Dagur - Tíminn - 07.09.1996, Síða 2
14 - Laugardagur 7. september 1996
iDagm-Cmmtn
FERÐAÞJONUSTA
Ellefta ferðakaupstefna
Vestnorden var haldin í íþrótta-
höllinni á Akureyri í vikunni. Yfir
600 manns víðsvegar að úr heim-
inum voru á staðnum og íþrótta-
höllin þvífull af tífi. Fulltrúar
ferðaskrifstofa og ferðaheildsala
röltu um milli óteljandi bása sem
íslensk, grœnslensk ogfœreyrsk
ferðaþjónustufyrirtœki höfðu
stillt upp til að kynna þjónustu
sína. Dagur-Tíminn var á staðn-
um, kíkti inn í nokkra bása og
spjallaði við gesti á
kaupstefnunni.
margir. Pessi vígalegi víkingur er frá Hafnarfirði og var á sýningunni til að kynna víkingahátíð, sem Hafnfirðingar
ætla að halda næsta sumar. Mynd: jhf
þega sem millilentu á Græn-
landi og þurftu að bíða fram á
næsta dag eftir tengiflugi, eða
fyrir farþega sem voru fastir
vegna veðurs. Upp úr 1980 fór
hinsvegar að verða algengara
að ferðamenn kæmu til Græn-
lands og sumir þeirra stoppa á
Hótel Narsarsuaq í nokkra
daga. Þó í Narsarsuaq búi ekki
annað fólk en það sem vinnur í
tengslum við flugvöllinn og
hótelið er ýmislegt í boði fyrir
ferðamenn á staðnum eins og
t.d. bátsferðir og ferðir upp á
jökul.
„Aðallega fáum við fólk frá
Evrópu og Japan,“ segir Martin.
„Almennt má segja að ferða-
menn sem koma til Grænlands
séu komnir yfir miðjan aldur og
hafl ferðast víða. Algengt er að
þeir hafi farið mörgum sinnum
til suðrænna landa og hafi
áhuga á einhverju nýju og
öðruvísi. Fæstir ferðamenn lesa
sér til um Spán áður en þeir
fara í frí þangað en þeir sem
hingað koma hafa flestir lesið
sér eitthvað til og eru áhuga-
samir um landið."
Martin segir ferðaþjónustu
sífellt mikilvægari atvinnugrein
í Grænlandi og við hana séu
miklar vonir bundnar. Hann er
mjög ánægður með samstarfið
við Island og Færeyjar. Vestnor-
den kaupstefnan sé góður vett-
vangur til að hitta fólk augliti til
auglitis sem hann hafi annars
aðeins samskipti við í gegnum
síma og þetta treysti tengslin.
„Jú, svo erum við hér auðvitað
til að ná í ný viðskipti. Um það
snýst þetta víst allt.“ AI
Martin Toft er Dani en
hefur búið á Grænlandi
undanfarna sex mánuði
þar sem hann er hótelstjóri á
Hótel Narsarsuaq. Hann segir
flesta Dani sem hann þekki í
Grænlandi kunna vel við sig,
sumir hafi verið þar í áratugi,
og sjálfur geti hann vel hugsað
sér að búa þar til lengri tíma.
„Það er fyrst og fremst fólk-
ið. Þarna býr vingjarnlegt og
heiðarlegt fólk,“ svarar Martin
þegar spurt er að því hvað það
sé við landið, sem heilli hann.
Hótel Narsarsuaq, þar sem
Martin vinnur, er staðsett í Suð-
vestur Grænlandi, nálægt
Narsarsuaq flugvelli, sem
Bandaríkjamenn byggðu í
seinni heimsstyrjöldinni. Upp-
haflega var hótelið ekki byggt
fyrir ferðamenn heldur ætlað
sem gististaður fyrir flugfar-
„Almennt má segja að ferðamenn sem komi til Grænlands séu komnir yfir
miðjan aldur og hafi ferðast víða,“ segir Martin Toft m.a. í viðtalinu.
Mynd: JHF
Sörine Bertelsen var einn fulltrúa frá Hotel Narsarsuaq á kaupstefnunni
og óhætt að segja að hún hafi verið þjóðlega klædd. Mynd: