Dagur - Tíminn Reykjavík - 10.05.1997, Síða 19
J!agur-'(Eímmn
Laugardagur 10. maí 1997 - 31
L.IFIÐ I LANOINU
Þrœlpoppaður bisk-
up tilefni þess að
slegið var upp
óvenjulegri matar-
veilsu.
tli að sé ekki farið að
slá í’ann?“ varð einum
kímnum að orði þegar
fréttist að boðið yrði upp á 17.
aldar mat í Skálholti á dögun-
um. Tilefnið var ráðstefna
vegna þrjúhundruðustu ártíðar
Þórðar Porlákssonar biskups
(1674-1697), þar sem boðið var
upp á viðamikla dagskrá á
laugardag og sunnudag með
fyrirlestrxun, tónleikum, 17.
aldar kvöldverðinum á laugar-
dagskvöldinu og 17. aldar
messu á sunnudeginum.
Það er greinilegt að Þórður
biskup hefur verið fjölmenntað-
ur og margvirkur, bæði sem
biskup og maður. Það ber efni
fyrirlestranna vitni um, sem
m.a. fjölluðu um menntun
Þórðar, innlegg hans til hug-
mynda um fsland erlendis,
framlag hans til landafræði og
kortagerðar, þekkingu hans í
læknisfræði, skáldskap hans,
útgáfustarf og garðrækt, svo
nokkuð sé nefnt.
En aftur að matnum, hvernig
var 17. aldar matseðilhnn í
Skálholti?
„Já, við Ingólfur Guðpason,
garðyrkjumaður. í Laugarási,
reyndum að grennslast aðeins
fyrir um það í gömlum plögg-
um,“ sagði Jón K.B. Sigfússon,
matreiðslumeistari, og kom-
umst að þessari niðurstöðu:
Fordrykkur: Snaps með kú-
meni
Forréttur: Léttsoðinn silungur,
vaflnn í njólablað. Mysumar-
eneraðir ætisveppir með tún-
súru og rjómaskyri með hun-
angi.
Aðalréttur: Hlaðborð með
hangikjöti, saltkjöti, nýju og
súru slátri, nýju lambakjöti og
súpu með rófum, káli og öðru
úr garðinum. Til meðlætis og
aukreitis: Gróft brauð, æti-
sveppir, rúsínur, sveskjur, grá-
fíkjur, harðfiskur, smjör og skyr.
Drykkir: 17. aldar mjöður,
vín, vatnsblönduð mysa og
vatn.
„Okkur Ingólfi fannst alveg
merkilegt hve matjurtagarður-
inn var fjölbreytilegur hjá bisk-
upnum því þar mátti finna
steinselju, graslauk, radísur,
kúmen, hvítkál, grænkál og sal-
at. Þá ræktaði hann líka bygg
og rúg og innflutningsskýrslur
sýna að hann hefur keypt fjöl-
margt til matargerðar frá út-
löndmn, eins og t.d. pipar, timi-
an, engifer, múskat, vínedik,
bóghveiti, sykurtoppa og öl-
gerðarefni," sagði Jón. „Hann
hefur verið alveg þrælpoppaður
þessi biskup.“
„Undirbúningm-inn að þess-
Jón K.B. Sigfússon hafði yfirumsjón með matreiðslunni.
um kvöldverði hefur staðið yfir
í alllangan tíma því við létum
vinna fyrir okkur kjöt, smjör,
osta, mjöð, snaps, brauð og
tólgarkerti eftir þeim aðferðum
sem tíðkuðust hér í tíð Þórðar.
Allt hráefni er það sama og vit-
að er að ræktað var hér þá og
það sem biskupinn pantaði til
staðarins fyrir meira en 300 ár-
um,“ sagði Jón Pálsson, rektor
Skálholtsskóla og forstöðumað-
ur ráðstefnunnar.
Ráðstefnugestimmn, sem
voru um 70 talsins, var tíðrætt
um þennan sérstaka kvöldverð
og bárust beiðnir um endur-
tekningu á þessari „Þórðargleði
í mat og drykk“ fyrir tvo hópa.
Að sögn Jóns rektors hefur nú
verið ákveðið að gefa þeim sem
heimsækja Skálholt í sumar
tækifæri til að njóta máltíðar
sem þessarar og vera uppi mn
stund fyrir þrjú hundruð árum
síðan. -SB/Árnessýslu
17. aldar málsYerður í Skálholti
BRIDGE
Útspil:
Tígulás
Eftir að makker opnar er
erfitt að halda sig frá slemm-
unni. Þessar sagnir eru ekki vit-
Iausari en hver önnur sagnröð
en útspilið er óhagstætt fyrir
sóknina. Vestur skiptir síðan í
lauf og nú gengur allt út á að
fyrirbyggja tapslag á tromp.
Hvað hyggst lesandinn gera? Á
að toppa spaðann? Á að fara í
blindan og svína strax? Eða á
að toppa fyrst og svína síðan?
Svar:
Það er rangt að taka tvo
efstu í spaða. Þegar fimm spil
eru úti eru líkurnar töluverðar
á að drottningin detti ekki. Og
hvað svíninguna varðar myndu
margir toppa einu sinni og
svína svo. Þeir eru að verja sig
gegn drottningunni blankri í
vestur en hinir sömu gleyma að
ef vestur á blankan hund hefur
spilið tapast. Og líkurnar eru
miklu meiri á því ef spaðinn
liggur 1-4, að hundur sé blank-
ur fremur en drottningin.
Björn
Þorláksson
skrifar
A
Idag, laugardaginn 10. maí,
verður haldið opið silfur-
stigamót í Þönglabakkanum,
Reykjavík. Spiluð verður sveita-
keppni, fimm 10-spila leikir og
er spilað um 2,5 silfurstig á
mann í leik. Þátttökugjald er kr.
6.000 á sveit og rennur helm-
ingur innkomu í verðlaun. Mót-
ið hefst kl. 11.00 og því lýkur
kl. 19.00. Tilvalin æfing fyrir þá
sem eru á leiðinni á Kjördæma-
mótið á Siglufirði um næstu
helgi. Hjálpað verður til við
myndun sveita en skráning og
nánari upplýsingar eru á skrif-
stofu BSÍ í síma 5879360.
Bikarkeppnin 1997
Nú fer hver að verða síðastur til
að skrá sig í Bikarinn, en frest-
Siglfirðingar bjóða til bridgeveislu um næstu helgi þegar kjördæmamótið
fer fram. Eflaust láta sterkir heimamenn sig ekki vanta í slaginn. Dagur-
Tíminn birtir hér 9 ára gamla mynd úr safni af bræðrunum Olafi og Stein-
ari Jónssonum Sigurbjörnssonar en þeir hafa lengi verið í eldlínunni þótt
ekki séu þeir gamlir að árum.
Ef drottningin er fjórða í
austur er aðeins hægt að svína
einu sinni eftir að ásinn er tek-
inn fyrst. Spihð tapast því.
„Varfærnu" spilararnir sem
mundu eftir möguleikanum á
blankri drottningu, gleyma
hreinlega að það eru íjórum
sinnum betri líkur á hinni leið-
inni.
urinn rennur út miðvikudaginn
14. maí. Upplýsingar og skrán-
ing há BSÍ.
Þrautin
Norður/enginn
* 76
V KDT42
* KD5
* KG6
* ÁKGT98
V Á
* G76
* ÁDT
Sagnir:
Norður Austur Suður Vestur
lhjarta pass 2spaðar pass
2grönd pass 6 spaðar pass
pass pass
Opin silfurstigakeppni