðast og ekki verið nein átök
um það?
„Það hefur gjarnan verið
þegar borgarstjóri er sjálfstæð-
ismaður þá hefur hann mjög
sterka stöðu með fyrsta sætið í
prófkjöri. Þegar staðan er ekki
slík heldur sú að við erum í
minnihluta og höfum oddvita
hópsins þá er ekkert óeðlilegt
við það að kosið sé á milli
manna. Það gerðist fyrir kosn-
ingar 1982 og ég geri ráð fyrir
að það gerist aftur fyrir kosn-
ingar 1998, í báðum þessum til-
vikum þegar við höfum verið í
minnihluta," segir hann.
- En er hann fylgjandi því að
menn lýsi því yflr hvaða sætum
þeir sækjast eftir?
„í minni stöðu sem oddviti
Ustans tel ég mjög eðlilegt að ég
lýsi því yfir að ég er reiðubúinn
að taka á mig þetta forystuhlut-
verk en röð skiptir ekki öllu
máli ef menn vinna vel saman,“
segir Árni og vitnar í Lao Tse.
Hann segi að hinn góði leiðtogi
sé sá sem fari minnst fyrir. Þeg-
ar slíkur leiðtogi hafi lokið sínu
verki og það hafi gengið vel þá
segi fólkið: Við gerðum þetta.
„Mér finnst þetta vera mikil
stjórnarspeki og vil gjarnan og
hef gjarnan unnið í þessum
anda í mínum hópi. Hins vegar
er einn oddviti og það er eðli-
legt að hann sé valinn með sem
lýðræðislegustum hætti," segir
hann.
- Ætlar þú þá að leiða D-Ust-
ann?
„Ég er reiðubúinn að gera
það. Það er ekkert annað í stöð-
unni.“
- Nú hefur verið orðrómur
um að þú ætUr jafnvel að draga
þig í hlé?
„Það koma alltaf upp tímabil
í lífi fólks og fjölskyldna þar
sem erfiðleikar steðja að. Það
er öllum hollt og gott að meta
stöðu sína en okkur sýnist ekk-
ert hindra það að við höldum
okkar striki,“ segir hann.
Hef góðan stuðning
- Telur þú að þú hafir stuðning
Davíðs Oddssonar, formanns
flokksins?
„Sem oddviti borgarstjórnar-
flokksins hef ég góðan stuðning
hans. Sem formanni flokksins
ber honum að styðja þann sem
er valinn til þessa hlutverks, tU
dæmis í prófkjöri. Ég tel eðhlegt
að hann styðji þann sem þannig
er valinn tU forystu. En mér
fyndist ekki sjálfgefið að for-
ystumaður flokksins sé að taka
afstöðu milli einstaklinga í próf-
kjöri. Það kann jafnvel að vera
óheppilegt,“ segir Árni og
kveðst hafa átt
ljómandi gott
samstarf við for-
manninn.
- Myndi það
ekki koma sér til
góða fyrir þig að
hafa yfirlýstan
stuðning hans?
„Ég get ekki
ímyndað mér
annað en að það
komi til góða
hverjum sem er
en mér fyndist
það ekki sjálfgef-
ið og í sjálfu sér
álitamál hvort
formaður flokks-
ins eigi að skipta
sér þannig af
sveitarstjórnar-
rnálurn."
Árni kveðst
hafa ágætan
stuðning Davíðs í
því hlutverki sem
hann gegni nú, viti að hann hafi
stuðning hans nái hann kjöri í
fyrsta sætið í prófkjöri innan
flokksins en ætlist ekki til að
hann leggi sérstakar línur í
Reykjavík frekar en öðrum
sveitarfélögum. Auðvitað myndi
það koma sér persónulega vel
en ekki sé hægt að ætlast til
þess. Árni neitar því að Davíð
skipti sér á nokkurn hátt af
borgarmálum þó að hann fylg-
ist með sem þingmaður Reyk-
víkinga. Það segir hann að
breytist ekkert þó nær dragi
kosningum.
Ekki
þörf á uppstokkun
Talsverð endurnýjun varð á
lista sjálfstæðismanna í síðustu
kosningum, tveir af sjö aðal-
borgarfulltrúum, þar sem bæði
Inga Jóna og Gunnar Jóhann
Birgisson komu ný inn. Árni
segir að núverandi hópur sé
sterkur og starfi vel saman og
því sé ekki þörf á uppstokkun.
„Þetta er fólk með mismun-
andi hæfileika sem er mjög
mikiivægt til að skapa liðsheild
sem skilar árangri. Það er hins
vegar alltaf jákvætt að hæfileg
endurnýjun eigi sér stað en við
getum allt eins séð gott fólk í
varasæti eins og aðalsæti. Mið-
að við mögulegan meirihluta í
næstu kosningum yrði borgar-
stjórnarflokkurinn að minnsta
kosti 16 manns. Mér þætti eðli-
legt að sjá einhveija endurnýj-
un í þeim hópi,“ svarar hann.
- Hefur þú áhuga á að setjast
inn á þing?
„Nei. Mér finnst miklu hkara
mér að gera góða hluti í borg-
inni og fara svo að sinna allt
öðru. Ég tel að stjórnmálamenn
eigi að staldra tiltölulega stutt
við og fara svo í önnur störf.
Það eru til ágætar undantekn-
ingar á þessu, menn sem reyn-
ast vel og lengi, en þetta finnst
mér að eigi að vera meginregl-
an,“ svarar Árni.
Hann telur að það taki um
sex ár að fá reynslu og þekk-
ingu á stefnumálum og vinnu-
lagi í sveitarstjórnarmálum.
Þegar menn hafi fengið tæki-
færi sé æskilegt að þeir séu að í
átta til tólf ár eftir því í hvernig
stöðu þeir eru. Sjálfur hefur
Árni verið borgarfulltrúi frá
1986. Hann segist ekki vera bú-
inn að setja niður fyrir sér
hversu lengi hann haldi því
áfram. Sé spurt hve lengi hann
myndi sitja sem borgarstjóri ef
til kæmi þá telji hann að menn
eigi að sitja „skemur fremur en
lengur." Menn eigi ekki að
verða aldnir í þessu starfi.
- Hvernig finnst þér sam-
starfið hafa gengið hjá Reykja-
víkurlistanum undanfarin þrjú
ár?
„R-listinn er búinn að kasta
frá sér hugsjónum sínum og
stórum kosningaloforðum. Það
er það sem virðist ætla að
standa upp úr. Ég kann ágæt-
lega við þá einstaklinga sem
þarna starfa en mér finnst vera
málefnaleg fátækt. Þau hafa
sterkan vilja til að halda vald-
inu og það snýst allt um það.
Menn virðast ekki fara eftir
þeim hugsjónum sem maður
gat lesið út úr þessum stjórn-
málaflokkum fyrir nokkrum ár-
um.
Nú hefur Ingibjörgu Sólrúnu
verið líkt við Davíð Oddsson og
þótt vera sterkur leiðtogi. Árni
segist telja að hún hafi á marg-
an hátt skilað sínu verki sem
leiðtogi R-listans en ekki sé
hægt að gefa stjórnanda háa
einkunn þegar svo mörg kosn-
ingaloforð hafi verið svikin eins
og raun beri vitni.
„Eitt eru loforðin og hvernig
staðið er við þau. Annað er að
útskýra stöðugt hvers vegna
ekki hefur verið staðið við lof-
orðin. Okkur finnst borgarstjóri
halda sínu fólki uppi á snakki
og skýrslugerðum. Henni hefur
tekist vel upp í því. Menn eru
sáttir hver flokkur og hver ein-
staklingur í sínum valdastöðum
en sé horft á málefni þá eru of
mörg mál svikin til að þau eigi
skilið að fá háa einkunn,“ segir
Árni.
Öfugmæli
- Hvaða kosningaloforð eru
það?
„R-listinn lofaði að auka
áherslu á uppbyggingu hjúkr-
unarheimila, hætta einkavæð-
ingu þjónustustofnana, greiða
niðvu- skuldir, hækka ekki
skatta, útrýma biðlistum á leik-
skóla, leysa atvinnuvandann,
einfalda stjórnkerfið. Allt eru
þetta öfugmæli, hugsjónir
horfnar og loforðin fyrir bí,“
segir hann.
- Og að lokum: hvað skyldi
það vera sem knýr íjölskyldu-
manninn, framkvæmdastjórann
og stjórnmálamanninn Árna
Sigfússon áfram?
„Sköpunarþrá og vilji til að
hafa jákvæð áhrif á umhverfi
mitt. Þegar vel gengur nýti ég
meðbyr til betri verka, þegar
verr gengur beiti ég þrjósku til
að lifa af. Ég er vel byrgur af
eldsneyti!"
Árni Sigfússon segist vera fylgjandi því að valið verði á lista Sjálfstæðisfiokksins með próf-
kjöri fyrir borgarstjórnarkosningarnar á næsta ári. Hann er oddviti flokksins og skipaði
fyrsta sætið fyrir þremur árum. Það ætlar hann ekki að láta baráttulaust af hendi. Hér sést
Árni á tali við Markús Örn Antonsson, fv. borgarstjóra.
uppþvottavélar
4-7 þvottakerfi • Sérstaklega
hljóðlátar • Sparnaðarrofi
Frábært verð - Frá kr. 49.755
KAUPLAND
KAUPANGI
Sími 462 3565 • Fax 461 1829
Hamar
félagsheimili Þórs:
Salir ti I leigu
Tilvaldir til hvers
konar íþrótta- og tóm-
stundaiðkana.
Gufa - Pottur -
Búningsaðstaða
Hamar
sími 461 2080
Frá mötuneyti Mennta-
skólans á Akureyri
Starf forstöðumanns mötuneytis Menntaskólans á
Akureyri er hér með auglýst laust til umsóknar. Um-
sóknarfrestur er til 1. júní nk. Ráðið verður í starfið
frá 1. september 1997. Mötuneyti Menntaskólans á
Akureyri er sjálfseignarstofnun sem selur nemend-
um, kennurum og öðrum starfsmönnum skólans
fæði á kostnaðarverði. Starf forstöðumanns er í því
fólgið að sjá um daglegan rekstur undir yfirstjórn
mötuneytisráðs í samræmi við reglur sem þar um
gilda. Forstöðumaður hefur á hendi innkaup til
mötuneytis, skipuleggur vinnu starfsfólks og stjórn-
ar matseld í eldhúsi og vinnur í samvinnu við aðra
starfsmenn skólans og heimavistar að velferð nem-
enda. Rík áhersla er lögð á góða menntun, starfs-
reynslu, sem að gagni má koma, og á góðan sam-
starfsvilja. Frekari upplýsingar veitir undirritaður á
viðtalstíma í síma Menntaskólans á Akureyri, 461
1433.
Menntaskólanum á Akureyri, 8. maí 1997.
Tryggvi Gíslason,
skólameistari M.A.
Féloig versliinar- °g
UJpfey skrifstofufólks, Akureyri
og nágrenni
Aðalfundur
verður mánudaginn 12. maí 1997 kl. 20.30
á 4. hæð, Alþýðuhúsinu, Skipagötu 14.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Félagar eru hvattir til að mæta.
Kaffi á könnunni.
F.V.S.A
Söng- og kóráhugafólk
Viltu syngja Hándels Messias í Globenhöllinni 1
Stokkhólmi í nóvember 1997. Heimskórinn
(World Festival Choir), alþjóðlegur kór jafnt fyrir
byTjendur sem vant kórfólk.
Innritun stendur yfir, fjöldi söngvara er ótak-
markaður.
Upplýsingar í síma 567 7667 og á Inter-
netinu: http: /aatww.treknet.is/steinarb/wfc WFQ
Heimskórinn