Dagur - Tíminn Reykjavík - 28.05.1997, Qupperneq 3
jOagur-CEtmtmt
Miðvikudagur 28. maí 1997 - 3
F R É T T I R
Stutt og laggott ■ Atvinnulíf
Vestfirskir fá
stuðning
Stjórn Félags opinberra
starfsmanna á Austurlandi
samþykkti á fundi sínum
24. maí sl. að styrkja vest-
fírskt verkafólk í barátt-
unni við atvinnurekendur
með 100.000 kr. frjárfram-
lagi í verkfallssjóð Vestfirð-
inga. í ályktun bendir fé-
lagið öðrum stéttarfélögum
á að styðja betur við félag-
ana vestra. Bf>
Laxinn fær
liðsauka
Stjórnendur Útilífs í Glæsi-
bæ hafa ákveðið að láta
hluta af sölu veiðideildar
verslunarinnar renna í
Norður Atlantshafssjóðinn,
sem stofnaður var til
verndar villtum laxi. Orri
Vigfússon, forsvarsmaður
sjóðsins, og Ólafur Vigfús-
son hjá Útilífi handsöluðu
þetta samkomulag á dög-
unum. „Við vonum að þessi
stuðningur hjálpi til að
opna augu veiðimanna fyr-
ir nauðsyn á áframhald-
andi stuðningi við verkefn-
ið,“ segir Ólafur.
Orri segist afar þakklát-
ur. Stuðningur Útilífs komi
á mikilvægum tímamótum.
„Veiðitölur sýna að frá því
verkefni NASF hófst 1991
hefur laxveiði á íslandi
haldist í þokkalegu jafn-
vægi, á meðan laxastofnar
annarra þjóða eru að hruni
komnir. Með stöðugri bar-
áttu er hægt að verja þessi
náttúruauðæfi. Það verður
ekki gert öðruvísi en í sátt
við umhverfið með frjáls-
um samningum við þá sem
hafa nýtt þessa auðlind frá
upphafi," segir Orri Vigfús-
son.
M- !
Ný björgunarskip
til landsins
Tvö ný björgunarskip bætt-
ust í flota Slysavarnafé-
lagsins á föstudaginn.
Skipin fara til Ísaíjaröar og
Sigluíjarðar. Þau voru
keypt af þýsku slysavarna-
félagi og þykja henta mjög
vel til björgunarstarfa.
Þau rista mjög grunnt og
þykja því heppileg til að
flytja björgunarsveitir til
afskekktra svæða, þar sem
landleiðin er ófær eða sjó-
leiðin fljótfarnari. Skipin
eru hönnuð þannig að þau
komast á sjó við mjög erf-
iðar aðstæður og sjóhæfni
þeirra er mikil. Slysa-
varnafélagið hefur keypt
alls 5 skip, því stefnt er að
því að hafa eitt í hverjum
landshluta. Fyrsta skipið
kom í desember og fór til
Neskaupstaðar, en gert er
ráð fyrir að þau 2 sem eftir
eru komi í júní og desem-
ber. Áætlað er að það kosti
2,5 til 5 milljónir króna á
ári að reka hvert skip.
Eru fyrirtæki farin að
hækka verðlag vegna
launahækkana?
Launahækkanir út í verðlagið
Verð á ýmissri þjónustu hefur hækkað um 7-
10%. Stofnun verðlagseftirlits á dagskrá mið-
stjórnar ASÍ og áformað að hefjist í næsta
mánuði. Gæti kostað verkalýðsfélögin 4 millj-
ónir á ári.
Svo virðist sem fyrirtæki séu
ekkert ófeimin við að
slengja nýlegum launa-
hækkunum út í verðlagið. Ný-
lega hækkaði verð fyrir þvott
hjá Fönn hf. um 8% og sömu-
leiðis hefur Securitas hækkað
verð vegna ræstinga um 7%. Þá
eru dæmi um að iðnaðarmenn
hafi hækkað útselda vinnu um
10%. Á dagskrá miðstjórnar
ASÍ í dag er m.a. stofnun verð-
lagseftirlits verkalýðsfélaga í
samvinnu við BSRB og Neyt-
endasamtökin.
Ari Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Fönn, segir
að hann hafi ekki átt um annað
að velja en að velta hluta af ný-
legum launahækkunum út í
verðlagið. Hann segir að lang-
flestir viðskiptavina sinna hafi
tekið verðalagsbreytingunum
með skilningi. Ari segir að ný-
legir samningar hefðu aukið
launakostnað fyrirtækisins um
18,5% þegar lægstu taxtar
hækkuðu úr 57 þús. kr. í 65
þúsund krónur á mánuði. Á
móti hefði Fönn ekki hækkað
sína þjónustu í samræmi við al-
mennar verðlagsbreytingar á
liðnum árum. Þá hefur kostnað-
ur vegna heita vatnsins hækkað
um 35% og rafmagn um 17%.
Um 60 manns vinna hjá Fönn
hf.
Guðmundur Gylfi Guðmunds-
son, hagfræðingur ASÍ, segir að
aðildarfélög sambandsins hafi
tekið vel í það veita ijármagni
til reksturs skrifstofu fyrir verð-
lagseftirlit og verðlagskannanir.
Áætlaður kostnaður vegna
þessa er talinn geta numið um
4 milljónum króna á ári.
Ef að líkum lætur mun
verðalagseftirlitið taka til starfa
í næsta mánuði. Það hefur hins-
vegar tekið sinn tíma að púsla
því saman enda koma margir
að því máli. -grh
Alþjóðasamskipti
Ríkiskaup
Davíð bindur enda
á kalda stríðið
Leiðtogar NATO og
Rússa undirrituðu
í gær í París
samkomulag um sam-
starf milli hinna fyrr-
um andstæðinga í
kalda stríðinu. Davíð
Oddsson undirritaði
samninginn fyrir ís-
lands hönd og sagði
m.a. í ávarpi sínu við
það tækifæri. „Mitt at-
kvæði fyrir íslands
hönd fellur á þann veg,
að stórri orrustu hafi
lokið með fullum sigri
heilbrigðrar skynsemi.
Þau úrsht hljóti að
benda til að styrjöld-
inni sjálfri muni ljúka
Forsætisráð-
herra sagði
við undirrit-
un tímamóta-
samnings
NATO og
Rússa í París
í gær að at-
kvæði ís-
lands félli
með heil-
brigðri skyn-
semi.
með farsælum hætti.“
Ráðherrann sagði síð-
an í lokaorðum sínum
að „tortryggni, ótti,
sérhyggja og fortíðar-
vandi“ hafi verið þeir
óvinir sem við var að
etja. Þau hafi hins veg-
ar lotið í lægra haldi
fyrir sáttinni, sam-
heldni, trausti og trú á
framtíðina. „Þessum
sigurvegurum fögnum
við núna, og þá sér-
staklega holdgerving-
um þeirra hér á fund-
inum í höll Frakk-
landsforsesta," sagði
Davíð í París í gær.
Davíð Oddsson, forsætisráðherra,
telur að tímamótasamningur hafi
verið gerður með undirrituninni í
gær.
Reykjavík
Á Topp-10 hjá Könum
Bandaríska tímaritið Out-
side Magazine hefur valið
Reykjavík sem eina af tíu
bestum borgum veraldar til að
búa í. Þetta rit er lesið af um 2
milljónum manna og leggur
áherslu m.a. á útilíf, menningu,
íþróttir, ferðalög og heilbrigt líf.
í tímaritsgreininni er m.a.
sagt að í Reykjavík sé afslappað
umhverfi, heilnæmt loft, engin
mengun og lítið um glæpi. Síð-
ast en ekki síst er borgin lofuð
fyrir það að við bæjardyrnar sé
að finna stórkostlega náttúru-
fegurð sem á fáa sína hka.
Á vegum skrifstofu Ferða-
málaráðs í Bandaríkjunum
koma árlega 50-60 bandarískir
blaðamenn til Reykjavíkur. Þá
sækja árlega um 32 þúsund
Bandaríkjamenn ísland heim og
65% þeirra koma utan háanna-
tíma í ferðaþjónustunni. -grh
Ramrna-
samningar
við húsgagna-
fyrirtæki
Ríkiskaup hafa gert ramma-
samninga við fimm íslensk
húsgagnafyrirtæki, bæði fram-
leiðendur og innflytjendur. Eitt
þeirra er GKS sem sagt hefur
verið frá í fréttum, og nú síðast
Á. Guðmundsson í Kópavogi,
sem gengur inn í rammasamn-
ingakerfi Ríkiskaupa.
Ríkisfyrirtækin eru bæði að
endurnýja húsakost sinn og
eins að innrétta nýtt, til dæmis
nýtt embætti Ríkislögreglu-
stjóra, nýja skóla eins og Borg-
arholtsskóla og fleiri. Innkaupin
eru mikil.
„Það er mikils virði fyrir inn-
lenda framleiðendur þegar
rammasamningakerfið er kom-
ið á, að vera með þannig að-
gang að þessum markaði að
þeir séu með samning. Ég tel að
þeirra hlutur sé nokkuð góður í
þessu,“ sagði Júlíus S. Ólafsson,
framkvæmdastjóri Ríkiskaupa.
„Við gerum ráð fyrir að
rammsamningakerfið í heild
verði með 600 milljóna króna
veltu á þessu ári,“ sagði Júlíus,
en þetta kerfi nær yfir ýmsa
rekstrarvöru, pappír, tölvur og
annan búnað, til dæmis skrif-
stofuhúsgögn. -JBP