Dagur - Tíminn - 07.09.1996, Blaðsíða 9

Dagur - Tíminn - 07.09.1996, Blaðsíða 9
ÍOagur-'CEtmtmt Laugardagur 7. september 1996 - 21 John Wayne alltaf á uppleið Sautján árum eftir andlát sitt nýtur .hann vaxandi hylli sem einn allra vinsæl- asti kvikmyndaleikari Banda- ríkjanna. Auglýsendur reyna að selja góssið sitt út á hans fræga nafn. Og stjórnmálamenn minnast hans sem hetju sinnar og fyrirmyndar og vitna til ódauðlegra setninga úr mynd- um hans. Bob Dole reyndi t.d. nýlega að sannfæra væntanlega kjósendur um það, í honum sé að finna það karlmenni og þann persónuleika sem einkenndi nokkrar þekktustu hetjurnar sem John Wayne túlkaði á hvíta tjaldinu. Pat Buchanan kvatti fiokksmenn sína til „að leggja á“ fyrir kosningaslaginn. Mottói John Wayne „Go west an keep right“ skaut sömuleiðis upp í bjórauglýsingu. f 11 síðna umfjöllun tímarits- ins The New Yorkers, um „hið ótrúlega líf eftir dauðann“ var m.a. leitt í ljós skoðanakönnum að John Wayne varð efstur á blaði þegar Bandaríkjamenn voru beðnir að nefna uppáhalds kvikmyndastjörnuna sína. Wayne skaut þar stórstjörnum eins og Clint Eastwood, Mel Gibson, Kevin Costner og Arn- old Scwarze- negger ref fyrir rass. John Wayne reyndist enn- þá tákn „Villta vestursins" til stórrar raun- ar fyrir þá sem reyna að feta í fótspor hans. Hollywood heiðraði hann nýlega — svo- lítið seint að ýmsra áliti — með Golden Boot verð- laununum, sem árlega eru veitt ein- hverri cow- boystjörnu. Og líkur eru nú taldar á að það verði Hertoginn, „The Duke“ eins og hann var kallaður sem hlýtur sérstakan „Óskar“, sem umtalaðasti leikari ársins. Enn er talið að áhuginn auk- ist þegar bandarískar sjón- varpsstöðvar hefja í þessum mánuði útsendingar á 12 tíma þáttaröð um þróunina í vestur- ríkjunum á síðustu öld. Núver- andi íbúar vesturríkjanna eru þó margir hverjir að verða þreyttir á cowboy-æði landa sinna, m.a. vaxandi straumi uppa sem síðari árin þyrpast til Klettaíjallaríkjanna; Montana, Wyoming og Colorado, þar sem þeir skipta út jakkafötunum og stresstöskunni fyrir cowboystíg- vel og söðla. Til að byrja með þótti fengur að þessum velstæðu gestum og dollurimum þeirra. En í fleiri og fleiri bæjum kvarta heima- menn nú yfir að „Vestrið" sé ekki lengur það sem það áður var. Óspillt víðátta sé að breyt- ast í úthverfi og golfvelli og svo- kallaðir „cappuccino-cowboy- ar“ séu komnir vel á veg með að breyta hinum hefðbundnu rodeo-sýningum heimamanna í hreina eftirlíkingu af „Rodeo- Drive“, þ.e. hina frægu verslun- argötu í Beverly Hills. Ýmsir óttast að áhrifin verði stórhækkað fasteignaverð sem hreki venjulegt launafólk frá heimabæjum sínum. Starfsmaður óskast Stórt stéttarfélag á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir starfsmanni. í starfinu felst m.a. útgáfa fréttabréfs, almannatengls o.fl. Hlutastarf kemur til greina. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist til blaðsins fyrir 13. september 1996 merkt: 2888. Öllum umsækjendum verður svarað. FJORÐUNGSSJUKRAHUSIÐ Á AKUREYRI Skrifstofumaður Laus er til umsóknar 100% staða skrifstofumanns á skrifstofu FSA frá 1. október nk. Staðan veitist til eins árs með möguleika á framlengingu. Um er að ræða vinnu við bókhald, launaútreikning og fleira. Umsækjandi þarf að hafa þekkingu á bókhaldi og góða hæfni og reynslu í tölvunotkun. Laun eru samkvæmt kjarasamningi STAK. Nánari upplýsingar um starfið veitir Vignir Sveinsson, aðstoðarframkvæmdastjóri FSA, og skulu umsóknir sendast honum fyrir 20. september nk. FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI - reyklaus vinnustaður - Meðlimir í Félagi íslenskra listdansara BALLETT SKÓLI Skúlatúni 4 Kennsla hefst miðvikudaginn 18. september Byrjenda- og framhaldsflokkar frá 4 ára Innritun og upplýsingar í síma 553 8360 frá kl. 15-18 Mál verkauppb o ð í SjaUamun simnudagskvöld Akurevrarmynd Krislínar Jónsdóttur írá því imi 1914. Galleri Borg hcldur málverkauppboð í Sjallanum sumiudaghm 8. september kl. 20.30. Boðin verða upp um 70 málverk, flest eftir þekktustu listameim þjóðarhmar, og má nefna verk eftir Jóhannes S. Kjarval, Ásgrim Jónsson, Jón Stefánsson, Gunnlaug Böndal, Jón Engilberts, Gumúaug Scheving, Mugg, Þórarin B. Þorláksson, Karólínu Lárusdóttur, Eirík Smith, Nhiu Tryggvadóttur, Snorra Arinbjamar. Þá verða boðnar upp tvær myndir eftir Kristínu Jónsdótturogerömiurmáluð áAkureyrium 1914. Ehinig verða boðin upp persnesk teppi. Uppboðsverkiii eru sýnd í Mánasal Sjallans laugardagmn 7. og suunudagiun 8. september kl. 14-18. Listmunir-Sýningar-Uppboð Art dcalers - Exhibitions -Auction Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði FSÍ óskar að ráða hjúkrunarfræðinga í lausar stöður á legudeildum (Bráðadeild og Öldrunar- deild) sem fyrst, eða eftir nánara samkomulagi. Umsóknarfrestur er til 23. september nk. Hjúkrunarfræðingar eru hvattir til að afla sér upplýs- inga um starfsaðstöðu og kjör. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri eða hjúkrunardeild- arstjóri Bráðadeildar í síma 456 4500. FSÍ er nýtt sjúkrahús, mjög vel búið tækjum, með fyrsta flokks vinnu- aðstööu. Spítalinn þjónar norðanverðum Vestfjörðum. Við veitum skjólstæðingum okkar alla almenna þjónustu á sviði skurð- og lyf- lækninga, fæöingarhjálpar, öldrunarlækninga, slysa- og áfallahjálpar og endurhæfingar. Starfsemin hefur verið í örum vexti á undanförn- um árum. Er það fyrst og fremst að þakka metnaðarfullu starfsfólki, nýjum og góðum tækjabúnaði, fyrirmyndar vinnuaðstöðu og ánægð- um viðskiptavinum. Starfsmenn FSÍ eru um 100 talsins. ----------------------------------------------------------------------------"\ AKUREYRARBÆR Aukavinna Óskum eftir fólki til að sinna stuðningi við börn og unglinga og tilsjón við fjölskyldur. Hér er fyrst og fremst um að ræða hlutavinnu sem í flestum tilfellum er unnin seinnipart dags, á kvöldin og/eða um helgar. Boðið verður upp á námskeið sem er fyrirhugað í lok september. Skráning og allar nánari upplýsingar eru veittar á Félagsmálastofnun Akureyrar, Glerárgötu 26, sími 460 1420 hjá Önnu Marit eða Guðrúnu Höllu fram til 13. september. J

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.