Dagur - Tíminn Reykjavík - 10.05.1997, Síða 14
26\~ Laugxtrdmfur í(Ksmm 1997
íil:
Stúlkan lengst til hægri ber á höfði gullkórónu í laginu eins og lárviðarkrans. Kórónan er frá Róm og er talin vera frá 1860. Kórónan í miðið er
einnig úr gulli, en hér er rósakrans fyrirmyndin og rósirnar skreyttar gimsteinum. Kórónan var hönnuð fyrir Theresu, drottningu af Bavari árið
1820. Lengst til vinstri er stúlka með kórónu úr pússuðu gulli, skreytt perlum. Síðastnefnda kórónan mun vera frá Englandi og er frá árinu
1840.
Hver man ekki eftir því að hafa les-
ið ævintýri um prinsa og prinsess-
ur og séð fyrir sér undurfallegt
fólk með glitrandi kórónur? Uppgötva
síðan sér til mikilla vonbrigða að hinir
fáu prinsar og prinsessur dagsins í dag
bera ekki kórónur nema við afar hátíð-
leg tækifæri - að ógleymdum fegurðar-
drottningunum.
Nú h'tur hinsvegar út fyrir að tími æv-
intýranna sé að renna upp aftur. í Lond-
on var í það minnsta nýlega haldin sér-
stök kórónutískusýning, sú fyrsta sinnar
tegundar síðan 1911! Þar voru sýndar
kórónur frá ýmsum tímum og kom í ljós
að kórónur eru langt frá því að vera all-
ar eins. Litlar og fínlegar, stórar og
íburðarmiklar, mismunandi steinar,
hönnun og áfram mætti telja. Misfalleg-
ar eins og gengur en flestir eru örugg-
lega sammála um að þessar þrjár á
meðfylgjandi mynd séu mikil höfuðprýði.
Evítutíska
Kvikmyndin Evíta, þar sem hin eina
sanna Madonna leikur aðalhlut-
verkið, hefur haft áhrif á fleiri en
íslenska leikstjórann Andrés Sigurvins-
son, sem í sumar hyggst setja söngleik-
inn á svið hérlendis. Tískuhönnuðir um
heim allan horfa nú á Evu Perón sem
fyrirmynd og svokölluð Evítutíska er
orðin töluvert áberandi á síðum tísku-
blaðanna.
Evítutískunni verður best lýst með
orðinu „elegant“. Kvenleikinn er í fyrir-
rúmi og áhersla lögð á heildarútlit, frá
toppi til táar. Sérstök áhersla er t.d. á
skóna enda Perón þekkt fyrir skótísku
sína en hárgreiðsla og hattar skipta
einnig máli.
Eva Perón hafði sérstakt dálæti á skóm og
var ítalski hönnuðurinn Salvatore Ferragamo
fenginn til að búa til eftirlíkingar af 14 pörum
af skóm konunnar sem varðveitt eru á safni í
Flórens. Skórnir bera vilitum og dýrum
smekk Perón vitni því þarna er t.d. að finna
skó úr snáka- og eðluskinni og skó með
demantsskreyttum hælum.
Kjóllinn si
itu í Lond
Hönnuðui
hafa sótt
og blandc
fyrir komi
sper Cou
klætt Mai
meðfylgj.
Perlufréttir
Karl Lagerfeld hefur leyst málin fyrir
þær konur sem iinnst óþægilegt að
hafa perlufesti um hálsins þegar þær
synda. Hann hefur hannað sundbol þar
sem búið er að prenta perlurnar beint á
efnið. Auðvitað ekki ekta, heldur bara
myndir af doppum, en samt...
Annar hönnuður sem heillast af perl-
um, Ozbek, lætur sér ekki nægja að
hengja þær um háls módela heldur líka
um olnboga og hné. Perlurnar eru því í
miklum metum þessa stimdina hjá tísku-
kóngum.
Minna er meira
reyta og stress fer ekki vel með útlit-
ið. Margar konur reyna að fela
bauga og þreytuhrukkur með því að
setja á sig enn meiri farða en venjulega.
Förðunarfræðingar erlenda tískuritsins
Elle eru þó á því að í þessum aðstæðum
sé það ekki magnið sem gildi. „Minni
farði, meiri fegurð,“ segir einn þeirra og
mælir með að sleppa frekar farða þegar
svona stendur á, skella á sig smávegis
varalit og töff sólgleraugum. Málið leyst!
Falleg
augu
Augun eru spegill sálarinnar“ er ein
af þessum klisjum sem halda lííi
vegna þess að í þessari staðhæfingu er,
þrátt fyrir allt, heilmikill sannleikur.
Augnskuggar, augnblýantar og maskar-
ar fegra tæpast sálina en hugsanlega
geta þeir dregið athyglina að hinu fagra.
Því birtum við hér til gamans fróðleiks-
mola sem vert er að hafa í huga við
augnförðun.
• Kaldir litir fara gjarnan vel með
grænum augum. Prófið ljósan purpuralit
eða lillabláan. Ef augun eru blá er hins-
vegar mælt með hlýjum litum í brúnum
tónum; t.d. ferskjulit og rauðbrúnum.
• Lítil augu virðast stærri ef þú notar
dekkri augnskugga á ytri helmingi augn-
lokanna. Þeir sem nota gleraugu vegna
nærsýni ættu að hafa í huga að augun
geta virst minni þegar gleraugun eru á
og því í lagi að nota dekkri liti en eUa sé
ætlunin að nota gleraugun.