Dagur - Tíminn Reykjavík - 04.06.1997, Blaðsíða 11
jDagur-SIímiitfr
Miðvikudugur 4. júnt 1997’- 23
WOM 01
VIGDÍS
STEFÁNSDÓTTIR
SKRIFAR
Vigdís svarar í símann í dag að venju, milli klukkan 9 og 10.
Ertu með spurningu, viltu ráð eða viltu gefa, skipta eða ... láttu
Vigdísi vita í síma 460 6100. Algjör trúnaðm- og nafnleynd ef þú
vilt. Símbréf til Vigdísar? Þá er númerið 551 6270.
Tölvupóstur til Vigdísar? Þá er netfangið vigdis@itn.is
— ojajuM
Hvað er í matinn?
Fyrirtaks hafraborgarar 8 dl vatn 1 hakkaður stór laukur 2 msk. sólblómafrœ 3 msk. sojasósa 1 tsk. laukduft 1 tsk. salt 'Z tsk. basil 'A tsk. oregano ’A tsk. hvítlauksduft 8 dl gróft haframjöl Sjóðið saman lauk og vatn í 10 mín. Bætið öllu hinu útí og sjóðið í nokkrar mínútur í viðbót og hrærið vel í á með- an. Kælið og mótið hamborg- ara úr deiginu. Bakið á bök- unarpappír í ofni við 175°C í um 30 mín. Snúið við og bakið í 15 mín. í viðbót. Gott að pensla með smjöri fyrir bakstur. Með þessu er tilval- ið að borða mikið af græn- meti, setja í hamborgara- brauð, eða búa til sósu og hella yfir.
Húsverk
Mér
Það er fátt jafn hund-
leiðinlegt og húsverk.
Sömu verkin daginn
inn og daginn út. Og maður
er ekki fyrr búin að skúra
gólfið, þvo þvottinn, ryksuga
húsgögnin eða þurrka af, en
maður þarf að gera þetta allt
aftur. Það er ekki einu sinni
svo gott að maður hafi ný
húsgögn eða ný föt hverju
sinni. Ónei, sömu gömlu hús-
gögnin og sömu gömlu fötin,
æ ofan í æ. Því miður fyrir
okkur kvenfólkið, þá virðist
heldur erfitt að þjálfa hinn
helminginn til þessara
verka, þeir einfaldlega skilja
alls ekki um hvað málið
snýst. „Ha, þurrka af, en ég
gerði það í síðustu viku“, eða
„ég er búinn að þrífa klósett-
ið, OG þvo vaskinn“. Þegar,
það sem eiginkonan átti við
þegar hún bað sinn elsku-
lega um að þrífa baðher-
bergið var auðvitað að gera
það eins og hún gerir, þ.e.
þurrka úr gluggasyllunni,
pússa spegilinn, strjúka
skápana að utan, kannski að
innan líka ef þarf; þrífa bað-
kerið/sturtuna, klósettið og
vaskinn, skipta um hand-
klæði og þvo gólfið. Og svo
framvegis.
Vinkona mín ein, sem er
afskaplega skipulögð og dug-
leg kona, fann góða lausn á
sínum húsverkefnum. Ilún
gerði lista yfir öll þau verk
sem vinna þarf á einu heim-
ili og skipti þeim niður á
daga, vikur og mánaðarverk.
Með því vannst ýmislegt. í
stað þess að vera alla daga
með nagandi samviskubit yf-
ir því að eiga nú eftir að þvo
datt það í hug!
þetta eða skúra hitt, þá var
það á hreinu að þetta verk
var unnið á mánudögum og
hitt verkið á fimmtudögum.
Og alltaf einhver hluti húss-
ins hreinn, og þó einhver
annar hluti væri ekki alveg
eins hreinn, þá var það þó
aldrei meira en 6 daga skít-
ur. Hinn kosturinn við þetta
skipulag var sá, að hver sem
er getur gengið í þessi störf,
meira að segja eiginmenn,
allt er niðurskrifað og skipu-
lagt og enginn misskilningur
á sér stað varðandi hvaða
verk á að vinna hverju sinni.
Það geta jú komið upp
smádeilur um gæði eða
standard, en það er minni-
háttar og leysist yfirleitt
fljótt, annaðhvort minnkar
gæðastandardinn eða við-
komandi tekur sig á.
Utankvótaýsa
með frábærri
karrýsósu
fyrir 4.
800 g ýsuflök
2 l vatn
2 msk. salt
1 msk. smjörlíki
Z laukur
Z tsk. kjötkraftur
Hvað er í matinn?
Z tsk. graslaukur
Z tsk. persilja
1 tsk. karrý
l'A tsk. hveiti
smávegis af mjólk
2 msk. smjör
Sjóðið fiskinn í saltvatninu í
um 5 mín. Potturinn tekinn af
hellunni og látinn standa í
aðrar 5 mín. Smjörlíkið brætt
á pönnu, smáttskorinn lauk-
urinn steiktur þar til hann er
mjúkur. Bætið kryddi og hveiti
útí og hrærið vel í. Bætið við 1
bolla af vatni og svolitlu af
mjólk eftir smekk. Setjið að
lokum 2 msk. smjör samanvið
og látið malla í 10 mín. og
hrærið í af og til. Berið fram
með soðnum kartöílum eða
hrísgrjónum.
TEITUR ÞORKELSSON
skrifar
Tvö
faðmlög
Lítum á tvö af rólegri faðm-
lögum faðmlagafræðinnnar:
í aftan frá faðmlaginu nálgast
faðmarinn þann sem á að
faðma aftan frá, leggur hand-
leggina um mitti hans eða
hennar og faðmar mjúkt og hlý-
lega. Það er gott að gefa þeim
sem stendur og flysjar kartöfl-
ur, hnoðar brauð eða þvær
pottana við eldhúsvaskinn.
Þetta er nokkuð gamaldags
faðmlag, enda notað mun
meira áður en uppþvottavélar
og heimilistæki komu til sög-
unnar, en þó enn í fullu gildi.
Að baki því liggur hamingjutil-
finning og stuðningur sem má
gera auðsjáanlegri með því að
taka upp viskustykkið og
þurrka. Þessi faðmlög eru fyrir
allt fólk í sambúð, vini sem
vinna við færiband eða eru
gjaldkerar og póstflokkunarfólk
og horfa mest í sömu átt í vinn-
unni.
Hlið við hlið faðmlag er sér-
lega gott faðmlag að gefa eða
þiggja þegar þið eruð á göngu.
Þið röltið hlið við hlið með
handlegginn um axlir eða mitti
hvors annars og þrýstið honum
svo þéttingsfast utan um hinn
við og við. Þetta faðmlag á líka
við þegar þú stendur í langri
biðröð með vini þínum og það
getur gert það vel þess virði að
standa í röðinni. Illið við hlið
faðmlagið skapar líka ánægju-
leg augnablik þegar þið eruð að
bíða eftir strætó eða í röð fyrir
utan bíó eða skemmtistað.
Flóamarkaður
Barnaföt, gefins
Ég vil gjarna gefa barnaföt,
þau eru af mörgum stærðum
og gerðum, frá nýfæddu upp
í 4 ára.
Margrét, sími 5667106.
Nintendo-loftvifta
Ég vil skipta á Nintendo
tölvu með tveim leikjum og
loftviftu. Ég heit Nonni og
síminn hjá mér er 566 7106.
Vantar
Mig vantar garðáhöld, jarð-
arberjakassa og tvíbreiðan
svefnsófa ef einliver vill gefa
slíkt.
Síminn hjá mér er 566 8634.
Málsháttastafróf úr
gömlu stafrófskveri.
Allt vill lagið hafa.
Á misjöfnu þrífast börnin besl.
Brennt barn forðast eldinn.
Drjúg eru morgunverkin.
Ekki er allt gull sem glóir.
Frelsi erfé betra.
Gefur góð móðir, þó hún geti ekki.
Hálfnað er verk þá hajið er.
Iðnin eykur alla mennt.
í þörf skal vinar leita.
Jafnan er hálfsögð sagan, ef einn segir.
Kornið fyllir mœlinn.
Litlu verður Vöggur feginn.
Mjór er mikils vísir.
Náið er nef augum.
Oft má satt kyrrt liggja.
Ótrú slœr sinn eigin herra.
Prjál og skraut kemur mörgum í þraut.
Raup er rags manns gaman.
Sannleikurinn er sagna bestur.
Tamur er barns vaninn.
Ungur má, en gamall skal.
Úti er þraut, þá unnin er.
Viskan er allra landa Ijós.
Yst við dyr skal óboðinn sitja.
Ýmsir eiga högg í annars garði.
Það verður hverjum að list, sem hann leikur.
Ætíð hefur iðjumaður nóg að vinna.
Öll él birtir upp um síðir.
Heilsugæslustöðin á Akureyri
Nýtt símanúmer:
460 4600
Þann 5. júní 1997 taka gildi ný símanúmcr í
Heilsugæslustöðinni á Akureyri.
Aðalsímanúmer stöðvarinnar verður 460 4600, en hægt verður að
hringja beint í flesta starfsmenn á símatímum þeirra.
Nánari upplýsingar er að finna í bæklingi, sem dreift hefur
verið til allra heimila í umdæmi stöðvarinnar.