Dagur - Tíminn Reykjavík - 28.05.1997, Side 12
T
Ilagnr-CLtmmn
Veðrið
í dag
mmmmmmi^^m^mmmmmmmm
Miðvikudagur 28. maí 1997
mmm
mm
kæli- og
frystiskápar
Verð frá kr. 34.100
, 2 KAUPLAND
KAURANGI
Sími 462 3565 ■ Fax 461 1829
0
Línuritin sýna íjögurra
daga veðurhorfm- á
hverjum stað. Línan sýnir
hitastig, súluritið 12 tíma
úrkomu en vindáttir og
vindstig eru tilgreind fyr-
ir neðan.
Suðlæg átt, kaldi eða
stinningskaldi. Rigning
eða súld um vestanvert
landið, en þurrt að mestu
um landið austanvert.
Síðdegis bætir heldur í
vind vestanlands.
Hiti 6-15 stig.
I Þ R 0 T T I R
HANDBOLTI • HM í Kumamoto
Róbert Julian Duranona sýndi og sannaði að hann á nóg inni þegar mikið liggur við. Á lokakaflanum
gegn Norðmönnum var hann hreint stórkostlegur.
Mynd: BG
Frábær innkoma Guð-
mundar og Duranona
Breyttur varnarleikur og frábær inn-
koma Guðmundar Hrafnkelssonar og
Róberts Julian Duranona áttu stóran
þátt í sigri íslenska landsliðsins á Norð-
mönnum í gærmorgun. Það tók íslenska lið-
ið fjörti'u mínútur að finna svar við frískum
Norðmönnum, en eftir það var aldrei
spurning hvort liðið átti skilið sæti í átta
liða úrslitum heimsmeistaramótsins.
Patrekur Jóhannesson átti skínandi dag í
sókninni í fyrri hálfleik, en eftir að íslenska
vörnin færði sig aftar byrjaði að ganga betur
hjá liðinu og Guðmundur varði meistaralega.
Duranona hrökk í gang í lokin, en greinilegt
var að aukin mótspyrna íslenska hðsins dró
allar vígtennurnar úr norska liðinu.
Leikurinn í gærmorgun var ekki sérlega
vel leikinn, mistökin hjá íslenska liðinu
voru mýmörg framan af og vörnin virtist
mjög stöð á meðan að Norðmenn fengu að
trítla óáreittir um línuna og í hornunum.
Það virtist taka íslensku leikmennina lang-
an tíma að átta sig á sóknarkerfum Norð-
manna, en þegar þeir kveiktu á perunni,
fóru leikmenn að ganga inn í sendingar og
ná hraðaupphlaupum. Lokatölurnar urðu
32:28, semsagt góður sigur þrátt fyrir mikið
basl framan af.
Norska liðið fékk slæma gagnrýni
„Grjótkastararnir frá eldljallaeyjunni
tryggðu sér sætið í átta liða úrslitunum með
góðum síðari hálfleik, þar sem leikur
norska liðsins hrundi,“ sagði norska Aften-
bladet um leik fslands og Noregs, þar sem
ísland tryggði sér sigurinn með því að
skora átta af síðustu tólf mörkum leiksins
og tryggja sér sigurinn.
„Fyrstu fjörutíu mínúturnar af þessum
ótrúlega leik spilaði norska liðið vel, en
gamlar syndir sáu til þess að hðið kastaði
frá sér öruggu þriggja marka forskoti,
Tæknifeilar, staðnað kerfisspil í sókninni og
veik vörn veldur því að liðið þarf að taka
fyrsta flug heim,“ sagði Aftenbladet og
þjálfari Norðmanna, Harald Madsen, fær á
baukinn hjá blaðinu. Sagt að hann hafi ver-
ið alveg ráðlaus og bent er á það að tvívegis
þegar íslensku leikmennirnir voru færri á
vellinum, hafi þeim gengið betur að skora
en Norðmönnum. Ráðning þjálfarans, sem
er með samning til aldamóta, hafi ráðist af
vinatengslum hans innan norsku hand-
boltaforystunnar.
I lokin er sagt frá því að innan Ijórtán
daga verði það gleymt að „litla ísland“ með
sína 270 þúsund íbúa og miklu minni efna-
hagsúrræði, hafi verið oíjarl norska liðsins
á flestum sviðum.
Gamlir félagar
Tveir leikmenn íslenska landsliðsins, þeir
Róbert Julian Duranona og Björgvin Björg-
vinsson, mæta gömlum félögum í leiknum
gegn Ungverjalandi á morgun. Tveir lykil-
manna ungverska liðsins eru þeir Zoltan
Vergendi og Joseph Eles sem léku með Fo-
tex Vesprém, sem lagði KA-menn að velli í
Evrópukeppni bikarhafa í vetur. Búast má
við því að róðurinn verði erfiður hjá ís-
lenska liðinu, en möguleikar á sæti í undan-
úrslitunum eru vissulega vel fyrir hendi.
HANDBOLTI • HM í Kumamoto
Árangur íslands
sjaldanbetri
Islenska landsliðið á góða möguleika á að
ná sínum besta árangri frá upphafi. Sigri
liðið Ungverja kemst liðið í hóp fjögurra
bestu þjóða heims, en tap þýðir að íslenska
liðið leikur um 5.-8. sætið í keppninni. Besti
árangur íslands frá upphafi er 6. sæti, en
það náðist 1961 og 1986. Árangur íslands
er þessi á heimsmeistaramótum.
1958 Komst ekki í lokakeppnina
1961 6. sæti
1964 Komst ekki í lokakeppnina
1970 11. sæti
1974 Komst ekki í lokakeppnina
1978 Komst ekki í lokakeppnina
1986 6. sæti
1990 10. sæti
1993 8. sæti
1995 13.-16. sæti
1997 ?? (1.-8. sæti)
Gott gengi gegn Ungverjum
Islenska landsliðið í handknattleik hefur
leikið 21 landsleik gegn Ungverjalandi frá
því liðin mættust fyrst árið 1958. Ungverjar
hafa sigrað í ellefu viðureignum, íslending-
ar í átta en tveimur leikjum hefur lyktað
með jafntefh. ísland hefur sigrað í fjórum
síðustu viðureignum liðanna, en þjóðirnar
mættust síðast á HM 1995, þar sem ísland
hafði sigur 23:20
Valdimar í hóp markahæstu
Valdimar Grímsson er næst markahæsti
leikmaðurinn á HM í Japan, að afloknum
16-hða úrshtunum. Valdimar hefur skorað
45 mörk, þremur mörkum minna en Carlos
Reinaldo, stórskytta Kúbumanna, sem féllu
út úr keppninni í gærmorgun. Kóreumaður-
inn Yung Shin Yoon hefur skorað 44 mörk og
einnig Júgóslavinn Nenad Perunicic.
ísland eitt eftir úrA-riðlinum
Liðin þrjú sem komust upp úr A-riðlinum,
ásamt íslandi féllu öll úr keppni í 16-liða
úrslitunum í fyrrinótt, en úrslit urðu þessi:
Ísland-Noregur
Spánn-Króatía
S.Kórea-Júgóslavía
Kúba-Egyptaland
Litháen-Svíþjóð
T ékkland-Ungverj aland
Frakkland-Japan
Rússland-Túnis
32:28
31:25
37:33
20:24
20:32
19:20
22:21
20:14
Eftirtalin lið mætast
keppninnar í fyrramálið:
í 8-liða úrslitum
1. Ísland-Ungverjaland kl. 9:00
2. Spánn-Svíþjóð kl. 9:00
3. S.Kórea-Rússland kl. 11:00
4. Egyptaland-Frakkland kl. 11:00
Sigurliðin úr leikjum 1 og 2 mætast í
undanúrslitum og sigurliðin úr leikjum 3 og
A