Dagur - Tíminn - 07.09.1996, Side 10

Dagur - Tíminn - 07.09.1996, Side 10
22 - Laugardagur 7. september 1996 JQagur-ÍEmrám Kafað innan um risaskjaldbökur, skips- flök og kóralrif Þrír Eyjapeyjar létu sér ekki nægja að dreyma heldur skelltu sér í draumaköfunarferð sína til Jamaíku og lentu í ævintýrum ofansjávar og neðan. Draumur allra kafara; hreinn og tær sjór við Jamaíku og að synda innan um risaskjaldbökur, skipsflök og kóralrif, slappa svo af á ströndinni innan um yngis- meyjar með gott í glasi. Þrír ungir Vestmannaeyingar létu sig ekki nægja að dreyma, líkt og Eyjapeyja er von og vísa. Þessir hressu piltar skelltu sér í draumaferðina sína fyrr á árinu til Jamaíka og lentu í ævintýr- um ofansjávar og neðan. Þremenningarnir Sighvatur Bjarnason, Gunnlaugur Er- lendsson og Hjálmar K. Helga- son, allir rúmlega tvítugir, undu sér á sundskýlum í 20 gráðu heitum sjónum dag eftir dag við bestu hugsanlegu kafaraað- stæður við strendur Jamaíka. Þeir dvöldu í þrjár vikur á vest- urströnd Jamaíka, í þorpinu Negril, og fóru út gagngert til þess að kafa og auðvitað til að njóta lífsins lystisemda á þess- ari reggae-eyju. Draumaköfunarferðin til Jamaiku kom fyrst til tals síð- astliðið sumar þegar þremenn- ingarnir voru á köfunarnám- skeiði. Allir hafa þeir haft brennandi áhuga á köfun í mörg ár og eru starfandi hjá Björgunarfélagi Vestmanna- eyja. Ævintýraleg næturköfun „Ferðin stóð undir öllum okkar væntingum og gott betur. Þarna voru skipulagðar köfunarferðir tvisvar á dag. Stundum var næturköfun sem var hreint æv- intýraleg. Skyggni í sjónum við Jamaíku er frábært eða 30 til 40 metrar. Við íslandsstrendur má þakka fyrir ef skyggnið nær sjö metrum, sem segir ýmislegt um skilyrðin. Við köfuðum mest niður á 50 metra dýpi, á sund- skýlunum, en ekki er ráðlagt fyrir sportkafara að kafa dýpra en 40 metra. Hins vegar voru aðstæður hinar ákjósanlegustu þannig að við biðum ekki tjón af,“ segir Sighvatur. Gunnlaugur segir að um- hverfið í sjónum hafi verið hreint ævintýri. „Við köfuðum una í þorpinu Negril brutust út óeirðir. Bærinn logaði í óeirðum en þeim tókst að komast lifandi út úr því. Að lokinni þessari ævintýra- ferð til Jamaíka komu þre- menningarnir við á Miami í Bandaríkjunum. Þar fóru þeir m.a. inn í kafarabúð og hálf- partinn töpuðu sér þar inni. Þurftu að hringja heim til ís- lands til að fá aukaheimild á kortin en fyrir vikið voru þeir mjög vel búnir tækjum til köf- unar! Viðbrigðin frá heitum og þægilegum sjónum við Jamaíkastrendur og að fara í ískaldan sjó við íslandsstrendur voru mikil. En það var huggun harmi gegn að hvergi er betra að kafa við íslandsstrendur en við Vestmannaeyjar. ÞoGu/Eyjum innan um kóralrif, í hella, skipsflök og flugvélaflök. Þarna voru tvö flugvélaflök og okkur skilst að öðru þeirra hafi verið komið fyrir þarna. Mikið var af smáfískum í öllum regnbogans litum. Sem dæmi voru þarna barracuda og murenier, að ógleymdum risaskjaldbökunum. Við náðum taki á einni slíkri en hún var fljót að sparka okkur af. Reyndar var okkur svo bannað að leika þetta því risa- skjaldbökurnar þola ekki svona áreiti." Þremenningarnir fóru einnig í næturköfun og segja henni vart lýst með orðum. Hún var með ólíkindum. Þeir urðu varir við mikið af risahumri og kol- krabba. Þá fylltist sjórinn af ljósátu sem eru lítil skorkvik- indi. Þegar þeir slökktu á Ijós- unum var sjórinn iðandi. Þeir voru sterklega varaðir við að lýsa framan í hvern annan því þá settist ljósátan í andlitið og gat verið lífshættulegt. Ævintýri ofansjávar og neðan Þeir félagar Iærðu einnig mikið af köfuninni, t.d. svokallaða af- þrýstibið sem felst í því að fara upp á yfirborðið í þrepum til að koma í veg fyrir köfunarveiki. Lengst voru þeir í kafi í eina klukkustund og tíu mínútur en við íslandsstrendur eru kafarar ekki lengur en 45 mínútur í einu undir yfirborði hafsins. Þeir hvetja allt áhugafólk um köfum að skella sér til Jamaíka, sérstaklega yfir vetrartímann til að stytta veturinn. Ævintýri piltanna gerðust einnig ofansjávar. Síðustu vik- Jamaíka Jamaíka er eyríki í Karíbahafi í Vestur-Indíum. Þetta er há- lend eldfjallaeyja og liggur meginíjallgarðurinn um miðbik hennar frá austri til vesturs. Láglendið er við ströndina og góðar hafnir. Á Jamaíku er hitabeltisloftslag, þarna er kon- ungsríki og íbúafjöldi tæpar þrjár milljónir. Eyjan er níundi hluti af stærð íslands. Meðal ævilengd er 68 ár Kjá körlum og tæp 73 ár hjá konum. Opinbert mál er enska og mót- mælendur eru í meirihluta. Helstu útflutningsvörur eru báxíti, sykurreyr, bananar, kaffi og tóbak. Miklar tekur eru af ferðaþjónustu. Kólumbus fann eyjuna 1494 og skömmu síðar útrýmdu Spánverjar innfæddum. Eyjan var spænsk nýlenda frá 1509 til 1655 en þá lögðu Englendingar hana undir sig og varð hún miðstöð þrælaverslunar til ársins 1833. Jamaíka fékk heimastjórn 1944 og fullt sjálfstæði inn- an breska heimsveldisins 1962.

x

Dagur - Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.