Dagur - Tíminn Reykjavík - 04.06.1997, Side 5
,®agur-'3ImTOm
Miðvikudagur 4. júní 1997 -17
VIÐTAL. DAGSINS
Glatað en samt fínt
Popparinn Björn
Jörundur er kominn
heim til íslands eft-
ir að hafa verið í
Liverpool í vetur að
lœra leiklist í lista-
skóla Pauls
McCartneys. Hann
er mjög ánœgður
með dvölina þar og
er að leita sér að
föstum kjarna til að
spila með.
s
g hef verið að fikta aðeins
við að leika því að það er
alltaf ver-
ið að biðja mig
um það en mér
finnst ég græða
mest á því að
komast að því
að ég kunni
ekkert í leiklist
og vissi ekkert
hvað ég var að
gera. Ég er ekki
að segja að ég
hafi ekki gert
það rétt. Ég
vissi bara ekki
hvernig það var
hugsað. Það er
ágætt að hafa
smágrunn í því sem maður er
að gera,“ segir Björn Jörundur
Friðbjörnsson tónlistarmaður.
„Það er að mörgu
leytifínt að vera í
Bretlandi en mér
finnst Bretland
glatað land að húa
í. Eg gœti aldrei
verið lengi þar. “
Tíu ára hlé
Björn Jörundur kom til íslands í
síðustu viku og er farinn að
hugsa sér til hreyfings fyrir
sumarið. Hann hefur haft það
gott í vetur, lært leiklist í
Liverpool Institute for Perform-
ing Arts en skólinn hefur notið
góðvildar bítilsins Pauls
McCartneys. Björn Jörundur
segir að það hafi verið skrítið
að setjast á skólabekk eftir tíu
ára hlé en samt mjög gaman.
Hann hefur leikið í Sódómu
Reykjavík, Gauragangi, Rocky
Horror svo nokkuð sé nefnt en
ekki er þó víst að hann leggi
leiklistina fyrir sig í sumar.
„Ætli ég verði ekki bara að
spila eitthvað í Reykjavík," seg-
ir Björn Jörundur, en hann var
einmitt að spila með Jóni Ólafs-
syni á Ráðhúskaffi, nýopnuðum
stað á Akureyri, um helgina.
Hann segir að þeir verði þó
ekkert endilega að spila saman
í sumar, þetta hafi bara verið
redding. Það skýrist á næstu
vikum hvað hann taki sér fyrir
hendur í sumar.
Leitar að kjarna
Björn Jörundur stefnir að því
að fara aftur utan í haust og
halda áfram náminu en hann á
tvö ár eftir. Hann stefnir ekkert
frekar að því að leggja leiklist-
ina fyrir sig í framtíðinni þó
hann sé í þessu námi. Hann
bendir á að í skólanum sé
kennd leiklist, tónlist, hljóðupp-
tökur og því sé
þar tækifæri til
að gera allt í
einu, leika og
spila með nýju
fólki. Hann er
einmitt að leita
sér að kjarna
til að spila með
og býst við að
það verði kom-
ið á hreint í
haust.
Setu-
menning
Björn Jörundur
er ekki mjög
hrifinn af lífinu í Liverpool og
segist feginn að vera kominn
heim, nú geti hann andað ró-
lega þegar hann gengur um
göturnar. í Liverpool sé fátækt
og mikið af glæpum.
„Það er að mörgu leyti fínt
að vera í Bretlandi en mér
finnst Bretland glatað land að
búa í. Ég gæti aldrei verið lengi
þar. Þeir eru með góða popp-
tónlist og klassíska tónlist en
upp til hópa er þetta bara setu-
menning, Bretarnir fara á
pöbbinn og drekka volgan bjór.
Ég er ekkert hrifinn af þeim
sem slíkum. Ég vil miklu frekar
vera í Evrópu eða uppi á ís-
landi,“ segir hann. -GHS
Björn Jörundur Friðbjörnsson tónlistarmaður hefur verið að iæra leiklist í listaskóla Pauls McCartneys í Bretlandi
í vetur. Hann er kominn heim og ætlar sér að vera í tónlistinni í sumar.
BREF FRA REYKJAVIK
Reglur eða geðþóttaákvarðanir
Ægir Ágústsson
skrifar
að er svo sem langt síðan
að ég fékk upp í kok af
þeim sem greiða mér bæt-
ur, en nú get ég ekki lengur
orða bundist. Alveg síðan ég
var tekinn út af vinnumarkað-
inum árið 1995, hefur það verið
mikil þrautaganga að eiga við
Tryggingastofnun ríkisins.
Eg er flogaveikur sem
kannski er ekki mikil fötlun
miðað við mörg önnur veikindi,
en veikindi mín gera það að
verkum að það er mér hættu-
legt að vinna við þau almennu
störf sem í boði eru fyrir hinn
almenna verkamann.
Þegar ég var settur á örorku-
bætur var ég metinn 75% ör-
yrki. Ég var einhleypur og
ákvað að heija nám í starfs-
þjálfun fatlaðra sem nú nefnist
Hringsjá. Hugmyndin var sú að
læra eitthvað sem myndi henta
mér með tilliti til veikindanna
og vænlegasti kosturinn var að
heíja námsbrautina í Hringsjá.
Þar fylltist ég miklum eldmóði
og gekk mjög vel í náminu.
Eftir eitt ár í þessu námi,
kynntist ég stúlku sem er líka
öryrki og eftir að hafa verið í
sambandi í svolítinn tíma hóf-
um við sambúð. Við það urðum
við fyrir 30% tekjuskerðingu
sem þýðir að við höfðum tekjur
uppá 79.000 kr.
samanlagt og
þar af voru
mínar bætur
37.000 kr.
Núna í apríl
fæddist svo
yndislegur
drengur og
fengum við þá
barnalífeyri til
viðbótar. Það
hækkaði okkur
um 22.000 kr. á mánuði. Núna
um síðustu jól útskrifaðist ég úr
Hringsjá og hóf almennt nám í
Iðnskólanum. Ég þurfti svo að
fara í endurmat núna fyrir lok
júnímánaðar og var ég þá met-
inn 50% öryrki
og þýðir það að
ég fæ 10.600
kr. í örorku-
bætur á mán-
uði í stað
37.000 kr. og
við missum
helming barna-
lífeyris 11.000
kr. Alls er þetta
skerðing upp á
37.400 kr.
Rökstuðningurinn í þessu
mati var að ég væri í lánshæfu
námi og þess vegna fengi ég
ekki hærra mat. Af þessu öllu
virðist sem Tryggingastofnun
ríkisins sé í andstöðu við ljöl-
skyldumyndun og að öryrki fái
það tækifæri að læra til að geta
fundið sér vinnu sem hæfir
honum. Tryggingakerfið býður
hreinlega upp á að það sé reynt
að svindla á því. Við sjáum okk-
ur ekki lengur fært að vera í
sambúð og höfum því ákveðið
að slíta henni af þessum ástæð-
um. Þetta hefur ekki góð áhrif,
hvorki á foreldrana né barnið
okkar og gengur ekki upp íjár-
hagslega.
Tryggingakerfið
hýður hreinlega
upp á aðþað sé
reynt að svindla á
því.